Dagblaðið - 12.02.1979, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
19
Eþróttir
Iþróttir
i
Hörður Gunnarsson afhendir Hjálmi skjöldinn eftir glimuna. DB-mynd Hörður
Óvæntur sigur KA
áKR-ingum
— í 2. deild í handknattleik á laugardag
KA frá Akureyri kom mjög á övart á
laugardag með þvi að sigra KR — efsta
liðið í 2. deild — örugglega, 28-22, í
Laugardalshöll. öruggur sigur og sann-
gjarn en greinilegt að KR-ingar hafa van-
metið KA, þvi KR náði aldrei svipuðum
leik og gegn Ármanni á dögunum.
KA lék skynsaman handknattleik og
þeir Jón Árni Rúnarsson og Alfreð
Gíslason beinlínis skutu KR á bólakaf.
Þeir skoruðu hvor um sig niu mörk og
lögðu grunn að öruggum sigri KA.
Norðanmenn höfðu yfir i leikhléi, 13-11,
og í siðari hálfieik jók KA yfirburði sína.
Það er greinilegt að undir stjórn Birgis
Björnssonar, fyrrum formanns landsliðs-
nefndar HSÍ, er KA að ná sér á strik en
gengi KA í vetur hefur verið skrykkjótt.
Þrátt fyrir ósigur er staða KR nú sterk-
ust í 2. deild — og þar geta KR-ingar
þakkað óvæntum ósigri helztu andstæð-
inga sinna, Ármanns, gegn Stjörnunni í
Garðabæ. Ef til vill hafa þeir þá álitið
sigur í 2. deild nánast vísan — slíkt kann
ekki góðri lukku að stýra.
Stjarnan opnaði
2. deild upp á gátt
— með sigri gegn Ármanni í Garðabæ
Stjarnan, Garðabæ sigraði övænt Ár-
mann 19—18 i 2. deild islandsmótsins i
handknattleik á föstudagskvöldið. Þessi
óvæntu úrslit beinlinis opnuöu 2. deildina
upp á gátt — nú eiga öll lið i 2. deild utan
Leiknir möguleika á tveimur efstu sæt-
unum i 2. deild — svo jöfn er baráttan.
KR er í efsta sæti — hefur tapað fæst-
um stigum, 6 — en Þróttur, Þór Akur-
eyri hafa tapað sjö stigum, Ármann,
Þór, Eyjum hafa tapað 8 stigum og KA
og Stjarnan 10 stigum — slík er baráttan
i 2. deild.
Ármann náði undirtökunum gegn
Stjörnunni í Garðabæ I fyrri hálfleik.
komst i 7—4. En staðan í leikhléi var
10—10. í síðari hálfleik náði Stjarnan
undirtökunum, komst í 17—14 og þegar
mínúta var eftir, 19—16 — mest fyrir
mjög góðan leik Birkis Sveinssonar í
markinu. Ármann náði að minnka mun-
inn í eitt mark — en sigur Stjörnunnar
var i höfn, 19—18. Eyjólfur skoraði
mest fyrir Stjörnuna, 8 mörk en þeir
Pétur Ingólfsson og Björn Jóhannsson 5
mörk hvor fyrir Ármann.
Ármann gekk á lag-
ið í síðari hálfleik
— ef tir að KA haf ði yfir í leikhléi.
Armann sigraði 24-18
Ármann styrkti stöðu sina i 2. deild
með sigri gegn KA i Höllinni i gær, 24—
18. En sigur Ármanns var alls ekki jafn
auðveldur og tölurnar bera með sér — i
fyrri hálfleik hafði KA undirtökin, var
betra liðið, og I leikhléi hafði KA yfir,
9—7. Það virtist þvi stefna i óvænt úrslit,
rétt eins og daginn áður er KA sigraði
efsta liðið i 2. deild, KR. En Ármenning-
ar tóku öll völd i sínar hendur i siðari
hálfleik, leikur KA beinUnis hrundi og
'þvi sigur Ármanns, 24—18.
Ármann náði þvi sér á strik eftir hið
óvænta tap gegn næstneðsta liðinu i 2.
deild, Stjörnunni á föstudag. Þeir Pétur
Ingólfsson, Friðrik Jóhannsson og Þrá-
inn Ásmundsson lögðu grunn að örugg-
um sigri Ármanns. 1 markinu varði
Ragnar Gunnarsson vel — sóknarmenn
KA áttu mjög i vök að verjast. Þá og
náðu varnarmenn KA ekki að koma
nógu vel út á móti skyttum Ármanns,
þeim Friðriki og Pétri. En mörg voru
þau skotin er ekki hefðu farið inn hjá
markvörðum 1. deildar — slik var mark-
varzlan hjá KA í síðari hálfleik.
Ármann náði að jafna, 9—9, eftir að
KA hafði haft yfir, 9—7 í leikhléi. Og
Pétur Ingólfsson kom Ármanni yfir,
11—10. Eftirleikurinn var næsta auðveld-
ur, að visu jafnt, 13—13, en Ármann
komst í 15—13, síðan 19— 15 og örugg-
ur sigur í höfn, 24—18. Baráttan í 2.
deild er nú i algleymingi og öll lið utan
Leiknir eygja möguleika á tveimur efstu
sætunum — slik er baráttan.
Hjálmur sigurvegari í
67. Skjaldarglímunni
Sigraði alla keppinauta sína nema Guðmund Frey Halldórsson
Hjálmur Sigurðsson, Vikverja, varð
sigurvegari i 67. Skjaldarglimu Ár-
manns, sem glimd var i iþróttahúsi Fella-
skóla i gær. Hjálmur lagði alla keppi-
nauta sina nema Guðmund Frey Hall-
dórsson, Ármanni, Jafnglimi varð hjá
þeim. Mótið fór mjög vel fram — og vel
var glimt. Áhorfendur um 200 og margir
ungir meðal þeirra en frir aðgangur var
fyrir börn og unglinga á gUmuna.
Hörður Gunnarsson setti gUmumótið og
afhenti verðiaun i mótslok.
Úrslit urðu þessi:
1. Hjálmur Sigurðsson, Víkv. 5.5 v.
2. Guðm. Freyr Halldórsson, Á, 4.5 v.
3. Sigurjón Leifsson, Á, 3.5 v.
4. Guðm. Ólafsson, Ármanni, 2.5 v.
5. HalldórKonráðsson, Víkv. 2 v.
6. -7. Ólafur Ólafsson, KR og
Helgi Bjarnason, KR, 1.5 v.
Það stefndi lengi vel í úrslitaglímu
milli Hjálms og Guðmundar Freys en
þau óvæntu úrslit urðu I síðustu glímu
Guðmundar Freys að hann féll fyrir
Sigurjóni. Þá var glíma Hjálms og Guð-
mundar Ólafssonar skemmtileg. Þar var
spurning hvort Hjálmur hefði fallið —
ýmsir áhorfenda voru á því, en dómar-
arnir dæmdu ekki fall. Hjálmur sigraði
svoíglimunni.
Glímustjóri var Ólafur Guðlaugsson
en Garðar Erlendsson yfirdómari.
1»
Hjálmur, til vinstri, glimir við Guðmund
Frey. Jafnglimi.
DB-mynd Hörður.
P0STSENDUM
DíkClfÍAA /f.
ALLAR STÆRÐIR
FRÁ KR. 2.750.
Sportvöruverslun Hafnarstræti 16 simi 24520