Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 21

Dagblaðið - 12.02.1979, Síða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979. >ttir Bþróttir Iþróttir iþróttir m. varði 5 víti - Valur i FH með 4 mörkum II markvarsla lagði grunn að sigri Vals á FH í Haf narfirði í gær. Úrslit 20-16 þá vel í marki FH. Magnús Ólafsson Vals. Staðan var þá 7-6 fyrir FH og Brynjar byrjaði strax á að verja með glæsibrag. FH-ingum urðu hins vegar á hin furðulegustu mistök — köstuðu knettinum hvað eftir annað út af og leik- urinn var mjög slakur hjá þeim á þess- um kafla. Valsmenn gengu á lagið og skoruðu næstu sex mörk. Breyttu stöð- unni 112-7 og sigur þeirra var i höfn. Öli Ben. kom nokkrum sinnum inn á til að verja viti — og það gerði hann af hreinni snilld. Varði fimm viti í allt — tvö frá Geir og eitt frá Viðari, annað frá Janusi og hið þriðja frá Guðmundi Árna. Það var þýðingarmikið fyrir Valsmenn þvi i lokin sigruðu þeir með fjögurra marka mun. Að visi vörðu markverðir FH tvö vitaköst í leiknum — en vitaköstin réðu þó miklu um úrslitin. Þetta var átakaleikur en ekki að sama skapi vel leikinn. Varnarleikur Vals þó yfirleitt sterkur — en sóknarleikurinn mjög einhæfur oftast. Þó sáust góðir sprettir hjá Jóni Pétri, Bjama Guð- mundssyni og Steindóri Gunnarssyni en þó of fáir hjá meistaraliði. FH hafði í fullu tré við Valsmenn lengstum — nema lokakafla fyrri hálfleiks. Þá stóð ekki steinn yfir steini í leik liðsins. Ótrú- legar villur — vörn engin — það svo að Valsmenn gátu oftast gengiö einir að vitateig FH og skorað að vild. Ég man varla eftir því gegnum árin að hafa séð leins hroðalegan leikkafla hjá FH. | Framan af benti fátt til þessa hruns FH. Leikurinn mjög jafn fyrsta stundar- fjórðunginn og FH-ingar skoruðu yfir- jleitt á undan. Allar jafnteflistölur upp í |6-6 og Valsmenn aðeins einu sinni yfir, 5-4, eftir að Óli Ben. hafði varið fyrsta víti sitt í leiknum. Valsmenn brunuðu lupp og Bjami Guðmundsson skoraði. Sæmundur Stefánsson kom FH i 7-6 og Brynjar Kvaran kom í mark Vals. Hann látti hreint út sagt stórkostlegan leik — Ivarði hin ótrúlegustu skot FH-inga, einkum í síðari hálfleiknum. Steindór Gunnarsson jafnaði fyrir Val i 7-7 og jsíðan náði Valur i annað skipti forustu í lleiknum með marki Jóns H. Karlssonar. Á eftir fylgdu fjögur mörk Vals og jafn- vel leikreyndustu mönnum FH eins og Viðari Símonarsyni urðu þá á hinar furðulegustu skyssur. Ekki heil brú í leik ;FH, og þó voru leikmenn liðsins vel Istuddir af um 800 áhorfendum. Mikið hrópað í íþróttahúsinu. Staðan í hálfleik ! 13-8 fyrir Val og það virtist nánast' iformsatriði að Ijúka leiknum. j En FH-ingar komu ákveðnir til leiks í jsíðari hálfleik og byrjuðu strax að saxa á Óli Ben. — varði fimm vitaköst. forskot Vals. Skoruðu þrjú fyrstu mörk hálfleiksins og Sverrir Kristinsson varði hafði verið slakur í fyrri hálfleiknum. Sóknarleikur Vals í algjörum molum og það var ekki fyrr en eftir 12 minútna leik að Valur loks skoraði mark. Fyrirliðan- um Stefáni Gunnarssyni var þá farið að leiðast þófið — brauzt upp á sitt ein- dæmi gegnum vörn FH og skoraði með föstu skoti. Einstaklingsframtak, en áður hafði Valsmönnum mistekizt allt. Gátu meira að segja ekki skorað þótt þeir væru einum fleiri. Geir vísað af leik- velli. En þegar ísinn var loksins brotinn fylgdu fleiri Valsmörk i kjölfarið. Viðari vísað af velli — og Valsmenn komust í 16-11 með mörkum Jóns Péturs, víti, og Bjarna. Þá fengu FH-ingar tvö víti í röð og Óli Ben. kom í markið. Varði fyrst frá Geir með glæsibrag — síðan frá Janusi og þar fór síðasti möguleiki FH-inga til að ógna sigri Vals. Aðeins tíu minútur eftir og fimm marka munur Val í hag ,var hinum leikreyndu leikmönnum liðs- ins nóg veganesti. Litlar sveiflur í markaskoruninni það sem eftir var leiks- ins. Fjögurra til fimm marka munur Val í hag og þýðingarmikil stig i höfn, þó það sé nú ekki mikið afrek að vinna FH eins og liðið leikur í dag. Það var lika um- hugsunarefni fyrir FH-inga hvernig víta- köstin fóru flest — en á lokaminútunni gerði Guðmundur Magnússon sér lítið fyrir og skoraði af öryggi úr viti hjá Óla Ben. Það fer ekki á milli mála að það var markvarzlan, sem bjargaði sigri Vals i þessum leik. Brynjar hefur sjaldan varið með eins miklum glæsibrag — og þá var þáttur Óla Ben. ómetanlegur fyrir liðið, þó ekki væri hann sjálfum sér líkur í markvörzlunni fyrsta stundarfjórðung- inn. Hins vegar var þetta í heild ekki góður leikur hjá Valsliðinu enda erfitt að leika í Hafnarfirði gegn FH. Jón Pétur var harður í markaskoruninni og glæsisprettir hjá Bjarna vöktu verð- skuldaða athygli. Varnarleikur FH var oft sæmilegur — barátta í vörninni — en merkilegt hvað sóknarleikurinn staðnaði eftir góða byrjun. Meira að segja Geir náði sér ekki á strik enda vel gætt — en Guðmundur Árni Stefánsson var snjallastur FH-inga. Átti einn sinn bezta leik með liðinu — en það er greini- legt að FH stefnir niður á við. Mörk Vals skoruðu Jón Pétur 8/3, Bjarni 4, Steindór 4, Þorbjörn Guð- mundsson 2, Jón Karlsson og Stefán eitt hvor. Mörk FH skoruðu Guðmundur Árni 6, Geir 4/3, Guðmundur Magnús- son 2/1, Valgarður Valgarðsson, Krist- ján Arason eitt hvor, og Sæmundur Stefánsson tvö. Dómarar voru Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson. Þeir dæmdu 9 vítaköst á Val — fimm á FH. Fjórum leikmönnum FH var vikið af velli í tvær mín. hverjum og einum Valsmanni. - hsím. Loksins sigraði Sten- mark í svigkeppninni — Hlaut tvöfaldan sigur í stórsvigi og svigi í Are íSvíþjóð um helgina Ingemar Stenmark sigraði örugglega I svigkeppni heimsbikarsins i Are i Svf- þjóð i gær. Náði bcztum brautartima i báðum umferðum eins og i stórsviginu á saman stað daginn áður. Hann jók stiga- tölu sina samanlagt um fimm stig — hefur nú 149 stig og getur mest náð 150 stigum nema hann taki þátt f brunkeppni með árangri. Stenmark er aðeins f þriðja sæti samanlagt — 32 stigum á eftir Peter Liischer, Sviss, sem er efstur með 181 stig. Annar er Phil Mahre, USA, með 155 stig en eftir að stigaútreikningum var breytt sl. haust var Phil Mahre talinn sigurstranglegastur f keppninni f vetur. 1 fyrri umferðinni í Are í gær keyrði Stenmark hina 600 metra braut — fall- hæð 160 metrar — á 45.46 sek. og var vel á undan bandarísku tviburunum Phil og Steve Hamre. Þeir voru jafnir i öðru sæti á 46.03 sek. en fjórði var Phillip Hardy, Frakklandi, á 46.21 sek. Hann var með beztan brautartima í efri hluta brautarinnar. Fékk þar 20.44 sek. 17/100úr sekúnduá undanStenmark. í síðari umferðinni náði Stenmark aftur beztum tíma 50.31 sek. Brautin var þá aðeins lengd og kappinn frægi Gustavo Thöni kom næstur Stenmark á 50.34 sek. Færist við það upp í þriðja sæti. Sigurður Jónsson frá lsafirði átti að taka þátt í keppninni. Ekki var minnst á hann í fréttaskeyti Reuters og hann var ekki meðal tuttugu beztu. Úrslit urðu þessi: 1.1. Stenmark, Sviþjóð, 1:35.77 2. Phil Mahre, USA 1:36,67 3. G. Thöni, Ítalíu, 1:36.78 4. SteveMahre, USA, 1:37.12 5.0rlainsky, Austurr. 1:37.37 6. P. Popangelov, Búlg., 1:37.48 7. Piero Gros, Ítalíu, 1:37.57 8. T. Jakobsson, Svíþjóð, 1:38.02 9. H. Gstrein, Austurríki, 1:38.21 10. HansEnn, Austuríki, 1:38.25 Heimsmet og meistaramóts- met í öllum skautahlaupum - Ótrúlegir yfirburðir Bandaríkjamannsins Eric Heiden í heimsmeistaramótinu Bandaríski skautahlauparinn Eric Heiden, sem aðeins er tvftugur að aldri, hafði hreint ótrúlega yfirburði f heims- meistarakeppninni f skautahlaupum, sem háð var I Osló um helgina. Sigraði f öllum hlaupunum fjórum — setti nýtt heimsmet samanlagt og fjögur meistara- mótsmet. Heiden var heimsmeistari þriðja árið f röð og eftir keppnina i Osló tilkynnti hann, að hann mundi nú hætta keppni. Eric Heiden byrjaði á því á laugardag að hlaupa 500 metra á 38.22 sek. og bætti meistaramótsmet sitt um 0.58 sek- íOslóum helgina úndur. Norðmaðurinn Jan Egil Storholt — hinn eini, sem talinn var geta veitt Bandarikjamanninum einhverja keppni — varð annar á 39.03 sek. í 5000 metra hlaupinu síðar um dag- inn hafði hinn tvítugi Heiden frá Madison, Wisconsin, enn meiri yfir- burði. Sigraði á 6:59.15 min. og bætti meistaramótsmetið um nær sjö sekúnd- ur. Það átti Hans Van Halden, Hol- landi, og það var 7:06.40 mín. Annar i 5000 metrunum varð Mike Wood frá Bandaríkjunum á 7:10.93 mín. og Sjö- brand, Noregi, varð þriðji á 7:11.22 mín. Á sunnudag var fyrst keppt í 1500 m hlaupi — beztu vegalengd Heiden. Þar varð hann líka langfyrstur. Hljóp vega- lengdina á 1:56.05 min. sem er bezti tími hans á vegalengdinni og meistaramóts- met. Annar varð Kay Stenshjemmet, Noregi, á 1:59.60 min. og þriðji Vladimir Lobanov, Sovétríkjunum, á 2:00.12 min. Heiden þurfti nú litið annað að gera en að koma í mark í síðustu greininni, 10000 metra hlaup- inu, til að sigra og hljóta heimsmeist- aratitilinn. En hann var þar einnig í al gjörum sérflokki. Sigraði á 14:43.11 mín. og fjórða meistaramótsmetið var staðreynd. Langfyrstur. Næstur kom Loshkin, Sovétrikjunum, á 14:58.74 mín. og þriðji varð Yamamoto, Japan, á 14:58.93 mín. Woods varð fjórði á 14:59.03 min. og Storholt fimmti á 15:04.62 mín. Úrslit samanlagt urðu þessi: 1. Erik Heiden, USA, 162.973 2. Storholt, Noregi, 167.805 3. Stenshjemmet, Noregi, 167.903 4. Woods, USA, 168,497 5. Loshkin, Sovét, 168.660 Olafur H. leikur á Spáni „Jú, það rættist úr öllum þessum málum svo ég get leikið með fslenzka landsliðinu f Olympfu- og B-keppninni á Spáni,” sagði Ólafur H. Jönsson, lands- liðskappinn kunni f Dankersen, þegar DB ræddi við hann f gær. Sem kunnugt er sendi Ólafur HSÍ skeyti f sfðustu viku, þar sem hann tilkynnti að hann gæti ekki leikið á Spáni af persónuiegum ástæðum. „Ég mun tilkynna landsliðsnefnd á morgun — mánudag — að ég geti leikið og við Axel Axelsson munum fara héðan frá Minden þriðjudaginn 20. febrúar. Ættum þvf að koma sama dag til Spánar og landsliðshópurinn að heiman,” sagði Ólafur ennfremur. Heimsmet íþrfstökki Gennady Valyukevich, tvftugur Sovét- maður, setti nýtt heimsmet f þrístökki innanhúss, þegar hann stökk 17.18 metra á móti f Minsk i gær. Það var tveimur sentimetrum betra en eldra heimsmetið var — en hinn snjalli Viktor Saneyev, margfaldur olympfumeistari, átti það. Fram sigraði í skíðaboðgöngu Sex svcitir tóku þátt f skfðaboðgöngu í Bláfjöllum á laugardag á vegum Fram. Tvær sveitir voru frá Fram. Tvær frá Skfðafélagi Reykjavfkur og tvær frá Hrönn. Færi var þungt. Gengnir voru þrisvar sinnum sjö kflómetrar. Úrslit urðu þessi: 1. A-sveitFram 82.47 2. A-sveit SR 94.39 3. A-sveit Hrannar 100.33 4. B-sveitFram 108.04 5. B-sveitSR 115.00 5. B-sveit Hrannar 120.39 Halldór Matthiasson, Fram, náði beztum brautartima 25.13 mín. Sveinn Guðmundsson, SR, var með annan beztan tima 28.27 min. og Páll Guð- björnsson, Fram, þann þriðja 28.47 mín.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.