Dagblaðið - 12.02.1979, Blaðsíða 39
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1979.
I
Utvarp
Sjónvarp
f Lmnenition
MYKDLISTARÞÁTTUR - útvarp í kvðld kl. 22.55:
Gestur og Rúna
í myndlistarþætti sinum í kvöld ræðir
Hrafnhildur Schram við hjónin Gest
Þorgrímsson og Sigrúnu Guðjónsdóttur
um leirkeragerð o.fl.
Þetta eru óvenjuhugguleg og sam-
hent hjón. Bæði áttu þau muni á sýning-
unni Líf i leir (henni lauk í gær) en oft
vinna þau bæði að sama hlutnum og það
er þá gjarna svo að hann mótar formið
en hún skreytir. En stundum segjast þau
varla vita hvort hefur gert hvað.
Þeirra bíður nú geysimikið verkefni:
sumsé að skreyta áttatiu metra langan
vegg inni í Laugardal.
En þótt Gestur og Rúna séu samhent
standa þau vel fyrir sínu sem ein-
staklingar.
Sigrún er nýorðin formaður FlM og
Gestur er lektor við Kennaraháskólann.
Hún hefur oft unnið verðlaun fyrir
postulínsmuni sína og hann hefur oft
verið á undan öðrum með ýmsa til-
raunastarfsemi.
Á sínum tíma tók hann þátt í samsýn-
ingu framúrstefnuhópsins Linien 2 i
Kaupmannahöfn. Þeir fengu inni • á
kránni Tokanten og var þetta umtalaður
listviðburður. Gestur varð einnig fyrstur
manna til að búa til samsetta útvarps-
þætti. Til þess þurfti að fá leyfi til að
klippa niður segulbönd en fyrstu árin
var bannaö að leika sér þannig með
þessa merkilegu borða.
Nú eru samsettir þættir orðnir vinsæl-
asta efnið í útvarpinu og i þeim allra vin-
sælasta, 1 vikulokin, var fyrra laugardag
einmitt rætt við Gest um þessar fyrstu
tilraunir.
- IHH
SÍfeiÉ
YFIR
5000 BÍLAR
Á 3 árum hafa selzt yfir 5000
LUMENITION kveikjur á íslandi.
Þetta væri óhugsandi, nema ánægðir
kaupendur hefðu mælt með ágæti
búnaðarins.
Hefur þú kynnt þér kosti LUMENITION platinulausu
kveikjunnar?
HABERG ht
Ifunni 3e*Simi 3*33*45
Gestur og Rúna i göðu skapi, liklega nýbúin að búa til einhvern fallegan hlut sem þau
eru ánægð með. Nema þau séu bara að leika sér.
SKÝJAÐ LOFT—sjónvarp íkvöld kl. 21.00:
ÞEGAR KARLINN FER
AÐ YNGJA UPP
Vinsœlustu
herrablöðin
BOUhOsio
Laugavegé 178 - Sími 86780
í kvöld verður flutt brezkt sjónvarps-
leikrit í islenzka sjónvarpinu. Nefnist
það Skýjað loft og er eftir Paul nokkurn
Jones.
Leikritið greinir frá hjónunum Katy
og Russell Graham sem gift hafa verið í
7 ár. Hjónabandið gengur ekki sem bezt
og Russellfer að stunda drykkju á krá I
nágrenninu. Þar hittir hann unga stúlku
og þau fara að vera saman. Þó hann segi
stúlkunni að hann sé giftur lætur hún
það ekki á sig fá og þau halda áfram að
hittast. Þegar karl hættir að koma heim
á þeim tima sem „pubinn" lokar fer
eiginkonuna að gruna margt.
Aðalhlutverkin i leikritinu leika þau
Diane Fletcher, Charles Keating og
Irene Richard. Leikstjóri er John Keye
Cooper. Þýðandi leikritsins er Óskar
Ingimarsson.
-DS.
Charles Keating leikur Russell Graham
Útvarp
i
Mánudagur
12. febrúar
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
I3.20 Lilli barnatíminn: „Að cignast systkini”.
Unnur Stefánsdóttir sér um tímann. M.a.
verður talað við Irpu Sjöfn Gestsdóttur sem
nýverið hefur eignast systur.
13.40 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Hítsið og hafið” eftir
Johann Bojer. Jóhannes Guðmundsson þýddi.
Gísli Ágúst Gunnlaugsson les (131.
15.00 Miðdeglstónleikar: íslenzk tónlist.
16.00 Fréttir.
fregnirl.
Tilkynningar. (16.15
Veður-
llCglllll.
16.20 Popphorn: Þorgeir Ástvaldsson kynnir.
17.20 Framhaldsleikrit bama og unglinga:
„Kalli og k6” eftir Anthony Buckeridge og
Nils Reinhardt Christensen. Áður útv. 1966.
Leikstjóri: Jón Sigurbjömsson. Þýðandi:
Hulda Valtýsdóttir. Leikendur í fimmta og
siðasta þætti sem nefnist Snjókötturinn hræði-
legi: Borgar Garðarsson, Jón Júliusson,
Kjartan Ragnarsson. Ámi Tryggvason, Guð-
mundur Pálsson, Valdemar Helgason og
Valdimar Lárusson.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19*35 Daglegt mál. Ámi Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40'Um daginn og veginn. Ámi Bergur
Eiríksson framkvæmdastjóri talar.
20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir
kynnir.
21.10 Á tíunda tímanum. Guðmundur Ámi
Stefánsson og Hjálmar Ámason sjá um þátt
fyrir unglinga. Efni m.a.: Leynigesturinn,
fimm á toppnum, lesið úr bréfum til þáttarins
o.fl.
21.55 Maria Callas syngur með Nicolai Gedda,
kór og hljómsveit Parisaróperunnar atriöi úr
óperunni „Carmen” eftir Bizet; Georges
Prétre stjómar.
22.05 Kvöldsagan: „Hin hvitu segl” eftir
Jóhannes Helga. Heimildarskálsdaga byggð á
minningum Andrésar P. Matthíassonar. Krist-
inn Reyr les sögulok (18).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passíusálma hefst. Lesari: Séra
Þorsteinn Björnsson fyrrum frikirkjuprestur.
22.55 Myndlistarþáttur. Umsjónarmaður:
Hrafnhildur Schram. Rætt við Sigrúnu Guð-
jónsdóttur og Gest Þorgrímsson.
23.10 Frá tónleikum Sinfóniuhljömsveitar
Íslands i Háskólabíói á fimmtudaginn var.
Siðari hluti. Hljómsveitarstjóri Walter
Gillesen. Einleikari: Hermann Baumann. a.
Helgistef eftir Hallgrim Helgason. b. Hom-
konsert nr. 1 eftir Richard Strauss. Kynnir:
Áskell Málsson.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur
13. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjónarmenn: Páll
Heiðar Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00
Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ýmls lög aö eigin
vali. 9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: Geirlaug Þor-
valdsdóttir les söguna „Skápalinga” eftir
Michael Bond(l6).
9.20 Leíkfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
I
i)
^ Sjónvarp
Mánudagur
12. febrúar
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjami Felixson.
21.00 Skýjað loft. Breskt sjónvarpsleikrit eftir
Paul Jones. Leikstjóri Joh Keye Cooper.
Aðalhlutverk, Diane Fletcher, Charles
Keating og Irene Richard. Katy og Russell
Graham hafa verið gift 1 sjö ár og eru orðin
leið á tilbreytingarlausu hjónabandinu.
Russcll tekur að venja komur sínar á krá
nokkra á kvöldin, og þar kynnist hann ungri
stúlku. Þýðandi óskar Ingimasson.
21.50 Lakandon-indiánar. Lakandonamir í
Mexíkó eru siðustu afkomendur hinna fomu
maja og eru um 300 talsins. Þessi kanadiska
heimildamynd lýsir daglegu lifi þeirra og sér-
stæðum trúariðkunum. Þýðandi og þulur
Ellert Sigurbjömsson.
22.40 Dagskrárlok.
BJÖRTU
HLIÐAR
VETRARINS
Byrjendaskiði, 1.120 cm, verð 7.650.
Skíðasett með öryggisbindingum, I. 80—90
cm, verð 22.500.
Smelluskföaskór, verð 12.500.
Skíði, 140—180 cm, öryggisbindingar fyrir
börn og fullorðna, stafir og fl. og fl.
Hjá okkur er alltaf útsala, sendum í póstkröfu.
SPORMARKAÐURINN
Grensásvegi 50, sími 31290. — Opið kl. 10—6.
Athugið. Tökum skíðavörur í umboðssölu.