Dagblaðið - 12.02.1979, Side 40
GS/DB-mynd R.Th,
Hott, hott á grænu...
Það vakti mikla athygli vegfarenda i
gær þegar sást til hests á mestu um-
ferðargatnamótum landsins, gatnamót-
um Kringlumýrar og Miklubrautar.
Ekkert var þó athugavert við ferðalag
hests og knapa, því klárinn beið á rauðu
ljósi eins og hver annar unz Ijósið varð
grænt og hægt var að halda áfram ferð-
inni suður Kringlumýrarbrautina mót
lækkandi sól.
Aðhaldslögin lögð fram í morgun:
„Bylting í hagstjórnarmálum7’
„Ef þetta fer i gegn, þá er á ferðinni
bylting í hagstjórnarmálum,” sagði
Steingrímur Hermannsson dómsmála-
ráðherra í viðtali við Dagblaðið í
morgun um frumvarp það, sem Fram-
sóknarflokkurinn lagði fram í ríkis-
stjórn í dag. „Þetta eru mikil aðhalds-
lög.”
Vísitölunefnd hefur enn ekki skilað
áliti sinu en I frumvarpinu, sem Ólafur
Jóhannesson lagði fyrir ríkisstjórnina í
morgun, er gert ráð fyrir að óbeinir
skattar og niðurgreiðslur fari út úr
visitölunni. Þá er í þeim kafla ákvæði
um stöðu viðskiptakjaravisitölu
þannig, að ef viðskiptakjör versna
kemur 30% af hækkuninni til frá-
dráttar i verðlagsvisitölu og sagði
Steingrimur að með þessu yrði verð-
jöfnunarsjóður gerður raunverulega1
virkur.
í kafla um ríkisfjármál er gert ráð
fyrir stefnumörkun til fjögurra ára og
þar er gert ráð fyrir sérstakri skattlagn-
ingu verðbólgugróða. Er gert ráð fyrir
eignakönnun i því sambandi og stór-
auknu skattaeftirliti. Þá á að kanna
arðsemi ýmissa ríkisframkvæmda og
eins verður skipuð nefnd til þess að
endurskoða lög um opinberar fram-
kvæmdir yfirleitt til þess að tryggja
sem vandaðastan undirbúning slíkra
mála, en sem kunnugt er hefur þing-
mönnum fram til þessa haldizt það
uppi að gera tillögur um hinar og þess-
ar framkvæmdir á vegum ríkisins án
þess að fjárhagsgrundvöllur þeirra hafi
verið grandskoðaður.
Sérstaklega er fjallað um þessi mál í
kafla um fjárfestingar- og lánsfjáráætl-
un.
Fjölmörg önnur aðhaldsákvæði eru
í lögunum, m.a. um fækkun
ríkisbanka, og þar fram eftir götunum.
Umdeilt atriði verður eflaust að
ríkisstjórnin gerir ráð fyrir að ef launa-
hækkanir fara upp fyrir 5% á árinu
verði greiðslum þar að lútandi frestað
til þess að draga úr aukningu verð-
bólgu.
HP
Enga ákvörðun um fjárfest-
ingarprósentuna 1980
Grunntónninn i umfjöllun Verka-
lýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins á
fundinum i gær var fyrst og fremst al-^
menn ánægja með þann árangur, sem
náðst hefði í baráttunni við verðbólg-
una á þeim tíma, sem núverandi rikis-
stjórn hefði setið að völdum. Fundur-
inn lýsti sig algerlega andvigan því að
nú yrði tekin ákvörðun um fram-
kvæmdaprósentu fyrir árið 1980 sem
og samdrátt i rikisumsvifum það ár,
eins og Alþýðuflokkurinn krefðist nú.
Ljóst væri að nú lægi fyrir að skipu-
leggja atvinnulífið í landinu með hlið-
sjón af þeim árangri sem náðst hefði.
1 vísitölumálum þyrfti nú að sam-
ræma vísitölu kaupgjalds og fram-
færslu.
Yfirleitt væri ekki hægt aö taka af-
stöðu til efnahagsmálanna fyrr en
tillögur Ólafs Jóhannessonar forsætis-
ráðherra hefðu verið lagðar fram.
Þar yrði fyrst að skoða fjárfestingar-
og atvinnumálahugmyndir.
Sérstaklega væri nauðsynlegt að
gefa því gaum, hvort ráðstafanir i bar-
áttunni gegn verðbólgunni stofnuðu
atvinnuöryggi i hættu. Þá þyrfti að
bregðast við niðurstöðunum eins og
þjóðarnauðsyn krefði. -BS.
frfálst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 12. FEB. 1979.
Sveitarstjórinn
í Ölfushreppi:
Erum
engir
„smygl-
arar”
— innflutningur og
afgreiðsla hitaveitu-
röranna með fullu
samþykki fjármála-
ráðuneytis en án
vitundar tollsins
Þorsteinn Garöarsson, sveitarstjóri i
Þoriákshöfn. DB-mynd Gissur Sig.
„Aðdróttanir um „smygl" á hráefni
framhjá söluskatti, tolli og vörugjaldi á
aðveitupipum til hitaveitu ölfushrepps,
sem DB skýrði frá á laugardaginn, eru
tilhæfulausar þar sem fullt samráð var
haft við Fjármálaráðuneytið um af-
greiðslu málsins,” sagði Þorsteinn Garð-
arsson, sveitarstjóri i Ölfushreppi i við-
tali við DB í gær.
1 fréttinni var talað um sveitarstjórn-
ina í Þorlákshöfn, en kauptúnið er hluti
ölfushrepps. Þorsteinn skýrði svo frá að
innflutningur á efni, vélum og tækjum i
hitaveitur lúti sérstakri tollameðferð.
Skv. lagaákvæðum sé Fjármálaráðu-
neytinu heimilt að lána opinber gjöld
vegna hitaveituframkvæmda. Þessi
heimild hafi verið nýtt með þeim hætti
að öll opinber gjöld vegna hitaveitu-
framkvæmda séu lánuð til 10 ára og gefi
viðkomandi hitaveita út skuldabréf til
jafn langs tíma.
Ráðuneytið samþykkti beiðni sveitar-
stjórnar Ölfushrepps i haust og var
skuldabréfinu skilað til ráðuneytisins
fyrir jól.
Hins vegar benti Þorsteinn á áð óvíst
væri með öllu að nokkurn tíma kæmi til
greiðslu þessa bréfs þar sem fyrir Alþingi
lægi þingsályktunartillaga um að öll
opinber gjöld á efni til hitaveitufram-
kvæmda verði felld niður.
Varðandi skuld hreppsins við fram-
leiðendur röranna, sem er 43,3 milljónir
en ekki 40 eins og stóð í fréttinni, sagði
Þorsteinn að vegna mikils dráttar á af-
hendingu þeirra, miðað við samninga,
hefðu framleiðendur fallizt á gjaldfrest
til 31. maizog er skuldin því ekki gjald-
fallin.
Af ofanrituðu virðist því sem ekki
hafið verið fullnægt formsatriðum gagn-
vart Tollstjóraembættinu með þeim af-
leiðingum að svo leit út sem sveitarstjór-
inn hafi hafið úrvinnslu úr rörunum
ófrjálsri hendi. -GS.