Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 — 51. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
■ m
SMYGLUÐ KJOTVARA
FINNST í 6 VERZLUNUM
Nokkurn magn af smygluðum
kjötvörum fannst við leit, sem gerð
var í nærri 30 matvöruverzlunum i
Reykjavík og nágrenni í gær. Þá
fannst talsvert magn af þessari vöru i
ms. Laxfossi, þar sem leit var gerð
eða 100 kg af skinku og 20 kg af
spægipylsu. Viðurkenndi vélstjóri að
vera eigandi skinkunnar, og báts-
maður eigandi spægipylsunnar.
Vegna gruns um að smygluð kjöt-
vara væri á boðstólum í kjöt-
verzlunum borgarinnar hófu starfs-
menn Tollgæzlunnar umfangsmikla
leit. Einkum var það skinka, beikon
og spægipyls j sem fannst við leitina.
Skinkan sem fannst í Laxfossi var
falin i tanki. i \erzlunum fundust
þessar vörur einkum í kæligeymslum
og eitthvað i afgrciðsluborðum.
Mest fannst í verzlun Sláturfélags
Suðurlands í Glæsibæ. Var starfs-
maður þar hafður í haldi einn dag
meðan annað starfsfólk var yfir-
heyrt. Upplýst er, að þessar gómsætu
kjötvörur hafi verið fluttar til
landsins með ýmsum hætti. Til
dæmis fundust i Hlíðagrilli i
Suðurveri 19.5 kg., ættuð af Kefla-
víkurflugvelli. í Sláturfél.
Suðurlands, fundust 68.5 kg,
KRON við Dunhaga 37.5 kg,
Selkjakjöri 24 kg, í Kostakaup
Hafnarfirði rúmlega 10 kg og
Brauðborg við Rauðarárstíg 8 kg. BS.
Til óláta og mótmælaaðgerða dro
við kinverska sendiráðið að Víðimel 29
i Reykjavík um miðnætti sl. nótt. Safn-
aðist þangað hópur fólks, alls um 35
karlar og konur. Að sögn lögreglunnar
var fólkið með hárreysti og læti.
Fólkið bar logandi kyndla og rauðar
veifur. Tilraun var gerð til þess að
troða logandi kyndli inn um bréfalúgu,
en sú tilraun mistókst. Var það kven-
maður í hópnum, sem ítrekað reyndi að
koma logandi kyndlinum inn í húsið.
Virtist hún forsprakki hópsins.
Það voru vegfarendur sem bæði
kvöddu til lögreglu og stóðu siðan gegn
hópnum við sendiráðið. Er lögreglan
kom á staðinn voru aðgerðirnar að
leysast upp. Mótmælahópurinn með
rauðu veifurnar og kyndlana hélt i
austur að Félagsstofnun stúdenta og
þar leystist hópurinn upp.
Starfsmenn sendiráðsins létu ekki á
sér kræla og vildu helzt ekki við
lögregluna tala. Engar skemmdir voru
unnar á húsinu.
-ASt.
Frá og með deginum í dag, 1. marz, kostar Dagblaðið
150 krónur í lausasölu og 3000 krónur í mánaðaráskrrft.
Skömmu eftir kl. níu í morgun Guðmund Magnússon, sem nýtur
greiddu fyrstu menn atkvæði í stuðnings laga-, guðfræði- og
prófkjöri vegna rektorskjörs í Há- viðskiptadeildar, Sigurjón Björns-
skóla íslands. Prófkjör þetta mun son, sem hefur heimspekideildina að
standa í allan dag og er undanfari baki sér og er auk þess vinsæll i
rektorskjörsins, sem fer fram eftir röðum vinstri manna, og Sigmund
rúman mánuð, eða þriðja apríl nk. Guðbjarnarson, sem sækir stuöning í
Eftir heimildum, sem Dagblaðið verkfræði- og raunvísindadeild.
telur áreiðanlegar stendur slagurinn í
raun um þrjá prófessora, þá -HP/DB-mynd: Ragnar Th.
Reynt að troða log-
andi kyndli inn
í sendiráð Kína
Kvenmaður var forsprakki 35 manna óeirðahóps
Sovét dregur úr
olíusölu til V-Evrópu:
,fSnertirokkur
ekki enn”
— segir viðskipta-
ráðherra á bls. 5
Viggótalinn
meðalfimm
beztuíB-keppn-
inniáSpáni
— hefur nó tilboð
frá Barcelona
— sjá íþróttir,
bls. 14,15 og 16
Diskó!
Diskó!!
Diskó!!!
Diskó!!!!
— sjá bls. 19
Börn og unglingar settu mikinn svip á miðborgarlífið í gær, öskudag, eða „öskurdag” cins og hann var gjarnan
nefndur í skólunum áður en hann varð frídagur. Fjöldi krakka var vægast sagt skrautlega búinn og hafði frammi
saklausan leikaraskap. DB-mynd Hörður.
Búiztvið hraun-
gosi við Kröflu
___ - sjá bls. 23
Laxalónsmálið í
rannsókn hjá Alþingi
— sjá bls. 9
Vítamínfyrir
sálina
— viðtal við Þorgerði
Ingólfsdóttur, sem
hlaut Menningar-
verðlaun DB fyrir
tónlistábls. 17
A