Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979. KNATTSPYRNUDÓMARAR! Framhalds-aöaffundur verður haldinn að Hótel Loftleiðum (Kristalsal) 8. marz kl. 20.00 Dagskrá: Stjórnarkosning. Önnur mál. Stjórn KDR. Stokkseyrí Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Stokkseyri er Guðbjörg Hjartardóttir Eyrarbraut 16, sími 99—3324. mSBlABIB Útgáfuþjónusta fyrir félög og fyrírtæki Getum bætt við okkur verkefnum á sviði útgáfuþjónustu, svo sem um- sjón með útgáfu félagsblaða, afmælisrita, svo og á sviði kynninga og auglýsinga. Sérþekking á sviði efnisgerðar, auglýsingasölu, hönnunar, auglýsinga- dreifíngar, kynningar og prentunar. NESTOR, ÚTGÁFUFYRIRTÆKI Herbert Guðmundsson - Sími 83842. Tilkynning til íbúa Suðurnesja Stofnfundur Gigtarfélags Suðurnesja verður haldinn í Félagsheimili Innri-Njarðvíkur, sunnudaginn 4. marz 1979 kl. 14.30. Jón Þorsteinsson yfirlæknir flytur erindi um gigtlækningar. Skorað er á fólk á Suðurnesjum að fjölmenna oggerastfélagar. Undirbtiniagsnefndin. BÍLAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Cortina '70 Fíat125'73 BMW 1600 árg. '68 Toyota Crown '66 Franskur Chrysler '71 Einnig höfum við urval afkerruefni, tildæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höfdstúfíi 10 - Simi 11397 Breytingar á lögum um almannavarnir: ALMANNAVARNIR SPRENGDU RAMMA LAGANNA Frá æfingu Almannavarna á flugslysi. Mikill fjöldi fólks tók þátt í æfingunni, sem þótti heppnast mjög vel. DB-mynd. Reynsla undanfarinna ára hefur svnt að almannavarnaráð hefur í raun gegnt stærra hlutverki en gildandi lög ætla því. Kemur þetta fram í athuga- semdum með lagafrumvarpi sem dóms- málaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Er tilgangur þess frumvarps að breyta skipulagi á stjórnun almannavarna í Ijósi þeirrar reynslu. Samkvæmt lögum frá 1%2 skal for- stöðumaður almannavarna vera for- maður almannavarnaráðs og skipa það ásamt 4 embættismönnum stórra stofnana sem hlytu að tengjast verkefnum í sambandi við aðgerðir vegna náttúruhamfara eða annarra atburða. Á árinu 1968 var forstjóra Landhelgisgæzlunnar falið starf for- stöðumanns og þannig tók fimmti embættismaðurinn sem stýrir stórri stofnun sæti i ráðinu. Hefur samstarf þessara aðila i ráðinu reynzt mjög áhrifaríkt og i raun hefur ráðiðannazi framkvæmdastjórn er válegir alburðir hafa gengið yfir. Frumvarpið sem nú liggur fyiii þinginu gerir ráð fyrir þeirri brcytingu að framkvæmdastjóri annist dagleg verkefni undir umsjá og yfirstjórn ráðsins. Dómsmálaráðherra skipi almannavarnaráð, en i því eiga sæti forstjóri landhelgisgæzlunnar, land- læknir, lögreglustjórinn i Reykjavík, póst- og símamálastjóri og vegamála- stjóri. Frumvarpið gerir ráð fyrir þeirri breytingu frá því sem nú er að ráðherra skipi einn ráðsmanna formann þess til þriggja ára í senn. Ráðherra skipi síðan framkvæmdastjóra ráðsins eftir tillögum þess. Þessar breytingar sem felast i frumvarpinu eru tilkomnar vegna reynslu síðustu sex ára af störfum al- mannavarna, það er að segja frá eld- „Umræður þær, sem barið hafa eyru okkar i dag þar sem stuðnings- menn ríkisstjórnarinnar hafa enn einu sinni deilt miskunnarlaust innbyrðis og ráðherrar ekki látið sitt eftir liggja í þeim hildarleik, vekja hjá mér þá spurningu, hvort ríkisstjórnin sé i raun og veru starfhæf,” sagði Albert Guðmundsson í umræðunum á þingi i fyrradag. „Er ríkisstjórnin í raun ekki fallin?” spurði Albert. „Mér dettur í hug svolítil saga, sem ég heyrði fyrir löngu. Húner svohljóðandi: „Læknir nokkur kom í sjúkravitj- un. Sat þá eiginkonan á rúmstokki eiginmanns og reyndi að koma ofan í hann meðali. Þá sagði læknir: „Hann er dáinn væna min.” „Það getur vel verið að hann sé dáinn,” sagði konan, „en það er líka þrjózka.” í mínum huga er hæstvirt ríkisstjórn óstarfhæf — dauð. Aðeins þrjózka for- sætisráðherra, sem reynir að troða ofan í hana pólitísku meðalasulli, virðist halda henni uppi. Hann einn gosinu i Vestmannaeyjum, og síðan vegna eldvirkni á Kröflusvæðinu og snjóflóðanna i Neskaupstað. Þegar lög um almannavarnir voru sett l%2 gerir sér ekki Ijóst að ríkissljórnin hcfur misst traust þjóðarinnar, og eins og komið hefur fram i þessum umræðum hefur hún einnig misst traust þeirra sem næstir henni standa. Ekkert sameinar stjórnarflokkana en margj virðist sundra þeim. Ríkis- stjórninni, þessari skattpíningarstjórn, ber skylda til að segja af sér. Hún hefur hvorki starfsfrið né starfsgrundvöll. Nýjar kosningar hljóta að vera á næsta leiti, enda er það þjóðinni fyrir beztu. Við forsætisráðherra vil ég segja: „Þér hafið ekki samstarfsmenn. — Vaknið og veljið. Veljið milli áfram- haldandi öngþveitis í íslenzkum stjórn- málum og nýrra kosninga sem gefa þjóðinni von um nýja og farsæla ríkis- stjórn fyrir okkar kæra land. Það hefur sýnt sig enn einu sinni að þjóðin þolir ekki vinstri stjórn nú frekar en svo oft áður. Ráðherrar Islands, vaknið. Fljótið ekki lengur sofandi að feigðarósi,” sagði Albert Guðmundsson. -BS. mótuðust þau mjögaflögum frástriðs- árunum, en þeim var siðan breytt í það form sem þau eru i i dag árið 1967. -JR. Samkomulag í ríkisstjórn á næstu grösum: „íg hef sagnaranda” — segir Ólaf ur „Ég hef sagnaranda,” sagði Ólafur Jóhannesson forsætis- ráðherra í viðtali við Dagblaðið um hvað liði samkomulagi eða samkomulagsleysi um drög hans að efnahagsfrumvarpi. „Þetta þokast allt í samkomulagsátt og við munum leggja frumvarpið fram með breytingum eftir að tekið hefur verið mið af tillögum og umsögnum aðila vinnu- markaðarins og fleiri aðila,” sagði Ólafur ennfremur. Ólafur vildi ekki greina frá því á þessu stigi hverjar breytingarnar yrðu helztar en „óvissan er hvað mest um visitölukaflann,” sagði hann. „Þá er ekki hægt að segja að hugmyndin um geymslu verðbóta fram yfir 5% hafi fengið mikinn hljómgrunn og verður þvi ákvæði trúlegast sleppt úr drögunum.” -HP. TH sölu Pontiac Firebird 1 Albertá Alþingi: GETUR VEL VERIÐ DÁINN — en það er líka þr józka

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.