Dagblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979.
5
Sovét dregur úr olíusölu til Vestur-Evrópu:
„Snertir okkur ekki enn”
— segir viðskiptaráðherra ----------------------------
„Þetta sýnir vel hvað ástandið í
olíumálunum er erfitt,” sagði Svavar
Gestsson, viðskiptaráðherra, þegar
DB bar undir hann frétt um að
Sovétríkin ráðgerðu mjög verulegan
samdrátt i olíuflutningi til Vestur-
Evrópu.
,,Við höfum bundinn samning um
oliukaup frá Sovétríkjunum,” sacði
Svavar ,,og höfum engar tilkviimnc
ar um að þessi stefna snertiokkui
Við höfum því ekki leitað annað um
olíukaup vegna hennar.”
Ráðherra sagði að þeir samningar
sem við gerðum nýlega við Portúgali
um olíukaup væru sizt hagstæðari en
þeir sem við hefðum við Sovétríkin.
Aðstoðarorkumálaráðherra
Bandaríkjanna skýrði frá þvi í
orkumálanefnd öldungadeilarinnar
að allar horfur væru nú á því að
Sovétríkin drægju verulega úr olíu-
Butningi til Vestur-Evrópu og að nú
þegar hefði verið stöðvuð sala til
Sviþjóðar og Finnlands. Astæðuna
fyrir þcssari stefnu kvað hann nieðal
annars vcra stöðvun á jarðgasút-
flutningi Irá íran. Vcstur-Evrópa
kaupir 1.2 milljónir tunna af olíu
daglcga frá Sovétríkjunum. -BS.
Draumur Alla
ríka að rætast
— hætt við að fáir hafi tíma til að samgleðjast
Jón Kjartansson var væntanlegur til
Eskifjarðar á mánudagskvöld með
fullfermi af loðnu og er þá Jón búinn
að fá 8555 tonn. Með farmi Jóns næst
hið langþráða takmark á Eskifirði, 50
þúsund lesta markið af loðnuafla, að
sögn Aðalsteins Jónssonar fram-
kvæmdastjóra.
Það hefur lengi verið draumur hins
mikla athafnamanns, Aðalsteins Jóns-
sonar, að ná 50 þúsund lesta markinu i
þrær fiskimjölsverksmiðjunnar. Ef ég
þekki hann rétt heldur hann upp á
þetta með veizlu, en-þá er hætt við að
fáir geti tekið þátt i henni, þvi flestir
eru uppteknir við vinnu. Regína/ASt.
Vegur lagður út í Óseyrarnes:
Á að reka á eftir
brú yfir Ölf usárósa
Fyrir stuttu hóf vinnuflokkur frá
Vegagerðinni að gera 850 metra langan
kafla af væntanlegum vegi frá
Eyrarbakka út í Óseyrarnes, þar sem
ráðgert er að brúa Ölfusárósa. Til þess-
arar vegagerðar veitti sýslusjóður
Árnessýslu 10 milljónir króna. Finnst
sumum að nær hefði verið að nota
þessa peninga til þess að halda áfram
að gera varanlegan veg frá Selfossi og
niður á ströndina heldur en að leggja
þennan vegarspotta sem enginn komi
til með að nota næstu árin. Aðrir segja
að vegarlagniiigin verði til þess að reka
á eftir því að hafizt verði handa við
brúargerðina, en hún hefur verið til
umræðu manna á meðal siðustu
tuttugu árin. GAJ/MKH, Eyrarbakka.
Óróaseggir ínágrenni Seyðisfjarðar
mega nú vara sig:
Fangelsi á hjólum
við sveitaböliin
Nú er lokið sérbyggingu nýs
lögreglubils fyrir Seyðisfjörð og ná-
grenni og mun þetta vera fyrsti sér-
smiðaði billinn til þeirra starfa sem
þangað hefur komið.
Billinn er af Chevrolet gerð, yfir-
byggður i Kópavogi og fjórhjóla-
driftnn. Aftast í bílnum er sérstaklega
smiðaður fangaklefi.
Að sögn Arnar Sigurðssonar,
fulltrúa bæjarfógeta, var billinn
innréttaður þannig með tilliti til
sveitadansleikja því ekki eru fanga-
klefar í samkomuhúsunum. Hins
vegar er fangelsi á Seyðis firði. Þá er
billinn einnig innréttaður fyrir
sjúkraflutninga ef með þarf og eru
ýmis hjálpartæki, svo sem súrefnis-
tæki, ávallt staðsett á lög-
reglustöðinni.
-GS.
Krakkarnir á myndinni eru réttu megin við lögin og horfa hér aftur i fanga-
klefann, aftast í bílnum. DB-mynd: R. Th.
-■*•• -.«• -
Þessar fallegu meyjar nulu frísins úr skólanum í miðborg Reykjavíkur í gær
föt en venjulega og voru til i að sprella fyrir Ijósmyndarann.
á öskudaginn. Þær höfðu farið í líflegri
DB-mynd: Hörður.
if1? JlnM
MIm vmá-s Æ Wii %
Einstæðgjöf hjóna
íReykjavík:
Gefa Siglu-
fjarðarbæ
100 lista-
verk eftir
fjölda
þekktra
Íistamanna
Hjónin Arngrímur Ingimundarson
kaupmaður og Bergþóra Jóelsdóttir,
kona hans hafa tilkynnt bæjar-
stjóranum á Siglufirði þá ákvörðun
sína að gefa Siglurfjarðarbæ úrval
listaverka, sem þau háfa safnað á
síðustu þremur áratugum.
Þarna er um að ræða um 100
myndir, flestar þeirra oliumálverk og
Hjonin Arngrimur Ingimundarson og Bergþora Joelsdottir innan um étiita 'ioa-
verkanna sem þau gefa Siglufjarðarbæ.
vatnslitamyndir, en auk þess
klippimyndir og grafikmyndir eftir
kunna innlenda og erlenda listamenn.
Gefendurnir, sem eru til heimilis að
Grettisgötu 2 a í Reykjavík, segjast
vænta þess að listaverkasafnið geti
orðið menningarlífi bæjarins lyftistöng
og jafnframt verði með gjöfinni lagður
grundvöllur að Listasafni Siglufjarðar.
Fyrirhugað er að listaverkin verði
afhent Siglfirðingum á næsta ári, en
bæjarráð Siglufjarðar samþykkti í
byrjun vikunnar að þiggja með
þökkum þessa höfðinglegu gjöf. Er nú
i athugun hvar heppilegast muni að
koma listasafninu fyrir á Siglufirði,
þannig að það geti orðið aðgengilegt
l'yrir alla scm áhuga hafa áaðskoða
það.
(Frétt frá bæjarstjóra Siglufjarðar).