Dagblaðið - 02.03.1979, Qupperneq 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
Furðugott vöruúrval í litla
kaupfélaginu á Eyrarbakka
— verzlað með vinningshafa Neytendasíðunnar í janúar en hún hlaut 74.926 krónur
Suðurland var baðað í sólskini og
snjó þegar blm. og ljósmyndari-
Neytendasíðunnar lögðu leið sína
austur yfir fjall á öskudaginn.
Ferðinni var heitið að Eyrarbakka til
þess að kaupa inn með janúar-
vinningshafanum okkar, Jóhönnu
Þórðardóttur, ungri húsmóður á
Eyrarbakka. Jóhanna kaus að verzla
í kaupfélaginu — átti reyndar ekki
margra kosta völ ef hún vildi verzla í
heimabyggðinni, þvi kaupfélagið er
eina verzlunin á staðnum að heitið
getur. Er það útibú Kaupfélags
Árnesinga. — Fjölskylda Jóhönnu er
fjögurra manna, eiginmaðurinn
Bjarnfinnur Sverrisson, sjómaður,
og tvö börn, Elín Birna fimm ára og
Sverrir litli, rúmlegaársgamall.
Fjölskyldurnar sem sendu okkur
upplýsingaseðla um heimiliskostnað
í janúar hafa ekki áður orðið fleiri og
fjölmennasti hópurinn var fjögurra
manna fjölskyldan. Hin góða þátt-
taka i þessari könnun okkar á
heimiliskostnaðinum sýnir að fólkið í
landinu hefur svo sannarlega áhuga á
„Hjálparkokkarnir” Elín Birna og
Stefanfa Þóra, báðar fimm ára voru
duglegar að gæta þess að ekkert vant-
aði í körfuna.
að vita í hvað það eyðir peningunum
sinum. í janúar fengum við seðla frá
39 stöðum á landinu.
Kaupir eftir hendinni
Jóhanna byrjaði ekki á heimilis-
bókhaldinu fyrr en i vetur en segist
vera staðráðin í að halda því áfram.
Hún á ekki frystikistu og hefur ekki
víðáttumikla geymslu, þannig að hún
verður að kaupa inn til heimilisins
eftir hendinni.
,,Ég fer stundum í kaupfélagið
tvisvar á dag,” sagði Jóhanna og
brosti. Síðan bætti hún við: ,,Ég veit
að það er ógurlega ópraktískt!”
Hins vegar kaupir hún stundum
heila lambaskrokka sem hún fær
sagaða niður og geymda í frysti-
geymslum Kaupfélagsins. Kristján
kaupfélagsstj. sagðist gjarnan veita
viðskiptavinum sinum, sem ekki hafa
ráð á frysti heima hjá sér, þessa
þjónustu.
Verzlunarhúsnæðið í kaup-
félaginu er ekki svo ýkja stórt, en
sjálfsafgreiðslufyrirkomulag var þar
á hlutunum. Þar sem þarna verður að
koma hinum margvíslegustu
vörutegundum fyrir á litlu svæði var
mesta furða hve úrvalið var þó gott.
Hins vegar voru ekki aðrar tegundir
t.d. af þvottaefni en íslenzkar, sem er
svo sem ekkert við að athuga, því
íslenzkt þvottaefni hefur reynzt
ágætlega. Það voru hins vegar að
minnsta kosti tvær tegundir af niður-
soðnu korni og bökuðum baunum,
gott úrval bæði af innlendu og
erlendu kexi og hrökkbrauði.
Jóhanna hefur verið búsett á
Eyrarbakka i þrjú ár, en hún er
borinn og barnfæddur Selfyssingur.
Brauðúrval er jafnan gott í kaup-
félaginu. Þangað kemur daglega nýtt
brauð frá Selfossi. Eru þar ýmsar
aðrar tegundir en hin hefðbundnu
vísitölubrauð.
Frosinn fiskur
Athygli okkar vakti að fiskurinn
sem boðinn var til sölu var frosinn.
Skýringin var sú að á þessum árstíma
landa Eyrarbakkabátarnir í Þorláks-
höfn og er fiskurinn því fluttur
þaðan. Jóhanna er hinsvegar ein af
þeim heppnu sem fær fiskinn
spriklandi nýjan þegar eigin-
maðurinn kemur í land færandi
hendi.
Snögg ferð
Við vorum fljót að verzla með
Jóhönnu. Bæði var, að hún keypti
ekki svo mjög mikið, var með
greinargóðan lista, verzlunar-
húsnæðið ekki nein víðátta og síðast
en ekki sizt, hafði hún tvær ötular
hjálparkonur, sem voru dóttirin Elín
Vinningshafinn okkar, Jóhanna
Þórðardóttir með Elinu Birnu og
Stefaniu Þóru að lokinni verzlunar-
ferðinni.
„Sannarlega ástæða að
hvetja til spamaðar”
— segir kaupf élagsst jórinn á Eyrarbakka
„Ég er alveg stórhrifinn af þessu
hjá ykkur. Það er sannarlega ástæða
til þess að hvetja fólkið í landinu til
þess að spara og athuga sinn gang
vel,” sagði Kristján Ásgeirsson
útibússtjóri Kaupfélags Árnesinga á
Eyrarbakka i samtalið við blm. Neyt-
endasíðu DB. við vorum komin til
þess að verzla með janúarvinnings-
hafanum okkar, Jóhönnu Þórðar-
dóttur, sem búsett er á Eyrarbakka.
„Jóhanna er svo sannarlega vel
komin að vöruúttektinni sinni, því
hún er elskuleg ung kona sem virðist
velta fyrir sér hvemig hún eyðir
heimilispeningunum sinum,” sagði
Kiistján.
Útibú Kaupfélagsins er raunar
eina verzlunin á Eyrarbakka, utan að
gamall maður er þar með smá-
verzlun, sem opin er nokkra tima á
dag.
,,Það er mikill vandi að reka
verzlun á stað þar sem engin önnur
verzlun er fyrir. Við reynum eftir
beztu getu að hafa þær vörur á
boðstólum, sem fólkið þarf á að
halda. Verðlagið kemur af sjálfu sér,
ég er ekkert hræddur við það. Ég er
mjög hlynntur verðkönnunum og að
haft sé eftirlit með því hvað er að
gerast á viðskiptasviðinu og mér
finnst að hagsmunir neytenda eigi að.
vera tryggðir. Ég hef alla tið verið í
Neytendasamtökunum og tel að það
eigi að efla þau ágætu samtök,”
sagði Kristján.
Síðan vék hann að því að hann
gæti ekki skilið að frjáls verzlunar-.
álagning sé nauðsynleg til þess að
tryggja hag verzlunarinnar. Telur
Kristján að þarna þurfi að hafa
nokkra gát á.
— Gilda ekki önnur lögmál fyrir
kaupfélagsverzlun heldur en smá-
kaupmanninn?
„Það má vel vera. En þá verður
líka að taka með í reikninginn að í
kaupfélögunum vinna allir fyrir fullu
kaupi. Hins vegar hefur kaup-
maðurinn tækifæri til þess að leggja
á sig meiri vinnu, þegar á þarf að
halda, án þess að þurfa beinlínis að
reikna sjálfum sér kaup.
Annars er okkur sem érum með
verzlun í nágrenni höfuðborgarinnar
mikill vandi á höndum. Viðskipta-
vinirnir geta alltaf skotizt i bæinn og
gera það líka óspart ef þá vanhagar
um eitthvað sem við höfum ekki á
boðstólum,” sagði Kristján
kaupfélagsstjóri. -A.Bj.
Kristján Ásgeirsson kaupfélagsstjóri færði Jóhönnu „aukavinning”, stóran
konfektkassa að gjöf.
Birna og frænkan Stefanía Þóra.
Þær voru mjög áhugasamar um að
ekkert gleymdist og voru sífellt að
bætaí körfuna.
Þegar búið var að leggja saman
við kassann kom í ljós að úttektin var
fyrir 14.920 kr. — Jóhanna getur þvi
farið margar ferðir út í kaupfélag
fyrir alla vinningsupphæðina, sem
var 74.926 kr., sem reyndist
meðaleyðsla þeirra fjögurra manna
fjölskyldna sem sendu okkur
upplýsingaseðla fyrir janúarmánuð.
Það var nokkru lægri upphæð heldur
en Jóhanna notaði í mat og
hreinlætisvörur i janúar. Hennar
seðill hljóðaði upp á 92.363 kr.
Vinna og aftur vinna
Og hvernig gengur svo mannlífið
fyrir sig í litlu plássi eins og Eyrar-
bakka?
„Hér vinna allir frá morgni til
kvölds, langflestir við fiskinn, í
frystihúsinu. Einnig vinna margir i
plastgerðinni,” sagði Jóhanna.
„Félagslíf er hér fábreytt, en ég
held að enginn sakni þess. Fólk er
heima við á kvöldin og horfir mikið á
sjónvarpið. Hér eru ágætis sjón-
varpsskilyrði. Stöku sinnum eru
haldin böll og þá fara allir sem
vettlingi geta valdið. — Nei, við
förum aldrei í leikhúsið, en ég veit til
þess að fólk tekur sig saman og
skreppur til Reykjavíkur og fer í
leikhús þar. Á veturna eru diskótek á
föstudagskvöldum fyrir krakkana, en
bíó verður að sækja til Selfoss,"
sagði Jóhanna Þórðardóttir, sem
segist kunna vel við sig i fásinninu.
Hún vinnur núna heima við og gætir
barnanna sinna. Ekki er hægt um vik
að fá gæzlu fyrir litla snáðann fyrr
en hann er orðinn tveggja ára og
gjaldgengur á dagheimilið, sem rekið
er á staðnum. — Þá er alveg eins víst
aðhún fariafturaðvinnai „frystó”.
-A.Bj.
Stefanía Þórflardóttir vissi alveg upp á hár hvað hún var að gera þegar hún
lagði úttektina saman. Hún hefur unnið i kaupfélaginu í sex ár. „Jú, maður
þekldr alla i þorpinu og veit stundum alveg hvað er í matinn hjá fólkinu. í það
minnsta veit ég upp á hár hvaða tegund af sígarettum hver reykir,” sagfli hún.
Kirkjan á Eyrarbakka verður 90 ára á næsta ári. Verið er að gera kirkjuna upp
að innan, en viðgerðum utanhúss er nýlokið. Eizta ibúðarhúsið á staðnum er
síðan 1765 og sést í það vinstra megin við kirkjuna. Mörg gömul hús eru í
þorpinu. Viitningshafinn okkar býr i einu og heitir það Kaldbakur. Er það
reisulegt tvílyfl hús með sex herbergjum. Leigu er mjög stillt í hóf, er 15 þús-,
und kr. á mánuði. Hitakostnaðurinn er hins vegar gífurlegur eða 30 þúsund á
mánuði. Rafmagnskostnaðurinn er um 6 þúsund á mán.
DB-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson.