Dagblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 8
Útgáfuþjónusta fyrir félög og fyrirtæki Getum bætt við okkur verkefnum á sviði útgáfuþjónustu, svo sem um- sjón með útgáfu félagsblaða, afmælisrita, svo og á sviöi kynninga og 1 auglýsinga. Sérþekking á sviði efnisgerðar, auglýsingasölu, hönnunar, auglýsinga- dreiBngar, kynningar og prentunar. NESTOR, ÚTGÁFUFYRIRTÆKI Herbert Guömundsson - Sími 83842. HÚSGÖGN Það borgar sig, að líta til okkar. Við höfum mesta úrval svefnher- bergishúsgagna á íslandi, og einnig mjög gott úrval af sófasettum, ódýrum kommóöum, ódýrum hill- um og ódýra veggskápa. Skoöiö úrvaliö okkar um leiö og þiö komiö á BÓKAMARKAÐINN / SýningahöHinni AFSTAÐA BEGINS MILDAST —eftir f und með Carter f gærkvöldi Carter Bandaríkjaforseti og Menachem Begin forsætisráðherra ísraels ræddust við i fullri hreinskilni í gærkvöldi um vandamál landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og hnút þann sem nú er á frekari friðar- viðræðum ísraelsmanna og Egypta. Leiðtogarnir ræddust við í nær tvær klukkustundir og sögðu eftir á að viðræðurnar hefðu verið mjög vingjarnlegar. í sameiginlegri yfir- lýsingu kom fram að viðræður þeirra nú væru góður grunnur frekari viðræðna næstu daga. Þessi yfirlýsing er mikil breyting frá mjög harðri stefnu ísraelsstjórnar undanfarna daga. Er Begin lagði af stað sagði hann að viðræðurnar væru í alvarlegri kreppu og hann myndi ekki undirrita málamyndasamning við Egypta. Begin lýsti því yfir eftir fundinn að fundurinn væri einn sá mikilvæg- asti sem hann hefði átt meö Banda- ríkjaforseta. Begin með Carter Bandaríkjaforseta. Eftir fund þeirra leiötoganna í Wash- ington í gærkvöldi hefur afstaða Begin mildazt og mciri líkur eru tald- ar á að koma megi friðarviðræðum ísraels og Egypta af staö á nýjan leik. Fyrr i vikunni taldi Begin ekkert gagn i frekari viðræðum og neitaði að koma til fundar við Khalil utanríkis- ráðherra Egyptalands. Þingkosningarnar á Spáni: SUAREZ SIGRAÐI Miðflokkasamband Adolfo Suarez á Spáni sigraði í þingkosningunum í gær og jókst munurinn á milli Miðflokkasambandsins og helzta keppinautarins, sósíalista. Innanrikis- ráðherra Spánar, Martin Villa tilkynnti þessi úrslit í morgun. Ráðherrann sagði að talningu væri nær lokið og lægju úrslitin fyrir. Hann sagði að Miðflokkasambandið hefði fengið um 170 þingsæti, en sósíalistar 116 þingsæti. Tölurnar voru áður 158 gegn 125. Litlu munaði því að Miðflokkasambandið næði hreinum meirihluta en til þess þurfti 176 þing- sæti. Kommúnistaflokkurinn er í þriðja sæti og fékk hann 25 menn kjörna. Þjóðernissinnaðir Katalóníumenn fengu tíu þingsæti og íhaldsmenn átta. Adolfo Suarez þarf því að mynda samsteypustjórn með einhverjum litlu flokkannaáþingi. Jeppa-eigendur! BLÆJUR Á FLESTAR TEG. JEPPA Hagstætt verð AUKAHLUTIR FYRIR 4 W.D. Arni úlafsson SÍMI40088. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979. VIETNAMAR SAKA KINVERJA UM STRIÐSGLÆPI Kínverjar hafa farið fram á samningaviðræður þjóðanna Kínverskir hermenn vopnaðir byssum og byssustingjum. Vietnamar ásaka þá nú um alvarlega stríðsglæpi en aðilar óháðir stríðinu hafa ekki frétt um stríðsglæpi hinna stríðandi aðila. Víetnamar ásökuðu í morgun innrásarlið Kínverja um alvarlega stríðsglæpi og nefndu sem dæmi að nýfæddu víetnömsku barni hefði verið hent upp í loftið og látið lenda á hnífi. Kinverjar hafa gefið litlar upplýsingar af bardögunum fyrir utan einstakar frásagnir af hetjudáðum kínverskra hermanna. Engar óháðar upplýsingar hafa bor.ti um stríðsglæpi, hvorki Kínverja né Víetnama. Víetnamska fréttastofan vitnaði í dag í frásögn Le Van Tam, sem er framhaldsskólanemi í Dong Dang, en hann sagði frá því að hann hefði verið sjónarvottur að því er Kínverjar hentu kornabarni upp í loft og létu það lenda á beittum hnifsoddi. Hann greindi einnig frá því að kona hefði verið stungin til bana. Fréttastofan greindi frá því að kínverskar hersveitir hefðu rekið fólk úr fylgsnum sínum i tiu víetnömskum þorpum. Hinir ungu og hraustu voru dregnir í burtu, en hinir drepnir á staðnum, að því er frétta- stofa Vietnama hermdi. Vietnamar segjast hafa fellt 27 þúsund kínverska hermenn frá því að bardagarnir hófust fyrir hálfum mánuði. Kínverjar vísa þessum tölum um eigið mannfall á bug og segja þær fráleitar. Vestrænar heimildir telja þessar tölur um mannfall ýktar. Harðir bardagar eru nú í nágrenni Lang Son, sem er hemaðarlega mikilvægur bær um 135 km norður af Hanoi. Kínverjar hafa lýst því yfir að þeir muni takmarka sókn sína og vest- rænar heimildir greina að svo virðist sem þeir virðist ekki ætla sér lengra. Kínverjar hafa farið formlega fram á samningaviðræður við Víet- nama og að varautanríkisráðherrar beggja landa hittist eins fljótt og auðiðer.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.