Dagblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979. NýBstiner fynd'mog hugmyndarík — Viðtal við Friðrik Þ. Friðriksson og Bjarna Þórarinsson vegna myndlistarverðlauna DB „Listamenn vilja lyfta asklokinu ofan af fólki svo það sjái himininn,” sagði Friðrik Þór Friðriksson. Hann og Bjarni Þórarinsson ræddu við DB fyrir hönd þess unga fólks sem af miklum dugnaði hefur starfrækt Gallerí í Suðurgötu 7, en fyrir þá starfsemi hlaut stofnunin Menningarverðlaun DB 1979. Fyrir þremur árum virtist þetta gamla timburhús að falli komið. Ofnar voru sprungnir af frosti, rafmagnið tekið af og ibúar flúnir vegna vosbúð- ar. Hópur af nemendum úr Háskólan- um svo og Myndlista- og handíðaskól- anum fékk leyfi til að nota það, ef þeir gætu gert það upp. Og þótt það virtist ekki áhlaupaverk, meður því að það var mjög illa farið, réðust þau í við gerðirnar. Það tók um 1 ár að setja það í stand, en því var lokið vorið 1977 og síðan hefur þetta deyjandi hús verið sprelllifandi staður. Þar hafa verið haldnar milli 30—40 sýningar á nýlist, innlendri sem erlendri og auk þess hefur í tengslum við húsið var gefið út bráðmyndarlegt og vandað listtímarit, Svart á hvítu. Af því eru komin út fjögur tölublöð og það fyrsta er þegar uppselt. Vinsældir blaðsins fara sivax- andi og virðist það ætla að fylla í skarðið sem myndaðist þegar Birtingur hvarf úr sögunni árið 1968. Hópurinn hefur einnig gengizt fyrir ýmsum tónleikum erlendra listamanna, m.a. saxófónleikarans Evan Parker og átti einnig hlutdeild í þeirri spuna- hljómsveit kvenna, sem kom hingað í haust. Á næstunni er von á þekktum pianóleikara. Satt að segja er starf- furða að nýlega komst víðförull gestur svo að orði, að þær þrjár borgir i heim- inum, þar sem mest lif væri í listinni virtust vera: New York, Berlín og Reykjavík. En kannski er þetta bara brandari, segja þeir Friðrik Þór og Bjarni. Fyndin en ekki hátíðleg Þeir félagar leitast við að útskýra ný- listina og segja, að áður hafi málverkið verið hið eina og sanna tjáningarform, ja, eða höggmyndir úr kopar eða gifsi. ,,Með nýlistinni hefst áköf leit að nýjum efnum og nýjum hugmynd- um. Hugmyndir og hugmyndatengsl taka eiginlega völdin og hrein hugdetta þurfti stundum ekki útfærslu í annað efni. Nóg var að skrifa hana á blað, segja frá henni.” í afstraktlistinni skipti innihaldið engu, — hið hreina form og litur var það sem gilti, — en nú er myndlistin aftur farin að segja frá og taka beina afstöðu til umhverfisins. Hún tengist öðrum greinum, svo sem bókmenntum og vísindastarfsemi. Henni er ekkert ó- viðkomandi. Þá er mjög áberandi i ný- listinni alls kyns saklaus hrekkvísi, fyndni og óræð uppátæki, sem bera hugarfluginu vitni. Nýlistin hefur virkað mjög örvandi á sýningarsalina sjálfa og hafa mörg gall- eri verið stofnuð í kringum hana. Enda er nýlistin gjarnan þess eðlis, að mjög auðvelt er að flytja hana milli staða og því er margs konar kostnaður úr sög- unni. Meiri áherzla er lögð á sýningar- ,,Að festa blund” heitir þetta háðslega verk eftir Friðrik. Það er nú i eigu Lista- safns íslands. DB-mynd Hörður. semin alveg að sprengja utan af sér húsið og nú eru miklar ráðagerðir um að leigja til viðbótar stóran sal á góðum stað í bænum. Þar á eitthvað að gerast á hverju kvöldi, stundum á að vera lif- andi tónlist, stundum kvikmyndasýn- ingar, stundum gjörningar og leiklist. Þarna mundu verða kaffiveitingar og helzt einnig timarit og bækur um listir til sýnis og sölu. Eins konar bókakaffi. Enn má geta þess, að nú um áramótin sendi galleriið í fyrsta sinn sýningu til útlanda, — til Lundar í Svíþjóð. Miðað við allt þetta fjör er ekki að skrá í staðinn. Málverkin í gamla stíln- um, þessi sem gerð voru til að skreyta hibýli efnafólks og geymast síðan á söfnun sem helgidómar — þau var erf- itt að flytja á milli staða. Að pakka inn Alþingishúsinu T.d. sendir Ungverjinn Endre Tót verk sín í bútum í sendibréfum, og svo er þeim raðað saman af móttakanda. Landi hans Gabor Attalai sendir fyrir- mæli, sem unnið er eftir. Þeir í Suður- götu sendu honum ljósmyndir af hús- kassann sinn. næði sínu síðastliðið sumar, og er hann endursendi myndirnar, hafði hann merkt inn á þær, hvernig því skyldi um- breytt, með því að mála rauðan lit á ofna, þröskuldi, hluta af gólfi, o.s.frv. Þegar búið er að mála, sér maður gamalkunnugt umhverfi upp á nýtt, og hversdagslegir innanstokksmunir kvikna aftur til lífsins. Annar lista- maður, Robin Crozier, skipulagði fyrir Suðurgötumenn bláa sýningu. Þá var listamönnum víða um heim, austan tjalds og vestan, boðið að senda til gall- erísins allt það, sem þeim fannst tengj- ast stefinu „blátt”. Já, í nýlistinni eru allar flóðgáttir opnaðar. Hún er takmarkalaus. Og margt af henni er ekki hægt að hengja á vegg, í stofu eða safni, og þannig hafa listamenn afneitað gróðasjónarmiðinu í myndlistinni. Þess í stað snúa menn sér að landslaginu, byggja stíflugarða eða sá í akra eftir ákveðnu munstri, t.d. spíral. Ameríkaninn Smithson er gott dæmi um slikan láðlistarmann. Búlgar- inn Christo vefur heilar landspildur inn í dúka. „Við ættum að láta hann pakka inn Alþingishúsinu,” segja þeir Friðrik Þór og Bjarni undirfurðulegir á svip- Gjörningar og ferli Friðrik Þ. (t.v.) og Bjarni urðu fyrir svörum i Suðurgötu. Viðleitnin til að losa sig undan fargi hefðbundinnar tjáningar birtist meira að segja í því, að farið er að lita á at- hafnir sem eins konar myndlist. Á Ítalíu fór einn listamaður t.d. að breyta sér smátt og smátt i vöðvafjall méð að- stoð „bulluverks”. Kom hann á hverju kvöldi í galleri sitt og lét mæla hvað vöðvarnir höfðu gildnað. Þeir félagar nefna slíkt hátterni „ferli” og segja það dæmi um það, hvað nýlistarmenn leggi á sig i tjáningu sinni. Flóknari at- hafnir eru kallaðar gjörningar, en þetta skemmtilega orð hefur tvíþætta merk- ingu, að gera og galdur. Gjörningur er fyrirfram skipulögð athöfn og tengist leikhúsinu lítillega. Á listsýningu í Feneyjum gekk fólk um gólf eftir ákveðnum brautum tímunum saman, og snertist í hvert skipti sem það mæti- ist. Þessu hélt fólk áfram unz það féll um koll, úrvinda af þreytu. Áhorfandanum var frjálst að skoða þetta verk sem táknrænt fyrir mannkyn i sjálfheldu, — eða hvað sem honum sýndist. Bandbrjálaður eða taminn Hvað skyldi þetta allt svo þýða og til hvers er það? Sumir vilja lita á þessa hömlulausu sköpun sem eins konar sjálfsfróun og telja nýlistir hafa lítið fé- lagslegt gildi. Þjóðverjinn Beuys, einn helzti hugmyndafræðingur nýlistarinn- ar, segir hins vegar að miðlunin skipti minna máli en sköpunin og að þjóðfé- lag skapandi einstaklinga sé heilbrigt samfélag. Beuys segir enn fremur, að öll sköpun sé hið eina sanna andóf gegn tæknivæddu maskínuþjóðfélagi, þvi sköpunina sé ekki hægt að henija. Maður er farinn að sakna þeirra tínia þegar menn gátu gengið um bandbrjál- aðir og blindfullir. Nú eru allir þegnar þjóðfélagsins tamdir, stimplaðir og númeraðir. Þeir félagar Friðrik Þór og Bjarni orða þetta svo: „Nýlistin er viðnám gegn ofskipulögðu þjóðfélagi, þar sem fólk er slitið úr tengslum við alla sköpun, sett við færibönd eða ritvélar og loks matað af fjölntiðlum, sem til- tölulega fáir stjórna. Listamenn vilja ekki lengur gegna því hlutvcrki að skreyta stofuveggi hinna efnuðu. Þeir vilja, að frelsi mannsandans séu engar skorður settar.” IHH/Al

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.