Dagblaðið - 02.03.1979, Side 6
Afleysingarstarf
Hjúkrunarskóli íslands, Eiríksgötu 34 óskar
að ráða ritara r 4 mánuði frá marzbyrjun til
júlíloka. Þarf að hafa góða vélritunarkunn-
áttu. Laun samkvæmt launakjörum ríkisins.
— Skriflegar umsóknir sendist skólastjóra.
Útboð — gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboð ái 2. áfanga
gatnagerðar í Hvammahverfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 20 þúsund'
kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama
stað, fimmtudaginn 8. marz kl. 11.
Bæjarverkfræðingur.
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Hjúkrunarfræðingur óskast til kennslu við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti frá 10. marz
nk. til loka vorannar. Uppl. hjá Rögnvaldi
Sæmundssyni aðstoðarskólameistara í síma
75600.
Geymsluhúsnæði
óskast til leigu
200 fermetrar, upphitað með háum dyrum, í-
einn til tvo mánuði. Upplýsingar á skrifstofu-
tíma í símum 83080 og 18453, helgarsími
71868.
Starfsmannafélagið
Sókn tilkynnir:
Námskeiðin hefjast í marz i Námsflokkum
Reykjavíkur. Þeir sem hafa hug á að sækja um
námskeið hafi samband við skrifstofu Sóknar
fyrir 10. marz.
Nefndin.
Vorí
MIKLATORGI
Glœsileg ný pottaplöntusending. Stórir
burknar, drekatré og Yucca. Blómstrandi
alparósir, St. Pauliur, pokablóm, ástareld-
ur, Chrysantemum, Seneraia, Gardenía.
Einnig glœsilegt kaktusa- og þykkblöð-
unga úrval.
OPIÐ KL. 9-21
SÍMI22822
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
T ryllingsös í bif-
reiðaskoðuninni
— að því er virðist aðeins til að fá frest á greiðslu nýs tryggingaiðgjalds
Miklar annir voru hjá Bifreiða-
eftirliti rikisins tvo síðustu daga
febrúarmánaðar. Á miðvikudaginn,
síðasta dag mánaðarins, voru skoð-
aðar í Bíldshöfða 430 bifreiðir og
30—40 nýir bílar hjá umboðunum,
eða alls 460—470 bílar. Á þriðjudag-
inn, næstsíðasta dag mánaðarins,
voru skoðaðar 414 bifreiðir hjá eftir-
litinu auk skoðunar hjá umboðun-
um.
Skýringa á þessari ös í skoðuninni
er ekki að leita í öðru en trygginga-
skírteinum bílanna. Við skoðun
verður að framvísa gildum trygginga-
skírteinum. Skírteinin renna hins veg-
ar út á miðnætti 28. febrúar og ný fá
eigendur bifreiða ekki nema greiða
tryggingu bílsins fyrir næsta ár.
Virðist sem margir vilji fá einhvern
frest á greiðslu nýrrar tryggingar og
nota gamla skírteinið til að fá skoðun
á bíla sína, löngu áður en að þeim er
komið samkvæmt númeraröð sem
Bifreiðaeftirlitið auglýsir. Hér er þó
ekki nema um smáfrest að ræða því
fljótlega eftir eindaga hefja trygg-
ingafélögin lögfræðilega innheimtu
tryggingagjaldanna með ■ tilheyrandi
álagi og aukakostnaði.
í gærmorgun, l.marz, datt ösin
niður hjá skoðunarmönnum og um
hádegisbil höfðu ekki komið til skoð-
unar nema 70 bílar.
Þeir sem taka sér þennan frest, eins
og að ofan greinir, valda þeim sem
mæta eiga umrædda daga samkvæmt
auglýsingu um skoðun nokkrum
töfum og bið. Var ösin við skoðunina
þessa daga eins og fyrir stórhátíðir og
mestu umferðarhelgar sumarsins.
-ASt.
Skoðunarmenn voru látlaust að frá morgni til kvölds.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
„MERK VIÐLEITNI”
—* segir Vinnumálasamband samvinnumanna
umfrumvarpólafs
„Vinnumálasamband samvinnufé-
laganna telur frumvarpið fela í sér
merka viöleitni til þess að fjalla um
efnahagsmálin í heild sinni með sam-
ræmdum hætti. Telur Vinnumálasam-
bandið að efni frumvarpsins almennt sé
til þess fallið að geta orðið virkt tæki í
baráttunni gegn verðbólgu. ”
Svo segir í umsögn Vinnumálasam-
Nýtt
fiskverð
—1,9% hækkun
frááramótum
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins hefur ákveðið nýtt fiskverð sem
gildir frá 1. marz til 31. maí 1979.
Verðákvörðunin feiur í sér meðal-
hækkun sem nemur 1,9% frá því fisk-
verði sem gilt hefur frá síðustu ára-
mótum.
Verðið var ákveðið með atkvæðum
fjögurra yfirnefndarmanna gegn at-
kvæði Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar.
í nefndinni áttu sætí: Jón Sigurðs-
son, forstjóri Þjóðhagsstofnunar,- sem
var oddamaður nefndarinnar, Árni
Benediktsson og Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson af hálfu fiskkaupenda og
Ingólfur Ingólfsson og Kristján Ragn-
arsson af hálfu fiskseljenda.
bandsins við efnahagsfrumvarpi Olafs
Jóhannessonar forsætísráðherra.
Vinnumálasambandið mælir með
ýmsum þáttum frumvarpsins. Þaðsegir
að kjaramálaráð geti, ef samstaða næst
og vel er á haldið, orðið mikilvægur
þáttur í samráði ríkisvalds og aðila
vinnumarkaðarins.
Það telur ákvæði frumvarpsins um
peninga- og lánamál og verðtryggingu
sparifjár og lánsfjár skref í rétta átt.
Tillögumar um vísitölugrundvöll
gætu orðið að meginefni ásættanlegur
umræðugrundvöllur um vísitölumálin.
Vinnumálasambandið kveðst reiðubúið
til frekari viðræðna um verðbætur á
laun.
-HH.
Gaf Mynd-
listarskóla
Akureyrar
listamanna-
launin
Kjartan Guðjónsson, listmálari og
yfirkennari Myndlista- og handíðaskól-
ans í Reykjavík, hefur gefið Myndlist-
arskólanum á Akureyri 150 þúsund
króna listamannalaun sín, sem hann
fékk á dögunum.
Skólinn á Akureyri er ungur að
árum, fjárþurfi og berst fyrir tílveru
sinni, að því er segir í Akureyrarblað-
inu íslendingi. Segir þar einnig, að
gjöfin komi skólanum í góðar þarfir ,,á
þessum erfiðu tímum”, en Kjartan og
aðrir kennarar skólans í Reykjavík
hafa jafnan sýnt skólanum fyrir norð-
an hlýhug og veitt honum aðstoð.
-ÓV.