Dagblaðið - 02.03.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
r 1 ......
7
Togstreita um saltmagn
í gaffalbitasíldinni
Margt er að gerast í „gaffalbita-
málinu” svonefnda þessa dagana og
nú er lögfræðiskrifstofa Páls S.
Pálssonar farin að vinna að málinu
fyrir K. Jónsson & Co á Akureyri.
DB þarf að leiðrétta misskilning
sem fram kom í viðtali þess við Her-
mann Hansson kaupfélagsstjóra á
Höfn. Var það í frásögn Hermanns
af vigtun tunnanna sem misskilning-
urinn kom fram.
Meðalvigt allra tunnanna sem vigt-
aðar voru var 101,6 kg. Mesta meðal-
þyngd í „partíi” þeirra tunna er
vegnar voru var 105,4 kg og í því
„partíi” fannst ein tunna sem vó 111
kg. Við vigtunina var tekið 5%
magnsins samkvæmt samningi eða
sem svarar 20. hver tunna.
Þá hefur eftirlitsmaður K. Jónsson
& Co á Hornafirði beðið DB að birta
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Vegna fréttar í Dagblaðinu 23.
feb. bls. 6, eftir viðtalið við Hermann
Hansson á Höfn, þar sem skilja má
að ég undirritaður, sem trúnaðar-
maður K. Jónsson & Co við söltun
síldar á Höfn til vinnslu hjá fyrirtæk-
inu, hafi óskað eftir þvi að saltmagn
í tunnu færi niður í 14,5 kg og síðan
ekki sinnt aðvörunum um að salt-
magnið væri of lítið, vil ég taka þetta
fram:
Saltmagnið var ákveðið 15 kg og
annað bar aldrei á góma. Það kom
aldrei til þess að trúnaðarmenn Fiski-
mjölsverksmiðju Hornafjarðar eða
aðrir vöruðu mig við því að salt-
magnið væri of lítið.
Akureyri 24. feb. 1979
Jón M. Jónsson”.
íþróftakennarinn
kom með drengi
til útskipunarvinnu
Alltaf er jafnmikið að gera á Eski-
firði. Á laugardaginn komu þrjú skip
til að taka fiskafurðir, loðnumjöl,
saltfisk og 120 tonn af frystri loðnu á
Japansmarkað. Hermann Níelsson
íþróttakennari á Eiðum kom með átta
stælta drengi frá Eiðum til að skipa út
loðnunni og gekk sú farmskipun alveg
sérlega vel. Ættu fleiri kennarar og
skólastjórar að taka Hermann sér til
fyrirmyndar og fara um helgi og vinna
með nemendum sínum því hér er alltaf
þessi mikla atvinna. Slík vinna hressir
nemendurna og þeir verða duglegri við
nám sitt áeftir.
-Regína/ASt.
Hitaveita Akureyrar:
Svartolíustöð
í öryggisskyni
„Ætlun okkar með þessu er að
auka öryggi veitunnar og er áformað
að reisa stöð í sumar, eins konar
toppstöð,” sagði Ingi Þór Jóhanns-
son, fulltrúi hjá Hitaveitu Akureyrar,
í viðtali við Dagblaðið, en auglýst
hefur verið, ásamt öðru í útboðum,
eftir hitakatli, sem brennir svartolíu,
og á að koma honum fyrir í þessari
nýju varastöð. „Við komum fyrir
dælubúnaði á nýja holu við Lauga-
land fyrir skömmu og eftir að hún
var tengd hefur rennslið verið aukið
til muna, eða í 90 sekúndulítra,”
sagði Ingi ennfremur.
Vatnsþörf tengdra húsa á Akureyri
nú mun vera um 70 seklitrar en
tengja á um 700 hús á þessu ári.
Verða þá um 2000 hús af þeim 3000,
sem á veitusvæðinu eru, tengd.
„Tengingin hefur gengið svona
sæmilega,” sagði Ingi. „Það var
tekin nokkuð góð skorpa fyrir jól en
hægara hefur gengið núna í ófærð-
inni.”
Fyrir skömmu var nýja dælustöðin
á Akureyri reynd og tókst það vel að
sögn Inga.
Verið er að koma fyrir fjarstýring-
arbúnaði fyrir dælustöðina við
Laugaland í stöðinni á Akureyri en
búnaður þessi er í smíðum hjá Sam-
virki í Kópavogi. „Hitastig vatnsins
er nú um 90°C sem er ákjósanlegt,”
sagði Ingi að lokum.
Hjólin undan
— bfllinn út af
Það fór heldur illa fyrir honum
þessum. ökumaður vörubílsins var að
koma af öskuhaugunum ofan við
Reykjavík i fyrradag þegar annað
framhjólið brotnaði undan bílnum.
Það skipti engum togum — bíllinn valt
út af veginum. Bílstjórann sakaði ekki.
Síðar um daginn náði krani bílnum upp
og kom honum á verkstæði.
-DB-mynd Dagbjartur Jónsson.
„Hjartabíllinn”, sem nú er uppgefinn og tekinn úr umferð sést hér til hægri. Við hlið hans stendur nýjasti og fullkomn-
asti bíll Reykjavíkurdeildar Rauða krossins.
DB-mynd Sveinn Þormóðsson.
„Hjartabfllinn” úr umferð
eftir dygga þjónustu
— Bfllinn markaði tímamót í sögu sjúkraf lutninganna
skakkaföllum, m.a. tvívegis lent i
mjög alvarlegum árekstrum. Ótöld-
um fjárupphæðum hefur verið varið
til viðgerðar á honum. En nú þykir
slíkt ekki svara kostnaði lengur.
En tímamót markaði bíllinn því nú
eru ekki annars konar bílar til sjúkra-
flutninga keyptir en þeir sem búnir
eru eiginleikum og tækjum þessa
brautryðjandabíls í sjúkraflutningum
á íslandi.
-ASt.
Hinn svokallaði „hjartabíll”, sem
velflestir Reykvíkingar kannast við,
hefur nú lokið hlutverki sínu sem
slíkur. Síðustu daga hefur verið unn-
ið að því að rífa allt innan úr honum
og hverfur hann nú úr sögunni sem
sjúkraflutningabíll í neyðartilfellum.
Fyrir nokkrum árum markaði
,,hjartabíllinn” þáttaskil í sjúkra-
flutningum. Aðstandendur og ætt-
ingjar Hauks heitins Haukssonar
blaðamanns gáfu myndarlegt stofnfé
til sjóðs til kaupa á bílnum og fyrir
forgöngu Blaðamannafélags íslands
hófst almenn fjársöfnun til kaupa á
honum. Á stuttum tíma safnaðist fé
til kaupa á þessum þá fullkomnasta
sjúkraflutningabíl landsins. í honum
voru tæki sem áður höfðu ekki
þekkzt í slíkum bílum hér og gátu
bjargað lífi sjúklinga á leið til sjúkra--
húss.
„Hjartabíllinn” hefur á liðnum
árum orðið fyrir margs konar
Ferðamiðstöðin:____
GALDÞR0TA-
BEIÐNIR
ALLAR AFTUR-
KALLAÐAR
Gjaldþrotabeiðnir á Ferðamið-
stöðina hf. voru allar afturkallaðar
þegar innköllunarfrestur rann út í
fyrradag og var búið því aftur afhent
stjórn félagsins til frjálsra umráða.
Unnsteinn Beck skiptaráðandi
sagði í samtali við fréttamann DB í
gær að búið hefði verið að afgreiða
allar kröfur í búið — ýmist með
samningum eða greiðslum eða hvort
tveggja. Við skiptalok munu hafa
borizt 16—18 kröfur í bú Ferðamið-
stöðvarinnar, að upphæð samtals um
16 milljón krónur.
Stjórn Ferðamiðstöðvarinnar hf.
fékk að reka félagið áfram þrátt fyrir
að búið hefði verið tekið til gjald-
þrotaskipta.
-ÓV.
ingar
Frá 1. marz er grunn-
verð auglýsinga 1800 kr.
hver dálksentímetri. Frá
sama tíma kostar hver
smáauglýsing kr. 2700.
Prentvilla
um kaupið
Sú meinlega prentvilla varð í
DB í gær að þar stóð að kaup
hækkaði um5,9% l.marzenátti
aðstanda 6,9%.