Dagblaðið - 02.03.1979, Side 14
14
I
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
D
Bgum við von á spánskri
innrás í handknattleik?
—spánsku liðin sýna íslenzku leikmönnunum mikinn áhuga
og Barcelona, Real Madrid og Valencia hafa beðið
um að fá að ræða við leikmenn
Hallur Simonason i Barcelona.
Nokkur af þekktustu íþrótta-
félögum Spánar, eins og Atletico
Madrid, Barcelona og Valencia, hafa
óskaö eftir að fá að ræða við nokkra af
islenzku landsliðsmönnunum, með það
i huga að fá þá í sínar raðir sem fyrst.
Barcelona hefur þegar rætt við Viggó
Sigurðsson, en ekkert beint samband
hefur verið haft við aðra, að sögn far-
arstjóra islenzka liðsins hér.
Þaö hefur heldur ekki verið minnzt
á ákveðna menn. Auðvitað er ekki
hægt að neita forráðamönnum þessara
félaga um að ræða við íslenzka
leikmenn en greinilegt er að mikið
vandamál er á ferðinni. Ef til vill fara
leikmenn nú að flykkjast til Spánar,
eins og til V-Þýzkalands og Svíþjóðar
áður.
Spönsku blöðin
sögðu ísland
áfram f A-riðil
—á HM1982 en spánska
framkvæmdanef ndin taldi svo en
um misskilning var að ræða
Itallur Símonarson f Barcelona:
Spánska framkvæmdanefndin sem
sér um B-keppnina hér á Spáni telur að
ísland og Ungverjaland hafi unnið sér
rétt í A-keppnina 1982 í V-Þýzkalandi,
það er HM, með frammistöðu sinni
hér. Það er verða í 3.—4. sæti. í
spænskum blöðum hefur verið skýrt
frá þessu og þar sagt að ísland og Ung
verjaland leiki f A-riðli 1982. Tékkósló-
valda, Svfþjóð, Holland og Búlgaria f
B-riðlinum 1981 og Noregur, Israel,
Frakkland og Austurrfki f C-riðlinum í
Færeyjum.
„Við höfum heyrt um þessa túlkun
Spánverja á reglunum en því miður
mun hún ekki vera rétt. Við ræddum
strax við Peckmayer, framkvæmda-
stjóra IHF, um máliö og hann taldi úti-
lokað að þetta væri rétt hjá Spánverj-
um,” sagði Júlíus Hafstein, formaður
HSÍ, þegar DB leitaði til hans í sam-
bandi við skrif spænsku blaðanna.
„Það er ýmislegt sem misskilningi
hefur valdið í reglugerð IHF, eins og
fram hefur komið áður. Þær virðast
ekki nógu skýrar í sambandi við keppn-
ina, hvort heldur er um að ræða A- eða
B-riðla HM og hafa verið túlkaðar á
mismunandi hátt.”
Fundur var hjá Alþjóðanefnd IHF í
morgun og mun standa fram eftir degi.
Þeir Júlíus Hafstein og Gunnar Torfa-
son sitja fundinn. Komið hefur fram
mikil óánægja hjá Svíum með fram-
kvæmd OL hér á Spáni. Ef tími gefst til
eftir fundinn munu þeir Júlíus og
Gunnar óska eftir viðtali við aganefnd
IHF og ræða um aðdragandann að
Víkingsmálinu en tveir úr nefndinni eru
hér, Wadmark og Ivan Kunst.
Leitað hófanna
með landsleiki
— gegn Ungverjum,
Sviss, Frökkum
ogSpánverjum
Hallur Simonarson i Barcelona:
„Við höfum verið að leita fyrir okk-
ur um landsleiki. Höfum rætt við eða
munum ræða við Svisslendinga,
Ungverja, Spánverja, Frakka og Hol-
lendinga,” sagði Július Hafstein, for-
maður HSÍ, i gærkvöld.
„En ekkert hefur verið ákveðiö end-
anlega. Það á bara eftir að staðfesta
samning við Hollendinga með landsleik
A-liða þjóðanna, auk landsleikja í
unglinga og júnioraflokki. Allt er óá-
kveðið með Spánverja. Það náðist
hvergi í þá í gær til að ganga frá
málum, enda kannski skiljanlegt eftir
að Spánn hafði tryggt sér rétt á OL í
Moskvu. Ungverjar eru hins vegar í
erfiðu skapi, þykir sinn hlutur ekki
nógu góður hér á mótinu og því rétt að
bíða aðeins með viðræður við þá.
Frakkar skulda okkur landsleik heima
og ég hef góðar vonir um að sam-
komulag náist við Sviss. Þá má geta
þess að HSÍ hefði hug á að sækja um
B-keppnina mánaðamótin febrúar-
marz 1981. Það þarf að gera sem
fyrst,” sagði Júlíus ennfremur.
Halldór Árnason
íVíking
— frá Austra
Halldór Árnason, Austra, hefur nú
gengið í raðir Víkinga. Halldór vakti
athygli síðastliðið sumar með Austra
fyrir góða leiki. Hann hefur að undan-'
förnu æft með Fram og Viking —
greinilega að gera upp hug sinn.
Halldór Árason er fjórði leik-
maðurinn sem á skömmum tíma hefur
gengið í raðir Víkinga. Áður hafði
landsliðsmaðurinn Hinrik Þórhallsson
gengið í Víking, Ómar Torfason frá
ísafirði og loks Hafþór Kristjánsson —
einn af markakóngum 3. deildar í
fyrra. Hann lék með Aftureldingu en
lék alla sína yngri flokka með Víking.
Hafþór er bróðir Gunnars Arnars, hins
skotharða Víkings.
H. Halls.
IR sigraði stúdenta
ÍR sigraði bikarmeistara stúdenta
76—72 í íþróttahúsi Kennaraháskólans
í gærkvöld. Slakur leikur sem ber
merki þess að hann hefði sáralitla
þýðingu — bæði lið sigla nú lygnan sjó
f úrvalsdeildinni. Geta í raun ekki
fallið, né unnið deildina.
lR-ingar höfðu yfir í leikhléi, 44—
29, en stúdentar tóku kipp í lokin og
minnkuðu muninn óðfluga, án þess að
ná að brúa bilið. Paul Stewart var
stigahæstur fyrir ÍR, með 28 stig, en
hjá ÍS var Trent Smock stigahæstur
meö23 stig.
íslenzka fararstjórnin hefur enn
ekki veitt spánsku liðunum heimild til
að tala við strákana.reyntaðhaldaþeim
frá strákunum eins lcngi og kostur er.
En spánsku liðin hafa hug á að fá
fleiri en einn og fleiri en tvo leikmenn.
Þeir sem einkum hafa vakið athygli
Spánverja fyrir utan Viggó, eru þeir
Ólafur Benediktsson, markmaður,
Bjami Guðmundsson, Ólafur Jónsson,
Árni Indriðason, Páll Björgvinsson og
þeir félagar Axel og Ólafur H.
Hallur Símonarson
á Spáni.
Bjarni Guðmundsson f landsleik við Ungverja. Hann jafnaði á lokasekúndunum i
Reykjavik
Erlendur kemur mn gegn
Ungverjum í Barcelona
— leikur sinn fyrsta leik á Spáni. Axel og Ólaf ur H. Jónsson
héldu til Þýzkalands í gær
Hallur Símonarson i Barcelona:
íslenzku landsliðsmennirnir voru á
æfingu f morgun i fþróttahöllinni miklu
hér i Barcelona og siðar í dag verður
liðssldpan íslenzka liðsins gegn Ung-
verjum f kvöld tilkynnt. Leikurinn um
þríðja sætið hefst kl. 6.15 að islenzkum
tima. Þeir Axel Axelsson og Ólafur H.
Jónsson urðu að fara til V-Þýskalands i
gær og leika þvf ekki i kvöld. Val lands-
liðseinvaldsins Jóhanns Inga er því
óvenjulétt. Aðeins tveir leikmenn verða
ekki með — einn markvörður og einn
útispilari. Hverjir það verða kemur
ekki fram fyrr en i dag, en eitt er víst að
Erlendur Hermannsson, Víking, mun
leika sinn fyrsta leik hér á Spáni gegn
Ungverjum.
íslandi hefur alltaf gengið heldur illa
gegn Ungverjum. Og sigurlíkur ekki
miklar í kvöld, í Palau Blau Grana
íþróttahöllinni hér í Barcelona. Ýmsir
gamalreyndir kappar eru í liði Ung-
verja. Átta hafa leikið yfir 100 lands-
leiki. Og nöfn flestra eru íslendingum
kunn. Fimm leikmenn eru frá Honved,
fimm frá Tatabanyana, liðinu sem Vík-
ingur átti að leika við í EM.
í sigurleik Ungverja við Búlgara í
fyrrakvöld skoraði Sort Contra, Tata-
banyana flest mörk Ungverja, eða 10.
Peter Kovacs, Honved skoraði sjö
mörk og Janus Fodor 6 mörk. Hann
leikur með STC og hefur leikið 20
landsleiki. Aðeins einn leikmaður Ung-
verja hefur leikið færri leiki. Bela
Bartalos, markvörður Tatabanyana, er
með flesta landsleikina, 218. Hugur er í
íslenzku strákunum að standa sig sem
bezt. Allir heUir en kvef hefur herjað á
marga hér í íslenzka hópnum.
WBA bar loks sigur af
Leeds, 2-0 í Bikarnum
—á The Hawthoms í gærkvöld. Wile og Ally Brown bundu
enda á bikardraum Leeds
WBA bar loks sigurorð af Leeds — í
fyrsta sinn í þremur viðureignum.
íslandsmótið
ijudo
íslandsmótið í judo hefst nk. sunnu-
dag með keppni t þyngdarflokkum
karla. Keppt verður i öllum sjö þyngd-
arflokkunum, og eru keppendur frá
Judofélagi Reykjavíkur, Ármanni,
Keflavík, Grindavík og frá Akureyri,
meðal keppenda. Aðeins þrir núver-
andi íslandsmeistara verða meðal þátt-
takenda: Bjami Friðríksson, Halldór
Guðbjörnssonog Þórarínn Ólason.
Þátttaka er mikil og verður örugglega
barízt hart um alla titlana. Þetta er 10.
íslandsmeistaramótið i judo, og síðan
JSÍ var stofnað hefur alltaf verið keppt
í öllum þyngdarflokkum.
Sunnudaginn 11. marz verður svo
keppt i opnum flokki karla og í
kvennaflokki og flokkum unglinga
15—17 ára.
Síðastliðinn laugardag sigraði Leeds
WBA 2—1 i 1. deild, á mánudag skildu
liðin jöfn, 3—3 i bikarnum og því varð
að leika aftur. Og í gærkvöld sigraði
WBA lið Leeds 2—0 á The Hawthorns í
West Bromwich, útborg Birmingham.
Hörkuleikur og í raun synd að
annað liðið skyldi bíða lægri hlut. Eftir
venjulegan leiktíma var staðan jöfn,
0—0, og vart mátti á milli liðanna sjá.
Og mínúturnar tifuðu hver af
annarri í framlengingunni þar til loks á
23. mínútu að fyrirliði WBA, John
Wile, skoraði af stuttu færi. Og á
síðustu mínútu framlengingarinnar
skoraði Ally Brown fyrir WBA, 2—0,
sigur, og í næstu umferð mætir WBA
úrslitaliðinu í deildabikarnum,
Southampton. Sá leikur er í 5. umferð
— og í 6. umferð, 8-lið úrslitum mætir
WBA/eða Southampton Arsenal.
íþróttir
IR íkröppum dansi
— sigraði þó Aftureidingu íbikarnum
ÍR sigraði 3. deildarlið Afturelding-
ar 27—24 i bikarkeppni HSÍ, eftir
framlengdan leik að Varmá í gærkvöld.
Og ÍR-ingar héngu á bláþræði — á
siðustu minútu leiksins tókst ÍR að
jafna, 19—19, og tryggja sér fram-
lengingu. Afturelding hafði lengst af
undirtökin og staðan í hálfleik var
13—9 Aftureldingu í vil. En
reynsluleysi háði Aftureldingu, misstu
knöttinn klaufalega og ÍR náði að
jafna metin i lokin — og síðan sigra í
framlengingu.
Áður hafði Fylkir sigrað Þrótt 29—
21 i Bikamum í Höllinni.