Dagblaðið - 15.03.1979, Side 2

Dagblaðið - 15.03.1979, Side 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979. 2 Á AÐ BÍÐA EFTIR SLYSI —eða gera eitthvað róttækt í málunum strax? Hulda hríngdi og vildi vekja athygli á því hve stórhættulegt það væri ef börn hanga aftan í bílum. Hún býr nálægt Árbæjarskólanum og segist hún verða að fylgjast með því hvenær- börnin eru í timum og hvenær þau eru í frímínútum, ef hún þarf að bregða sér frá á bílnum. Að hanga aftan í bíl virðist nefnilega vera það1 eina sem bömin geta tekið sér fyrir hendur i fríminútunum. Segir hún að börnin sitji fyrir bifreiðum og leggist jafnvel í götuna til þess að fá þær til að stöðva. Og ef slys verður er bílstjórinn vitanlega ábyrgur, jafnvel þótt hann geti ekkert að gert. Oft hefur verið talað um þetta við lögregluna og skólastjóra skólans og hefur lögreglan talað við börnin og gert þeim grein fyrir því hve hættulegur leikur þetta er. En ekkert virðist duga. Eiginlega finnst manni að kennararnir ættu að skiptast á að vera með börnunum úti í frímínútum og reyna að koma í veg fyrir þetta at- hæfi, t.d. með því að fá þau með sér í leiki. Það hlýtur að vera hægt að gera eitthvað í þessu máli og ættu allir for- eldrar að sameinast um að tala um fyrir börnum sinum því svo oft hefur sannazt að ekkert er að gert fyrr en slysið er orðið. Börnin gera sér kannski ekld grein fyrir því sjálf hve hættulegur leikur það er að hanga aftan í bilum. En er ekki einhvern veginn hægt að koma þeim i skiln- ing um það? BILAKAUP RAÐHERRA Að lifaívellystingum Borgari skrífar: Fyrir nokkrum dögum gaf að lesa baksíðufrétt í Tímanum — málgagni forsætisráðherra vinstristjórnarinnar — þar sem gerð var grein fyrir bíla- kaupum allra ráðherra „stjómar hinna vinnandi stétta”. Hér var um. afar athyglisverðan lestur að ræða fyrir okkur, hina almennu launþega þessa lands, sem verðum að halda um hverja krónu til að láta enda ná saman. Hér fengum við séð, svart á hvítu, hvernig þessir sjálfskipuðu ráðherrar alþýðunnar sóa fjármun- um þegar þeir sitja sjálfir að kjötkötl- unum. Meðal annars gaf að lesa að einn af kommúnistaráðherrunum, Hjörleifur Guttormsson, væri að fá sér nýja Range Rover bifreið sem kostaði hvorki meira né minna en um 12 milljónir króna — þriggja ára laun hins almenna launþega. Viðskipta- ráðherrann, Svavar Gestsson, væri nýbúinn að fá sér amerískt „dollara- grín” sem í dag kostar ekki minna en 6 til 7 milljónir króna — um það bil tveggja ára laun verkamannsins — og þriðji kommúnistaráðherrann væri þegar kominn á nýja lúxusbifreið. Hvað áhrærir ráðherra krata og framsóknar var fréttin svipuð, ný bif- SKARTGRIPIR Fermingargjöfín í ár SIGMAR Ó. MARÍUSSON Hverfisgötu 16A — Sími 21355. ,Ný bifreið af dýrustu tegund hjá hverjum og einum ráðherranna.’ HALLÓ, MÐ ÞARNA! VHjið þið komast tii sóiarianda með Sam vinnuferðum, eignast gott Ferguson iitsjónvarp eða viðlegubúnað. STÓR BINGÓ / Sigtúni fimmtudaginn 15. marzki. 20:30 Stórglæsilegir vinningar Ókeypis aðgangur Allir velkomnir ATH. Spilað verður um 18 stórvinninge ásamt fjölda aukavinninga. F.U.F. í Reykjavík. reið af dýrustu tegund hjá hverjum og einum. Þessi frétt um bílakaup ráðherr- anna er umhugsunarverð fyrir okkur launþegana sem í kosningunum á síð- asta ári vorum blekktir með slag- orðinu „samningana í gildi” og létum því kommúnistum og krötum eftir atkvæði okkar í þeirri trú að þeir berðust fyrir launajafnrétti allrar alþýðu manna. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, laun okkar margskert, skattar á miðlungstekjur hækkaðir um og yfir 100% — og nú síðast stórhækkun launa til æðstu embættismanna ríkisins meðan al- þýðunni er skammtaður skítur úr hnefa. Og hverjir hafa þarna for- ystu? Jú, ráðherrar kommúnista og krata, mennirnir sem prédika eitt á mannamótum en framkvæma allt annað er þeir sjálfir eiga í hlut. 12 milljóna któna bill kommúnistaráð- herrans er talandi dæmi um hræsni og yfirdrepsskap þeirra manna sem boða fagnaðarerindið um jafnrétti og launajöfnuð til handa alþýðunni meðan þeir ekki eru i valdastólum en gleyma þessari sömu alþýðu um leið og völdin eru í þeirra höndum — og maka krókinn eingöngu sjálfum sér til framdráttar. „Vei yður, þér hræsnarar,” var sagt forðum daga — og á það sannarlega við um forystu- menn kommúnista og krata á tslandi í dag. En — það verða aftur kosning- ar — og þá munu flokkar þessara manna finna fyrir svipu þeirrar alþýðu sem þeir blekktu vorið 1978. Torfan afskræm- ing á fegurd Reykja- víkur G. Magnússon, 3091-7308 skrifar: Torfusamtökin eru óþurftar fé- lagsskapur sem vill halda við ljódeika í borginni og er þeim áhugamál að gömul og ljót timburhús standi sem lengst og sem víðast, það er Torfan, Grjótaþorp og fleiri. Torfan er afskræming á fegurð Reykjavíkur og er ekki neitt nema ljót og brunnin hús sem aldrei voru neitt annað og verða ekki, hins vegar minna þau á danskt þrælahald og ánauð fyrri daga. Danir eru engin forystuþjóð og danska ekkert mál svo það er alveg óþarft að vera að geyma minningar um Dani í okkar landi, hvorki með því að vernda gam- alt drasl né heldur að tala dönsku á mannamótum. Þeir sem eru kosnir til að ráða málum ríkis og borgar ættu að líta á þennan smánarblett Reykjavíkur og ákvarða eftir því. Bernhöftstorfan er til skammar og minnir einna helzt á fátækrakofa og .meUuhús erlendis. | 'l

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.