Dagblaðið - 15.03.1979, Síða 6

Dagblaðið - 15.03.1979, Síða 6
HANA NÚ, Hann á fáa sína líka hérlendis þessi gæðingur. Af sérstökum ástæðum er einn slikur til sölu nú hjá Bílasölu Guðfinns, Borgartúni. S. 25288. Nú má láta drauminn rætast. um spærlingsveiðar Ráöuneytið hefur ákveöið að eftirfarandi reglur gildi um spærlings- veiðar á þessu ári: 1. Leyfi til spærlingsveiða verða aðeins veitt bátum 500 lestir og minni. 2. Eigi má veii'i arir.arra fisktegunda en spærlings nema meiru en 5% af he'ldarafla hverrar veiðiferðar. 3. Eigi er neimilt að veiða í grynnra vatni en 60 föðmum. 4. Fjarlægð milli fiskilínu og fótreipis varpna sé minnst 40 cm. Sé ekki notað venjulegt fótreipi skulu keðjur hanga í bugtum niður úr fiskilínu og skulu bugtirnar ná a.m.k. 40 cm frá fiskilínunni. Gildir [jetta ákvæði bæði um botn- og flotvörpur, sem notaðar eru til spærlingsveiða. Umsóknir skulu sendar sjávarútvegsráðuneytinu, og skal í umsókn greina hvort skip notar botn- eða flotvörpu til veiðanna. Sjávarútvegsráðuneytíð, 12. mart 1979. Tweed fermingar- dragtir ELÍZUBÚÐIN Skiphohi 5 Sími26250 Til sölu: Renault 12 TL '77 Renault 12 TL '76 Renault 12 TL '75 Renault 12 station '75 BMW 2500 automatic árg. 1970 BMW 318 árg. '78 BMW 2002 automatic '72 BMW 316 '77 Toyota Corolla árg. '74 Vantar Renault 4TL og 5TL á söluskrá. Kristinn Guðnason Suðurlandsbraut 20 - Sími 86633. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979. Fjöldamoröingi handtekinn í Bandaríkiunum — talinn viðriðinn 27 morð f rá þvf í f yrra Eftir víðtæka leit um öll Banda- ríkin tókst lögreglunni að hafa hendur í hári 27 ára gamals manns, sem talinn er tengjast 27 morðum í Bandaríkjunum. Maðurinn, Roger Dale Stafford frá Sheffield í Alabama var handtek- inn í gær og flogið var með hann i leiguþotu í strangri öryggisgæzlu frá Chicago til Oklahomaborgar, þar sem hann kemur fyrir rétt, ákærður fyrir níu morð. Lögreglan sagði að Staffords hefði verið leitað vegna morðs sex verkamanna í steikhúsi í Oklahoma í júlí sl., en þeim mönnum var stillt upp eins og um aftöku væri aðræöaog skotnir. Þá er hann einnig talinn hafa myrt foringja í flughernum, konu hans og 12 ára gamlan son. Líkum þeirra var fleygt út fyrir veg í Oklahoma íjúní sl. Þá hurfu fjórir starfsmenn á aldrinum 16—20 ára frá ham- borgarastað í Indianapolis og fundust síðan skotnir í skógi í grenndinni. Stafford var handtekinn á hóteli í Chicago eftir ábendingu frá eigin- konu hans, en þau hafa ekki búið saman um tíma. Stafford er lýst af lögreglu sem mjög hættulegum manni, en hann veitti þó enga mót- spyrnu er lögreglan handtók hann. Lögreglan i Oklahoma sagði að líkur bentu til þess að hann væri einnig tengdur 13 öðrum morðum í öðrum ríkjum Bandaríkjanna. Lögreglan í Indianapolis er þegar komin til Oklahoma til þess að kanna hvort Stafford tengist morðunum í Indianapolis, þar sem þau líkjast mjög steikhússmorðunum. Rán var ástæða morðanna í báðum tilvikum. Um 2000 dollurum var stolið úr steikhúsinu, en um 500 frá hamborgarastaðnum. Lögreglan í Oklahoma telur líkur á að bróðir Staffords, Harold, 29 ára gamall, hafi verið í vitorði með honum í morðunum í Oklahoma, en Harold þessi fórst í mótorhjólsslysi sex dögum eftir morðin í steikhúsinu. Öeirðirnar i Denain i síðustu viku. Þá urðu heiftarleg átök milli lögreglu og stáliðnaðarmanna og aftur kastaðist i kekki i gærkvöld. Denain Frakklandi: Stáliðnaðarmenn mótmæla Reiðir stáUðnaðarmenn i franska kvöldi. Stáliðnaðarmennirnir eru með nýsköpunar í frönskum stáliðnaði. smábænum Denain komu upp þessu að mótmæla áætlunum franskra í síðustu viku urðu gífurlegar óeirðir umferðartálmunum á akvegi og járn- yfirvalda um að fækka stáliðnaðar- í bænum og slösuðust þá margir mót- brautarteinum að og frá bænum i gær mönnum um nær sex þúsund, vegna mælendur og lögreglumenn. Greenpeace: Málaði kópana græna — skipað að hypja sig af ísnum Greenpeacemaður, sá eini sem hafði leyfi yfirvalda í Kanada til þess að fylgjast með veiðum á kópum við strendur Nýfundnalands, sprautaði í gær grænum lit á kópa. Vegna þessa var honum skipað að hypja sig burt af svæðinu. Með því að mála kópana eru skinnin gerð verðlaus. Fyrstu tvo veiðidagana hafa um 300 veiðimenn frá Kanada og Noregi drepið um 21 þúsund kópa. Greenpeacemaðurinn Ed Chavies var ekki handtekinn fyrir aðgerðirnar, þrátt fyrir það að tveir menn sitji nú inni fyrirsvipaðarmótmælaaðpgerðir. Aðgerðirnar á ísnum taka á sig stöðugt skringilegri myndir. í gær birtist þar maður íklæddur dökkum jakka og pípuhatti og sagðist tala í nafni „codpeace” hreyfingarinnar, eða þorskfriðunarnefndarinnar. Þorskfrið- unarnefnd þessi var sett á laggirnar nýlega af „bisnissmönnum” í Slýfundnalandi til þess að gera grin að Greenpeacemönnum og öðrum sel- verndunarhópum. Þorskfriðunarmaðurinn tilkynnti þarna á ísnum, að Greenpteace væri ekkert annað en fjölmiðlasirkus.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.