Dagblaðið - 15.03.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979.
9
Kosningar í Háskólanum:
Um hvað er
kosiðhjá
stúdentum?
Utankjörstaðakosning í Háskóla
Íslands til stúdentaráðs og háskóla-
ráðs er hafin. Geta stúdentar kosið
utankjörstaðarídagmillikl. 12og 15
á skrifstofu Stúdentaráðs en sjálf
kosningin hefst á morgun.
Dagblaðið hafði samband við tvo
af talsmönnum hinna andstæðu fylk-
inga, þ.e. Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta og Félags vinstri
manna og spurði þá um hvað kosn-
ingarnar' snerust einkum að þessu
sinni.
-GAJ-
„Ríkisvaldið standi
við gefin fyrirheit”
— segir Boili Héðinsson f ormaður Stúdentaráðs
„Við unnum mann af Vöku í síð-
ustu kosningum en áður höfðum við
náð meirihluta. Breytingin varð því
úr 7 mönnum gegn 6 i 8 menn gegn 5
okkur í hag. Það gæti farið svo að
við töpuðum þessum manni en ég
treysti á skynsemi stúdenta,” sagði
Bolli Héðinsson, fráfarandi for-
maður Stúdentaráðs, en hann skipar
nú heiðurssæti á lista Félags vinstri
manna.
,,í þessum kosningum leggjum við
áherzlu á að ríkisvaldið standi við
gefin fyrirheit um rekstur Félags-
stofnunarinnar. Þá höfnum við
öllum fjöldatakmörkunum í námi og
álítum að með þeim sé verið að brjóta
sjálfsögð mannréttindi.”
Um gagnrýni Vöku-manna á
rekstur vinstri manna á Félagsstofn-
uninni sagði Bolli að á fundi um mál-
efni Félagsstofnunar sem haldinn var
í fyrrakvöld hefði mætt Stefán Svav-
arsson endurskoðandi, sem á sæti í
stjórn Félagsstofnunar, og hefði
komið fram í máli hans að hann liti
alls ekki svo á að um óreiðu væri að
ræða. „Málum er nú þannig
komið,” sagði Bolli, ,,að vegna
minnkandi ríkisfjármagns hafa auk-
izt mjög erfiðleikarnir á rekstri
stofnunarinnar og m .a. komið til raf-*
magnslokunar. En nú hefur nefnd
verið skipuð af ríkisvaldinu til að
endurskoða þessi mál,” sagði Bolli.
-GAJ-
Bolli Héðinsson formaður Stúdenta-
ráðs skipar heiðurssætið á lista Fé-
lags vinstri manna.
Óstjórn og óreiða hjá
Félagsstof nun stúdenta
— segir Tryggvi Agnarsson formaður Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta
,,Jú. Við höfum trú á því að nú
verði breyting á þessum hlutföllum
milli fylkinganna. Við erum með
breiðan lista lýðræðissinna en þeirra
listi er mjög einlitaður af marxistum
og við vonumst því eftir fylgi miðju-
manna,” sagði Tryggvi Agnarsson
formaður Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta.
„Ég tel að aðalmálið í þessum
kosningum verði málefni Félags-
stofnunar stúdenta. Við höfum borið
fram mjög alvarlegar ásakanir á
hendur vinstri mönnum um óstjórn
og óreiðu i rekstri stofnunarinnar en
þeir hafa ráðið stefnunni þar. Þeirri
gagnrýni hefur lítið verið svarað. Þá
verða lánamálin vafalaust mikið
rædd en þar eru skilin þó ekki eins
skörp og stundum áður því nú eru
allir sammála um að lánin eigi að
duga til framfærslu en það er fyrst
spurning um hvernig endurgreiðslu
skuli háttað.
Síðan leggjum við upp stefnu fé-
lagsins og þar er áherzlan hjá okkur á
sjálfstæði Háskólans, að það verði
verndað og eflt,” sagði Tryggvi að
lokum. -GAJ-
Tryggvi Agnarsson formaður Vöku,
félags lýðræðissinnaðra stúdenta.
Yfir 500 hugmyndir á „hugarflugsfundi” sérfræöinga:
FISKVEIÐAR Á KAF-
BATUM?
VINDUR TIL HÚSA-
HITUNAR?
— hugmyndirnar nú f lokkaðar og kannaðar
Yfir 500 hugmyndir komu fram á
, .hugarflugsfundi ’ ’ (brainstorming-
fundi) 32 íslenzkra sérfræðinga á
ýmsum sviðum sem iðnaðarmálaráð-
herra boðaði til 12. og 13. marz.
Tilefni fundarins er breytt viðhorf í
orkumálum vegna væntanlegra verð-
hækkana á olíu. Margt nýtt kom þar
fram, sumpart draumórakennt, en úr
öllum hugmyndum verður nú unnið.
Sem dæmi má nefna:
Er hægt að hita upp hús á Aust-
fjörðum með gufu frá KverkfjöUum?
Er hægt að setja upp stórt miðlun-
arlón á miðju hálendinu og veita
vatni til örkuvera í allar áttir?
Er hægt að hefja fískveiðar með
kafbátum til að spara orku?
Er hægt að flýtja inn kol og brenna
í hreinu súrefni frá vetnisverksmiðj-
um tU framleiðslu kolmónoxíðs til
metanólvinnslu — eða vinna kol-
mónoxíð úr mó?
Er hægt í sambandi við hið síðast-
nefnd að nýta hita frá slíkri fram-
leiðlu til upphitunar eða iðnaðar?
Má nota fiskúrgang til metangas-
framleiðslu en úr því má vinna
metanól?
Á að nota vindorku tU upphitunar
t.d. í Eyjum með framleiðslu heits
vatns með vindorku?
Á að hækka verð á heitu vatni til
að hvetja til sparnaðar?
Á að hætta greiðslu olíustyrks til
að rugla ekki verðsamanburð?
Má nýta sorp til orkuvinnslu með
því að nota hita frá sorpeyðingar-
stöðvum í fjarvarmaveitur til húsa-
kyndingar?
Þetta er sýnishorn af þeim yfir 500
hugmyndum sem fram komu á „hug-
arflugsfundinum” á mánudag og
þriðjudag.
Finnbogi Jónsson verkfræðingur
sem nú vinnur að málum er snerta
orkuvinnslu og orkusparnað fyrir
iðnaðarráðuneytið sagði DB að þegar
hæfist flokkun og úrvinnsla úr tillög-
um fundarins í ráðuneytinu og
mætti búast við að hún tæki um mán-
aðartíma. Leitazt verður við, með
hliðsjón af niðurstöðum, að móta til-
lögur um forgangsverkefni á næstu
árum.
32 þátttakendur „hugarflugsfund-
arins” var skipt í fjóra hópa sem
fjölluðu um nýtingu jarðhita, nýt-
ingu vatnsorku, nýjar tegundir elds-
neytis og nýjar orkulindir og loks um
orkusparnað. Hver hópur tók tvö
verkefnanna fyrir.
„Hugarflugsfundir” eru ætlaðir til
að laða fram hugmyndir sem eru nýj-
ar og falla ekki að viðurkenndum
kenningum. „Brainstorming”tæknin
þykir hentug til að auka verulega
framleiðslu hugmynda og ryðja úr
vegi hindrunum fyrir óvenjulegum
tillögum. Tæknimenn þekkja þann
vanda sem þvi er samfara að lenda á
nokkurs konar huglægum járnbraut-
arteinum, sem þeir eiga erfitt með að
komast út fyrir. Þúsundum saman
hafa slíkir fundir verið haldnir i fyrir-
tækjum og stofnunum viða um heim.
Þar er oftast spurt þrenns konar
spurninga:
1. Hvað erum við ekki að gera sem
við ættum að vera að gera?
2. Hvað ættum við að gera öðru-
vísi?
3. Hvað ættum við að hætta við að
gera?
Árangur ,,brainstorming”funda
eru margar óunnar hugmyndir sem
flokka þarf og vinna frekar úr. Við
slíkt bíður nú mikil vinna í iðnaðar-
ráðuneytinu.
-ASt.
77/ fermingargjafa
Nú eru hin vinsæ/u
upra
skrifborð
íslenzk
hönnun
Nýr stíll, létt og
Hpur íslenzk hönnun
fyrir smekkvíst
ungt fóik.
komin
íslenzk
framleiðsla
Á.GUÐMUNDSS0N
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA
SKEMMUVEGI4 - SÍMI73100