Dagblaðið - 15.03.1979, Page 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. MARZ 1979.
13
óttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Aðalsteinsdóttir, Sigurður Hinriksson. j
ttir, Jóhann Björnsson og Guðbjörgi
Kynningarfyrirlestur
er haldinn á fimmtudögum kl. 20.30 á
Skúlagötu 61, III.hæö.
Umræður — Kvikmyndir
Samtök Heimsfriöar og Sameiningar
Skúlagötu 61, pósthólf 7064, sími 28405.
Stofnandi:'
Séra
Sun
Myung
Moon
Þreytist aldrei á að borða
hamborgara en pylsumar
erubetri heima á íslandi!
„Hefði einhver sagt í haust, að
Pétur Guðmundsson yrði í úrvalsliði
háskóla við Kyrrahafsströndina —
Pacific 10, þá hefði þjálfarinn, Marv
Harsman þegar sent hann til
geðlæknis,” byrjar grein um Pétur
Guðmundsson en hann var nýlega
valinn í úrvalslið Kyrrahafsstrand-
arinnar. Mikil viðurkenning fyrir
íslenzka risann Pétur Guðmundsson
sem nú gerir það svo gott með liði
Washington Huskies.
Og síðan var bætt við, ,,en það
var í haust. Áður en Pétur fór að sýna
raunverulega getu sína. ídagerhvorld
Marv né nokkur annar er horft hefur á
Pétur leika hissa á að hann skuli hafa
verið valinn. Pétur — risinn frá
Reykjavík, skoraði 72 stig i þremur
leikjum, náði 26 fráköstum. Lægsta
skor hans í þessum þremur leikjum var
17 stig, en það var í viðureign Huskies
og UCLA, frægasta háskólaliðs
Bandaríkjanna. En þjálfari UCLA,
Gary Cunningham sagði að Pétur hefði
verið stærsti þátturinn i ósigri UCLA,
69—68.”
Síðan er mikil grein um Pétur
Guðmundsson. Hún byrjar: Þegar
Pétur Guðmundsson óx, og óx og óx,
var móðir hans ákaflega áhyggjufull.
,,En ég var ekki áhyggjufullur. Ég hef
alltaf verið ákaflega stoltur af hæð
minni. Farðu til læknis sagði hún og
láttu hann stöðva vöxtinn, en slíkt
kom ekki til greina. Það hefði getað
eyðilagtfyrirmér.”
Pétur hætti að stækka þegar hann
var orðinn 2.17 m og i dag er hann 130
kiló. í dag er hann bezti leikmaður
Huskies. Það er af sem áður var, þegar
hann var að missa knöttinn klaufalega,
kastaði knettinum til andstæðings, skot
hans blokkeruð. Þá myndi hann
hljóðlega hverfa af vellinum, og ekki
sjást meir. Enginn tók eftir Pétri —
nema vegna villna hans.
í dag er þessu öðruvísi farið — í
síðustu níu leikjum sínum með Huskies
hefur Pétur skorað að meðaltali 17 stig
í leik. Skyndilega er Pétur sterkur,
skorar grimmt, tekur fráköst grimmt,
tekur þátt í spilinu i stað þess að gufa
upp. Og gegn UCLA hafði hann betur í
návíginu við bezta mann UCLA, David
Greenwood. Tókst að blokkera tvö
skot hans og Greenwood — efnilegasti
leikmaður Bandaríkjanna, hristi aðeins
Pétur Guðmundsson fær sér hamborgara úr sjálfsala.
hausinn og virtist segja. Hvaðan kom
þessi eiginlega?
Pétur er skyndilega HINN STÓRl.
Jú, hann hefur alltaf verið stór — en nú
er hann sá, sem getur gert hlutina í stað
þess að vera aðeins plássfrekur á
vellinum. Skyndilega er gaman að
körfuknattleik, en eru æfingar jafn-
skemmtilegar, var Pétur spurður.
„Nei, ég myndi ekki ganga svo langt að
segja að æfingar væru jafnskemmtileg-
ar og leikurinn,” svaraði hann.
,,Sú var tíðin, að æfingar voru mér
mjög erfiðar. Ég sá ekki tilgang í þeim,
en ef til vill þar voru þáttaskil hjá mér.
Ég ákvað að það skyldi verða ég sem
skoraði — þetta hljómar ef til vill eins
og eigingirni en þetta hreif. Ég fór að
skora, varð ógnvaldur og liðið náði sér
á strik.
Það var undarleg tilfinning þegar ég
skoraði 37 stig gegn Californíu, vegna
þess að strákarnir í liðinu leituðu ávallt
til mín með knöttinn. Þannig hefur
þetta verið síðan — og það hefur haft
áhrif á liðið.” Þegar Pétur leikur vel þá
leika Huskies vel, rétt eins og allir nái
sérástrik.
En þó framfarir hafi verið stórstígar
hjá Pétri þá þarf hann enn að bæta sig,
sér í lagi að reka knöttinn og skjóta. Á
vellinum þarf Pétur að sjá um sig innan
um aðra risa og þar skiptir litarháttur
engu — aðeins líkamsburðir og virðing
er borin fyrir afreksmönnum. Þar er
ekki gert grín að þeim vegna hæðar —
þar talar knötturinn.
„Það gerist margt skrítið þegar ég
gegn um háskólalóðina. Margir vilja
vera sniðugir á kostnað hæðar minnar,
en þetta fer ekki í taugarnar á mér
lengur nema ég þekki viðkomandi ekki.
Ég geng ekki að feitu fólki og segi að
það sé feitt, en fólk kemur til mín og
talar um hvað ég sé stór. Mér finnst
fóik gera sig að fíflum með þessu, mér
finnst þetta lýsa fáfræði og frekju að
halda að fólk geti sagt hvað sem ej, við
hvem sem er,” sagði Pétur. Þegar fólk
er hærra en aðrir, er öðruvísi en aðrir,
þá getur það hjálpað fólki til þroska en
það getur lika eyðilagt mjög fyrir því.
En Pétur segir að hæð sín hafi verið sér
til frama og hjálp til þroska.
En það er ýmislegt, sem ekki er
miðað við þarfir Péturs. Fatnaður allur
er vandamál, hann þarf sérstaka skó,
og svo framvegis. Þegar hann ferðast
með Huskies þá er ávallt sérstakt sæti
handa Pétri, fyrir framan flug-
freyjumar svo hann geti teygt úr sér.
Ekki þýðir fyrir Pétur að sitja i venju-
legu sæti — það er alltof lítið. Og rúm
er lika vandamál. Þegar við erum á
ferðalögum er ieynt að fá stórt rúm,
handa mér en þau eru sjaldan nógu
stór. Þá fæ ég mér bara stól og set hann
við endann og sef síðan vel.” En hvað
um rúm heima? spurði blaðamaður.
„Jú, þar á ég gott rúm, 2.50. Fólkið
sem ég er hjá fékkþað fyrir mig og þar
ergott að sofa.”
,,Ég fer ekki oft út með stelpu, en
þegar það kemur fyrir þá vel ég mér
ekki stelpu eftir stærð. Það skiptir ekki
máli, heldur hvort mér líkar við hana
eða ekki. Sjálfsagt er betrá hennar
vegna að hún sé hávaxin — það liti
betur út.
En hvað um mat. „Ég er alltaf að
borða, að vísu ekki mikið í einu, en
stöðugt að. Fer oft og fæ mér ham-
borgara en mér líka ekki pylsurnar hér,
finnst þær betri heima á ísiandi. Ég var
orðinn fastagestur sums staðar á ham-
borgarastöðum. Þurfti ekki að panta
— heldur kom hamborgarinn á borðið.
Þeir voru orðnir vanir mér, ég kom
alltaf á sama tíma. Hamborgarár eru
hreinasta lostæti og því stærri því betri,
á þeim get ég aldrei orðið leiður,”
sagði íslenzki risinn, Pétur Guðmunds-
son, sem nú gerir það gott í körfunni í
Bandaríkjunum — í upphafi ferils síns
þar. Sjálfsagt aðeins tímaspursmál
hvenær hann fer út í atvinnumennsk-
una í Bandaríkjunum.
En hvað um matarreikningana á alla
hamborgarana. Einhvem tíma tók
konan sem Pétur býr hjá í Bandaríkj-
unum saman matarreikningana. Og
hún varð alveg hissa hvað mikið fór í
íslenzka risann. En þegar hún frétti að
auk þess að borða mikið heima, þá
færi Pétur með næstum 150 dollara á
mánuði i hamborgara, þá keyrði alveg
um þverbak. En af einu þarf hún ekki
að hafa áhyggjur — Pétur stækkar
ekki meira.
Iþróttir
Tékkar
sigruðu
Spánverja
Evrópumeistarar Tékka sigruðu
Spánverja í vináttulandsleik í
Bratislava, Tékkóslóvakíu í gærkvöld,
1—0. Viðureign þjóðanna var liður í
erfiðum leikjum liðanna í Evrópu-
keppni landsliða. Eina mark leiksins
skoraði Marian Masny fjórum
minútum fyrir leikslok eftir látlausar
sóknarlotur Tékka. Tékkar fengu 12
hornspyrnur en Spánverjar aðeins eina
— þannig var leikurinn og á 72. mínútu
virtust sóknarlotur Tékka loks bera
árangur þegar Tékkar fengu dæmt víti
en fyrirliðinn, Anton Odrus skaut í
stöng.
En hinir 40 þúsund áhorfendur
fögnuðu mjög þegar Masny skoraði i
lokin og tryggði Tékkum sigur. Tékkar
mæta Frökkum í Bratislava 4. april og
Spánverjar mæta Rúmenum en hvorug
þjóðin getur verið ánægð með frammi-
stöðuna í Bratislava. Spánverjar áttu
mjög undir högg að sækja, en Tékkum
gekk hins vegar illa að nýta fjölmörg
tækifæri.
Straumur til
Haukanna
— hafa fengið f jóra
leikmenn til liðs við sig
í gær sögðum við frá því að Haukar
hefðu fengið leikmenn til liðs við sig,
Gunnlaug Gunnlaugsson markvörð úr
FH og Ásgeir Sverrisson úr Þór. En rétt
eins og Vikingar, þá hafa Haukar
fengið til liðs við sig fjóra leikmenn í
vetur, þá Gunnlaug og Ásgeir og einnig
Gunnar Andrésson, fyrirliða
Ármanns, og Hermann Þórisson frá
Bolungarvík. Skagamenn hafa fengið
flesta leikmenn til liðs við sig — 5
menn.
Fylkir mætir
Víkingum
— íl.deild íHöllinni
Nýliöar Fylkis mæta bikar-
meisturum Vikings í Laugardalshöll í
kvöld, kl. 21.15. Ef að líkum lætur
ættu hinir leikreyndu Víkingar ekki að
eiga í miklum erfiðleikum með Fylki en
þess ber þó að geta að Víkingar
sigruðu Fylki með aðeins eins marks
mun í fyrri umferðinni. Þá unnu leik-
menn Fylkis upp mikið forskot Víkinga
— og voru óheppnir að hljóta ekki stig.
Staðan í 1. dcild er nú:
Valur 10 9 1 0 179—147
Víkingur 10 8 1 1 245—202
FH 11 5 1 5 221—217
Fram 11 5 1 5 213—236
Haukar 10 4 2 4 209—206
ÍR 11 3 1 7 197—214
Fylkir 10 1 3 6 181—193
HK 11 1 2 8 165—194
Hudsoníbanni
— þegar KR mætir ÍS
Bandaríkjamaðurinn John Hudson
var i gær dæmdur í eins leiks bann og
mætir því ekki Stúdentum í kvöld í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Þar er
skarð fyrir skildi hjá KR, en Hudson
réðst á dómara eftir leik KR og Vals og
þótti mörgum, sem það atvik hefði átt
að leiða til þyngri refsingar en raun bar
vitni. Annar KR-ingur, Garðar
Jóhannsson, fékk tiltal hjá aga-
nefndinni en hann veittist einnig að
dómara eftir viðureign KR og Vals.
Staðan í úrvalsdeildinni er nú:
Njarðvik 19 13 6 1954—1756 26
KR 18 12 6 1650—1503 24
Valur 18 12 6 1560—1545 24
ÍR 20 10 10 1788—1751 20
ÍS 18 5 13 1524—1652 10
Þór 17 3 14 1385—1660 6