Dagblaðið - 27.04.1979, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979.
5
N
HEIMILiSLÆKNIR SVARAR
Enga löngun til kynlífs þegar
á hólminn er komið
Ein áhyggjufull skrifar:
Getur þú sagt mér af hverju gulir
flekkir á brjóstum stafa? Þeim fylgja
engin óþægindi og vara aðeins einn
sólarhring í mesta lagi. Ég hef fengið
þetta einu sinni áður.
Hvað er hægt að gera við áhuga-
leysi á kynlífi? Ég er átján ára og hef
oft sofið hjá, en þegar á hólminn er
komið hef ég enga löngun til kynlifs.
Svar:
Gulu flekkina get ég því miður
ekki útskýrt, enda held ég að þú'
hljótir nú að fara til heimilislæknisins
með þann vanda, hrjái hann þig að
ráði. Hvað kynlífið áhrærir þá er jú
ekki um neinar einfaldar lausnir að
ræða. Maður lætur gera við bílinn,
hrærivélina, jafnvel hálskirtlana og
magann, en kynlífsvandamál er ekki
unnt að meðhöndla á sama hátt.
Ég er þess vegna i stökustu vand-
ræðum með að gefa þér ráð, algildar
reglur eru engar og án nánari upplýs-
inga eru mínar vangaveltur e.t.v.
alveg út í bláinn. Af spumingu þinni
virðist þó mega ráða, að þú haldir að
ánægja af kynlífi fáist fyrirhafnar-
laust eða lítið. Slíkt getur átt við karl-
,menn, þeir geta fengið ágætis full-
nægingu með því að ota sínum tota i
næstum hvers konar gat, við flestar
aðstæður.
Kynlíf konu er flóknara og meira
tengt tilfinningalífinu. Hún þarf því
oftast meiri tilfinningatengsl, meiri
blíðu og meiri tima en karlinn til að
fá notið kynlífs. Skyndiuppáferðir í
bílaftursætum t.d. eru sniðnar eftir
þörfum karlmanna, sjaldgæft er að
konur fái eitthvað út úr slíku. E.t.v.
er þinn vandi sá, að þúgefur þér ekki
nægan tima til nánari kynna og inni-
leika áður en að sjálfri kynlifsathöfn-
inni kemur.
Þinar ástæður fyrir kynmökum eru
ivonandi að þig langi til þess, að þú
sért tilbúin til slíks, ekki að nú sértu
búin að vera með strákum í viku, eða
sex mánuði og því eigi hann rétt á
„drætti”. Ekki heldur að allar hinar
stelpurnar i klikunni sofi hjá reglu-
lega og því verðir þú að gera slíkt hið
sama.
Mín fátæklegu ráð eru þvi að þú
bíðir með allt „hjásofelsi” þar til þú
hefur myndað þannig tengsl við aðra
manneskju, að þig raunverulega
langi til slíks. Á grundvelli gagn-
kvæms trausts og hlýju nær þín kyn-,
lifslöngun og nautn að þroskast. Á
þínuni aldri er vandamál sem þitt
fnjög algengt og í nánast öllum tilvik-
tim leysist það með árunum að gefn-
um þeim forsendum sem ég nefndi
hér að framan. Sem sagt: gefðu
sjálfri þér og þínum eigin þörfum
smásjens og með timanum leysist
vandinn án þess að neinar sérstakar
„viðgerðir” komi til.
Er 51 árs
kona úr
barneign?
Kona í Garðabæ hringdi:
1. Eru einhverjar líkur til að kona á
51. aldursári verði vanfær hafi
hún reglulegar tiðir og notar ekki
pilluna?
2. Hvað er það sem skeður í leginu
þegar tíðir hætta? Hættir slím-
húðarmyndun strax eða heldur
hún eitthvað áfram?
3. Hvers vegna verða konur fram-
settari eftir að tíðir hætta?
Svar:
1. Reglulegar og að öllu leyti eðli-
legar tíðablæðingar benda til að
egglos eigi sér stað. Því eru tals-
verðar likur á að frjóvgun geti
orðið.
2. Tíðablæðing er bein afleiðing
slímhúðarmyndunar í leginu. Séu
tiðir hættar er þvi ekki lengur um
slímhúðarmyndun í leginu að
ræða.
3. Ég veit ekki, en það gæti orsakazt
af þeim breytingum i húð og
vöðvum sem hormónaskortur
þessa timabils veldur._
Eru þetta
eftirstöðvar
heilabólgu?
Hæstvirti heimilislæknir!
Þannig er mál með vexti, að ég var
svo seinheppin að fá snert af heila-
bólgu (sennilega vegna ofnæmis af
völdum taugaveikisprautu, sem ég
fékk áður en ég fór til sólarlanda) og
eftir rannsókn á Landspítalanum var
mér tjáð að þetta lagaðist af sjálfu sér
á u.þ.b. ári. Nú er árið senn liðið og
ekkert bólar á batanum. Ennþá hef
ég stöðug óþægindi í höfði, svima-
köst og stundum sjóntruflanir. Þar
sem ég bý úti á landi og nánast er
ógerlegt að ná sambandi við sérfræð-
ing þann sem stundaði mig á Land-
spítalanum í síma, þá langar mig að
spyrja: Er ekki hægt að flýta fyrir
bata með einhvers konar lyfjagjöf
eða þá annarri meðferð? Ef ekki,
hvað má ég búast við að vera svona
iengi? Ein með heilabólgu.
Svar:
Sé raunverulega um eftirstöðvar
heilabólgu að ræða er ekki unnt að
hafa áhrif á slíkt með lyfjum né
öðrum þekktum ráðum. Hins vegar
hafa einkenni þín nú varað svo lengi
að full ástæða er til að endurskoða
greininguna. E.t.v. eru orsakir aðrar
og þá jafnvel læknanlegar; sé heila-
bólgu um að kenna er þér nauðsyn-
legt að fá álit sérfræðings varðandi
þína framtið hvað snertir einkenni
þessi og þá sérstaklega hver þeirra þú
verðir að læra að lifa við um langan
tíma. Þessi samskipti verða aldrei að
gagni símleiðis, ég held að þú æítir að
panta tíma á stofu þess læknis sem
stundaði þig á Landspítalanum og
iskreppa hingað suður til nánari kort-
lagningar þess erfiða vandamáls.
Laus staða
Staða prófessors i félagsfræði i félagsvisindadeild Háskóla Islandser laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um visindastörf þau er þeir
.hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir I.
júni nk.
Menntamálaráðuneytið,
24. apríl 1979.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur í maímánuði
1979.
Miðvikudagur 2. mai R—24701 til R—25200
Fimmtudagur 3. mai R—25201 til R—25700
Föstudagur 4. mai R—25701 til R—26200
Mánudagur 7. mai R—26201 til R—26700
Þriðjudagur 8. mai R—26701 til R—27200
Miðvikudagur 9. mai R—27201 til R—27700
Fimmtudagur 10. mai R—27701 til R—28200
Föstudagur 11. mai R—28201 til R—28700
Mánudagur 14. mai R—28701 til R—29200
Þriðjudagur 15. mai R—29201 til R—29700
Miðvikudagur 16. mai R—29701 til R—30200
Fimmtudagur 17. mai R—30201 til R—30700
Föstudagur 18. mai R—30701 til R—31200
Mánudagur 21. mai R—31201 til R—31700
Þriðjudagur 22. mai R—31701 til R—32200
Miðvikudagur 23. mai R—32201 til R—32700
Föstudagur 25. mai R—32701 til R—33200
Mánudagur 28. mai R—33201 til R—33700
Þriðjudagur 29. maí R—33701 til R—34200
Miðvikudagur 30. mai R—34201 til R—34700
Fimmtudagur 31. mai R—34701 til R—35200
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sínar til Bifreiðaeftirlits ríkisins, Bílds-
höfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar alla
virka daga kl. 08.00 til 16.00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi
skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber
skilríki fyrir því að bifreiðaskattur sé greiddur
og vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjald-
mælir í leigubifreiðum, sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tíma. Á leigubifreiðum til
mannflutninga, allt að 8 farþega, skal vera sér-
stakt merki með bókstafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og
bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar
næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
24. apríl 1979.
Sigurjón Sigurðsson.
SKYNDIMYNDIR
Vandaðar litmyndir
i öll skírteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijðsmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SIMI 12644
ökklaskór
svartir og brúnir
leðursólikr. 19.600.-
NÝKOMIÐ
Í^SavileRouP)
Reiðskór
(jodpur boots)
svartir og brúnir
leðursóli kr. 18.550.-
Avalon
SHOES OF DISTINCTION
Gönguskór
svartir og brúnir
„militairé” sólikr. 15.900.-
. . Lögreglustígvél
Stœrðir 41 45/46 svört á leðursóla
PÓSTSENDUM kr'18-950-
HERRASKÓBÚÐIIM SF.
ÁRMÚLA 7 - SÍMI81646.