Dagblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979.
20
Svart, hvítt, plús litir
Meðalstórar svárt/hvítar ljós-
myndir og risastóf málverk fara ekki
ávallt vel saman. Stærðir, áferð og
tónar — allt togast þetta á ef menn
gæta ekki að sér. En á sýningu þeirra
kumpána Gunnars Arnar og Sigur-
geirs Sigurjónssonar ljósmyndara í
FÍM-salnum eru þessi sambúðar-
vandamál leyst á einfaldan og skyn-
samlegan hátt. Ljósmyndir Sigur-
geirs eru tví- og þrthengdar í þéttum
grúppum milli málverkanna og hafa
þannig í fullu tré við þau sjónrænt
séð.
Það er skammt stórra högga á milli
hjá Gunnari því ekki eru nema
nokkrir mánuðir síðan hann sýndi á
sama stað ásamt þrem öðrum félög-
um sínum.
Breytt
meðhöndlun
En Gunnar örn er um þessar
mundir í stöðugri sókn sem lista-
maður og er að endurskoða málverk
sitt og bæta teikningu. Þegar má
greina breytingar á verkum hans frá
því á síðustu sýningu og er því fram-
lag hans nú fyllilega réttlætanlegt.
Mannslíkaminn er viðfangsefni
Gunnars Arnar eins óg áður, en með-
höndlunin hefur breyst frá því sem
var. Gunnar Örn gengur nú ekki
myndrænt í skrokk á fígúrunni og
sundurlimar hana á fletinum í lita-
flóði, heldur fer hann nærfærnum,
höndum um hana. Hann notar
gjarnan sitjandi konur og byggir þær'
upp af meiri nákvæmni en áður og
gefur þeim nægilegt rými til að
athafna sig í. Ekki hefur Gunnar Örn
þó gefið fantasiuna alveg upp á bát-
inn, því skyndilega blossa upp ýmiss
konar litauðug form — út úr búkun-
um eða í kringum þá og nú hefur
maður á tilfinningunni að það mynd
mál sem listamaðurinn notar sé
sprottið upp úr umhverfi hans,
fremur en anatómíu.
Ró og stilling
Þessi verk gætu verið hugleiðingar
um manninn og mátt hugarflugsins,
eða líkama og sál, auk þess sem þær
eru sneisafullar af innilegri erótík og
væntumþykju, en ró og stilling þessara
mynda eru undirstrikuð af stórum
og björtum flötum þeirra. Það er
erfitt að gera upp á milli þessara
verka — „Sjálfsmyndin” og „Stultu-
dansarinn” ásamt „Við glugga” og
„Hvítir sokkar” — allt eru þetta
sterkar myndir. „Hnébeygja I” kom
mér einnig á óvart fyrir raunsæ
vinnubrögð. Hins vegar fannst mér
ekki nægilegt púður í stöku smámynd
eftir Gunnar, t.a.m. sólarstrandar-
myndinni. Spennu vantar. Gunnar
örn sýndi einnig nokkrar teikningar
eftir sig sem gerðar eru af meiri
lipurð en oft áður og ber meir á
markvissri skyggingu en útlínu.
Gaman í París
Sigurgeir er þekktur að vönduðum
vinnubrögðum sem ljósmyndari og
hefur staðið að mörgum fallegum
ljósmyndaverkefnum fyrir blöð,
tímarit og fleiri fyrirtæki auk þess
sem hann hefur sýnt ljósmyndir á
vegum Listiðnar. Ég verð að játa að
hans hlutur hér olli mér nokkrum
Myndlist
Sigurgeir Sigurjónsson.
vonbrigðum. Að sjálfsögðu er ekki
hægt að fínna að frágangi mynd-
anna, en ef litið er á myndir Sigur-
geirs sem heild, finnst mér ég ekki
koma auga á það sem kalla mætti
heildarsvip. Sigurgeir ljósmyndar
nær eingöngu fólk, en ég verð ekki
var við neina afstöðu til þess og er
ekki klár á því hvers vegna hann
tekur af því myndir. Ennfremur
Ljósmynd frá París
finnst mér að þótt gaman hafi verið í
ferðinni til Parísar árið 1975 með
Gunnari Emi, þá hefði Sigurgeir ekki
átt að láta nær allar myndir þaðan
fljóta með.
SS-bjúgu
Gunnar Örn ásamt sjálfsmynd
Myndir af labbi þeirra Gunnars um
borgina eru nánast túrista „snaps” -
prívatmál þeirra, og segja lítið mark-
vert. Einnig finnst mér vöruúrval
stórkostlegt hjá frönskum kaup-
mönnum, ef marka má myndir nr. 19
og 20, en þar sjást vörur frá Ora
,og SS-bjúgu ásamt fleiru íslensku.
Sigurgeir nær sér hins vegar á strik í
Grænlandsmyndum sínum og festir á
filmu sterk svipbrigði innfæddra.
Sambland í
grasgarðinum
Það er vel þess virði að reka nefið
inn fyrir dyr á Matstofunni „Á næstu
grösum” stöku sinnum því það er
aldrei að vita hvað getur skeð. Matur
er þar heilnæmur, ljúffengur og
kemur oft á óvart, stundum eru þar
spilimenn með fiðlur og pípur og
einnig troða þarna upp harðsvíraðir
jassistar með spuna, sveiflu og trega-
söngvum. Aðstandendur hafa einnig
lagt mikið upp úr því að skreyta veggi
með myndlist, svo séð verði fyrir
flestum þörfum mannsins, andlegum
og líkamlegum.
Þessa dagana, meðan sólin skín,
hanga þarna nokkur verk eftir unga
og hressa listakonu, Önnu Concetta
Fugaro, sem er af íslenzku og ítölsku
bergi brotin en ólst upp í Banda-
ríkjunum.
Ljóðrænt og
nýstárlegt
Ég minnist með ánægju lítillar
sýningar frá hennar hendi í Mokka
fyrir tveim-þremur árum og mér
sýnist sem einhverjar þeirra mynda
séu hér komnar. Anna Concetta
stundar gerð klippimynda með
ljóðrænu og laum-súrrealísku hugar-
fari og ferst það stórum betur en
mörgum öðrum sem Ieita á náðir
skrautlegra vikublaða til þess að tjá
sig. Myndmál það sem Anna
Concetta brúkar er um margt hluti af
súrrealískri arfleifð, fiskar, blóm,
skeljar, ávextir, naktar konur
o.s.frv., en samsetning hennar er
finleg og næm og gefur ekki eftir því
bezta sem gert hefur verið á þessu
sviði hérlendis, þótt óneitanlega hafi
maður séð ýmislegt í þessa veru úti í
heimi. Athyglisverðastar fannst mér
stærri myndir önnu, þar sem reynir
talsvert á skipulagshæfileika hennar
og eru þar samsetningar hennar oft
svo nýstárlegar að tUhlýðileg
„frisson” og skáldskapur myndast.
Nú þarf bara einhver höfundurinn
að fá hana til að íýsa hugarflugi hans,
eða vinna tilbrigði við það.
Anna Concetta ásamt einu verka sinna.
c
Verzlun
Verzlun
Verzlun
auóturlenðb unöratiernlb
JasiRÍR fef <si
GRETTISGÖTU 64 sími:11625.
Útskornirtrémunir m.a. borð,
hillur, lampafætur og bakkar.
Reykelsi og reykelsisker.
Silkislæður og silkiefni.
Bómullarmussur og pils.
BALI - styttur (handskornar).
Kopar (messing) vörur, skálar,
kertastjakar, vasar og könnur.
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
auóturlcttób unbrabrrolb
swm SKIIRÚM
Isleiutt Uiipit ti Hiailiterk
STUÐLA-SKILRÚM er léttur veggur, sem samanstendur af
stuðlum, hillum og skápum, allt eftir þörfum á hverjum stað.
SVERRIR HALLGRÍMSSON
Smiöastofa h/i .Trönuhrauni 5 Simi 51745.
Trésmiflja
Súðarvogi 28
Sími 84630
•
/
Bitaveggir
raðaðir upp
eftir óskum
kaupenda
•
Verðtilboð
SEDRUS
Mallo sófasettið í ull kostar 365.000.-
Finnsk litsjónvarps-
tæki meö RCA-mynd-
lampa 22” og 26”.
Fullkomin viðgerðarþjónusta.
Georg Ámundason & Co
Suðurlandsbraut 10 — Simi 81180.
Það heppnast
með HOBART
HAUKUR og ÓLAFUR
RAFSUÐUVÖRUR . __ „ .
rafsuðuvÉLAR Armula 32 — Slmi 37700.
DRÁTTARBEIZLI — KERRUR
Fyrirljggjandi — allt efni i kcrrur
fyrir þá sem vilja smiða sjálfir. hei/li
kúlur. tengi fyrir allar teg. hifreiða.
Þórarinn Kristinsson
Klapparstig 8 Simi 28616
(Heima 720871.
Símagjaldmælir
sýnir hvað sfmtalið kostar á meðan þú talar, er
fyrír heimili og fyrírtæki
SÍMTÆKNISF. Sin,S6077
Ármúla 5 kvöldsími 43360