Dagblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 27.04.1979, Blaðsíða 28
frfálst, nháð dagblað FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 1979 Vala Hrönn hlustará Skagfirðinga Þetta er hún Vala Hrönn, 7 ára dís. Giftusamleg björgun við Eyjar: ÞRÍR PILTAR DREGNIR HELKALDIR ÚR SIÓNUM — Bát þeirra hafði hvolft við Klettsnef og björgun á sundi mátti heita vonlaus Þrír piltar úr Eyjum, tveir 15 ára og einn 16 ára, voru hætt komnir er bát þeirra hvoifdi út af Klettsnefi yzt við innsiglinguna inn til Eyja á miðvikudag. Várð þeim til lifs að trillu bar þar að, sem á voru tveir kennarar að koma úr róðri. Heyrðu þeir neyðaróp piltanna og drógu þá loppna og kalda úr sjónum, þar sem þeir höfðu svamlaö í u.þ.b. 5 mínútur. Áttu drengirnir ekki aðra lífsvon en synda yfir innsiglinguna upp á nýja hrauniö eða inn á víkina milli Heimakletts, Miðkletts og Vztakletts, en báðar þessar sundleiðir eru svo langar að ólíklegt þykir að þeim hefði tekizt að ná til lands. Gagnfræðaskólakennararnir Már Jónsson og Gísli Sighvatsson voru að koma úr róðri á trillu er kennarar eiga, er þeir heyrðu neyðarópin og sáu piltana í sjónum, og drógu þá upp kalda og þjakaða. Var aðeins einn þeirra i bjargvesti en allir illa klæddir, aðeins i þunnum fatnaði, ekki ætluðum til sjávarferða. Höfðu drengirnir lagt úr Vestmannaeyja- höfn á svo litilli kænu að glapræði gat talizt að vera á henni þrír. Utanborðsvél var i bátnum en nánast ekkert annað sem til björgunar mátti' verða eða hlifðar. Þó var þar einn belgur bundinn i bátinn. Hélt hann honum uppi en svo lítið flot var i bátnum að með engu móti var hægt að komast á kjöl hans. Mótorbátur var nýfarinn út og kominn fyrir Klettsnefið. Höfðu strákarnir gert sér að leik að láta bát sinn hoppa á öldufrákasti mótor- bátsins og við það hvolfdi bát þeirra. NV-kaldi var á en sjólaust þarna í mynni innsiglingarinnar. öðrum kennaranna, bjargvættum drengjanna, varð að orði er giftusam- leg björgunin hafði tekizt, að liklega hefðu strákarnir aldrei verið eins fegnir að sjá kennara sína og þarna á slysstaðnum. Piltunum var ekið heim þegar er komið var til hafnar og sagði Már Jónsson að ekki væri vitað ti| að þeim hefði orðið meint af volkinu í þessari glapræðisför. -ASt/JS Vestmannaeyjum. Fiskiðjan hf. íNjarðvík: Segir upp öllu f östu starfsliði — Ókleift að standa ífjárfrekum umbót- um eftir sviptingu rekstrarleyfis, segirforstjórinn Kl. 4 í dag fá 40 fastir starfs- menn Fiskiðjunnar hf. í Ytri Njarðvík uppsagnarbréf, en þeir höfðu stílað á fasta vinnu þar á- fram yfir sumarið, svo sem vant er. ,,Það er útilokað að við getum haldið þessum rekstri áfram við óbreytt skilyrði heilbrigðisnefnd- arinnar hér, það sér hver maður möguleika þess fyrirtækis, sem svipt er starfsleyfi og þar með tekjumöguleikum, um leið og því er gert að ráðast í mjög fjárfrekar framkvæmdir,” sagði Gunnar Ólafsson, forstjóri Fiskiðjunnar í viðtali við DB í morgun. Búið er að panta reykhreinsi- tæki til verksmiðjunnar, en þau voru kveikja málsins. í bréfi heil- brigðisnefndar, þar sem starfs- leyfi var aðeins veitt til 15. maí, eru hins vegar ákvæði um allmikl- ar úrbætur til viðbótar. Gunnar sagði að væntanlega yrði endanleg ákvörðun um fram- tíð fyrirtækisins tekin nú um helgina, of snemmt væri að segja neitt endanlegtnú. -GS. Alþýðubandalagið tekur vel í hátekjuskattinn —en sættir sig ekki við f rumvarp alþýðuf lokksmanna Ráðherrar Alþýðubandalagsins Ríkisstjómin fjallaði i gær um óskir sagði í morgun, að flutningsmenn tóku á rikisstjómarfundi i gær undir alþýðuflokksráðherra um, að stjómin reiknuðu mcð að gengið yrði frá hugmyndir alþýðuflokksmanna um tæki að sér að koma fram frumvarpi slíkum málum i reglugerð, ef nýjan hátekjuskatt. Þeir sættu sig þó um topptekjuskatt. Annaðhvort styddi frumvarpið yrði samþykkt. Það gildir ekki við frumvarp alþýðuflokksmanna stjórnin frumvarp aiþýðuflokksmanna, meðal annars um, ef menn afla tekna á og töldu það fela i sér tæknilega eða bæri fram nýtt frumvarp, sem fleiri en einum stað. Ennfremur væri örðugleika. gengi í sömu átt. Málið var ekki útrætt. Ijóst, sagði Árni, að skatturinn hlæðist Ríkisstjórnin mun væntanlega beita Margs konar agnúar eru á frum- ekki ofan á 50% tekjuskatt, heldur yrði sér fyrir nánari skoðun málsins á varpinu eins og það er orðað. Árni skatlur til rikisins um 100%, að sögn næstunni. Gunnarsson, fyrsti flutningsmaður, Árna. -HH. sem er í smávegis stoppi á Land- spítalanum þessa dagana. Hún sat þar á kvöldvökunni í gær- kvöld og hlustaði á Skagfirzku söngsveitina og fleiri, sem komu til að skemmta sjúklingum. DB-mynd: Sv. Þorm. MjólkurlaustíEyjum Í2 daga ogalmennur vöruskortur nú: Engar rjóma- tertur í fermingar- veizlunum. — útgerð Herjólfs sérsérekki færtað nýta undanþáguna „Hér er búið að vera mjólkur- laust siðan á miðvikudag, kar- töflur eru búnar og kjöt klárast i dag svo almennur vöruskortur verður nú um helgina,” sagði Reynir Másson, verzlunarstjori i Tanganum i viðtali vtð DB í morgun. Ekkert flug var heldur milli lands og Eyja í gær og taldi Reynir vafasamar líkur á því i dag. „Það er sagt að við getum bara borðað fisk og það munum við gera,” sagði hann. Fermingar eru í Eyjum um helgina með því óvenjulega sniði að engar rjóma- tertur verða á borðum vegna rjómaleysis. Farmanna- og fiskimannasam- band íslands veitti undanþágu til að Herjólfur fengi að sigla tvær af sjö vikulegum ferðum, en aðeins með póst og matvæli. Er undanþágan bundin þeim skilyrðum að áhöfnin sé skráð á skipið á milli þessara ferða og því á fullum launum, sem stjórn Herjólfs sér sér ekki fært og ætlar ekki að nýta undanþáguna. Þetta er í fyrsta skipti sem svo takmörkuð undanþága er veitt fyrir siglingum milli lands og Eyja í farmannaverkfalli. -GS. Farmannadeilan: Fundurf dag Sáttafundur í farmannadeil- unni hefur verið boðaður kl. 16 í dag. Að sögn Júliusar Kr. Valdi- marssonar, framkvæmdastjóra Vinnumálasambands samvinnu- félaganna, munu fulltrúar vinnu- veitenda halda áfram að leita kjarabóta á grundvelli ýmiss konar hagræðingar og án þess að um verði að ræða útgjaldaauka fyrir útgerðina. Aðspurður sagði hann, að búast mætti við að mik- ið bæri enn á milli á fundinum í dag. í gær var haldinn stjórnar- fundur Vinnumálasambandsins og að sögn Júlíusar var verkbann ekki á dagskrá þar. Ekki var heldur tekin ákvörðun um verkbann á fundi fram- kvæmdastjórnar Vinnuveitenda- sambandsins i gær, eins og þó hafði verið reiknað með. -GAJ- Runtal- málinu frestað Mál Runtal-ofna gegn Ofna- smiðju Suðurlands var tekið fyrir aftur hjá fógetanum á Selfossi í gær þar sem fógeti taldi að nauðsynleg gögn vantaði i málið af hálfu gerðarbeiðanda. Af hálfu gerðarbeiðanda var mættur Birgir Þorvaldsson ásamt lög- manni sínum, Páli S. Pálssyni, hrl. Einnig var mætt af hálfu gerðarþola. Hann lagði fram afrit af beiðni um yfirmat að sögn Karls F. Jóhannssonar, fulltrúa sýslumannsins, sem er fógeti í málinu. Varð það að sam- komulagi milli aðila að málinu yrði frestað þar til yfirmat lægi fyrir. Féllst fógeti á að veita þenn- syrt frest en þó ekki lengur en til föstudags 25. maí kl. 13.00. Mál þetta sqýst um það, hvort Ofna- smiðja Súðurlands hafi í fram- leiðslu sinni tarið inn á einka- leyfisverndaðan j-étt Runtal- ofna. -GAJ-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.