Dagblaðið - 18.05.1979, Page 1
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
5. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 18. MAÍ1979. - 112. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Kratar að læðast
út úr stjóminni?
,,Ég tel nú ekki, að Alþýðuflokk- við: „Alþýðuflokkurinn hefur ekki stakra stétta leiðir til endalausrar Framsóknarflokkurinn telur nauð- áramóta á að nota til þess aö undir-
urinn sé að segja sig úr stjórninni lagt fram neinar formlegar tillögur. keðju hækkana og allt endar í synlegt að taka í taumana eins og búa heildarkjarasamninga strax i
með afstöðu sinni, en þó er ekkert Benedikt Gröndal hefur verið er- upplausn,” sagði Tómas. „Ýmislegt ástatt er. Skýrt og skorinort verði janúar og þá helzt til tveggja ára,”
hægt að fullyrða um það,” sagði lendisenernúvæntanlegurheim. hefur náðst fram í tíð núverandi tekið fyrir grunnkaupshækkanir sagði fjármálaráðherra.
Tómas Árnason, fjármálaráðherra I Einhver þarf að þora að segja þá stjórnar en kjaramálin hafa dottiö úr umfram 3% til áramóta. Tímann til BS.
viðtali við DB i morgun. Hann bætti skoðun, að breytingar á launum ein- böndunum.
— Heildarkjara-
samningar
tiltveggja
áraíjanúar,
segirTómas
Milljóna-
tjón af eldi í
Hafnarfirði
Milljónatjón er talið hafa orðið af
eldi í gærkvöld er fiskþurrkunarhús
Langeyrar í Hafnarfirði eyðilagðist. í
húsinu var bæði hráefni til þurrkunar
og einnig eyðilögðust vélar sem þar eru
til kyndingar þurrkklefa. Húsið er 4—
500 fermetrar á einni hæð, byggt úr
timbri og bárujárni og er frá því um
aldamót.
Tilkynning um eldinn barst kl. 19.25
og var þá sagt að eldur væri í rafmagns-
!töflu hússins. Var verið að vinna.
Skyndilega magnaðist eldurinn eins
og um einhvers konar sprengingu væri
að ræða og gaus upp um allt húsið. Var
leiðin enda greið því í lofti hússins var
óvarin plasteinangrun sem er mikill
eldsmatur.
Um það bil helmingur þaks og húss
féll en hitt er talið gerónýtt.
; -ASi.
Það var Ijót aðkoma í fiskverkunar-
húsinu í morgun, nánast allt brunnið
sem brunnið gat. Þorskhausabirgðirnar
(minni myndin) urðu illa úti og af þvi
mikið tjón.
DB-mynd Ragnar Th.
■ ■ .......... ..........
Enn situr Kári konungur að vöidum:
ÖRLTTK) HLÝNAR
ÞÓ Á SUÐVESTUR-
HORNILANDSINS
,,Við spáum því að heldur dragi úr
kuldanum á suðvesturhomi landsins.
En við bætum við í BILI,” sagaði
Páll Bergþórsson veðurfræðingur í
morgun.
„Norðanáttin vcrður áfram með
éljagangi á Norðurlandi. Bjart verður
á Suðausturlandi. En hér á Suð-
vesturlandi verður skýjað en úr-
komulaust. Ætli veturinn verði ekki
eitthvað áfram,” sagði Páil.
Vetrarlegt var i morgun þegar
landsmenn komu á fætur. 1 Reykja-
vik var vottur af snjókomu cn frostið
þar fór nú samt ekki niður fyrir 3
stig. Raufarhafnarbúum hefði líklega
ekki þótt það mikið því þeir fengu 7
stiga frost og var kaldast á landinu
hjá þeim. Nærri því eins kalt var á
Akureyri, 5 stig. Þar var jörðin alhvít
i morgun og snjóaði enn. Menn voru
jafnvel að hugleiða að taka fram
skiðin.
DS.
VÍSITALAN ÚR SAMBANDI
EFTIR JÚNÍKAUPHÆKKUN
—samkvæmt tillögum krata—málamiðlunartillaga f rá
Alþýðubandalaginu komin f ram
,,Ef ekki verður að þessu gengið,
þá er þetta búið,” sagði Árni Gunn-
arsson alþingismaður (A) í viðtali við
DB í morgun um hugmyndir alþýðu-
flokksmanna í launamálum og stöð-
una í ríkisstjórninni.
Samkvæmt tillögum krata skal
vísitöluhækkun á kaup greidd að
fu.Uu 1. júní, eneftirþaðverðivísital-
an úr sambandi, þannig að engar
sjálfkrafa kauphækkanir verði 1.
september. Þetta á að gera til að flýta
kjarasamningum. Að öðru leyti
leggja alþýðuflokksmenn áherzlu á
nýja, frjálsa kjarasamninga þegar í
stað, eins og DB skýrði frá i gær.
Verði kauphækkanir, gangi þær ekki
sjálfkrafa út í verðlagið. Engir ,,bak-
reikningar” verði greiddir.
„Það er fyrst og fremst verið að
draga aðila vinnumarkaðarins til
ábyrgðar,” sagði Árni ennfremur, að
slikar aðferðir hefðu verið reyndar
með mjög góðum árangri í Vestur-
Þýzkalandi.
„Alþýðuflokksmenn
skila auðu"
„Alþýðuflokksmenn hafa skilað
auðu í kjaramálunum, eftir að við
höfðum lengi beðið eftir þeim,”
sagði Svavar Gestsson viðskipta-
ráðherra í morgun. „Þeir hafa engar
formlegar tillögur lagt fram.”
Alþýðubandalagið lagði í gær fram
málamiðlunartillögu. Samkvæmt
henni skal fresta ákvörðun um 3%
grunnkaupshækkun í biii. Alþingi
setji með lögum þak á verðbóta-
greiðslur við 400 þúsund króna mán-
aðarlaun. Þak verði sett á verðhækk-
anir og aðeins leyfðar hækkanir
vegna vísitöluhækkunar kaups. Auk
þess komi til hálaunaskattur og há-
launaútsvar.
Á ríkisstjórnarfundinum í gær var
litið rifizt en launamálunum vísað til
nefndar 3ja ráðherra.
-HH.
V
N