Dagblaðið - 18.05.1979, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1979.
1 ' ............................................. '■ ' \
Rcyðartjöröur.
HUGSAÐ HEIM
— hugleiöingum
Reyðarfjörð
Jóhann Þórólfsson frá Reyðarfirði
skrifar:
Mér datt í hug að renna huganum
til baka um sextiu ár, lýsa staðhátt-
um og framámönnum minnar heima-
byggðar, Reyðarfjarðar.
Merkismenn á
Reyðarfirði
í því sambandi vil ég nefna til þá
sem ég tel hafa verið frumkvöðla að
uppbyggingu staðarins. Koma þá í
hugann nöfn eins og Rolf Johansen
sem var athafnamaður hinn mesti,
bræðurnir Hallgrunur, Gunnar,
Jónas og Jón Bóassynir og ekki má
gleyma Valdóri bróður þeirra.
Stóðu á
eigin fótum
Allir þessir menn stóðu á eigin
fótum, sjálfsbjargarviðleitni var
Þáttur
Dóru f ínn
- mæti vera oftar í viku
Bréfritari segist þreyttur á sifelldu
léttu poppi. Okkur reiknast til að tón-
list sú sem þau Jón og Ólivfa flytja
okkur sé létt popp.
Guðríður Haraldsdóttir á Akranesi
hringdi:
Ekki alls fyrir löngu sá ég á les-
endasiðu blaðsins harða ádeilu á
föstudagspopp Dóru Jónsdóttur. Ég
vil hins vegar lýsa yfir ánægju minni
með þennan þátt og finnst mér hann
raunar bezti poppþátturinn sem nú er
í gangi. Ég er orðin leið á þessu létta
poppi sem allir spila og finnst mér því
að þáttur sem Dóru eigi fullan rétt á
sér. Auðvitað veit ég að smekkur
manna er misjafn, en við sem erum
ánægð með þáttinn viljum fá að hafa
hann í friði og hefðum raunar ekkert
á móti fieiri slíkum.
þeim í blóð borin. Þeir leituðu aldrei
til annarrá heldur stóðu á eigin
fótum. Allir þessir menn sköpuðu
mikla atvinnu með framsýni og
dugnaði. Þegar að fortíð er hugsað
og til nútíðar horft kemur í ljós að
erfingjar j)essara manna hafa erft
dugnað þeirra og framtakssemi. Skal
þá fyrst nefna Bóas Jónsson skip-
stjóra sem með dugnaði sínum og
bjartsýni gerði kleift ásamt fleiri
góðum mönnum að Snæfugl var
keyptur til Reyðarfjarðar, happa-
fleyta og aflasæll alla tíð. Jónas
bróðir hans, skipstjóri á Gunnari, al-
kunnur aflamaður. Hallgrímur
Jónasson og Hjalti Gunnarsson'
framkvæmdastjórar Gunnars og
Snæfugls og fiskverkun þeirrar út-
gerðar. Þetta má kalla að ávaxta
feðranna pund.
Þegar ég var krakki var útgerð
hinum megin fjarðarins. Þar byggði
Valdór Bóasson íbúðarhús, sjóhús
og bryggju og átti 9 tonna bát er hann
gerði út. Þetta er aðeins eitt dæmi um
dug þeirra bræðra.
Rolf Johansen
Rolf Johansen var mikill merkis-
maður. Hann átti tvo báta, er hann
gerði út á Hornafirði á veturna og
þar var allur fiskur saltaður. Þaðan
gekk bátur er Drífa hét um Austfiröi
með fisk og salt. Rolf keypti fisk og
lét þvo hann og þurrka á grindum og
reitum á Reyðarfirði, sem að sjálf-
sögðu skapaði mikla atvinnu, bæði
hjá körlum og konum. Síðan var
fiskurinn fluttur út til Spánar og
ítalíu og var á heimsmælikvarða,
fyrsta flokks vara. Þar á ég raunar
við allan fisk sem þá var fluttur út frá
landinu. Af þessu má sjá hver frum-
kvöðull Rolf var i uppbyggingu
staðarins. Yngra fólkið má sannar-
lega líta til þessa tíma.
Reyðfirðingum
fjölgar
Haustið 1930 fengu Reyðfirðingar
rafmagn frá vatnsaflsstöð. Þá var
íbúatala Reyðarfjarðar á milli tvö og
þrjú hundruð, en 1940 voru þeir í
kringum 500 og hefur þeim fjölgað
u.þ.b. um 500 á þessum árum frá
1940.
Á marga fleiri mætti minnast,
margir voru hraustir og unnu
hörðum höndum. Ég vitna i
minningargrein Helga Seljan um
föður minn Þórólf Gislason að hann
hafi verið kempa mikil og unnið vel
að því að byggja upp staðinn.
Verkamennirnir
Ekki legg ég þar á dóm, en vel má
það koma fram, því hraustmenni
voru mörg. En ekki má gleyma hinni
hliðinni, verkalýðnum, þá kemur
mér Jóhann nafni minn blessaður í
Seljateigi i hug. Hann stofnaði
verkalýðsfélag og barðist af alefli
fyrir því að við verkamenn værum
ekki hlunnfarnir. Þar varð honum
mikið ágengt þó við ramman reip
væri að draga. Fyrir það ásamt
fleiru færi ég honum beztu þakkir.
Uppbygging
á staðnum
Uppbygging Reyðarfjarðar siðustu
ár hefur verið ör, húsbyggingar
miklar m.a. nú fjölbýlishús á vegum
hreppsins. Félagsheimili fengu Reyð-
firðingar með þeim fyrstu á Austur-
landi, eða 1955, skólinn nýi tekinn í
notkun 1963 og nú sést hilla undir
iþróttahús og sundlaug á næsta ári.
Höfnin hefur tekið algerum
stakkaskiptum, þar er nú athafna-
svæði hið bezta og þar er að rísa toll-
vörugeymsla.
Saumastofa er rekin undir stjórn
Sigfúsar Kristinssonar. gamals fclaga
mins úr langferðaakstrinum. Svo
eru Vegagerðin, kauplelagið og
Síldarverksmiðjur ríkisins, allt öflug
og atvinnugefandi fyrirtæki.
Þurfa að efla
iðnaðinn
Sjávarafli er oft lítill, Reyð-
firðingar þurfa að fá togara. Þar
voru um tíma þrir stórir bátar, einn í
Gamall maður skrifar:
Það var mikið talað um flóttann úr
gömlu hverfunum í Reykjavík á
sínum tima og ungt fólk hvatt til þess
að flytja í þessi hverfi.
Fengu ungt fólk
í húsið
Sjálfsagt hefir það verið gert vegna
þess, að skólarnir voru að verða tóm-
ir. Nú er ég einn af þeim óheppnu
sem varð fyrir því að ungt fólk flutti i
húsið til mín. Við hjónin erum komin
hátt í sjötugt og eigum afar erfitt með
að taka slíkum breytingum því mót-
eigendur okkar hafa alltaf verið fólk
á svipuðum aldri og við sjálf, fólk
sem sá sóma sinn í þvi að ganga þrifa-
lega um húsið og lóð. Nú bregður
aftur á móti svo við að i húsið til okk-
ar flytja ung hjón með tvö börn. Ó,
þvílík breyting, síðan þau fluttu hing-
aðeru um þaðbil 5 ár.
Gekk sæmilega
í byrjun
Fyrsta árið gekk þetta sæmilega.
Garðurinn var sleginn einum þrisvar
sinnum það árið, en ekki haft fyrir
því að hirða heyið, það gerðum við.
Tröppur og gangstétt sópuð af og til
þetta fyrsta ár.'svo ekki söguna meir.
Þessi ungu hjón hættu sem sagt al-
gerlega að taka til hendinni með öll
þrif, bæði úti og í þvi sameiginlega
inni. Blessuð hjónin eiga eitt sam-
eign Gísla Þórólfssonar og fleiri en
nú eru þeir aðeins tveir Gísli byggði
lika frystihús auk þess sem kaup-
félagið endurbyggði og stækkaði sitt.
Því miður leyfði heilsa Gísla ekki
frekari átök, því fáir hafa viljað efla
staðinn eins vel og hann. Það segja
allir mér ókyldir. SUdarbræðslan á
Reyðarfirði er algerlega til komin
fyrir tilstuðlan þeirra bræðra Gísla
og Arnþórs Þórólfssona. Þeir fóru á
fund ríkisstjórnarinnar og fengu það
samþykkt að byggð yrði síldarverk-
smiðja á Reyðarfirði. Reyðfirðingar
þurfa að efla iðnað sinn samfara
auknum sjávarfeng og fiskvinnslu,
þjónustuiðnaður er nokkur en mætti
■era miklu meiri.
En blómlega framtið á fjörðurinn
ininn fyrir sér, ef fólkið viil og þorir.
Það ætla ég að vona að verði og
blessunar bið ég firði og fólki um
framtíð alla.
Raddir
lesenda
eiginlegt og það er frekja og yfirgang-
ur. Við greiðum hitakostnað að hálfu
og það væri synd að segja að þau
spöruðu vatnið því heita vatnið renn-
ur það mikið hjá þeim að kaldavatns-
kraninn hjá okkur er venjulega vel
heitur. Þetta fólk virðist ekki hafa
skilning á því hvernig á að spara ef
einhver er til þess að greiða heita
vatnið á móti því.
Einn stór kjaftur
Það er ekki nóg að heita vatnið
renni hjá þeim takmarkalaust, heldur
leyfir það frændum og vinum að nota
þvottahúsið og þar með minn hluta i
vatninu og þegar ég hefi leyft mér að
tala um þetta við blessaða frúna, þá
er hún einn stór kjaftur og segir að
mér komi það fjandann ekkert við,
þar sem þetta sé hennar vika í þvotta-
húsinu.
Öskur og
hamagangur
Nú þetta fólk fer snemma á fætur á
morgnana og þá er nú ekki sparaður
hamagangurinn, skellandi stólum í
gólfið og öskur og hamagangur i
börnunum. Þegar mannskapurinn
kemur svo heim á kvöldin, því auð-
vitað vinna bæði hjónin úti, þá er
hamagangurinn slíkur að það er eins
og heil stórgripahjörð sé á harða-
hlaupum yfir höfðinu á okkur gömlu
hjónunum. Og nú spyr ég: Hver er
réttur minn?
Hver er
réttur minn?
—óánægður með sambýlisf ólk sitt
Spurning
dagsins
Heldurðu að þing-
kosningar verði í •
haust?
Kristján Pálsson prentari: Það vona ég.
En ekki skal ég segja um hvernig þær
kosningar færu.
Sævar Þ. Þórðarson verzlunarmaður:
Það býst ég ekki við. Ekki er gott að
segja um hvernig þær kosningar færu
ef til kæmi. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn
ynni ekki á. Það hugsa ég.
Hafsteinn Sæmundsson framleiðslu-
sljóri: Ég veit það ekki. Ég get engu
svarað um það.
Þorgrímur Sigurjónsson bilstjóri: Nci.
Ég held að stjórninni takist að bjarga
sér úr vandanum.
Jóhann Hlöðversson húsasmiður: Nci,
ég býst ekki við því. Ég held að þessi
stjórn lafi.
Ásgeir Jörundsson sjómaður: Ég vona
það. Sjálfstæðisflokkurinn hlyti þá að
vinna á og eftir því bíða allir.