Dagblaðið - 29.05.1979, Side 1

Dagblaðið - 29.05.1979, Side 1
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ1979 — 120. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÍJLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. KONA MARGSTUNGIN Mri\ uiiipi í uatT Iwltil nNlrl I NUII —úrlífshættu eftirmargra klukkustunda aðgerd—tilræðismaðurínn ígæzluvarðhaldi Ung kona, fædd 1957, var í nótt stungin alvarlegum hnifstungum i húsi við Biómvallagötu og síðast er lögreglan vissi um afdrif hennar, kl. 06,30 i morgun hafði hún verið í aðgerð i þrjár klukkustundir og var þá talin úr lífshættu. M.a. var hún stungin á kviðarhol og í fót og ef til vill viðar. Það var um þrjúleytið í nótt að fólk, sem býr á hæðinni fyrir neðan ungu konuna, hringdi á lögregluna vegna óeðlilegs hávaða í hljóm- flutningstækjum samfara brothljóð- um ogskarkala. Er lögreglan kom að, hitti hún fyrst fyrir ungan mann, fæddan 1955, í miklu uppnámi, Játaði hann strax verknað sinn og var tekinn í vörzlu lögreglunnar. Konan var þá enn með meðvitund, en blæddi mikið. Var hún þegar flutt á Borgarspítalann undir læknis- hendur. Ekki voru fleiri í íbúðinni er atburðurinn varð. Ungi maöurinn er skráður til heim- ilis á sama stað og unga konan, en ekki er ljóst hvort þau bjuggu enn saman eða höfðu nýlega slitið sam- vistum. Allt bendir til að þau hafi bæði haft vín um hönd i nótt. Yfir- heyrslur yfir manninum áttu að hefjast í morgun. -GS. Hafísvandinn: Ríkissjóð- urverður að hlaupa undir bagga Fremur er kuldalegt um að litast á Ströndum eins og þessi mynd frá Hólma- vik ber með sér, en í fréttum þaðan segir, að Steingrimsfrörður hafi verið fullur af is i nokkum tima og hamliþað mjög öllu atvinnulifi. öllu einmanalegra hafi verió fyrir íbúa Ámeshrepps, en hann hafi verið einangraður frá umheiminum um tíma, ,Jlugvöllur vegna aurbleytu, sjó- leiðin vegna íss og landleiðin vegna snjóa...” DB-mynd Kristján Jóhannsson — sjá baksíðu Aðeins sex mjólkur- f ræðingar hafa lagt niðurvinnu — aðeins stöðvað hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík sem tapar 25 milljón króna sölu á dag en verður að greiða þrjár milljónir í laun Engin mjólk er unnin í Mjólkursam- sölunni í Reykjavík í dag og engum mjólkurvörum dreift eftir að ekki náðist samkomulag á milli mjólkur- fræðingi og stjórnenda fyrirtækisins um hvernig vinnslu og dreifingu skyldi háttað á meðan á verkfalli stæði. Standa þá um það bil hundrað og sextíu manns uppi verklausir hjá Samsölunni vegna vinnustöðvunar þeirra sex mjólkurfræðinga, sem þar starfa. Annars staðar munu mjólkur- fræðingar vinna fulla vinnu við vinnslu mjólkur. Laun og launatengdur kostnaður hvern dag i Mjólkursamsölunni nemur að sögn Guðlaugs Björgvinssonar • framkvæmdastjóra um það bil þrem milljónum. Mest af framleiðslu fyrirtækisins er staðgreitt og við fulla vinnslu nemur hún tuttugu til tuttugu og fimm milljónum á dag. Engir fundir hafa verið boðaðir með aðilum í verkfalli mjólkurfræðinga. Mjólkursamsalan í Reykjavík er í eigu bænda og þeirra mjólkursamlaga, sem flytja og selja mjólk til Reykja- víkur og nágrennis. - ÓG Bráðabirgðalausn rædd: HALDA SKIPIN ÚR HÖFN í VIKUNNI? Tveggja mánaða frestun á umfjöll- un á farmannadeilunni kann að verða sú lausn til bráðabirgða, sem aðilar gætu fallizt á. Til greina gæti komið að sá frestur yrði lengri, ef nauðsyn krefur, eða allt til 1. desember, takist ckki samningar fyrr. Ljóst er, að forsætisráðherra og ríkisstjórnin telja ekki bera brýna nauðsyn til þess að skipa launamál- um farmanna eða samningum þeirra og útgerðarmanna með bráðabirgða- lögum. Brýna nauðsyn ber hins vegar til þess að rjúfa þá flutningateppu, sem ieiðir af því, að öll skip í verzlunar- flota landsins liggja bundin við bryggjur. Kæmi fram tillaga um ofangreinda tilhögun, til dæmis frá sáttanefnd, gæti ríkisstjórn skipað málum þann veg með bráðabirgðalögum, ef óhjá- kvæmiiegt þætti. Ofangreindurmöguleiki hefurekki fengizt staðfestur né heldur þau at- riði, sem næst virðist liggja að samn- inganefndir ræði, svo sem mönnun, einkum í vél og hugmyndir um tveggja vikna vetrarfrí farmanna. Samkvæmt heimildum DB eru yfirgnæfandi líkur til þess, að sátta- nefndin í þessari vinnudeilu leggi fram mótaðri tillögureftir fundsinn í dagkl. 15enhingaötil. - BS

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.