Dagblaðið - 29.05.1979, Page 10

Dagblaðið - 29.05.1979, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1979. uBlAÐIÐ fifálsí, úháihdagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. f Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjóifsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Ritstjómarfulltrúi: Hai^kur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar Jóhannes Reykdal. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. íþróttir Hallur Slmonarson. Menning: Aðalsteinn IngóHsson. Aflstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrímur Pólsson. Blaflamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdótt- ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Helgi Pótúrsson, Ólafur Goirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Gufljón H. Pólsson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur BjamleHsson, Hörður Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurfls- son, Sveinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dro'rfing- arstjóri: Mór E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siflumúla 12. Afgreiflsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofias ÞverhoKi 11. Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 línur). Áskrift 3000 kr. á mánufli innanlands. I lausasölu 150 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaflifl hf., Siflumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. SkeHunni 10. Fínir menn á fínum bílum Almenningur hefur tæpast nokkuð á móti því, að ráðherrar hafi glæsilega bila til afnota. Þvert á móti er ástæða til að ætla, að menn vilji, að sýnd sé sæmi- leg reisn á því sviði. Fáir mundu rísa upp til andmæla, þótt einkennisklæddir bílstjórar flyttu forseta íslands og forsætisráðherra milli húsa á gljá- fægðum Rolls Royce bílum. Ekkert ætti heldur að vera því til fyrirstöðu, að ríkið ætti nokkra glæsivagna til afnota fyrir ráðherra, for- seta alþingis og forseta hæstaréttar. Slík þjónusta gæti verið með stöðvarsniði. Lands- feður gætu látið með símtali kalla til bíl og bílstjóra. Væri enginn glæsivagn laus þá stundina, yrðu þeir að sætta sig við leigubíl. Aðeins framúrstefnumenn í nöldri mundu amast við því, að ríkið kostaði slíka þjónustu, svo framarlega sem hún yrði metin til tekna á skattskýrslum landsfeðr- anna. Gagnrýnin á bílabrask ráðherra stafar ekki af öfund. Hún stafar ekki af, að gagnrýnendur séu á móti því, að sjáist, hvar höfðingjar eru á ferð. En þetta hefur ein- mitt misskilizt. Gagnrýnendur vilja, að landsfeður borgi skatta eftir sömu reglum og aðrir, svo og aðflutningsgjöld. Þeir vilja, að landsfeður hafi sama aðgang að lánum sem aðrir og með sömu kjörum. Um það snýst málið. Ef ríkið ætti bíla til að flytja landsfeður milli húsa, þyrfti það ekki að hafa frekari afskipti af bílamálum ráðherra. Þeir gætu keypt og selt bíla eins og aðrir, án nokkurrar afskiptasemi blaðamanna né þingmanna. Til skamms tíma máttu fráfarandi ráðherrar kaupa sér bil án aðflutningsgjalda. Ólafur Jóhannesson not- færði sér þetta nýlega sem dómsmálaráðherra síðustu stjórnar á undan þessari. Fríðindi þessi þóttu siðlaus og hafa nú verið aflögð. Nú mega ráðherrar taka úr ríkissjóði þriggja milljón króna lán með 19—22% vöxtum til tíu ára til kaupa á bíl. Það eru þessi fríðindi, sem gagnrýnd hafa verið að undanförnu. Ráðherrar, sem setja sér slíkar reglur um fríðindi, haga sér eins og smáglæpamenn. Þeir eru að nota sér aðstöðuna til að komast yfir eignir. Svo virðist sem tveir af þremur ráðherrum, sem þetta lán tóku, hafi séð að sér og skilað því. Situr þá Tómas Árnason einn uppi með smáglæpinn og hefur af því lít- inn sóma. Þetta svindlbrask var svo mikið feimnismál, að fjár- málaráðherra neitaði stöðugt að segja fjölmiðlum frá því. Það var svo mikið feimnismál, að ráðuneytisstjóri fjármála neitaði í tvígang að segja þingnefnd frá því. Málið upplýstist ekki fyrr en Ólafur Ragnar Gríms- son knúði ráðherrana út í opinbera umræðu á alþingi. Sumir hafa legið honum á hálsi fyrir smámunasemi. En í raun á hann heiður skilið. Gagnrýnin snýst nefnilega ekki um, hverjir megi aka um á fínum bílum. Hún snýst hins vegar um, hverjir megi stela. Á þessu tvennu hafa sumir ekki gert greinarmun. Almenningur vill áreiðanlega, að ríkið hafí einkabíla og einkabílstjóra handa forseta íslands og forsætisráð- herra. Almenningur vill sennilega, að ríkið hafi sam- eiginlega bíla og bilstjóra fyrir aðra ráðherra, forseta alþingis og forseta hæstaréttar. Fólk er ekki andvígt bílareisn landsfeðra. En það er andvígt pukri með lánsfjárhæðir, vexti og lánstima. Það telur slíkt sýna litla reisn landsfeðranna. BRÉZNEF 0G FÉ- LAGAR LEGGJA MIKK) UPP ÚR SAMÞYKKT SALTII Sovétmönnum er mikið í mun að samkomulagið sem nefnt hefur verið Salt II og er um takmörkun kjarn- orkuvígbúnaðar verði fullgilt. í Bandaríkjunum er veruleg andstaða gegn þvi að Jimmy Carter, forseti landsins, fullgildi samkomulagið á fyrirhuguðum fundi fians í Vin með Leonid Bréznef, forseta Sovétríkj- anna. Fundur þjóðarleiðtoganna á að verða í Vínarborg dagana 15. til 18. júní næstkomandi. í Bandaríkjunum mun andstaðan aðallega byggjast á tvennu. í fyrsta lagi telja sumir að fulltrúar Carters hafi samið af sér og afleiðingar Salt II verði að Sovétmenn muni skjóta Bandaríkjamönnum ref fyrir rass í vígbúnaðarmálum í framtíðinni. I öðru lagi er sá hópur sem telur að í hinu sex ára málaþrasi, sem farið hafi fram á milli sérfræðinga og emb- ættismanna, hafi allt bitastætt verið tekið úr Saltsamkomulaginu. Þarna sé aðeins verið að semja um takmark- anir á vopnum sem þegar séu orðin úrelt. Salt II samkomulagið verði aðeins áróðursplagg sem aðeins geti slegið ryki í augu fáfróðra og jafnvel tafið fyrir raunverulegum viðræðum um frið og afvopnun. Eftirfarandi grein er eftir einn sér- fræðing Sovétríkjanna um Salt II og kann hann ýmsar skýringar á afstöðu ýmissa þeirra Bandaríkjamanna, sem andstæðir eru samkomulaginu. í samræmi við samkomulag, sem gert hefur verið, munu Leonid Bréznef, aðalritari miðstjórnar KFS og forseti Sovétríkjanna, og Carter, forseti Bandaríkjanna, hittast í Vínarborg 15.—18. júní, ef ekki verður öðru vísi ákveðið, til þess að undirrita nýjan samning um tak- mörkun árásarvopnabúnaðar, Salt II samninginn. Carter forseti segir, að yfirgnæf- andi meirihluti Bandaríkjamanna samþykki Salt II og vilji ekki að kalda stríðið endurtaki sig. Af opin- berri hálfu í Washington hefur verið lögð á það áherzla, að hinn nýi samn- ingur sé mjög mikilvægt skjal. Fimm- tíu fundir voru haldnir í bandaríska þjóðaröryggisráðinu til þess að ’marka afstöðu Bandaríkjanna til við- ræðnanna og semja svör af hálfu Bandaríkjanna við sovézkum tillög- um. Skynsamlegt samkomulag hefur náðst: Höfuðmarkmið Salt samn- ingsins er að draga úr og um síðir að útrýma hættunni á kjarnorkustyrj- öld. Þannig er með Salt II ekki aðeins sett þak á sóknarvopnabúnaðinn, heldur er og í fyrsta sinn í sögunni kveðið á um verulegan samdrátt hans frá því sem nú er. Samningurinn leggur að vissu marki hömlur á endurbætur vopna, sem hefur afar-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.