Dagblaðið - 12.06.1979, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 1979.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ1979.
13
Falleg verölaun eru 1 boði.
10 ára afmælismót
Pierre Robert
Hið árlega Pierre Robert golfmót verður haldið á
Nesvellinum á Seltjamarnesi dagana 14,—17. júni
nk. og er þetta 10. árið í röð sem Pierre Robert golf-
mótið er haldið.
Pierre Robert golfmótið nýtur sívaxandi vinsælda
og er nú orðið langstærsta og fjölmennasta golf-
mótið á landinu næst á cftir sjálfu Islandsmótinu.
Keppt verður í átta flokkum karla, kvenna og
unglinga. Raðað er í karla- og kvennaflokk eftir for-
gjöf viðkomandi en í unglinga- og drengjaflokk eftir
aldri. 18 ára og yngri fara i eldri flokk. 15 ára og
yngri i drengjaflokk. Aldur miöast við 1. júlí nk.
Þeir piltar sem hafa forgjöf 7 eða lægri leika i
meistaraflokki karla en keppni þeirra verður sunnu-
daginn 17. júni.
Búizt er við öllum beztu kylfingum landsins þar
sem keppnin gefur mikilvæg stig til landsliðsins.
Annars hefst keppnin á fimmtudaginn. Þá leika
konur og ungiingar en daginn eftir verður leikið í 3.
flokki karla meö forgjöf 19—24. Á laugardaginn
verður keppt í tveim flokkum, 1. flokki karla með
forgjöf 8—13 og 2. flokki karla með forgjöf 14—18.
Leiknar eru 18 holur i þessum flokkum.
Búizt er við miklu f jölmenni á sunnudaginn sem er
síðasti keppnisdagur og.þá berjast meistarafiokks-
menn í 36 holu keppni.
öll verðlaun tii keppninnar eru gefin af umboðs-
manni Pierre Robert hér á iandi, Islenzk-ameriska
verzlunarféiaginu hf.
Skráning á mótið er hafin i golfskálanum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Síminn í golfskálanum á Nes-
inu er 17930.
Johann Neeskens
til Cosmos
Knattspyrnustjarnan Johann Neeskens gerði í
gærkvöldi samning við bandariska stórliðið New
Vork Cosmos til 5 ára. Samningsupphæðin mun
vera um 1.4 milljónir dollara, eða sem svarar um 100
milljónir ísl. á ári! Ekki amalegt. Arsenal keppti
mjög við Cosmos um að fá kappann í sínar raðir en
hinn langi samningur mun hafa ráðíð úrslitum fyrir
Neeskens, sem sá fram á fjárhagserfiðleika eftir 5
góð árhjá Barcelona.
Neeskens vakti fyrst verulega athyglí 1974 1 HM
keppninni 1 V-Þýzkalandi og var hann þá oft sagður
„vélin” í hollenzka landsliðinu, cn Cruyff „heili”
þess. Mcð Cosmos leika nú kappar eins og Franz
Becke^batjer og Gcorgio Chinaglia.
Knapp og félagar
í efsta sætinu
Um helgina var leikin heil umferð i norsku deilda-
keppninni og urðu úrslit sem hér segir:
Bryne — Lllleström 3-0
Hankam' —Mjölndalen 6-1
Start — Viking 0-3
Brann — Valerengen 0-1
Rosenborg — Moss 1-3
Skeid — Bodö Glimt 2-0
Stafla efstu liða er nú þessi:
Viking 9 6 3 0 15-6 15
Bryne 9 6 0 3 22-11 12
Start 9 4 2 3 16-9 10
Moss 9 4 2 3 13-12 10
Rosenborg 8 4 1 3 12-10 9
Lilleström 8 2 4 2 6-9 8
„VAL UÐSINS
VAR ERFTÍT’,
- sagði Kjartan L Pálsson, einvaldur GSÍ
„Jú, val liðsins var ákaflega erfitt,
en erfiðara á það eftir að verða því af
þessum átta sem ég hef valið fara
aðeins sex út á Evrópumeistaramótið i
Esbjerg 1 Danmörku,” sagði Kjartan
L. Pálsson, landsliðseinvaldur i golfi, í
stuttu spjalli við DB í gærkvöldi.
Kjartan hefur valið 8 menn til
æfinga fyrir Evrópumótið og fyrsta
æfingin fer fram í dag á Grafarholts-
vellinum, en héðan mun landsliðið
halda þann 24. júní. Þeir, sem valdir
hafa verið eru:
Hannes Eyvindsson, GR
Geir Svansson, GR
Sigurjón H. Gíslason, GK
Óskar Sæmundsson, GR
Sigurður Hafsteinsson, GR
Jón H. Guðlaugsson, NK
England vann
ífrjálsum
England sigraði auðveldlega í 4-
landa keppni í frjálsum íþróttum í
Gateshead á Englandi í gær. Hlaut 234
stig. Belgía 155, Noregur 152 og
Skotland varð neðst með 122 stig.
Capes sigraði í kúluvarði — varpaði
20.40 metra og þar varð landi hans,
Winch, Englandi, annar með 18.19
metra. Norðmenn sigruðu tvöfalt í
kringlu, þó Hjeltnes væri ekki með.
Walvik kastaði 58.22 m og Osorbeek
54.56 m. í hástökki sigraði Burgess,
Skotlandi, — stökk 2.16 m. Athyglis-
verðasta árangrinum náði David.Moor-
croft, Englandi, sem keppti sem gestur
í 5000 m hlaupi. Hann sigraði á 13:30.4
mín., sem er aðeins lakara en bezti
heimsárangurinn á vegalengdinni. í
landskeppninni varð Rose, Englandi,
fyrstur á 13:33.4 mín. Alan Wells,
Skotlandi, sigraði i 100 m (10.38 sek)
og 200 m. Hinn 18 ára Graham
Williamsen, Siotlandi, sigraði í
míluhlaupi á 3:56.9 min. og hinn 17 ára
Chris McGeorge, Englandi, sigraði í
800 m á 1:49.1 mín.
Sveinn Sigurbergsson, GK
Björgvin Þorsteinsson, GA.
Þeir Jón Haukur og Sigurjón hafa
hvorugur nálægt landsliði komið und-
anfarin ár. Þeir Magnús Halldórsson,
GK og Þorbjörn Kjærbo, GS, komu
einnig sterklega til álita við val liðsins,
en verða ekki með í þetta sinnið. „Það
er ekki nóg að velja menn sem geta
slegið langt, í svona hópi verða menn
einnig að vera mjög félagslyndir því
mikið byggist á samvinnu manna,
einkum í tvíliðaleiknum (Scottish
foursome),” sagði Kjartan einnig.
Völlurinn í Esbjerg er mjög langur
eða 6500 metrar, en lengsti völlurinn
hér á landi nær því engan veginn og
vantar talsvert uppá.
Fyrst verður leikið í undankeppni og
er þá keppt í venjuíegum höggleik —
skor 5 beztu manna gUda. Þessi for-
keppni er siðan notuð tU að raða
þjóðunum niður í riðlana, en þeir verða
þrír. Átta þjóðir verða í A-riðli, 8 í B-
riðli og 3 í C-riðli. „Stefnan hjá okkur
er að reyna að komast i B-riðUinn, en
það er við sterkar þjóðir að eiga,”
sagði Kjartan ennfremur. Allar þær
Evrópuþjóðir, sem á annað borð hafa
golf á sinni dagskrá hafa tilkynnt þátt-
töku utan Portúgalar, sem ekki verða
með að þessu sinni.
í riðlakeppninni verður annars veg-
ar keppt í tvUiðaleik þar sem
keppendur slá annað hvert högg og
hins vegar í fiolukeppni þar sem einn og
einn leikur saman og gildir aðeins
höggafjöldi hverrar holu fyrir sig —
þ.e. hver hola er sjálfstæð keppni í
rauninni. „Það gæti orðið erfitt að
velja menn saman í þetta, því menn eru
mishögglangir og það þarf að taka
með í reikninginn í t.d. tvUiða-
leiknum”.
Undanfarin ár hefur golfið verið á
stöðugri uppleið hér á landi enda mjög
skemmtileg íþrótt í alla staði. Árangur
landsliðsins hefur einnig farið batnandi
með hverju árinu í samræmi við þró-
unina hér heima og við vonumst bara
til að árangurinn á EM verði góður.
-SSv.
Haukar leika
enn á mölinni
„Jú, við verðum að leika á mölinni
á Hvaleyrarholtinu gegn Skaga-
mönnum,” sagði Pétur Ámason, for-
maður knattspyrnudeildar Hauka í
samtali við DB í gær. „Það hefur
ekkert miðað 1 samkomulagsátt við
FH-ingana, þannig að við leikum líkast
til alla okkar heimaleiki á mölinni —
annað getum við ekki boðið uppá því
miður.” Sannarlega hvimleitt að þurfa
að leika á Hvaleyrarholtsvellinum þvi
hann er ekki allt of góður af malarvelli
að vera. Það er Haukunum þó sárabót,
að þeir hafa fengið Steingrím Hálf-
dánarson góðan af meiðslum og þeir
Ólafur Torfason og Úlfar Brynjarsson
verða nú einnig með.
Akranes og Haukar hafa aldrei
mætzt í 1. 1. deildarkeppninni en
Skagamenn hafa að vonum haft undir-
tökin í viðureignum liðanna i Litlu
bikarkeppninni, sem fram fer á hverju
vori. Haukarnir hafa átt erfitt
uppdráttar í vor, en það að leikið er á
mölinni, kemur þeim vafalítið til góða.
Þá leika einnig í kvöld Valur og
Vestmannaeyingar. Eyjamenn byrjuðu
með góðum sigri gegn Þrótti en hafa
ekki gert mark í tveimur síðustu leikj-
um sínum — gegn Keflavík og KA frá
Akureyri. Valsmenn hafa fengið 4 stig
úr fyrstu þremur leikjunum — en alls
ekki virkað sannfærandi eins og und-
anfarin ár. Valur hefur þó sennilega á
aðskipa jafnbeztaliðinu í l.deild.
Eyjamenn hafa tapað síðustu
fjórum leikjum sínum í 1. deildinni
gegn Val og ekki skorað mark í þeim.
Valsmenn hafa umtalsverða yfirburði
yfir Eyjamenn ef árangur liðanna sl. 10
ár er skoðaður. Eyjamenn voru í 2.
deild 1977, en í þau 18 skipti, sem liðin
hafa mætzt á sl. 10 árum hafa Vals-
menn unnið 8 leiki, 7 hefur lokið með
jafntefli og Eyjamenn hafa unnið 3
þeirra. Árangur Vals er jafnvel betri úti
í Eyjum, en þar hafa þeir unnið 4, gert
fjögur jafntefli og tapað einum leik —
skorað 13 mörk gegn 7. í Reykjavík
hafa Valsmenn unnið 4, þrír hafa orðið
jafntefli og tvívegis hafa Eyjamenn
unnið — 1970 og ’71 í bæði skiptin 1 —
0. Markatalan er Valsmönnum einnig í
hag hér í höfuðborginni eða 16—7.
-SSv.
ÞRJU M0RKISIÐ-
ARIHALFLEIKNUM
— tryggðu Tindastóli 4-3 sigur yfir KS. Huginn vann Val 11-1
Magnús Guðmundsson, markvörður KR, slær hér knöttínn yfir markið eftír þrumuskot Heimis Karlssonar. Aðeins markspyrna var dæmd í þessu tílviki og orkaði sá
dómur tvimælis sem og margir dómar Sævars Sigurðssonar. DB-mynd Sveinn Þorm.
Sjálfsmark varð bana-
biti Víkinga gegn KR!
—saklaus fyrirgjöf Sigurðar Indriðasonar varð að marki og tryggði KR sigur, 1-0
„Öll mörk eru góð — aðeins mis-
jafnlega góð,” sagði Birgir Guðjóns-
son, KR-ingur, eitt sinn við undirritað-
an og orð hans eiga svo sannarlega við
um leik Víkings og KR á Laugardals-
veilinum í gærkvöldi. Á 48. mínútu
sendi Sigurður Indriðason saklausa
sendingu fyrir mark Víkings. Öllum til
furðu lét Diðrik knöttinn óáreittan,
sem sigldi yfir hann og lenti innan á
stönginni fjær. Þaðan skoppaði hann
síðan í fætur Diðriks og í markið.
Sjálfsmark og það af ódýrari gerðinni.
Þetta atvik er til marks um hið algera
lánleysi Víkings. Með slíku áframhaldi
bíður liðsins ekkert nema fall í 2. deild.
Þetta eina mark reyndist duga KR-ing-
um til sigurs. Ekki verður á móti því
mælt að KR átti sigurinn fyllilega
skilið, en markið var af ódýrari gerð-
inni. En það eru stigin sem telja og KR-
ingar hirtu þau bæði. Það spyr enginn
um það eftir á hvernig leikirnir hafi
unnizt.
Leikurinn í gær reis annars aldrei
upp úr plani meðalmennskunnar — á
það geta áhangendur beggja liða fallizt.
Nær allan leikinn byggðu bæði liðin
upp á langspyrnum fram miðju vallar-
ins og var sér í lagi sorglegt að sjá til
KR-inganna, sem nýttu kantana afar
illa. Sömu sögu má segja um Víking-
ana. Vinstri kanturinn stóð þeim oft til
boða þar sem Guðjón Hilmarsson var
oft full djarfur í „overlapping”, en
þeir rétt eins og KR-ingar sáu ekki þann
möguleika.
Inn á milli reyndu leikmenn að spila
á milli sín en árangurinn varð oft tak-
markaður, enda afar erfitt áð fóta sig á
glerhálum vellinum. Vörnin hjá KR var
HVALEYRARHOLTSVÖLLUR
I. PEILD
KL. 19.00 í KVÖLD
HAUKAR - ÍA
KOMIÐ OG SJÁIÐ SPENNANDI LEIK
KNATTSPYRNUDEILD HAUKA.
sterk í leiknum og er tvímælalaust
sterkari hluti liðsins, en það vekur at-
hygli að Magnús Jónatansson þjálfari
skuli aðeins tefla fram tveimur virkum
framherjum. Spil KR minnir óneitan-
lega oft á spil landsliðsins, sem ekki
hefur náð allt of góðum árangri. KR
hefur það sterkum tengiliðum á að
skipa að þrír þeirra eiga að hafa fullt
vald á miðjunni. Með þrjá téngiliði er
hægt að færa einn framar og ekki veitir
af hjá KR því sóknaraðgerðirnar eru
ákaflega einhæfar og fálmkenndar —
byggjast nær eingöngu á stunguboltum
á Jón Oddsson.
Slíkt er ágætt svo langt sem það nær.
Það er þó lítill vandi að stöðva slíkar
sóknaraðgerðir. Ekkert er sjálfsagðara
fyrir KR en að nota báða bakverðina í
sókninni þvi bæði Guðjón og Sigurður
Pétursson eru fyrir það að sækja upp
kantinn — því ekki að notfæra sér
það.
Sigurlás Þorleifsson var beztur Vík-
inganna i gær og það eitt segir meira en
hástemmd lýsing. Sigurlás lék aðeins
,,á öðrum fætinum” ef svo má segja,
því meiðsli í hægra fæti angra hann sí-
fellt. Hann var sá eini af leikmönnum
Víkings ásamt Lárusi Guðmundssyni,
sem kom fljótlega inn á fyrir Óskar
Tómasson, sem eitthvað sýndi. En
hvers er draghaltur sóknarmaður
megnugur gegn fjölmennri vörn? Ekki
mikils, en það er var þó oft unun að sjá
til Sigurláss leika á KR-ingana á öðrum
fæti.
Hörmung var oft á tíðum að sjá til
leikmanna eins og Jóhannesar Bárðar-
sonar. Boltinn kom aldrei almennilega
frá honum og margar sóknarlotur Vík-
ings koðnuðu í fæðingu við fætur
hans. Það er að vísu ekki hægt að
ásaka hann einan — liðið gerði sig allt
sekt um sömu vitleysumar.
Ef við lítum aðeins á tækifærin í lok-
in áttu Víkingar gott skot að marki í
byrjun leiks. Eftir það sótti KR í sig
veðrið. Tvívegis fengu framherjar KR
möguleika á að komast í gegn, en tókst
ekki. Bezta færi fyrri hálfleiks fékk
hins vegar Lárus Guðmundsson á 21.
mínútu eftir snilldarsendingu. Hann
hljóp varnarmenn KR af sér, en
Magnús kom vel út á móti og bjargaði
marki.
Á 52. mín. skaut Lárus í þverslá og
yfir af löngu færi og rétt á eftir átti
Heimir Karlsson skot rétt yfir. Á 60.
mín. fékk KR gullið færi. Tveir Vík-
ingar hlupu þá saman og lágu báðir
Sigurður
Sverrisson
Gísli Torfa missti
af landsliðssæti!
Gárungarnir í Keflavík höfðu það á
orði, að Gísli Torfason hefði misst af
því að spila sig inn í landsliðið i gær-
kvöldi er leik ÍBK og Fram var frestað.
Þetta var í fyrsta sinn í 14 ár, sem fresta
varð leik i Keflavík og þótti mönnum
ástæðan fyrir frestuninni ómerkileg.
Dómarinn, Guðmundur Haraldsson,
taldi að línur malarvallarins væm ekki
nógu vel merktar, en skeljasandur
hefur verið notaður til merkinga í
Keflavík með ágætum árangri.
Framarar höfðu áður reynt að fá
leiknum frestað en ekki tekizt, en þegar
þeir sáu leikskýrsluna í gærkvöldi vildu
þeir óðir og uppvægir leika. Í ljós kom
þá, að Gísli Torfason átti að standa í
markinu, þar sem Þorsteinn Ólafsson
gat ekki leikið vegna ígerðar. Keflvík-
ingar eru í miklu markmannshailæri og
var því gripið til þess að velja Gísla í
liðið. Einnig vantaði Einar Ásbjörn í
lið ÍBK.
Ef þessum leik var frestað vegna lé-
legrar merkingar á vellinum má eins
fresta öðrum hverjum leik í sumar.
eftir. Jón Oddsson náði boltanum og
gaf fyrir markið. Sending hans var léleg
en Sigurður Indriðason fékk ákjósan-
legt færi til að bæta við marki, en hik-
aði. Á 74. mín. fékk Sverrir Herberts-
son enn betra færi eftir góða fyrirgjöf
Jóns Oddssonar. Sverrir hitti ekki boit-
ann og tækifærið rann út í sandinn.
Eftir þetta fengu bæði lið sæmileg færi
tíl að skora, en lánleysi sóknarmann-
anna var algert.
Slakur dómari var Sævar Sigurðsson
- SSv.
: Þriðja deildin er nú komin í gang um
allt land og mun DB halda þeirri venju
áfram að birta á þriðjudögum i sumar
yfirlit yfir alia ieiki sem fram fara í
deildinni. Þetta mæitistvel fyrir í fyrra
og vonum við að svo verði einnig nú en
við skulum vinda okkur í leikina.
A-riðill
Þrír leikir voru á dagskrá i þessum
riðli í vikulokin en einum varð að fresta
vegna misskilnings, leikur Víðis við
Ármann hafði verið færður fram á
fimmtudag án þess að forráðamenn
Víðis vissu um það.
Tveir leikir fóru þó fram og var
annar þeirra leikur ÍK og Gróttu á gras-
vellinum í Kópavogi. ÍK kom mjög á
óvart gegn Víði um fyrri helgi og hirti
stig í Garðinum en á föstudag komu
leikmenn ÍK niður á jörðina með skelli.
Á 10. mínútu skoruðu einir þrír varnar-
menn sjálfsmark í sameiningu eftir
hornspyrnu Gísla Jóns Magnússonar.
Grótta sótti mun meira framan af en
upp úr miðjum hálfleik jafnaðist leik-
urinn en ÍK átti engin teljandi færi á
meðan Grótta hins vegar óð í tæki-
færum. í síðari hálfleiknum skoruðu
Gróttumenn fjögur mörk. Ingólfur
Hannesson (íþróttafréttaritari Þjóð-
viljans) skoraði á 49. mín. Árni
Guðmundsson á 57., Gísli Jón
Magnússon á 69. og síðan Ingólfur
aftur á 85. min. Stórsigur Gróttu, 5—0.
í Garðabæ komu Njarðvíkingar
stórlega á óvart með því að vinna
Stjörnuna 1—0 í hörkuleik. Eina mark
leiksins skoraði Haukur Jóhannsson úr
víti í síðari hálfleik. Markið kom um 10
mín. fyrir leikslok en í fyrri hálfleik
brenndi Magnús Teitsson af vítaspyrnu
fyrir Stjörnuna. Njarðvíkingar hafa nú
á að skipa mjög sterku liði en þeir
gerðu jafntefli við Ármann í fyrsta leik.
B-riðill
í B-riðlinum voru þrír leikir um
helgina. Leiknir vann Létti á föstudags-
kvöldið 3—1 með mörkum frá
Jóhannesi Sigursveinssyni, Hilmari
Harðarsyni og Þorsteini Ögmundssyni.
Þá áttust Óðinn og Katla við á
laugardaginn. Óðinn sigraði 3—2 í
skemmtilegum leik en staðan var 1—1 í
hálfleik. Það voru þeir Jóhann Sævars-
>n (2) og Stefán Aðalsteinsson sem
skoruðu
svöruðu
fyrir
Jón
Óðin en fyrir
Júlíusson og
Kötlu
Skúli
Guðmundsson. Einir 5 leikmanna
Kötlu búa í Reykjavík en afgangurinn
austur í Vík í Mýrdal þannig að erfitt er
um vik við æfingar.
Afturelding vann Heklu 5—1 einnig
á laugardag og er nokkuð ljóst að
slagurinn mun standa á milli Aftur-
eldingar og Leiknis í þessum riðli.
Þorvaldur Hreinsson unglingalands-
liðsmaður skoraði tvö markanna og
slíkt hið sama gerði Guðjón Sigurðsson
en fyrrum KR-ingurinn Sigurður
Helgason skoraði 5. markið. Eina
mark Heklu skoraði Samúel Erlingsson
semerþjálfariliðsins. -SSv.
C-riðill
Aðeins einn leikur fór fram í þessum
riðli um helgina. Þá áttust við
Bolungarvík og Snæfell og sigruðu
heimamenn með eina markinu í
leiknum sem Alexander Jónsson
skoraði. ÖJ.
D-riðill
í þessum riðli fóru fram tveir leikir
og í þeim voru skoruð hvorki meira né
minna en 14 mörk — 7 í hvorum. Það
var leikur Tindastóls og KS frá Siglu-
.firði sem vakti mun meiri athygli.
Tindastóll vann fyrir skömmu Völsung
4—1 i bikarnum þannig að leikmenn
KS vissu að hverju þeir gengu. Fyrri
hálfleikurinn var að mestu eign KS sem
skoraði þá þrjú mörk gegn aðeins einu
heimamanna. í seinni hálfleik snerist
dæmið hins vegar algerlega við og
fyrstu 30 mín. síðari hálfleiks voru
algerlega eign Tindastóls sem skoraði
þá þrjú mörk og náði forystu, 4—3.
Lokakaflann sótti KS mjög án þess að
geta skorað þannig að Tindastóll stóð
uppi sem sigurvegari.
Mörk Tindastóls skoruðu þeir
Sigurjón Magnússon og Stefán Ólafs-
son — tvö hvor. Fyrir Siglfirðingana
skoruðu þeir Friðfinnur Hauksson,
Hörður Júlíusson og Þorgeir Rúnars-
son.
í hinum leiknum í riðlinum áttust
við Leiftur frá Ólafsfirði og
Höfðstrendingar. Það varð leikur
kattarins að músinni því Leiftur vann
;7—0. Mörkin skoruðu þeir
Guðmundur Sigurðsson 4, Geirharður
Ágústsson 2 og Guðmundur Garðars-
son eitt. Næstu ieikir verða um helgina
og leika þá m.a. Leiftur og Tindastóll.
-Þ.Á.
E-riðill
Stórliðið Árroðinn hóf keppnina
með miklum látu n : sínum riðli. Það
var lið Reynis sem varð fyrir barðinu á
Árroðanurr. í þessum leik og voru yfir-
burðirnir miklir enda hefur liði Reynis
farið mikið aftur síðan í fyrra. Mörkin
urðu fimm hjá Árroðanum að þessu
sinni án ftess að Reyni tækist að svara
fyrir sig. Ómar Tryggvason skoraði
þrennu og þeir Baldvin Harðarson og
Hákon Henriksen sitt markið hvor. Má
búast við því að Árroðinn verði erfiður
viðureignar í sumar í 3. deildinni.
Þá léku einnig Völsungur og HSÞ í
þessum riðli og lauk leiknum með sigri
Völsungs, 2—0. Það voru þeir Friðrik
Jónasson og Pétur Pétursson sem
skoruðu mörk Völsungs. -St.A.
F-riðill
Úrslit urðu meira en lítið kyndug i
þessum riðli um helgina en þá fóru
fram þrír leikir. Á Fáskrúðsfirði áttust
við Leiknir og Súlan. öllum á óvart
varð þar jafntefli, 0—0, sókn Leiknis
var þó afar þung allan síðari hálfleik-
inn en allt bit vantaði þrátt fyrir að
tækifærin kæmu á færibandi. Leikur-
inn var ákaflega tilþrifaiítill í alla staði
og úrslitin mjög óvænt.
Þá léku Sindri og Einherji á Horna-
firði. Leikurinn átti upphaflega að fara
fram á Vopnafirði en þar sem völlurinn
þar er ekki kominn í stand varð það að
ráði að liðin lékju á Hornafirði. Þar
urðu einnig óvænt úrslit því þar varð
einnig jafntefli, 0—0. Þetta var mikill
baráttuleikur þar sem Einherji hafði
undirtökin megnið af leiknum án þess
þó að skapa sér nokkur færi að ráði.
Engan hefur sennilega órað fyrir því
í hálfleik í leik Hugins og Vals frá
'Reyðarfirði hvað biði hans í síðari
hálfleik. Staðan í hálfleik var 2—1
.Hugin í vil. Pétur Böðvarsson náði
forystunni fyrir Hugin en Valsmenn
jöfnuðu. Guðjón Harðarson náði
forystunni á ný fyrir hlé og þannig stóð
í hálfleik.
í síðari hálfleik brustu hins vegar öll
bönd hjá Val og leikmenn Hugins
skoruðu að vild. Þegar upp var staðið
hafði Huginn skorað 11 mörk en Valur
aðeins þetta eina. Mörk Hugins í síðari
hálfleik gerðu Pétur Böðvarsson, 3,
Aðalsteinn Smári, 2, Snæbjörn Vil-
hjálmsson, 2, Rúnar Magnússon og
Adolf Guðmundsson eitt hvor. st.J.
_ 0 ' ' ' * . ' ' -
Þrjárnýjar
tegundir af kremkexí.
Hver annari betri.
Með appelaínukremi
UWWWWW'
mvwwww
■N S
Með ávaxtakremi
Með 8Úkkulaðikremi.
wwwwww
Reynið nýja bragðið strax í dag.
KEXVERKSMIÐIAN HOLT
REYKJAVIK SIMI 85550
lC íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir }]