Dagblaðið - 16.06.1979, Síða 3
3
Formaður Samtaka dagmæðra:
JÁ, VÍST ER ÞAÐ
LÚXUS AÐ EIGA BÖRN
Jóna Sigurjónsdóttir, formaður Sam-
taka dagmæðra í Reykjavík, hringdi:
Ég vil koma á framfæri athuga-
semd vegna orða eins lesenda í DB í
gær (miðvikudaginn 13. júní), undir
fyrirsögninni ,,Er orðinn lúxus að
eiga böm í þessu landi?” Ég svara
þessari spurningu hiklaust játandi:
Það er lúxus að eiga börn, en vil jafn-
framt leiðrétta misskilning hjá 0394-
7648. Það er rétt að 9 tíma daggæzla
hjá dagmömmum hefur hækkað um
nálægt 40%, en hins vegar hefur
heildargjaldskrá okkar ekki hækkað
að marki. Aðalbreytingin er þó sú að
gjaldskrá okkar hefur verið breytt í
grundvallaratriðum til samræmis við
hliðstæðar tölur í þjóðíélaginu. Voru
Raddir
lesenda
allir tilskildir útreikningar og for-
sendur gjaldskrárinnar unnar af sér-
fræðingum. Miðað er við ákveðinn
Sóknartaxta og inn í dæmið reikn-
aður matarkostnaður, viðhald hús-
búnaðar og húss o.fl. Samkvæmt
nýrri gjaldskrá kostar gæzla í 8 tima
fyrir barn 61.928 með fullu fæði, en
mér sýnist að upphæðin sem lesandi
nefnir í DB (68.000) eigi við 9 klst.
gæzlu með fullu fæði (það skal tekið
fram að gjöldin munu svo hækka í
samræmi við almennar breytingar á
kaupi og breytingar á matvöru- og
framfærsluvísitölu). Sambærileg tala
fyrir dagvistarstofnanir í Reykjavík,
að undanskildum leikskólum, er
100—103 þús. pr. barn, en foreldrar
greiða hins vegar „aðeins” 28.000
beint, annað er niðurgreitt af opin-
berum aðilum. Athyglisvert er líka,
að hlutur launa hjá dagmæðrum er
50% af hlutfalli launa hjá dagvistar-
stofnunum í Reykjavík.
ER 0RÐINN LUXUS
AÐ EIGA BÖRN
í ÞESSU LANDI?
0394—7648 hríngdi:
Dagmömmur i Reykjavík hafa
nýlega ákveðið nýja taxta fyrir
barnagæzlu og heyrzt hefur að frá 1.
júlí muni daggæzla fyrir eitt barn
hækka um ca 40% og kosta bá tæpar
68 þús. kr. á mánuði!
Svo virðist sem þessi hækkun
gleypi kauphækkun venjulegra laun-
þega og i sumum tilfellum rúmlega
það.
Hvernig er svona hækkun réttlætt?
Bamatimi sjónvarps
tóm vitleysa
KISS, KISS og
afturKISS
Undanfarna daga hefur rignt inn á
ritstjórn DB kvörtunum frá ung-
mennum sem eru súr yfir að hafa
misst af siðasta þætti Alþýðutón-
listarinnar í Sjónvarpinu. Sérstaklega
þykir mönnum leitt að missa af fram--
lagi hljómsveitarinnar KISS i upphafi
þáttarins. Aðalkjarninn i óskum les-
enda er sá að skora á Sjónvarpið að
endursýna Alþýðutónlistina frá því á
sunnudagskvöld. Er þessu hér með
komið enn á framfæri fyrir hönd
KlSS-aðdáenda og málið þar með út-
rætt.
3 ungir hlustendur skrifa:
Við erum hér nokkrar hræður sem
viljum koma á framfæri nokkrum
fyrirspumum um Ríkisútvarp-sjón-
varp á íslandi.
Þá byrjum við á því hvers vegna í ■
ósköpunum Sinfóníuhljómsveit
íslands lifir á Ríkisútvarpinu þegar
önnur félög geta séð um sig sjálf. Þið
ættuð að sjá það sjálf ef þið eruð
ekki búin að sjá það nú, þegar Rikis-
útvarpið er sjálft á hausnum. Það er
bara tóm vitleysa að vera að minnka
sjónvarpsefnið sem er ekki nógu gott
fyrir.
Barnatíminn er tóm vitleysa, en
hann hefur nú skánað. Það ætti svo
að lengja sjónvarpstimann og hafa
fleiri sjónvarpsstöðvar.
03
Yi.
<7
CHRÝSLER
^nnnrö
„flujn
og
dodgE’
I SUÐURLANDS8RAUT 10. SlMAR; 83330 - 83454
o o M áfS- ,979'
♦
LAUGARDAGS-
MARKAÐUR1979
r SIMCA1508 GT .. . . . . . 1978
SIMCA1508 GT ... . . . . 1977
i SIMCA1508 S . . . 1977
2 i SIMCA1307 GLS. . . . . . . 1978
SIMCA1307 GLS. . . . ... 1977
SIMCA1307 GLS. . . . . . . 1976
xy + /J / SIMCA 1100 .. . 1974
K SIMCA 1100 . . . 1970
SIMCA 1508 S árgerð 1977,
ekinn 31 þús. km. Útvarp,
segulband. Gullbrons.
T0Y0TA Corolla.........1974
T0Y0TA Crown...........1973
AUSTIN Allegro
AUSTIN MINI .
1977
1977
ASPEN R/T 2dr............1977
ASPEN SE station.........1977
ASPEN Custom 4dr........1976
DART Swinger.............1976
DART Swinger.............1975
DART Swinger.............1972
PLYM0UTH V0LARÉ árgerð
1977, 2 dyra, sjálfsk., afl-
stýri, aflhemlar. Ekinn 18
þús.
VOLARÉ Premier 2 dr^ . . 1978
VOLARÉ Premier 4dr.......1978
VOLARÉ Premier 2dr.......1977
VALIANT 4dr..............1976
VALIANT 4dr..............1974
DUSTER..................1971
PLYM. TRAILDUSTER
1975
VILTU SEUA? VILTU SKIPTA? VILTU KAUPA?
OPIÐ KL10-17 i DAG, LAUGARDAG
DODGE DOUBLE-CAP pickup
árg. 1973. 8 cyl., beinskiptur,
vökvastýri. 5 manna.
SCOUT II sjálfsk.1974
BRONCO..........1974
BRONCO..........1973
WILLYS m/blæju, nýuppg. . 1964
RANGE ROVER.....1972
CHEVROLET NOVA...1976
MERCURY COMET....1973
Fyrir skattpinda:
OPEL Rekord.....1971
VW Microbus.....1971
FORD Cortina....1970
SUNBEAM 1500 .. 1970
SIMCA 1100 .... 1970
VW Fastback......1969
CHRYSLER
mm
LUUU
SUÐURLANDSBRAUT 10 - SÍMAR 83330 -83454
Spurning
dagsins
Hvað f innst þér um
aðgerðir Green-
peace-manna?
(spurt i Hvalstöðinni i Hvalfirði).,
Ingimar Magnússon: Þessar aðgerðir
hafa náttúrlega áhrif. Þeir trufla
veiðarnar með þessu. En ég er á móti
þessum aðgerðum og mér finnst þær
óréttlátar. Þetta er ekki rétta leiðin.
Það á frekar að semja um þessi mál.
Gunnar Örn Gunnarsson: Ég er á móti
rányrkju en mér finnst ekki rétt að
trufla veiðar sem eru löglegar.
Friðunarsamtök eiga alveg rétt á sér.
Annað mál er svo hvaða leiðir eru
farnar.
Baldur Gunnarsson: Við erum á móti
rányrkju en við vitum ekki hvort rán-
yrkja fer fram á íslandsmiðum. Það er
alveg ósannaðmál.
Elís Másson: Það er kannski
nauðsynlegt að veita forráðamönnum
hvalveiðiþjóðanna aðhald en ég held að
Greenpeacemenn séu svolítið öfga-
kenndir.
m
Jón Úlfarsson: Sjálfsagt eiga friðunar-
aðgerðir rétt á sér en það veiddist
aldrei eins vel og i fyrra þrátt fyrir
aðgerðir Greenpeace-manna og ég vona
að það verði eins núna.
Þorvaldur Friðriksson: Rök Green-
peace-manna eru nokkuð léttvæg. Þeir
hafa ekki fært sönnur á að ofveiði sé á
íslenzka stofninum og meðan svo er þá
eru þeirra aðgerðir mjög vafasamar.