Dagblaðið - 16.06.1979, Side 24
„Ekki hægt að skylda fólk
til að vinna annars staðar”
— segir formaður verkalýðsfélagsins í Bakkagerði þar sem atvinnuleysisbölid er þyngst á íslandi
„Það eru eitthvað yfir 100 manns
í verkalýðsfélaginu hér og þar á
meðal er slæðingur af bændum,”
sagði Halldór Eiðsson formaður
verkalýðsfélagsins í Bakkagerði í
Borgarfirði eystri en sá staður er
frægur orðinn fyrir gífurlegt at-
vinnuleysi, var m.a. með fjórða
mesta fjölda atvinnuleysisdaga á öllu
landinu í maí á eftir Reykjavík,
Siglufirði og Akureyri.
„Bændurnir stunda vinnu í slátur-
húsinu á haustin og af þeim sökum er
þeim leyft að vera í verkalýðsfélaginu
til að þeir öðlist atvinnuleysisbóta-
rétt,” sagði Halldór. „Mér finnst
hins vegar óréttlátt að þeir hafi
fullan rétt. Þeir ættu að vera auka-
félagar.”
,,En svona er nú atvinnuástandið
hér, lítið sem ekkert að gera yfir
vetrarmánuðina. Hér starfrækir
hreppurinn og nokkrir hluthafar
saumastofuna Nálina og vinna þar
u.þ.b. 10 konur og hefur það bætt
nokkuð úr,” sagði Halldór.
Halldór sagði að aðalfundur i
verkalýðsfélaginu hefði ekki verið
haldinn í ár og heldur ekki í fyrra.
Kvað hann reikninga félagsins „ekki
vera klára” eins og hann orðaði það.
Mjög erfitt væri að fá fólk á fund.
Halldór sagðist ekki vita til þess
að atvinnuleysisbætur væru mis-
notaðar í Bakkagerði. Ekki væri
hægt að skylda fólk til að fara annað
til vinnu en þó gerðu það margir.
„Hér þyrfti að skapa meiri at-
vinnu. Ef hægt væri að miðla hingað
hráefni til fiskvinnslu myndi ástandið
batna. Héðan eru ekki gerðir út aðrir
bátar en trUlur og útgerð þeirra er
bundin við sumarið. Kaupfélagið á
staðnum rekur frystihús en þar er
lítið að starfa nema stuttan tíma
ársins. Þar gætu yfir 20 konur unnið
ef nægt væri hráefnið,” sagði
Halldor. Kvað hann afköst geta
orðið 10 tonn á dag ef vel væri unnið.
Halldór kvað oft sæmilegt að gera
yfir sumarið, en doði væri yfir öllu
núna og úrbætur ekki sjáanlegar.
-ASt.
ámorgun
í Dagblaðsbíói kl. þrjú á morg-
un, sunnudag, verður sýnd
myndin Fjársjóðsleitin. Mynd-
in er með íslenzkum texta og
sýnd í Hafnarbíói eins og
venjulega.
FRogFIB
komaupp
neyðar-
þjónustu
á vegunum
Félag farstöðvaeigenda og Félag
íslenzkra bifreiðaeigenda eru þessa
dagana að leggja drög að neyðarþjón-
ustu við vegfarandur fyrir sumarið.
Verður þjónustan í því fólgin að hvar
sem þátttakendur i þessari sjálfboða-
liðsþjónustu sjá bilaðan bíl, bjóði þeir
aðstoð sína við að ná í t.d. varahluti
eða hjálparbíla. Þeir munu hins vegar
ekki aðstoða beint við viðgerðir.
Væntanlega verða bilar sjálfboðalið-
anna merktir, fólki til glöggvunar.
- GS
Myndin er tekin þegar Útlendingaeftirlitið tók farþegana og skipstjóra Rainbow Warrior í sfna vörziu.
DB-mynd Sveinn Þorm.
GREENPEACEMENN TEKN-
IR TIL YFIRHEYRSLU
„Rainbow Warrior óskaði eftir því
að fá að setja þrjá farþega í land svo
okkur þótti rétt að fara og kanna
málið, þai sem þeir höfðu ekki látið vita
að þeir færu út með farþega er þeir
héldu héðan,” sagði Árni Sigurjónsson
hjá Útlendingaeftirlitinu, þegar DB
innti hann eftir því hvers vegna Út-
lendingaeftirlitið hefði tekið fjóra
— hjá Útlendingaeftirlitinu
menn úr Rainbow Warrior í vörzlu
sína, rætt við þá og sleppt þeim svo.
k Er Rainbow Warrior kom á ytri
höfnina í Reykjavík í gær óskuðu þeir
eftir því að fá að setja í land farþega.
Fór því hafnsögubátur út og með
honum eftirlitsmenn Útlendinga-
eftirlitsins til að kanna hvað þarna væri
um að ræða, þar eð ekki var vitað um
hina þrjá farþega. Fór Útlendinga-
eftirlitið með þá til viðræðna, auk
skipstjórans „til að gera honum ljóst,
að slíkt ætti ekki að koma fyrir aftur,”
eins og Útlendingaeftirlitið orðaði það.
Þessir þrír farþegar er þarna var um
að ræða voru blaðamaður, ljós-
myndari og einn fulltrúi erlendra nátt-
úruverndarsamtaka. -BH
Srjálst, úháð daghlað
LAUGARDAGUR 16. JÚNl 1979,
Vand-
ræða-
gangurí
Vilmundi
— segir Jón Sigurðsson,
rítstjórí Tímans
„Þetta er tóm vitleysa og Vilmundur
Gylfason er að reyna að finna einhvern
flöt á að rangtúlka orð mín. Það tekst
honum ekki og allt verður þetta heldur
vandræðalegt hjá honum,” sagði Jón
Sigurðsson ritstjóri Tímans í viðtali við
DB í gær. Tilefnið var ummæli Vil-
mundar Gylfasonar sem voru efnislega
þau að Tíminn, málgagn dómsmála-
ráðherra, héldi því fram að Hæstiréttur
setti menn inn vegna þess eins að hann
skrifaði greinar í blöð.
„Að þetta megi á einhvern hátt lesa
úr leiðaranum sem birtist eftir mig í
Tímanum hinn 13. júní síðastliðinn er
algjör vitle.ysa,” sagði Jón Sigurðsson.
„Kannski má segja að ég sé ekki bezti
maðurinn til að dæma um skilning ann-
arra á eigin efni en ég tel mig þó geta
fullyrt það, fyrst um er spurt, að hér er
hvorki um að ræða ærumeiðandi
ummæli né árás á Hæstarétt Islands
eins og Vilmundur heldur fram.”
Umræddar setningar í leiðara Tím-
ans voru eftirfarandi:
„Á sínum tíma átti Vilmundur meg-
inþáttinn í því að fjórir einstaklingar
voru álitnir hvers manns níðingar. í þvi
voðalega galdrafári sem hér var vakið
upp fyrir örfáum árum sættu þessir
menn langvarandi frelsissviptingu og
fjölskyldur þeirra urðu fyrir óumræði-
legri óhamingju.”
- ÓG
Smáauglýs-
ingar Dag-
blaðsins
Smáauglýsingadeild Dagblaðs-
ins verður lokuð allan sunnu-
daginn 17. júní. Smáaúglýsing-'
ar í mánudagsblað verða að
berast auglýsingadeild kl. 09—
14 í dag, sími 27022.
Dagblaðsbíó
OLÖGLEG HÆKKUN
ÞUNGASKA TTSINS?
,Mér sýnist að með þessari
hækkun komi upp misræmi á milli
þeirra sem greiða fastagjald annars
vegar og kílómetragjald hins vegar,
en félagið hefur ekki tekið afstöðu til
þessa máls enn. Við höfum verið það
uppteknir við umfjöllun
bensínverðsins,” sagði Tómas
Sveinsson, formaður Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda, í viðtali við DB í
gær.
Skv. nýrri reglugerð, er tók gildi
10. þessa mánaðar, hækkar þunga-
skattur af dísilbílum sem greiddur
er skv. eknum km, en ekki eftir
fastagjaldi sem ákveðið er í lögum
við upphaf hvers árs, allt að 52,3
prósentum. Þrir gjalddagar eru ár-
lega á innheimtu kílómetragjaldsins
en fastagjaldið greiðist i apríl.
Lög um þetta segja ótvirætt:
„Greiða skal árlega þungaskatt sem
hér segir”. Hingað til hefur
kilómetragjaldið ávallt verið ákveðið
til eins árs í senn eins og fastagjaldið
og vilja margir bíleigendur túlka
þessa hækkun ólöglega.
Arni Guðjónsson, lögfræðingur
FÍB, var ekki búinn að kynna sér
lagalega hlið málsins og vildi ekki tjá
sig um það að svo stöddu.
„Við lítum svo á að lögin heimili
ákveðna gjaldhækkun af mælunum
til að skapa eigendum dísilbíla svipuð
skilyrði og eigendum bensínbila og
við hefðum aldrei gert þetta ef við
teldum það ekki lögum samkvæmt,”
sagði Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri í fjármálaráðuneytinu í
viðtali við DB í gær.
Staðfesti hann að gjaldið hefði ekki
fyrr verið hækkað á miðju ári, en
taldi eftir sem áður að heimild væri
fyrir því, útskýring á því væri flókin
og lögfræðileg.
-GS.
fógeta
Umsóknarfrestur um starf yfir-
borgarfógetans í Reykjavík er runnin
út og voru umsækjendur um starfið sex
talsins að sögn Baldurs Möller, ráðu-
neytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu.
Þeir eru: Ásberg Sigurðsson, borgar-
fógeti, Ásgeir Pétursson, sýslumaður
Borgarnesi, Elías I. Elíasson, bæjar-
fógeti Siglufirði, Guðmundur Vignir
Jósepsson, gjaldheimtustjóri, Jón
Skaftason, deildarstjóri í viðskipta-
ráðuneytinu, og Unnsteinn Beck,
borgarfógeti.
- BH
Sex sækja
um stöðu
borgar-