Dagblaðið - 26.07.1979, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1979.
IMýir bílar:
504 disil
304 sendiferðabíll
404 Pickup
Notaðir bílar:
504 árg. 1976, ekinn 59 þús. km.
504 árg. 1977, ekinn 30 þús. km.
504 dísil árg. 1975, ekinn 60 þús. km.
504 árg. 1974, sjálfskiptur, ekinn 66 þús. km.
HAFRAFELL H/F
VAGNHÖFÐA7 SÍMI85211.
LADA-ÞJÓNUSTA OG
ALMENNAR VÉLASTILLINGAR
PANTIÐ TIMAI SIMA
76650
LYKILLf
Bifreiðaverkstæði
Simi 76650. Smiðjuvegi 20 — Kóp.
Frá olivetti
ferðareiknivél
með Ijósi
og strimli
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu Sími 28511
„Án tafar styður þú
á réttu hnappana“
Ekki afleins skotheldur, einnig pottpóttur. Chrysler Imperial árg.
'73 (sendiróflsbfllinn), ekinn 49 þ. m. Rafmagnsdrrfinn afl innan,
sjónvarp, tveir dekkjagangar. Le Baron innrétting. Ein glœsileg-
asta brfreið á götum þessa lands. Góð kjör, skipti möguleg. Til
sýnis i sýningarsal okkar.
MEIRIKRAFfUR
í OLÍUBORANIR
VH> GRÆNLAND
Rannsóknir á olíulindum við
Austur-Grænland verða auknar
verulega á næstu árum. Viðskipta-
ráðuneytið í Kaupmannahöfn hefur
nýlega tilkynnt að á næstu fjórum
árum muni fjárframlög til rannsókna
þar verða fjórfölduö. Þegar hefur
verið ákveðið að jafnvirði tveggja
milljarða íslenzkra króna verði lagt
fram til þessara nota. Allt er þetta að
sjálfsögðu gert vegna hinna miklu
verðhækkana á bensíni og olíuvörum
á heimsmarkaði að undanförnu.
Auk framlags dönsku stjórnarinn-
ar er þess vænzt að Efnahagsbanda-
lag Evrópu muni leggja fram sam-
svarandi upphæð til oliurannsókn-
anna við Austur-Grænland.
Svæði það sem kanna á er um það
bil 450 þúsund ferkílómetrar að flat-
armáli. Samkvæmt tilkynningu frá
Grænlandsmálaráðuneytinu er
ætlunin að gera jarðfræðikort af
svæðinu. Einkum verður þá lögð
áherzla á að kanna þau svæði þar
sem hugsanlegt er að finnist olía og
gas i botnlögum sjávarins. í fyrstunni
verða rannsóknirnar framkvæmdar
frá skipum en síðar er ráðgert að
framkvæma nokkrar tilrauna-
boranir.
í tilkynningu Grænlandsmála-
ráðuneytisins segir ennfremur að gert
sé ráð fyrir að auk olíunnar verði
kannað magn ýmissa málma í hafs-
botninum. Eru þar nefndir rúbínar,
járn, króm, kol, úranium og fleiri
tegundir.
L
Vopnaðir skæruliðar og ibúar Managua, höfuðborgarinnar i Nicaragua, standa fagnandi umhverfis styttu af Anastasio
Somoza Garcia fyrrum forseta landsins og föður Anastastio Somoza sem lagði niður forsetatign fyrir nokkrum dögum og
flúði land. Styttunni hefur verið veit um koll og nú er það helzt til ánægju að klipa i nefið á þessum fyrrum kúgara.
Filippseyjar:
Flóttamenn laumuð-
ust í herstööina
Bátsfarmur af vietnömskum flótta-
mönnum slapp í gegnum allar varnir
bandaríska flotans í gær. Komust
flóttamennirnir þrjátíu og einn að tölu
óséðir inn á svæði, sem tilheyrir banda-
rískri herstöð á Filippseyjum. Þegar
vart varð við flóttamennina i her-
stöðinni voru þeir handteknir og af-
hentir yfirvöldum Filippseyja.
Þetta er þó ekki fyrsti flóttamanna-
báturinn, sem kemur til her-
stöðvarinnar við Subicflóa. Nokkrir
tugir slíkra hafa komið þar síðustu þrjú
árin. Ferð bátsins í gær þykir aftur á
móti miklum tíðindum sæta vegna
þeirra miklu gæzlu og aukins eftirlits
sem nú er með ferðum um hafsvæðið
við Filippseyjar.
Auk flota Filippseyja er sjöundi
flotinn bandaríski þama stöðugt á
sveimi. Ekki er höfuðverkefni hans að
hrekja frá flóttamenn heldur að
aðstoða nauðstadda báta sem finnast
kunna. Er leitað bæði af hafi og úr
lofti.
Mexico:
Olíulekinn mán-
uö i viðbót
Mexikönsk stjórnvöld hafa gefið
þá yfirlýsingu að ekki muni takast að
stöðva lekann úr olíulind í Mexikó-
flóa fyrr en eftir einn mánuð í fyrsta
lagi. Olía hefur runnið þar út i hafið
síðan 3. júni síðastliðinn. Hefut
myndazt mikið olíuflæmi á hafinu og
er það sagt um það bil 300 kílómetra
langt en olían sem bætist við á hverj-
um degi mun samsvara tuttugu og eitt
þúsund oliufötum.
Opinberir aðilar í Mexikó segja að
ekkisémikil hætta á að olíuna muni
bera upp að ströndum þar eða annars
staðar. Ef tekst að stöðva oh'urennslið
úr olíulindinni á Mexikóflóa fyrir lok
næsta mánaðar er talið að heildar-
olíulekinn verði þá samsvarandi
225 þúsund olíufötum •
Til samanburðar má geta þess að
versta olíuslys sögunnar er talið hafa
orðið þegar olíuskipið Amoco Cadiz
strandaði og sökk við Frakklands-
strendur í marzmánuði í fyrra. Fóru
þá um það bil 1,4 milljónir af olíu i
hafið.
Reynslan við oliuvinnsluna er sú
hin sama og við olíuvinnslu í
Norðursjó. Ekki er eins mikil hætta á
mengun af olíunni eins og margir ótt-
uðust áður. Hún er svo létt að
uppgufun er mikil. Auk þess loga
eldar vegna oliusprengingarinnar i
Mexikóflóanum og eyðist þá stór
hluti hennar strax, er hún kemur upp
á yfirborðið.
Verið er að bora tvær holur niður
að olíulindinni sem fór úr skorðum.
Með því er vonazt til að létta á
þrýstingnum á aðalholunni og síðan
að náað Ioka henni.