Dagblaðið - 26.07.1979, Síða 15
Sigurður
Sverrisson
Pétur skallar hér að marki I leiknum I Eyjum I gærkvöld. Skallatækni hans er mjög fullkomin og það var ótrúlcgt hvernig
mark Eyjamanna slapp æ ofan I æ eftir stórhættulegar kollspyrnur hans.
LJÓSMYNDIR:
BJARNLEIFUR
Það var mikil eftirvænting í mönn-
um í Eyjum í gærkvöld fyrir leik ÍBV
og Feyenoord. Hvor myndi standa sig
betur, Ásgeir eða Pétur? Ásgeir Sigur-
vinsson lék í gær i fyrsta skipti með
ÍBV síðan hann skrifaði undir atvinnu-
mannasamning við belgíska liðið
Standard Liege, 3973.
Leikurinn i gærkvöld verður áhorf-
endum, hvort heldur þeir voru úr Vest-
mannaeyjum eða ofan af landi, minnis-
stæður fyrir það eitt að í honum léku
tveir af beztu knattspyrnumönnum ís-
lands fyrr og síðar. Pétur með Feye-
noord og Ásgeir með ÍBV. Báðir sýndu
þeir snilldartakta en ekki er ofmælt að
segja að Pétur hafi verið maður kvölds-
ins. Ásgeir náði sér aldrei almennilega á
strik eins og svo oft í leikjum þar sem
við svo miklu er búizt fyrirfram.
í þau fáu skipti sem Ásgeir náði að
rífa sig Iausan úr hinni ströngu gæzlu
leikmanna Feyenoord leyndi það sér
ekki að þar fór snillingur. Það er
gaman að vita ti! þess að við eigum
slíka leikmenn á erlendri grundu —
leikmenn sem halda merki íslands hátt
á lofti. Betri landkynningu er vart hægt
að hugsa sér. Myndirnar hér á síðunni
voru teknar í leiknum í gærkvöldi og
það var Bjarnleifur Bjarnleifsson sem
sáum þá hlið málsins.
-SSv.
Ásgeir fylgist með hverju fótmáli and-
stæðingsins á þessari mynd. Ásgeir hafði
oftast betur i návigjum sem hann lenti i
en að þessu sinni hefur einum leikmanna
Feyenoord tekizt að snúa á hann, heldur
betur.
Vonbrigðin leyna sér ekki á þessari mynd þegar Ásgeir Sigurvinsson gengur út af vell-
inum i gær. Hann náði sér aldrei á strik og sýndi aldrei nema brot af getu sinni og von-
brigði hinna 1500 áhorfenda i Eyjum voru mikil.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1979.
Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
ASGEIR í
EYJUM Á NÝ
TVEIR GÓÐIR
Myndina hér að ofan tók Bjarnleifur
af þeim Ásgeiri Sigurvinssyni og Pétri
Pélurssyni rétt áður en leikurinn í Eyj-
um hófst i gærkvöld. Þessir tveir snill-
ingar sýndu listir sínar í leiknum —
hvor á sinn hátt.
Ásgeir var geysilega fastur fyrir og
yfirvegun hans er með ólíkindum oft á
tiðum og sendingar hans hreinasta gull
þótt að ekki hafi hann náð að sýna
nema brot af þeirri getu sem hefur
skapað honum nafn sem 1. flokks
knattspyrnumaður í Evrópu.
Pétur sýndi það og sannaði í gær-
kvöldi að hann er okkar skemmtilegasti
sóknarmaður. Hraði hans og leikni
voru oft slík að jafnvel hörðustu Eyja-
mcnn sáu sér ekki annað fært en að
klappa honum lof í lófa. Skallatækni
hans er einstök og hann mataði sam-
herja sína mjög oft með gullfallegum
skallaboltum — ýmist til hægri eoa
vinstri. Auk þess er hann stórhættuleg-
ur ef hann kemst í færi inni í vitateig.
Hann var fljótur að þefa uppi tækifær-
in i leiknum í gær og Eyjamenn guldu
þess illilega.
íþróttir