Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. OPIÐ FÚSTUDAGA TIL KL. 7 LAUGARDAGA KL. 10-12 A.guðmundsson hf HAsgagnaverksmiðja Skemmuvegi 4, Kópavogi. Sími 73100. ÞÆGILEGIR SANDALAR Verðkr. 7.980.- Litir: Hvítt og beige Verókr. 17.430.- Póstsendum. Laugavegi69 Sími 16850 Miðbæjarmarkaði Sími 19494 SÍNUR Nýkomnar, margar gerðir, fjöldilita. UNGLINGASKRIFBORÐ frá kr. 85.000 SVEFNBEKKIR frá kr. 96.200 SÓFASETT • SKRIFSTO FUSKRIFBORÐ FORSTOFUHÚSGÖGIM • SÓFABORÐ STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR SENDUM í PÓSTKRÖFU í rjómasveppasósunni var einn sveppur Steinunn Helgadóttir hringdi: Ég las í DB frásögn af miðtir skemmtilegri heimsókn hjóna á veit- ingahús i Reykjavik. Við hjónin lentum i ekki ósvipuðu ævinlýri i vor. Við fórum úl að borða á Blómasal Hótels Loftleiða og pöntuðum svina- lundir með rjómasveppa.sósu. Mat- urinn kom og við hann reyndist sitt- hvað athugavert. Lundirnar voru griótharðar og hefði mátt rota mann auðveldlega mcð þeini! Grænmetið \ar ofsoðið og lítt girnilcgt, frönsku kartöflurnar slepjulegar og í „sveppasósunni" var nákvæmlega einn sveppur. Mér þótti sósan tor- tryggileg af „rjómasveppasósu” að vera. Hún var dökk og þunn. Ég spurði þjón sem gekk fram hjá (annan en þann sem afgreiddi okkur) um sósuna. Hann sagði þá að þetta væri rauðvinssósa! „Okkar þjónn” fór og talaði við kokkinn. Kom aftur og sagðist hafa „skotið á hann” út af sósunni. Lét þá skýringu fljóta með að kokkurinn léti gjarnan fólk hafa rauðvinssósu ef hann væri ekki full- komlega ánægður með rjómasveppa- sósuna! Enginn afsláttur var okkur boðinn og húsið kom á engan hátt til móts við okkur eftir að upp komst um svikin. Við borguðum okkar 15 þús- und krónur og fórum. Á þennan stað förum við sannarlega ekki aftur. Ég held að það sé rétt sem bréfritarinn sagði i DB á dögunum: „Á íslenzkum veitingahúsum er ekki leyfilegt að kvarta.” ■Húsgögn í úrvali■ VEGGSAMSTÆÐUR frá kr. 293.100 BORÐSTOFUSETT m/6 stólum frá kr. 462.700 Eitt skal yfir alla ganga. Og hér eftir verður James Bond að borga vixlana sina a vinnutíma eins og aðrir. FRÍÍ VINNU TIL AÐ B0RGA VÍXLA Vióskiptavinur hringdi: Ég mótmæliskertri þjónustubanka og sparisjóða sem tekur gildi um Raddir iesenda mánaðamótin. Hér eftir er t.d. úti- lokað að borga v'ixil eftir að venju- legum vinnudegi lýkur. Þá þarf að taka sér fri i vinnu i hvert sinn sem ví.xill fellur. Gefur auga leið hvaða tjóni þelta fyrirkomulag veldur, bæði fyrir launafólk og alvinnurek- endur. Undarlegt er, með allan þennan sæg sparisjóða og banka, að þeir skuli ekki geta a.m.k. komið sér saman um misjafnan opnunartima til hagræðis fyrir viðskiptavini. LEÐURMOKKA I hvaða tolEaflokki er þurrmjólk? Nýbökuð móðir skrifar: Ég fæddi af mér barn fyrir þrem vikum, sem er kannski ekki í frásögur færandi, en á meðan á sjúkrahús- dvölinni stóð, kom barnalæknir til þess að leiðbeina okkur um meðferð barna okkar, talaði hann meðal ann- ars um að ef við af einhverjum ástæðum gætum ekki haft börn okk- ar á brjósti væri mjög æskilegt að gefa þeim þurrmjólk, nefndi hann sérstaka tegund S.M.A. og sagði að hún væri mjög lík móðurmjólkinni. Ég er með barn mitt á brjósti en því miður mjólka ég því ekki nærri nóg og þarf þvi að gefa því ábót. Valdi ég áðurnefnda þurrmjólk til þess, en mér krossbrá þegar ég vissi hvað hún kostar, ein dós sem dugar í fjóra daga (sé hún notuð eingöngu) kostar 2815 krónur. Því spyr ég, er ekki ástæða til þess að athuga hverslags álagning og tollar eru á vöru sem er jafn sjálfsögð að mér finnst handa þeim kornabörnum þjóðarinnar sem ekki eru móðurmjólkurinnar aðnjótandi? Þess má geta að ég og kunningja- kona mín sem einnig á kornabarn og notar sömu þurrmjólk, sáum auglýs- ingu í einu dagblaðanna frá heildsala S.M.A. þurrmjólkurinnar og ætluð- um að gera góð kaup með því að verzla beint við hann, en þar var ok ur tjáð að þeir verzluðu eingöngu við aöótek landsins með vöruna. Namm, namm!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.