Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 11

Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 11
11 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. Erlendar fréttir Kosið í Svíþjóð um helgina Kosið verður í Svíþjóð um helgina. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum munu borgaraflokkarnir hljóta örlítinn meirihluta. Er þar aðeins um að ræða 0,7% atkvæða. Því er þó spáð að Jafn- aðarmannaflokkurinn undir forustu Palmes verði áfram langstærsti flokkur landsins og muni fá 42,4% atkvæða. Af borgaraflokkunum er gert ráð fyrir að íhaldsflokkurinn verði stærstur með 19,2% af heildaratkvæðum. Borgaraflokkunum er spáð 48,8% fylgi en jafnaðarmönnum og kommún- istum 48,1%. Jafnaðarmenn stjórnuðu i Svíþjóð i fjörutíu og fjögur ár, alveg fram að sið- ustu kosningum þar i landi fyrir þrem árum. Um fylgi annarra flokka en þegar hafa verið nefndir má nefna að Miðflokknum er spáð 18,1%, Þjóðar- flokknum 11,1% og Kommúnistum 5,7%. Jafnhliða þingkosningum fara fram bæjar- og sveitarstjórnarkosningar í Svíþjóð. Hverfa þær mjög í skugga kosninga til þingsins. ísrael vill meiri aðstoð frá Bandaríkja- mönnum Weizman varnarmálaráðherra ísra- els kom til Washington í gær til að ræða við stjórnvöld þar. Helzta mál á dagskrá er aukin hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við ísrael en israels- menn hafa farið fram á um það bil helmingshækkun á efnahags- og hern- aðaraðstoð frá Bandaríkjunum. REUTER Júgóslavía: NÆRRISJOTIU FARAST í JÁRNBRAUTARSLYSI — rúmlega hundrað alvarlega særðir er f lutningalest rakst á farþegalest Björgunarsveitir hafa í nótt og í norgun leitað i braki járnbrautar- _ testa, sem rákust á við borgina Stalac i Serbíu i Júgóslavíu. Þegar hefur fundizt sextiu og eitt lík og vitaðer að rúmlega hundrað manns slösuðust al- varlega. Slysið varð með þeim hætti að vöruflutningalest ók þvert fyrir far- þegalest á brautarmótum. 1 hinni síðarnefndu var meðal annars stór hópur ungra manna sem voru að hefja herþjónustu. Lýst hefur verið yfir opinberum sorgardegi í Serbíu vegna slyssins, sem er það mesta af þessu tagi í sögunni. Starfsmenn járnbrautarstöðvarinnar í Stalac sáu aðdraganda slyssins en gátu ekkert að gert netna hrópa og kalla og kasta grjóti til að reyna að vekja athygli lestarstjóranna á yfirvofandi hættu. Flutningalestin fór að sögn framhjá stöðvunarmerki og ók á um það bil fimmtíu kílómetra hraða á farþega- lestina. Nærstaddir hófu þegar að reyna að hjálpa særðum farþegum. Erfitt var að komast að mörgum vegna þess þeir lokuðust inni í brakinu og Marg- ir farþeganna voru sofandi þegar slysið varð og vöknuðu ekki fyrr en við hávaðann af árekstrinum. Sumir köstuðust langar leiðir. Engar skýr- ingar liggja enn fyrir á orsökum þess að áreksturinn varð. Mikiö á sig lagt Stundum er erfitt að sitja langa fundi og komið getur fyrir að svefninn nái undirtökunum. Fidel Castro forseti Kúbu hélt heljarmikinn fund óháðra eða hlutlausra rikja í Havana á dög- unum og er myndin hér að ofan þaðan. Castro vildi að samlök hlut- lausu rikjanna leggðu meira til stuðn- ings Sovétríkjanna en aðrir þjóðar- leiðtogar á fundinum voru þessu margir andvígir. Vegna ágreinings um þetta og fleiri mál drógust umræður á langinn og kannski ekki furða þótt Castro karl- inn syfjaði stundum. Annars er hann sjálfur annálaður fyrir langar ræður, sem hann flytur stundum yfir þjóð sinni. Sumar þeirra standa jafnvel svo klukkustundum skiptir. Bandaríkin: HÁLF MILUÓN SNÝR AFTUR Á HEIMASLÓD mesti vindurinn farinn úr fellibylnum Friðrik Hersveitir hafa verið kallaðar út í fylkjunum þrem, Alabama, Flórida og Missisippi í Bandaríkjunum. Er það gert til að aðstoða og stjórna heimflutningi fólks til þeirra svæða þar sem fellibylurinn Friðrik fór yfir á siðasta sólarhring. Fólk á því svæði leitaði skjóls svo hundruðum þús- unda skipti i kirkjum og öðrum sterk- legum byggingum. Er talið að þess vegna hafi aðeins tveir menn farizt. Er þetta versti fellibylur sem gcngið hefur yfir þetta landsvæði árum saman. Fellibylurinn olli miklu tjóni í strandhéruðum suðurríkjanna þriggja og eiga íbúar þar mikið starf fyrir höndum við að lagfæra og end- urbyggja. Herliðið sem kallað hefur verið út á einnig aðaðstoða fólk við uppbygg- inguna. Borgirnar Mobile og Pasca- goula i Mississippi urðu harðast úti i fellibylnum. Þar varð veðurhamur- inn einnig mestur. Araifat í heim- sókn á Spáni Yasser Arafat leiðtogi PLO samtaka Palestinuaraba er nú i heim- sókn á Spáni. í.dag mun hann ræða við ráðamenn þar. Þetta er fyrsta opinbera heimsóknin, sem Arafat fer til rikis í Vestur-Evrópu. í gær ræddi hann i tvær stundir við Adolfo Suarez for- sætisráðherra Spánar og Marcelino Oreja utanrikisráðherra. Ekkert hefur verið látið uppi um hvað rætt var á fundinum en talið er að þar hafi ástandið við Miðjarðarhafið borið á góma. Einnig mun samband Spánar við samtök Palestínuaraba hafa borið á góma. Höfuðerindi Arafats til Spánar mun þó að sögn einkum vera að treysta samband sitt við vestur-evr- ópska stjórnmálamenn. Það hófst fyrir nokkru, þegar hann fór til Austurríkis og ræddi þar við Bruno Kreisky kansl- ara landsins og Willy Brandt fyrrum kanslara Vestur-Þýzkalands og leið- toga jafnaðarmanna. Spánn hefur lengi stutt Palestinuar- aba og málstað þeirra. Fl' ; er þó unt formlega viðurkenningu læða cn Spánarstjórn hefur engin sainbönd við Ísraelsríki. Fæðuskortur eftir 1980 Fæðuskortur verður mjög farinn að gera vart við sig í heiminum fljótlega eftir 1980 að sögn Maurice Williams forseta alþjóðamatvælanefndarinnar. Lét hann þau orð falla á fundi i Washington í gær. Taldi forsetinn að ekki væri neinn vafi á að miklir erfið- leikar væru framundan í þessum mál- um. Ekki væri hægt að búast við því að stöðugt væri metuppskera á hverju ári. Slikur árangur i ræktun korns undan- farin tvö ár hefur gert fólk um of and- varalaust. Williams sagði að unnt væri að koma i veg fyrir verstu afleiðingar fæðu- skortsins. Til dæmis væri hægt að hefja söfnun birgða til nota fyrir van- þróaðar þjóðir. Skoraði hann á helztu kornútflutningsþjóðirnar að hefja slíka söfnun á sama hátt og þau gerðu árið 1974. Einnig benti forsetinn á að þróunar- ríkin væru orðin óeðlilega háð ínn- flutningi á matvælum. Þyrftu ■•u í auknum mæli að auka eigin matvæla- framleiðslu.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.