Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 3

Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. 3 í tilefni athugunar á starfi Björgvins Guðmundssonar: Eru Davíð og Guðrún ekki komin á jötuna líka? E.G. skrifar: Einhvers staðar las ég að Svavar Gestsson hefði sett Björgvini Guðmundssyni skrifstofustjóra í viðskiptamálaráðuneytinu stólinn fyrir dymar vegna mikilla fjarvista hans, þegar hann þarf að sinna borg- armálefnum sem borgarráðsmaður Alþýðuflokksins. Án þess að ég ætli að halda uppi sérstökum vörnum fyrir Björgvin gefur þessi frétt tilefni til að spyrja, hvort ekki verði víðar farið að spyrja um ástundun borgar- fulltrúa í opinberum störfum, sem þeir eru ráðnir til að gegna. Hvað t.d. um Guðrúnu Helgadóttur, deildar- Stutt og skýrbrét Enn einu-sinni minna lesenda- dálkar DB alla þá, er hyggjast senda þœttinum linu, að láta fylgja fullt nafn, heimilisfang, slmanúmer Ief um það er að rœða) og nafhnúm- er. Þetta er lltilfyrirhöfh fyrir bréf- ritqra okkar og til mikilla þæginda fyrirDB. Lesendur eru jafhframt minntir á'að bréf eiga að vera stutt og skýr. Á skilinn er fullur réttur til að stytta bréf og umorða til að spara rúm og koma efhi betur til skila. Bréf œttu helzt ekki að vera lengri en 200—300 orð. Símatími lesendadálka DB ér milli kl. 13 og 15 frá mánudögum til fostudaga. Davið Oddsson. stjóra hjá Tryggingastofnun eða Davíð Oddsson, forstjóra Sjúkra- samlagsins? Er þetta fólk ekki búið að raða sér á jötuna hjá því opinbera til þess að geta með auðveldari hætti svalað bitlingafýsn sinni í borgar- málastússinu? Það væri gaman að sjá upptalningu á öllum nefndunum, sem opinbcrir starfsmenn ,á greitl fyrir að sitja fundi í meðan þeir eru á fullu kaupi i aðalstarfinu. Ég held þær séu nokkuð ríflegar þcssar Guðrún Hclgadóttir. tvöföldu tekjur, sem við crum að borga sumum borgarfulltrúum og al- þingismönnum úr okkar sameigin- legu sjóðum borgarinnar. Væri kannski hægt að fá upplýst hvað þessir borgarfullirúar sem ég hef nefnt hér og reyndar aðrir hafa í laun á hverjum mánuði, frá Reykjavíkur- borg. Það segir okkur kannski eitthvað um það, hvað þeir svikjast mikið um í aðalstarfinu sínu. Býrðþú til sultu? Auður Torfadóttir, kennari: Já, ég bý til rifsberjasultu og hef gert það undan- farin ár. Jóhanna Einarsdóttir, afgreiðslumær: Já, ég bý til rabarbarasultu. Ég hef gert :það siðan ég byrjaði að búa. „Á gólfið sagði sóparinn, sjálfsagt máttu pissa 11 l.árus kom að máli við blaðið og sagði mikla óánægju rikja með það fyrirkomulag að hafa ekki snyrtingar í aðalbiðskýli stræló á Hlemrni opnar allan tímann sem strætó gengur. Hann kom á Hlemm kl. 9 um kvöld og ætlaði að létta á sér. Honum var visað frá! Urðu þá til visur: Á heimleið gekk i Hreyfilinn, hreint út sagt varð hissa. Á gólfið sagði sóparinn, sjálfsagt máttu pissa. Með tilfinningu tjáði mér, tuddamennsku forstjóranna. Að læst skyldi með lyklum hér, og lána ekki þá til manna. Mig furðar valdið forstjórans, og flestir hérna urðu hissa. Að allur þessi lýður lands, líklega ei þyrfti að pissa. Hundafargan íLaugamesi íbúi i Laugarnessókn hringdi: Hundafarganið hér í hverfinu er löngu orðið óþolandi. Menn byrja dagana á því að hreinsa hundaskit úr innkeyrslum og af tröppum húsanna. Og börnin geta ekki leikið sér i garðinum nema eiga það á hættu að velta sér upp úr skít og hlandi úr hundunum. Hundahald er sagt bannað með lögum i Reykjavik. En er þvi fram- fylgt á einhvern hátt? Hvernig „móral” hafa hundaeigendur, þegar þeir geta hugsað sér að láta aðra um að þrífa eftir dýrin? Allt til skólans Námsbækurnar Ritföngin Þú þarft ekki aó leita vióar fYHUNDSSON Austurstræti 18 Sími 13135 Björk Kristjánsdóttir, núsmóðir: lá, og ég er búin að þvi Ég bjó til rabarbara- sultu. Ég bý til s Itu á hseriu ari r.u orðið. lilfhildur Guðmundsdóttir, Ijósmóðir: Nei, það geri ég ekki vegna þess að hún er ekki borðuð hjá mér. Ásdís Einarsdóttir, kennari: Já, ég b> til rabarbarasultu og hef gert það siðan ég byrjaði að búa. Vilborg Björnsdóltir, kennari: F» hætt þvi núna. Ég gerði þó tölu að því hér áður fyrr, ég er engin sultu manneskja nú orðið.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.