Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 36

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 36
Gautaborg: Sjö (slendingar dæmdir í 10-30 mánaöa fangelsi —fyrír innf lutning og dreifingu fíkniefna í Svíþjóð Sjö íslendingar voru á mánudaginn dæmdir í 10 mánaða til tveggja og hálfs árs fangelsi i Gautaborg i Svíþjóð fyrir fíkniefnasmygl og dreif- ingu. Þcir voru handteknir siðari hluta júlíniánaðar sl., í framhaldi af yfir- heyrslum yfir manni, sem þá sat í gæzluvarðhaldi hérlendis og hafði verið handtekinn nokkru áður við komuna frá Svíþjóð. A einum lslendinganna, sem dæmdir voru á mánudaginn, fundust fjögur kiló af hassi, sem hann kom með frá Amsterdam til Hálsingborg í Sviþjóð í gegnum Kaupmannahöfn. Hjá öðrum fannst hálft annað kíló af hassi og smávegis af kókaíni. Við rannsókn málsins kom m.a. fram, að íslendingarnir höfðu staðið i fikniefnadreifingu í Gautaborg og nágrenni í rúmt ár og að auki komið nokkru af efnunum heim til íslands. Þyngsta dóminn, tveggja og hálfs árs fangelsi, hlaut Bjarni Bender, 42 ára. Honum var jafnframt vísað úr landi í Svíþjóð — og þar með Norðurlöndunum nema íslandi — til ársins 1990, þegar afplánun dómsins er lokið. Iveggia ára langcjsi hlutu l’áll Gránz og Holberg Másson, en Hol- berg var að afplána níu mánaða fang- elsisdóm í Hálsingborg þegar mál þetta kom upp og hefur áður setið í fangelsum í Evrópu og Kanada fyrir svipuð brot. Eins árs fangelsi hlaut Snorri Guðmundsson og tíu mánaða fangelsi þeir Kristján Svavarsson, Einar Hannesson og Elías Snorrason. Upplýsingar þessar fékk Dagblaðið hjá E. Lemchen, lögreglufulltrúa við fikniefnadeild lögreglunnar í Gauta- borg. -BS. Hass, áfengi ogbjór — fannst í Lagarfossi Er leit var gerð í Lagarfossi í Hafnar- fjarðarhöfn i gær fannst hálft kíló af hassi i fórum eins skipverja. Auk þess fannst um borð nokkuð af ólöglegu áfengi og einnig áfengur bjór. Mál þessi eru í rannsókn. - AST. Fyrsta Amarflugið Fyrsta áætlunarflug Arnarflugs á flugleiðum Vængja var farið kl. 9.30 í morgun er leiguflugvél frá Flugfélagi Austurlands lagði upp frá afgreiðslu Flugfélags tslands á Reykjavíkurflugvelli. Á myndinni eru 2 farþegar komnir um borð og Þórólfur Magnússon flugmaður er í gættinni. -GS./DB-mynd HV. Þegar Tryggingastofnun eráhausnum: Heldur milljón króna veizlu ,,Við erum ckki endanlega búin að rcikna út verðið en ég held að óhætt sé að slá á svona eina milljón,” sagði Sigurveig Gunnarsdóttir veitingastjóri á Hótel Esju er hún var spurð um veizlu sem haldin var þar í gærkvöldi. Fyrir veizlunni stóð Tryggingastofnun rikis- ins og var hún fyrir starfsfólk trygging- anna utan af landi, sem hér hefur verið á vikunámskeiði. ,,Fólkiö fékk einn drykk fyrir mat- inn. Maturinn kostaði svo 7-300 krónur á mann og með hnnum voru veitt tvö rauðvínsglös. Á eftir var svo dansað. Við gizkum á að kostnaðurinn á mann hafi verið svona 10—12 þúsund en alls mættu rúmlega hundrað manns,” sagði Sigurvcie. Þessi veizla vekur því meiri athygli l'yrir það að undanfarið hafa talsmenn Iryggingastofnunar ríkisins kvartað mjög yfir slæmum fjárhag og kvað svo rammt að um síðustu helgi aðekki voru lil peningar til að greiða út bætur. Þvi atriði var þó komið i lag eins og kernur fram i frétt annars staðar í blaðinu. - DS Búvörur hækka um20-38% á mánudagimi: Alþýðuflokksráðherrar vildu fresta hækkunum —„sjálfvirknin alls ráðandi hjá vinstri stjóminni/7 segir Matthfas Á. Mathiesen „Þetta er auðvitað mikil búvöru- verðhækkun, sem kemur þungt niður þegar kaupmáttur fer minnkandi. Og er afleiðing þeirrar óðaverðbólgu sem nú er ríkjandi í landinu af völdum vinstri flokkanna.” sagði Matthías Á. Mathiesen alþingismaður í samtali við DB í morgun. Matthias var inntur eftir áliti stjórnarandstöðunnar á ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hækkun búvöruverðs. „Þessi verðhækkun er Ijósasta dæmið um að engar, alls engar, markvissar aðgerðir eru framkvæmd ar af hálfu rikisstjórnarinnar til að inna bug á verðbólgunni og sjálf- virknin alls ráðandi. Eins og fram kemur, eru ráðherrarnir sjálfum sér sundurþykkir og sýnast aldrei geta komizt að sameiginlegri niðurstöðu nema þegar leggja þarf skatta á borg- arana,” sagði Matthias Á. Mathie- sen. Nýja búvöruverðið tekur gildi á mánudaginn. Smjör hækkar þá um rúm 38%, mjólk um 27%, ostur utn 20%, nautakjöt um 26—32%. Niður- greiðslur verða óbreyttar, þ.e. lækka hlutfallslega vegna verðhækkananna. Talið er að búvöruverðhækkunin muni hækka framfærsluvísitöluna um 4—5% og kaupgjaldsvísitölu 1. desember minna, þar sem hlutur launa bóndans í búvöruver'ðhækkun- innidregst frá. „Ráðherrar Alþýðuflokksins voru andvígir búvöruverðhækkun nú og vildu fresta ákvörðun þar til þing kemur saman,” sagði Magnús H. Magnússon, félagsmálaráðherra við DB. „Við töldum rétt að taka til meðferðar í einum pakka verðlags- málin, harðindin og skortinn á út- flutningsbótum. Ríkisstjórnin hefði getað unnið áfram í málinu og lagt ákveðnar tillögur fyrir þingið. Að auki teljum við að grundvöllur sex- mannanefndarinnar teygi sig allt of langt til hækkunar. Þá bendi ég á að bændur eru komnir fram úr viðmið- unarhópum sinum í afkomu. Mín tilfinning er sú að við Alþýðu- flokksmenn verðum hárðari á okkar afstöðu eftir að gengið hefur verið svo hart fram í hækkunum sem raun ber vitni. Að við munum gefa minna eftir hér eftir þegar hliðstæð mál koma upp,” sagði Magnús H. Magnússon. Svavar Gestsson viðskiptaráðherra bar fram málamiðlunartillögu á ríkis- stjórnarfundi um 10—12% búvöru- verðhækkun. Hún náði ekki fram að ganga, og samþykktu ráðherrar Framsóknarflokks og Alþýðubanda- lags á endanum tillögur um 19,7% hækkun verðlagsgrundvallar land- búnaðarvara. -ARH. frjálst, úháð daghlað FÖSTUDAGUR14. SEPT. 1979. Nafniðánýja Norftfjarðartogaranum: LÚÐVÍK BARDI KJARTAN Norðfirðingar telja sér mikla þörf að festa kaup á nýjum skuttogara. Ætla þeir jafnframt að selja nótaveiði- skipið Barðann. Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra hefur þó verið tregur til og neitar algjörlega að veita Norðfirðingum heimild til togarakaup- anna. Þeir hafa brugðizt illa við þessu uppátæki Kjartans og eru alls ekkert á þvi að hætta við. Sögur að austan herma að Norðfirðingar hafi að sjálf- sögðu leitað ásjár hjá þingmanni sínum, Lúðvik Jósefssyni. Vill hann allt gera til að togarinn komi sveitung- um sínum til halds og traust, hvað sem ráðherrann úr Hafnarfirði segir. Búið er að velja nafn á nýja skuttog- arann. Á hann að sögn að bera nafn Barðans, sem seldur verður og auk þess nöfn þeirra Lúðvíks og Kjartans. Verður það þá Lúðvík Barði Kjart- an? -ÓG. Yfirheyrslum vegna landhelgisbrota loðnusjómanna að Ijúka Helmingur viðurkennir þjófstart Nú er langt komið yfirheyrslum yfir þeim liðlega 20 loðnuskipstjór- um, sem grunaðir eru um að hafa þjófstartað á vertíðinni, eða hafið hana rétt áður en leyfilegt var. Áð sögn Jóns B. Jónssonar, deild- arstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu, hala þeir verið yfirheyrðir víða um land, eftir því sem þeir hafa komið inn og vel staðið á. Af þeim skýrslum sem fyrir liggja, játa allmargir að hafa byrjað aðeins fyrr en vertiðin mátti hefjast, aðrir segjast hafa farið fyrr, svona til prufu, og nokkrir neita þrátt fyrir að sérstaklega hafi verið bent á suma þeirra. Þegar allar skýrslur hafa borizt ráðuneytinu verður tekin ákvörðun um framhald málsins eftir atvikum hversogeins. -GS. Eldur í bát við Grandagarð Eldur kom upp í m.b. Greip SH 7 þar sem hann lá við Grandagarð í gær- kvöldi. Er slökkvilið kom á vettvang lagði mikinn reyk úr lúkar bátsins en menn um borð fullvissuðu slökkviliðs- menn um að enginn maður væri þar niðri. Reykkafarar fóru niður í lúkar- inn og skrúfuðu fyrir olíurennsli til eldavélar en þar urðu upptök eldsins. Tjón varðekki umtalsvert.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.