Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. 9 Ríkisstjómin lifði af enn eina Heljarslóðarorustu: TOMAS HAFÐISKATTAHÆKK- UN í GEGN MED HÖRKUNNI Hækkun söluskatts úr 20 í 22%, hækkun vörugjalds úr 18 í 24% var efni bráðabirgðalaga ríkisstjórn- arinnar, er sáu dagsins ljós i upphafi vikunnar. Þessum bráðabirgðalögum er ætlað að afla tekna til að fylla í gat í ríkisbúskapnum frá 1. septembersl. til 1. apríl 1980. Áætlaðar tekjur rikissjóðs til áramóta vegna skatta- hækkunarinnar eru 2.7 milljarðar. Fjármálaráðherra og flokkur hans lögðu mikla áherzlu á að fá samþykki stjórnarinnar fyrir skatt- heimtulögunum, enda komið tóma- hljóð í ríkiskassann. Þrefað var um tillögurnar í stjórnarflokkunum og á ríkisstjórnarfundum. Að lokum „hafði Tómas skattahækkunina i gegn með hörkunni”, eins og stjórnarþingmaður einn orðaði það. Það mun reyndar hafa verið hug- mynd framsóknarmanna að verðhækkanirnar, sem af skattahækkunum leiða, skyldu ekki bættar með verðbótum á kaup. „Við getum ekki séð hvernig hægt er að glíma við vandann öðru vísi en að hreyfa við launum. Mikilvægast er þá að gæta hagsmuna þeirra lægst launuðu,” sagði framsóknar- þingmaður við DB. „Það hefur lengi verið draumur fjármálaráðherrans að demba yfir skattahækkunum, sem væru utan visitölu,” sagði Alþýðubandalags- þingmaður. Hann sagði að Alþýðubandalagið myndi aldrei fallast á slíkt. Matthias Á. Mathiesen, fyrrum fjármálaráðherra, túlkaði afstöðu stjórnarandstöðu Sjálfstæðis- flokksins til skattheimtulaganna. Hartn taldi að rikisstjórnin hefði betur minnzt eins árs afmælisins síns með því að segja af sér og boða til kosninga, fremur en að leggja á meiri skatta. Matthías sagði að landinu hefði í raun ekki verið stjórnað siðastliðið ár og taldi I meira lagi vafasamt að gera ráðstafanir á borð við bráðabirgðalög svo skömmu fyrir þingbyrjun. Framkvæmdastjórn Kaupmanna- samtaka íslands hefur mótmælt „hinni auknu skattheimtu sem felst í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn- ar.” Kaupmannasamtökin segja aug- ljóst að „skattaálögur ríkisstjórnar- innar skapa fyrirtækjum í landinu aukinn vanda með meiri verðbólgu” og að hækkun söluskatts geti leitt til þess að verzlunarfyrirtæki dragi úr þjónustu sinni við viðskiptavini sína. „Verkalýðshreyfingin reiknar að sjálfsögðu með því að þessar hækkanir, sem hljótast af ráðstöfun- um ríkisstjórnarinnar til fjáröflunar fyrir ríkissjóð, fáist bættar með launahækkun,” sagði Snorri Jónsson ASÍ-forseti, i samtali við blaðið. Snorri sagði jafnframt að ekkert samráð hefði verið haft við verka- lýðshreyfinguna um ákvörðun stjórn- arinnar. „Þetta voru nauðsynlegar ráðstafanir, meðal annars vegna fjár- vöntunar til útborgunar á tryggingum,” sagði Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verka- mannasambandsins og þingmaður Alþýðuflokksins. Hann benti á, að þegar litið væri til þess að söluskatt- urinn kæmi ekki á matvörur, væri málið ekki eins alvarlegt og i fljótu bragði virtist. Hvassari tónn var í umræðum Kristjáns Thorlacíusar, formanns BSRB: „Persónulega tel ég að harma beri síhækkandi skatta og álögur á almenning i landinu. Það vekur undrun mína að rikisstjórnin skuli láta vexti fylgja dýrtíðinni og afla tekna til þess að greiða vextina með álögum á almenning. Þetta minnir ótugtarlega á það undarlega háttalag að éta skottið á sjálfum sér. Þetta bendir til að vaxtapólitíkin sé alröng og stórkostlega athugaverð,” sagði Kristján Thorlacíus. -ARH. í * v* *:>•*» * *' * *.»»<* «***■•* * * * * * •» ♦ * * * » »» * * ♦ » «♦ * '♦■* • • • ♦ V* ♦ * * ,.. • Æ .Ómetanlegar heimildjr um íslenzkt þjóðlíf. Erlendur Sveinsson Austur-Þjóðverjar luma ágömlum /$- landskvikmyndum — ætla að gefa íslenzka kvikmyndasaf ninu eintök — beðið eftir bandarískri íslandskvikmynd frá ’26 í kvikmyndasafni Austur-Þjóðverja leynist hátt á annan tug heimilda- mynda um ísland frá árunum 1934-’74. Eru þær margar hverjar mjög vand- aðar, með tali og tónum. Erlendur Sveinsson, starfsmaður Kvikmyndasafns íslands, segir þær vera ómetanlega heimild um þjóðlíf á íslandi á þessum tíma. Erlendur og Ásdís Egilsdóttir bókavörður fóru á sumarskóla kvikmyndasafna- sambandsins i Austur-Þýzkalandi fyrir stuttu og könnuðu í leiðinni hvort kvik- myndir teknar á íslandi kynnu að finnast í fórum Austur-Þjóðverja og höfðu þau meira upp úr krafsinu en þau gerðu sér vonir um. Eru þetta kvikmyndir teknar af Þjóðverjum, Tékkum, Bretum og Svi- um og sýna fiskveiðar og ftskverkun hérlendis, afleiðingu jarðskjálfta á Dalvík og atvinnuhætti til lands og sjávar. Buðust Þjóðverjar til að kópera þau eintök sem þeir áttu og senda íslenzka kvikmyndasafninu snemma á næsta ári. Erlendur Sveinsson tjáði DB enn- fremur að hann hefi heimildir um töku bandarískrar myndar hér árið 1926, sem bandariskur fulltrúi á sumar- skólanum ætlaði að hafa uppi á fyrir Kvikmyndasafn íslands og kvað hann áríðandi að athuga hvað finna mætti í kvikmyndasöfnum annarra þjóða. Al. 1700 NATO her- menn íheimsókn —ááttaskipumúrfastaflota NATO áAtlantshafí Átta skip úr fastaflota NATO á stunda æfingar, m.a. eldsneytistöku í Atlantshafi koma í heimsókn til Hvalfirði. Reykjavíkur á mánudaginn og verða Flaggskipið er bandarískt, USS héritvodaga. Luce, 5800 tonna skip, og þar er Á skipunum eru samtals um 1700 yfirmaður flotadeildarinnar G.M. hermenn sem flestir munu spóka sig á Carter — ekkert skyldur Jimmy götum Reykjavíkur — en þó ekki Carter. allir í einu. Tvö skipanna munu liggja Auk bandaríska skipsins eru tvö í Sundahöfn, hin verða á ytri brezk, eitt hollenzkt, eitt kanda- höfninni. Skipin munu jafnframt því diskt, eitt þýzkt, eitt portúgalskt og að vera hér i kurteisisheimsókn eitt norskt. -ÓV. 8 og 11 ára drengir unnu skemmdarverk Tveir drengir á Húsavík, 8 og 11 Drengirnir höfðu farið um borð í að tugþúsundir kostaði að hreinsa ára gamlir, viðurkenndu i síðustu stóran fiskibát og einnig um borð i ósómann. I trillunum ollu þeir viku að hafa orðið valdir að miklum trillur. ötuðu þeir allt út í stóra bátn- skemmdum svo og í verbúðum og skemmdarverkum, sem unnin voru á um með matvælum og sterkum litar- fiskimjölsverksmiðju. bátum og í húsum í kaupstaðnum. efnum, s.s. sósulit og fleiru. Var talið -A.St. Kr. 16.240.- Brúntleður, m/gúmmísólo. HERRASKÚR Kr. 13.980.- LjóstleSur, hrúgúmmí- sólar. Laugavegi 69 - Sími 16850 Kr. 16.240.- Brúnt, svartleður PÓSTSENDUM isartn 5hO€ N>s> KALSÖ SANDALAR SANDALARNIR MEÐ MINUSHÆL. LITIR: HVÍTT LEÐUR EÐA NATUR LEÐUR. POSTSENDUM Skóverzlun Teg. 9. Nr. 35-41. VerO kr. 9.950.- ÞORÐAR PÉTURSSONA R Kirkjustræti8 v/Austurvöll. Sími 14181.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.