Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. DC-9 ÞOTfl HRAP- AR VIÐ SARMNÍU — þyrl ur og björgunarsvelf ir kanna örlög tuff ugu og sjö f arþega og fjögurra manna áhaf nar ítölsk farþegaþota af gerðinni DC- 9 rakst á fjall á Sardiníu í nótt. Með henni voru tuttugu og sjö farþegar og fjögurra manna áhöfn. Ekki var vitað um afdrif þeirra í morgun. Þyrlur og björgunarsveitir voru á leið á slysstaðinn. Síðast heyrðist frá flug- mönnurn þotunnar skömmu eftir miðnætti. Þá var tilkynnt að þotan færi i gegnum óveður. Að sögn flugmálayfirvalda var þotan á venjubundnu áætlunarflugi frá Alghero á Sardiníu til Rómar en millilenda átti í Cagliari. Slysstaður- inn er nærri þorpinu Sarroh eða í um það bil tuttugu og fimm kilómetra fjarlægö þaðan. íbúar þar tilkynntu að þeir hefðu heyrt sprengingu í nótt og síðan hefði gosið upp eldblossi. Ekki er þó Ijóst hvort þarna var um að ræða þotuna. Björgunarsveitir eru á leið á vett- vang. Með þeim eru bæði iæknar og hjúkrunarlið. Þegar hætti að heyrast í þotunni var hún i aðflugi að flug- vellinum við Cagliari. Lenti hún þáá fjallinu. Að sögn er mjög erfitt að komast um fjaliasvæðið þar sem hún lenti. ítalski herinn sendi þegar þyrlur og hjúkrunargögn til Sardiníu. NYR ERKIBISKUP Robert Runcie biskup hefur nýlega. verið skipaður erkibiskup af Kantaraborg. Er það æðsta embætti í brezku kirkjunni. Runcie var skrið- drekastjóri í síðari heimsstyrjöldinni og gat sér þar gott orð fyrir vasklega: framgöngu. Æðsti maður brezkui kirkjunnar er Elísabet önnur Breta-: drottning og skipar forsætisráðherra Bretlands í embætti erkibiskupsins eftir að rætt hefur verið við biskupa kirkjunnar. Erkibiskupinn af Kantaraborg er trúarleiðtogi 65 milljóna Breta og auk þess nokkurra milljóna manna sem búa i Bandaríkjunum. Hinn ný- kjörni biskup er fimmtiu og sjö ára aðaldri. fréttir Tólfára dæmdurfyrir tvömorð Tólf ára drengur í Namibíu, yfir- ráðasvæði Suður-Afríku i Vestur- Afríku, hefur verið dæmdur til sjö ára fangelsisvistar fyrir að hafa skotið konu og karl til bana og tilraun til að skjóta tvær aðrar manneskjur. At- burður þessi átti sér stað á búgarði einum. Drengurinn, sem er svertingi eins og öll fórnardýr hans, var í vin- fengi við hvítan jafnaldra sinn. Sá er sagður hafa kennt honum meðferð skotvopna. Prinsessan giftistsam- göngumála- ráðherranum Pieter van der byl, flutninga- og samgöngumálaráðherra i ríkisstjórn Muzorewa í Ródesíu/Zimbabwe, gekk að eiga Carlette prinsessu af Liechtenstein á laugardaginn var. Athöfnin fór frant í einkakapellu í kastala fjölskyldu brúðarinnar í suður- hluta Austurríkis. Prinsessan er 25 ára en brúðguminn 55 ára. Hann var áður utanríkisráðherra í ríkisstjórn lans Smith, en var skipaður ráðherra í hinni nýju stjórn svartra og hvítra hinn 30. maí siðastliðinn. Zimbabwe/ Ródesíu: Hægagangur áfundinum Margrét Thatcher forsætisráðherra Breta ætlar að ræða einslega við Nyerere forseta Tansaniu í dag til að reyna -"ð koma samningaviðræðum um Zimbabwe/Ródesíu eitthvað áleiðis. Lítið þykir ganga á ráðstefnu um málið, sem haldin er í London. Nyerere er einn þeirra ieiðtoga hinna fimm Afríkuríkja sem mest styðja skæruliða svartra í Ródesíu. Er hann einna áhrifamestur þeirra og sá sem mest áhrif getur haft á leiðtoga skæruliðahreyfinganna, þá Joshua Nkomo og Robert Mugabe. Þeir tvifhenningarnir hafa harðlega mótmælt þeirri ætlan Breta, sem hafa forustu á samningafundunum, að ræða einkum og sér í lagi um hvernig endurskoða eigi gildandi stjórnarskrá í Zimbabwe/Ródesíu. Telja þeir slíkt út í hött. Eftir þeirri stjórnarskrá var Muzorewa valinn forsætisráðherra landsins. Ríkis- stjórn hans er blönduð bæði svörtum og hvítum mönnum. Meðal ráðherra er Ian Smith fyrrum forsætisráðherra hvítra og situr hann einnig á ráðstefn- unni i London. Sardinía: Breti reynir aðsemjavið mannræningja Brezki kaupsýslumaðurinn Rolf Schild sneri í gær aftur frá London til Sardiníu þar sem talið er að hann hafi ædað að hefja samningavið- ræður við mannræningja sem halda konu hans og dóttur í gíslingu. Þeir rændu honum einnig hinn 21. ágúst síðastliðinn en slepptu síðan aftur i síðustu viku til að hann gæti farið til Bretlands til að útvega fé í lausnar- gjald. Hann vildi ekkert ræða við frétta- menn við komuna til Sardiniu. Þar hefur gengið yfir alda mannrána að undanförnu. Eru þar á ferðinni glæpamenn, sem telja mannrán heppilega fjáraflaleið. Eiginkona Rolf Schild og dóttir eru tneðal átta gísla sem nú eru í haldi mannræn- ingja þar í eyjunni. Schild sagði í London í fyrradag að hann hefði ekki sjálfur næga peninga til að greiða þá upphæð sem ræningj- ar konu hans og dóttur krefðust fyrir aðláta þær lausar. HORFIN Ekkert hefur spurzt til leikkonunn- ar bandarísku Jean Seberg, sem hvarf frá heimili sínu í París fyrir tæplega hálfum mánuði. Leikari einn frá Marokkó, sem búið-hefur með leik- konunni, hefur skýrt svo frá að hún hafi ekið frá heimili sínu hinn 30. ágúst síðastliðinn. Hafi hún ekki haft neinn farangur meðferðis. Jean Seberg varð heimsfræg fyrir túlkun sína á hlutverki Jóhönnu af Örk i samnefndri kvikmynd. Að sögn hefur hún verið í meðferð hjá sál- fræðingum og læknum vegna and- legra veikinda. LEIKKONAN JEAN SEBERG

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.