Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. 7 Runki fór í réttirnar... og margir margir fleiri. Fé er nú safnaA af fjalli og réttir fara að hefjast. Þeim fylgja réttaböll og fleira skemmtilegt.... Réttir íhaust Auðkúlurétt laugard. I5.sept. Brekkurétt mánud. I7.sept. Fellsendarétt mánud. 24. sept. Fljótstungurétt mánud. 17. sept. Gillastaðarétt mánud. 24. sept. Gjábakkarétt mánud. 17. sept. Hafravatnsrétt sunnud. 16. sept. Hraunsrétt í Aðald. miðv. 12. sept. Hraunamannarétt fimmtud. 13. sept. Hrútatungurétt mánud. 17. sept. Kaldárbakkarétt mánud. 17. sept. Kaldárrétt sunnud. 16. sept. Kjósarrétt þriðjud. 18. sept. Klausturhólarétt miðvd. 19. sept. Kollafjarðarrétt þriðjud. 18. sept. Landrétt (Rang.) föstud. 21. sept. Laugarvatnsrétt þriðjud. 18. sept. Miðfjarðarétt miðvikud. 12. sept. Mælifellsrétt miðvikud. 19. sept. Oddsstaðarétt miðvikud. 19. ' sept. Rauðgilsrétt föstud. 21. sept. Reynistaðarétt mánud. 17. sept. Silfrastaðarétt (Skag.) mánud. 17. sept. Skaftártungurétt miðvd. 19. sept. Skaftholtsrétt fimmtud. 13. sept. Skeiðarétt föstud. 14. sept. Skrapatungurét! sunnud. 16. sept. Stafnsrétt miðvikud. 19, fimmtud. 20. sept. •Svarthamarsrétt miðvd. 19. sept. Svignaskarðsrétt miðvd. 19. sept. Tjarnarrétt Kelduhverfi fimmtud. 13. sept. Tungnarétt miðvikud. 12. sept. Undirfellsrétt laugard. 15.sept. Valdarásrétt föstud. 14.sept. Víðidalstungurétt laugard. 15. sept. Þverárrétt miðvikud. 19. sept. Ölfusrétt (fimmtud. 20. sept. (Endurskoðaður og leiðréttur listi.). Sunna hefurgefizt upp — og er nú hætt rekstri —falaðist eftir tryggingafé sínu h já ráðuneytinu til að koma síðustu ferðahópunum heim til íslands „Ferðaskrifstofan Sunna hefur neyðzt til að hætta störfum að minnsta kosti í bili. Ástæðan er fyrst og fremsti sú að fyrirtækinu hefur verið fyrirmun- að að fá nauðsynlegt rekstrarfé,” segir í fréttatilkynningu frá Sunnu sem barst til DB í gær (fimmtudag). „Dauðdaga” Sunnu bar nokkuð brátt að en málið hefur þróazt i núver- ap.di stöðu á einni viku. Á fimmtudag i síðustu viku birtist frétt í „Veggblaði” DB um að öllu starfsfólki Sunnu hefði verið sagt upp. Þann morgun (6. sept.) hafði DB samband við Jón S. Guðnason for- stjóra Sunnu sem staðfesti uppsagnir starfsfólksins. Þásagði Jón: „Það stendur til að endur- skipuleggja alla starfsemi Sunnu en óákveðið er ennþá hvernig að þeirri endurskipulagningu verður staðið. Okkur hjá Sunnu hafa borizt kjafta- sögurnar um að Sunna sé að hætta en um slíkt hefur engin ákvörðun verið tekin. Starfsfólk, hátt í 20 talsins hefur verið sagt upp til að hafa allar leiðir opnar til endurskipulagningar. Hvað verður fer allt eftir þvi hvort íslending- ar vilja áfram ferðast í einhverjum mæli. Um framtiðina eru nánast engin svör til í dag,” sagði Jón Snævar Guðnason þá. Föstudaginn 7. sept. gerði Jón árangurslausa tilraun til að fá fjárhags- lega fyrirgreiðslu til áframhaldandi starfsemi Sunnu hjá Landsbankanum. Mánudaginn 11. sept. skrifaði hann samgönguráðuneytinu og tilkynnti að sakir limabundinna erfiðleika og fjár- skorts gæti Sunna ekki annazt heim- flutning farþega sem þá voru á hennar vegum erlendis. Bað hann um að ráðuneytið notaði lagaheimild til að annast heimflutning fólksins sem greiddur verði af tryggingaféSunnu hjá ráðuneytinu. Sama dag gerði ráðuneytið ráðstafanir til að auðvelda heimflutning fólksins. Samtímis var Sunna svipt ferðaskrifstofuleyfi sínu því þá voru ekki lengur fyrir hendi þær fjárhagslegu tryggingar sem ferðaskrif- stofur verða að leggja fram til rekstrar- leyfis. Er fyrsta fréttin um þetta mál birtist í DB voru um 200 farþegar á vegum Sunnu erlendis. 70—80 þeirra voru í Grikklandi, hinir á Spáni og á Mallorka. Þeir sem á Mallorka og Spáni voru höfðu fullgilda farseðla heim — með leiguflugvél Útsýnar — en við Útsýn hefur Sunna verzlað í allt sumar varðandi Spánarferðir. Fólkið sem statt er í Grikklandi hefur ekki fullgilda heimferðarmiða. Ráðuneytið leitaði til Útsýnar um heimflutning þess og fékk þaðan tilboð sem hefur verið tekið. Fyrir heim- flutninginn verður greitt af tryggingar- féSunnu hjá ráðuneytinu. Ráðuneytismenn kveða það skyldu sína að rýra tTyggingarféð sem minnst. Er því líklegt talið að nú geri lánar- drottnar Sunnu atlögu að ferðaskrif- stofunni um innheimtu skulda sinna. Er óvíst talið að Sunna standist slikt stormhlaup án gjaldþrots. Lokaorð fréttatilkynningar Sunnu frá í gær voru: „Sunna þakkar tugum þúsunda ánægðra viðskiptavina tryggð þeirra við fyrirtækið í meira en tvo áratugi”. ' -ASt. Ökuleikniskeppni DB og BFÖ: Niú er að f inna sigurvegara sigurvegaranna — úrslitakeppnin við Laugamesskóla Á morgun fer fram úrslitakeppnin i ökuleikniskeppni Bindindisfélags ökumanna og Dagblaðsins. Rétt til þátttöku i henni eiga alls 28 menn, þ.e. tveir, sem bezt stóðu sig í hverri af undankeppnunum fjórtán víðs veg- ar um landið. Vitað er að minnsta kosti 20af þeim sem rétt eigatilþati töku munu mæta til leiks. Úrslitakeppnin fer fram við Laug- arnesskólann og stendur allan daginn. Aðalhluti keppninnar og sá sem skemmtilegast er að fylgjast með hefst um þrjúleytið. Þá reyna kapparnir sig í þrautunum, þ.e. ökuleikninni sjálfri. Allir keppendurnir eru á aldrinum '18—25 ára. Tveir þeir sem bezt ■standa sig hljóta í verðlaun vikuferð til London. Þar munu þeir m.a. taka þátt i alþjóðlegri keppni í ökuleikni. -A.St. 22 feta Flugfiskur til sölu í bátnum er 70 ha. dísil- vél, dýptarmælir, tal- stöð, kynding, björg- itnarbátur o.fl. llppl.ísima 66614. Torfæruaksturskeppni Björgunarsveitín Stakkur í Keflavík heldur torfæruaksturskeppni viö Grindavík sunnudaginn 16. sept. og hefst kl. 14. Komið og sjáið spennandi keppni. — Styrkið gott málefni. Spennandi keppni — Góð verðlaun Björgunarsveitin Stakkur

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.