Dagblaðið - 14.09.1979, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTBMBER 1979.
Flugleiðir fyrirhuga samdrátt á Norður-Atlantshafsleiðinni: _
TAPA DAGLEGA NÆRRI
13 MILUÓNUM KRÓNA
—hver miði nú seldur með beinu tapi og samkeppnin ekki að hjaðna
Afdrifaríkrar ákvörðunartöku
varðandi Norður-Atlantshafsflug
Flugleiða er að vænta á næstu
dögum i ljósi sivaxandi tapreksturs á
lei.ðinni. Þegar er Ijóst að um
verulegan samdrátt, eða fækkun
feröa, verður að ræða.
Eftir heimildum sem DB telur
áreiðanlegar mun tapið fyrstu sex
mánuðina nema um einni milljón
Bandaríkjadollara á mánuði að
jafnaði, eða 380 milljónum króna á
mánuði á núverandi gengi sem eru
tæpar 13 milljónir á dag. Með sömu
dollaraviömiðun nemur tapið fyrri
árshelming nú tæpum 2,3
milljörðum króna en nam þrem
milljörðum allt árið i fyrra. Hver
niiði á Norður-Atlantshafsleiðinni er
nú seldur með beinu tapi.
í vor sagði Sigurður Helgason
forstjóri m.a. um hina slæmu stöðu:
„Til þess að halda i horfinu og
halda sinu sæti á N-Atlantshafs-
leiðinni ákváðu Flugleiðir að lækka
og einfalda fargjöldin i þeirri von að
fljótlega mundi úr rætast, fargjöldin
hækka á ný og samkeppnin hjaðna.
Þessi von hefur ekki rætzt til þessa.”
Þvi er hér við að bæta að hún hefur
ekki enn rætzt og mun ekki sjáanlega
gera það i nánustu framtið.
Yfirleitt kemur þriðji árs-
fjórðungur bezt út, en nú varð nýja
breiðþotan nær hálfan mánuð frá
flugi vegna bilunar, sem hafði
geysilegan aukakostnað i för með
sér.
Þessi mál voru til umræðu á
stjórnarfundi félagsins á föstudaginn
og reiknað er með öðrum
stjórnarfundi alveg á næ'stu dögum,
þar sem ef til vill verður tekin á-
kvörðun um framtið þessa flugs.
-GS.
Mcðíerrtarlteimilið art Sogni. DB-mynd: Bj. Bj.
Meðferðarheimilið að Sogni:
EKKIRÉTT STAÐ-
IÐ AÐ UPPSÖGN
YFIRLÆKNIS
— að mati landlæknis —
á mánudaginn kemur
Deila kom upp um lögmæti
uppsagnar sem stjórn SÁÁ tilkynnti
Brynleifi Steingrimssyni héraðslækni
á Selfossi. Varðaði það hálfdags starf
hans i viku hverri við meðferðar-
heimilið að Sogni.
Stjórnin, sem hafði ráðið hann sem
yfirlækni á sinum tíma, tilkynnti
honum að uppsögnin væri með
þriggja mánaða fyrirvara en óskaði
jafnframt eftir því að hann kæmi
ekki aftur til starfa. Honum yrðu þó
grcidd laun á uppsagnartímanum.
Bryriieifur Steingrímsson, sem dró
lögmæti uppsagnarir.nar, mjög í efa,
taldi sig vita orsök hennar, þótt hún
væri ekki tilgreind í uppsagnar-
bréfinu. Sagðtsi hann í viðtali við DB
hafa skotið 'neintu misferli tveggja
starfsmann við heimilið að Sogni til
landslæknis, eftir að stjórnarfor-
maður og framkvæmdastjóri SÁÁ
hefðu látið hjá liða að aðhafast
aðilarfunda um málið
nokkuð í málinu. Kærði læknirinn
uppsögn sína til landlæknis.
Ólafur Ólafsson landlæknir taldi
ekki rétt staðið að uppsögninni.
Ráðnirigar og uppsagnir starfsfólks
ættu að vera í höndum stjórnar-
nefndar heimilisins að Sogni. Væri
þvi ekki rétt, að stjórn SÁÁ segði
lækninum upp, þó svo að hún hefði
staðið að ráðningarsamningi við
hann í upphafi. Það var áður en
stjórnarnefndin komst á laggirnar.
Samkvæmt upplýsingum forráða-
manna SÁÁ var einhugur um málið t
stjórn samtakanna. Meðlimir hennar
skipuðu einnig meirihluta í stjórnar-
nefnd Sogns.
Málið er nú i umfjöllun allra
viðkomandi aðila. Eiga þeir fund
með ér næstkomandi mánudag.
Ól.' ' 'iafsson landlæknir mun
einnie jaþannfund.
-ÓG.
Aðför gerð að elzta húsi Húsavíkur:
r
NANAST ALLT
BROTIÐSEM HÆGT
r
VARAÐ BRJOTA
Faktorshúsið svonefnda, elzta
húsið sem uppi stendur á Húsavík,
var stórskemmt á dögunum og hefur
rannsókn í málinu engan árangur
borið. Innbrot í húsið og skemmdar-
verk þar uppgötvuðust er menn sem
þar unnu komu úr 10 daga leyfi. Er
því engan veginn Ijóst hvenær
skemmdarverkin voru framin.
Í húsinu var nánast allt brotið sem
hægt var að brjóta af innréttingum,
hreiniælistækjum og fleiru. Virðist
svo sem gengið hafi verið til verks
með stórri sleggju og engu hlíft. M.a.
var brotinn handsmiðaður snúnings-
stigi milli hæða. Er um mjög mikið
tjón að ræða.
Faktorshúsið var í sumar flutt af
fjörukambinum á Húsavik, þar sem
það hefur staðið síðan um aldamót.
Var það flutt á grunn við gamla
barnaskólann og á að verða
íbúðarhús, enda vandað að gerð og
ófúið með öllu. Nú verður einhver
töf á að það verði tekið i notkun.
Amarf lug byrjaði f lugrekstur í öllum Vængjaleiðunum:
Flugfélagið Vængir
er liðið tmdir lok
Arnarflugi, við fvrstu vörurnar sem félaginu hafa borizt til flutninga, m.a. stól til
Bildudals. DB-mynd: H.V.
Flugfélagið Vængir virðist nu
endanlega liðið undir lok eftir að vöru-
flutningaflugfélagið Iscargo keypti það
30. ágúst og tók Vængjaflugvélarnar
jafnframt á leigu. Þann dag var öllum
starfsntönnum Vængja einnig sagt upp
og sótti Iscargo um að fá að halda uppi
flugrekstri á þeim leiðum, sem Vængir
höfðu.
Bráðabirgðaflugleyfi Vængja gilti
ekki nema út ágúst og framlengdu
flugmálastjórn og samgönguráðuneyti
þaðekki i Ijósi þessara breytinga.
Sex sóttu
um f lugleyf in
Sama dag og Iscargo sótti um
Vængjaleyfin, eða M. ágíist, sótti
Flugfélagið Ernir a Isalirði um flug
milli Reykjavíkur og Suðureyrar, Flat-
cyrar, Bíldudals, Hólmavikur og
Gjögurs. Einnig sótti Flugfélag
Norðurlands um flugleiðirnar á milli
Reykjavíkur og Siglufjarðar,
Blönduóss og Mývatns.
Hófst nú óvissutími um framvindu
málsins á meðan samgönguráðuneytið
var að vega og nteta umsóknir. Þann 6.
september bættist svo fjórða umsóknin
við frá flugfélaginu Arnarflugi og með
aðild allra fyrrverandi flugmanna
Vængja. Óskaði Arnarflug eftir leyfum
á öllum leiðum Vængja og Ölafsfirði til
viðbótar.
Daginn eftir sóttu svo Vængir um
nýtt flugrekstrarleyfi og fóru fram á
fyrri sérleyfi, ef flugrekstrarleyfið
fengist. Sjötta umsóknin kom svo 10.
september frá Flugfélagi Sverris Þór-
oddssonar, sem sótti um flugleiðirnar á
milli Reykjavíkur og Stykkishólms og
Rifs.
Óstarfhæft flugráð
Flugráð var nær óstarfhæft um
þessar mundir, þar sem bæði formaður
þess og varaformaður voru fjarver-
andi. En í Ijósi þess hversu brýnt var
að leysa þetta mál hið bráðasta ákvað
samgönguráðherra, Ragnar Arnalds,
að halda fund með þeim flugráðs-
mönnum, sem til staðar voru, og tveim
varamönnum. Var fundurinn haldinn í
samgönguráðuneytinu að viðstöddum
ráðuneytisstjóra og deildarstjóra.
Þrír af fimm flugráðsmönnum, sem
mættu, eru starfsmenn Flugleiða, sem
er aðaleigandi Arnarflugs, og þar af
er einn þeirra jafnframt stjórnarfor-
maður Arnarflugs. Það er Leifur
Magnússon, en hann sat hjá i allri
umræðu og ákvarðanatöku um málið.
Aðrir voru sammála um að veita
Arnarflugi leyfin, að undanskildum
Albert Guðmundssyni, sem gerði efnis-
legar athugasemdir.
Arnarflugs- og
Iscargomenn
í áróðursf lugi
Fyrir þenna fund er DB kunnugt
um að menn bæði frá Vængjum og
Iscargo, flugu vítt og breitt um landið
og funduðu með sveitarstjórnum, sem
hlut áttu að máli. Var það gert til að
sveitarstjórnarmenn gæfu meðmæli sin
fyrir fundinn. Arnarflugsmenn urðu
ofan á i þessum áróðursferðum og tóku
skeyti meðmælt þeim að streyma til
ráðuneytisins. í þeim skeytum, sem
ekki mæltu beinlínis með þeim, var
ekki mælt með neinum sérstökum
öðrum. Þessi skeyti lágu fyrir
fundinum.
Flugmannaumsóknin
vó þyngst
Umsókn, studd af öllum fyrrver-
andi flugmönnum Vængja, vó strax
þyngst i umfjöllum samgönguráðherra
í málinu. Við það bættist að skeyti
sveitarstjórnarmanna var ekki unnt að
skilja öðru visi en svo, að þeir treystu
fyrrverandi Vængjaflugmönnunum og
vildu þá áfram. Þetta tvennt varð
einkum til þess að ráðherra tók þá á-
kvörðun að veita Arnarflugi flugleyfi
frá Reykjavík til Bildudals, Búðardals,
Reykhóla, Hvammstanga, Hólmavik-
ur, Gjögurs, Grundarfjarðar, Siglu-
fjarðar, Önundarfjarðar, Blönduóss,
Stykkishólms, Rifs og Suðureyrar.
Félagið fékk ekki umbeðið leyft til
Ólafsfjarðar, en enginn annar fékk
það heldur. Þá fékk Flugfélag Norður-
lands sérleyflð milli Mývatns og
Reykjavíkur og Akureyrar. Ráðherra
hafði símasamband við flugmálastjóra,
sem einnig var samþykkur þessari
skipan.
„Himinhrópandi
óréttlæti"
„Þetta er himinhrópandi
óréttlæti,” sagði Kristinn Finnboga-
son, framkvæmdastjóri Iscargo, i
viðtali við DB eftir að leyfunum var út-
hlutað. Kristinn var fyrir nokkrum
árum einn stærsti hluthafi i Vængjum,
en seldi svo Guðjóni Styrkársyni sinn
hlut, sem seldi nú Iscargo allan sinn
hlut. Sagði Kristinn að búið væri að
leggja geysilega fjármuni i að gera flug-
vélar Vængja upp með það fyrir augum
að halda áfram Vængjafluginu. Lýsti
hann undrun sinni á að þrír af fimm
flugráðsmönnum, sem um málið
fjölluðu, skyldu vera starfsmenn
Flugleiða, sem eiga meirihluta í Arnar-
flugi. Þá sagði hann þessa úthlutun
stefna í beina einokunaraðstöðu Flug-
leiða, sem ætti eftir að koma illa niður
á neytendum, i háum fargjöldum.
Undraðist hann einnig að flugráð og
ráðherra skyldu taka mark á skeytum
sveitarstjórnarmanna, þar sem þau
væru komin fram á fölskum for-
sendum að undirlagi fyrrverandi
Vængjaflugmanna, sem tjáð hafi sveit-
arstjórnarmönnum að þeir hefðu verið
reknir Þeim hafl að visu verið send
uppsagnarbréf frá Vængjum, en verið
lofað endurráðningu hjá Iscargo. Bjóst
hann við að flugvélarnar yrðu reknar í
leiguflugi til að byrja með og taldi eins
koma til greina að leigja Arnarflugi
þær eins og hverjum öðrum.
Byrja strax
og f lugvélakaup
í undirbúningi
Arnarflugsmenn hafa lagt nótt við
dag við undirbúning flugsins eftir að
leyfin fengust á þriðjudag og hefja
flug í dag skv. nýrri áætlun. Tvær flug-
vélar hafa þegar verið teknar á leigu og
innanlandsdeild opnuð. Verður flugaf-
greiðsla félagsins í húsakynnum FÍ á
Reykjavíkurflugvelli. Þá er fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs á förum til
Bandarikjanna til að skoða 19 manna
Otterflugvélar, með kaup í huga. Stefnt
er að þvi að félagið noti eingöngu eigin
vélar fyrir ármót.
Fyrirvari á
hringamyndun
Þar sem Flugleiðir eiga meirihluta i
Arnarflugi taldi ráðuneytið rétt að
hafa þann fyrirvara varðandi leyfls-
veitinguna að sjálfræði félagsins verði
virt og samkeppni þessara félaga á
innanlandsflugi mótist af eðlilegum
viðskiptaháttum, eins og ráðuneytið
orðar það.
Við útgáfu tilskilanna leyfa hefur
ráðuneytið m.a. sett þau skilyrði að
sérstök deild innan félagsins, með að-
skildu bókhaldi, annist allt innanlands-
flug.
Eftir þessa breytingu má segja að
Flugleiðir ráði nær öllu áætlunarflugi
innanlands. Flugleiðir eiga stærsta
hlutinn í Arnarflugi, sem fyrr segir,
einnig verulega hluti í Flugfélagi
Norðurlands og Flugfélagi Austur-
lands. Virðist þvi Flugfélagið Ernir á
ísafirði eina sjálfstæða flugfélagið í
innanlandsflugi hér — en það starfar i
náinni samvinnu við Flugleiðir. -GS.