Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Elías varin—heims-
met Valbjamar!
— ítugþrautarkeppni íslands
og Bretlands
Elías Svcinsson, FH, varð sigurvcgari í tugþraut-
arkeppni íslands og Bretlands á Laugardalsvelli um
helgina. Hlaut 7420 stig, sem er annar bezti árangur
hans — og gott afrek miðað við veður. Aðstæður
voru þó löglegar. Bretland sigraði í keppninni. Hlaut
28.169 stig samanlagt en ísland 26.210 stig.
Valbjörn Þorláksson varð sjöundi en setti nýtt
heimsmet í 45—50 ára aldursflokki. Hlaut 6140 stig
en eldra heimsmetið var 5678 stig.
Pan Zenion var annar í tugþrautinni með 7299
stig. Mike Corden þriðji með 7199 en hann á bezt
7750 stig. McKenzie varð fjórði með 6978 og Howell
fimmti með 6883 stig. Þá kom Þráinn Hafsteinsson
með 6692 stig — síðan Valbjörn og Hafsteinn
Jóhannesson var áttundi með 5958 stig. Fjórir kepp-
endur voru frá hvoru landi.
Breiðablik langefst
Breiðablik í Kópavogi sigraði með yfirburðum í 2.
deild, hlaut 29 stig af 36 mögulegum. Leikur
ásamt FH i I. deild næsta keppnistimabil. Úrslil i 2.
deild á laugardag urðu þessi:
ÍBÍ—Fylkir 2—1
Selfoss—Reynir 0—1
Auslri—Þróttur 0—0
Magni—Brciðablik 1—8
Þór—FH 4—2
Austri og Reynir >erða að leika aukaleik um sæti í
2. deild næsta keppnislímabil. Lokastaðan í deild-
inni varð þessi:
Brciðablik
FH
Fylkir
Þróttur N.
Selfoss
Þór, Ak.
ÍBÍ
Re>nir
Austri
Magni
18 13 3 2 49—12 29
18 11 2 5 49—22 24
18 9 2 7 31—22 20
18 9 2 7 13—21 18
18 7 3 8 25—25 17
18 7 4 8 25—28 17
18 5 7 6 29—36 17
18 5 5 8 19—29 15
18 5 5 8 15—29 15
18 3 2 13 17—49 8
Bjarni Jónsson
meöKR!
Bjarni Jónsson, sem þjálfar KR í vetur, ákvað að
gerast einnig leikmaður í síðustu viku og var þá
gengið frá öllum pappirum. Aðspurður sagðisl
Bjarni ekki eiga von á þvi að verða i aðalliðinu en
taldi líkur á að hann gæti hlaupið í skarðið ef eilt-
hvað færi úrskeiðis. Auk þess að þjálfa KR mun
Bjarni þjálfa mcistaraflokk kvenna hjá Haukum i
vetur, þannig að það verður í nógu að snúast hjá
kappanum, ef að líkum lætur.
Keyptu sjálfir
peningana
I.eikmenn KR í handboltanum urðu að vonum
mjög sárir er þeir fengu enga vcrðlaunapeninga fyrir
að sigra í 2. deildinni sl. vetur. Öll lið voru verðlaun-
uð i bak og fyrir nema KR og svo sigurvegarar í 2.
deild kvenna, Grindavík.
Strákarnir úr vesturbæjarliðinu létu ekki svoleiðis
smáræði á sig fá og keyptu sér sjálfir verðlaunapen-
inga og hengdu í barm sér um helgina. Fylgir einnig
sögunni að þeir hyggist senda HSI reikninginn með
kærum þökkum.
íslandsmet
Jón Diðriksson setti nýlcga Islandsmet í 1500 rn
lilaupi á kcppnisfcrð cricndis. Hljóp á tímanum
3,42,07 min.
Þórdis Gísladóttir, ÍR, setti nýtt íslandsmet í há-
stökki á laugardag — stökk 1.80 mctra. Hún átti
sjálf eldra metið 1.78 m.
RodavillTeit
Forráðamenn hollenzka liðsins Roda
JC Kcrkrade, sem hafnaði í 5. sæti í úr-
valsdeildinni í fyrra, ætluðu að koma
til íslands til þess að fylgjast með Teiti
Þórðarsyni i leiknum gegn Hollandi.
F'kki varð þó af komu þcirra þar sem
cinn hollenzku blaðamannanna, sem
voru á leiknum, hringdi til Hollands og
sagði óþarfa fyrir þá að koma þvi
Teitur væri ekki einu sinni i 16 manna
hópnum. Roda hefur mikinn áhuga á
Teili og hefur m.a. sett sig i samband
við Ösler, félag Teits. Dick Nanninga,
sem skoraði tvívegis í leiknum við Hol-
lendinga, er einmitt miðhcrji frá Roda.
j P ‘ , -- : : ■ 4
l r n 1 i
[ j g_J
Hollenzki landsliðsmarkvörðurinn, Piet Schrijvers, ver snilldarlega skalla frá Atla F.ðvaldssvni á 2 min. Evrópuleiks íslands og Hollands. islen/.ku leikmennirnir eru
Jóhannes, Sigurlás, sem lék sinn fyrsta landslcik, og Marteinn. DB-mynd Höröur.
Fimm félög gætu orðið
efst og jöfn í 1. deildinni
Ef stu liðin, Valur og Vestmannaeyjar, töpuðu en Akranes, Kef lavík og KR sigruðu
Mjög óvænt úrslit urðu í 1. deild um
síðustu helgi. Efstu liðin, Valur og
Vestmannaeyjar, töpuðu en félögin i
næstu sætum, Akranes, Keflavík og
KR, unnu, svo sú furöulega staða er
komin upp að fimm lið gætu orðið efst
og jöfn í 1. deildinni. Kannski ekki
raunhæft að gera ráð fyrir því. Til þess
þarf Valur að tapa fyrir KA á Akur-
eyri, Vestmannaeyjar fyrir Víking í
Reykjavík. Auk þess þyrfti Akranes að
gera jafntefli við Þrótt — KR og Kefla-
vik að vinna F'ram og Haúka. Ef svo
færi yrðu félögin fimm með 22 stig —
og aukaleiki þyrfti um íslandsmeistara-
titilinn. Kannski tækist að Ijúka þeim
fyrir jól! — en þegar öllu gamni er
sleppt sýnir þessi staða hve nauðsynlegt
er að breyta reglugerð mótsins. Láta
markamun ráða úrslitum ef félög eru
jöfn að stigum eins og nær alls staðar
gerist í heiminum.
En við skulum renna yfir leikina,
sem háðir voru um síðustu helgi.
Valur - Keflavík 1-2
Leikið var á Laugardalsvelli og voru
Kefivíkingar betra liðið i leiknum.
Léku oft vel og Þorsteinn Ólafsson ör--
uggur í marki. Steinar Jóhannsson náði
forustu fyrir ÍBK. Ingi Björn Alberts-
son jafnaði en þremur mín. fyrir leiks-
lok skoraði Steinar sigurmark Kefivík-
inga. Sanngjarn sigur og furðulegt
hvað Valsliðið virkaði slakt í leiknum.
Taugaspennan þrúgandi.
ÍBV - Fram 0-2
Þá urðu einnig óvænt úrslit í Vest-
mannaeyjum á laugardag. Bikarmeist-
arar Fram komu í heimsókn og unnu
öruggan sigur gegn Eyjamönnum, sem
skorti mjög allan baráttuvilja. Ekkert
mark var skorað í fyrri hálfleiknum en í
þeim síðari skoraði Guðmundur Steins-
son bæði mörk Fram.
Akranes — Víkingur 1-0
Akurnesingar voru sterkari aðilinn
nær allan tímann — en lengi vel leit út
fyrir markalaust jafntefli. Það var ekki
fyrr en rétt undir lokin að Árni Sveins-
son skoraði sigurmark Skagamanna.
Haukar — Þróttur 1-5
Fjórði leikurinn á laugardag var í
Hafnarfirði. Þróttur vann þar öruggan
sigur á Haukum — náði tveggja marka
forustu fyrir hálfleik. Mörk Þróttar
skoruðu Páll Ólafsson, Ágúst Hauks-
son, Daði Harðarson, Sverrir Brynj-
ólfsson og Jóhann Hreiðarsson. Eina
mark Hauka skoraði Gunnar Andrés-
son.
KR-KA4-2
KR vann KA Akureyri 4-2 í baráttu-
leik á Laugardalsvelli. Eini leikurinn á
sunnudag. Sæbjörn Guðmundsson
náði forustu fyrir KR en Óskar Ingi-
mundarson jafnaði. l-l í hálfleik og í
s.h. lék KA undan sterkum vindi. Það
reyndist Akureyringum ekki vel. KR
komst í 3-1 með mörkum Jóns Odds-
sonar, víti, og Elíasar Guðmundssonar.
Eyjólfur Ágústsson minnkaði muninn,
3-2, en Birgir Guðjónsson skoraði
fjórða mark KR.
Staðan:
Valur 17 9 4 4 34-21 22
ÍBV 17 9 4 4 25-13 22
Akranes 17 9 3 5 25-16 21
Keflavík 17 7 6 4 22-17 20
KR 17 8 4 5 27-24 20
Fram 17 4 9 4 25-21 17
Vík ingur 17 6 4 7 26-24 16
Þróttur 17 6 4 7 26-29 16
KA 17 3 5 9 20-35 11
Haukar 17 1 2 13 11-41 5
Lokaumferðin, hin 18., verður 14.—
16. september. Fram — KR leika föstu-
daginn 1. sept. Víkingur — ÍBV, ÍBK
— Haukar á laugardag 15. sept., og
Þróttur — Akranes, KA — Valur 16.
september.
-hsim.
Sjö feta risi hjá KR-
ingum f körf uboltanum
„Þetta er rétt tæplega sjö feta mað-
ur,” sagði Kristinn Stefánsson, stjórn-
armaður i körfuknattleiksdeild KR, er
við spuröum hann út í risann sem kom
til KR nýlega. „Reyndar er hann ná-
kvæmlcga 6 fet og 11 tommur og það
mun vera um'2,10 metrar. Hann vcrður
því sá langstærsti hér í vetur." Náungi
þessi heitir Webster DaCosta og hefur
gelið sér gott orð ytra. Hann er fyrst og
fremst varnarmaöur og hirðir aragrúa
af fráköstum eins og gefur að skilja
með alla þessa hæð og vafalitið verður
gaman að sjá til hans í Reykjavíkur-
mótinu sem hefst bráðlcga.
KR-ingar láta ekki þar við sitja. Þeir
hafa að undanförnu verið að vinna að
því að fá hingað lið frá Bandarikjunum
og er stefnt að þvi að það komi til
landsins í byrjun næsta mánaðar. Þetta
er ekkert félagslið, heldur er þetta
blanda leikmanna úr ýmsum áttum og
vonast KR-ingar til að geta notað einn
úr þessum hópi i Evrópukeppnina i
vetur. Þar er sem kunnugt er leyfilegt
að nota tvo útlendinga og það notfærði
ÍS sér sl. vetur gegn Bar.celona. Þá léku
þeir báðir Dirk Dunbar og John John-
son, sem var og vcrður áfram þjálfari
Fram. Dunbar hefur hins vegar orðið
að leggja skóna á hilluna vegna si-
felldra meiðsla í hné. Liðið mun leika
við KR og landsliðið en þriðja fyrirhug-
aða leiknum hefur enn ekki verið ráð-
stafað.
Lengi vel stóð til að Stewart Johnson
kæmi til KR en hann dvelst nú í Argen-
tínu og leikur með liðinu River Plate
þar i landi. Hann hafði mikinn áhuga á
að koma til KR en er samningsbundinn
hjá argentínska félaginu þannig að
hann nær ekki í tæka tíð. Unnusta hans
er íslenzk og var ein aðaldriffjöðrin í
kvennaliði KR hér heima.
Af öðrum liðum er það að segja að
þau eru öll fyrir nokkru siðan búin að
ráða sér þjálfara. John Johnson verður
áfram hjá Fram, sem fyrr sagði. Ted
Bee verður áfram hjá Njarðvikingum
og Trent Smock verður með ÍS aftur i
vetur. Þá verður Mark Christensen
áfram hér á landi en skiptir um félag.
Hann lék með Þór, Akureyri, i fyrra en
mun nú leika með ÍR-ingum. Paul
Stewart, sem lék með og þjálfaði ÍR i
fyrra, verður því ekki áfram hjá
félaginu, enda var ckki nógu almenn
ánægja með hann.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979.
23
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Evrópuleikurinn gegn A-Þjöðverjum:
Islenzka liðið brotnaði
eftir vafasaman vítadóm
„Þetta var alls ekki víti, ég renndi
mér á knöttinn og sló hann frá, og
Þjóðverjinn hljóp á hendurnar á mér.
Engin hætta og furðulegt að norski
dómarinn skyldi dæma vítaspyrnu,"
sagði Þorsteinn Bjarnason markvörður
íslenzka liðsins eftir Evrópuleik íslands
og A-Þýzkalands á miðvikudag.
Sjaldan hala heyrzt eins mikil mót-
mælahróp i Laugardalnum og íslenzkir
áhorfendurrákuupp þegar norski dóm-
arinn Svein Inge Thime benti á víta-
punktinn á nítjándu minútu síðari hálf-
leiks. Viti á Þorstein þar sem hann
hljóp á móti Joachim Streich sem
komst inn fyrir. Víst er um það að þessi
dómur var vægast sagt strangur — og
að margra áliti algjör fjarstæða.
Weber skoraði örugglega úr vita-
spyrnunni og staðan var orðin 1—0
fyrir Austur-Þjóðverja. Þetta skipti
sköpum í leiknum. Fram að þeim tima
hafði íslenzka landsliðið haft i fullu tré
við Austur-Þjóðverjana þó svo þeir
hafi að visu átt öllu meira í leiknum.
Bæði liðin höfðu átt marktækifæri sem
ekki höfðu nýtzt fram að vitaspyrn-
unni.
Fyrri hálflcikur var markalaus. ís-
land lék þá á móti sterkri sól, sem
siundum olli Þorsteini Bjarnasyni
erfiðleikum i markinu, þó ekki kæmi
beint að sök.
Á þriðju mínútu kom ein fallegasta
leikflétta leiksins. Ásgeir Sigurvinsson
fékk knöttinn rétt inn á vallarhelmingi
íslendinga. Hann gaf góða sendingu til
Guðgeirs Leifssonar, sem aftur gaf á
Ásgeir, sem var kominn fram en hann
síðan inn á vítateig Austur-Þjóðverja
til Guðmundar Þorbjörnssonar sem
'•skallaði af stuttu færi en rétt framhjá.
Markvörður Austur-Þjóðverja,
Cirapenthin, hreyfði hvorki legg né lið
— en eins og áður sagði fór knötturinn
framhjá. Þetta var glæsileg sóknarlota
og fallega að staðið hjá íslenzka liðinu.
íslenzka liðið var mun sprækara
fyrstu minútur leiksins. Mikil hætta
skapaðist i kringum Ásgeir Sigurvins-
son, sem var vandlega gætt allan
leikinn. Smám saman náðu Austur-
Þjóðverjar tökum á miðju vallarins og
sóknir þeirra urðu jafnhliða þyngri.
Þorsteinn varði tvívegis um miðjan
Staðan
í riðlunum
Tveir leikir voru háðir í 4. riðli
Evrópukeppni landsliða á miövikudag.
Auk leiks íslands og A-Þýzkalands
léku Sviss og Pólland í Lausanne. Pól-
land sigraði 2—0 eftir að Sviss hafði
sótt mun meira i leiknum — en mark-
skotin voru slök. Stanislas Terlecki
skoraði fyrra mark Póllands á 34. min.
mjög gegn gangi leiksins og hann skor-
aði aftur á 63. min.
Staðan eftir leikina er þannig:
Holland
Pólland
A-Þýzkaland
Sviss
ísland
Grikkland vann
6 5 0 1 16—3 10
5401 9—2 8
5 4 0 1 10—5 8
7 2 0 5 5—13 4
7 0 0 7 2—19 0
Sovétríkin 1—0 í
Aþcnu i 6. riðli á miðvikudag og eru nú
allar líkur á að Grikkir komist í úrslit.
Staðan i riðlinum:
Grikkland
Finnland
Sovétríkin
Ungverjaland
5 3 11
4 2 11
5 12 2
5 12 2
13—7 7
7—10 5
5— 6 4
6— 8 4
England vann Danmörku I—0 í 1.
riðli á miðvikudag. Kevin Keegan skor-
aði á 16. mín. Staðan i riðlinum:
Fngland 5 4 10 13—4 9
N-írland 6 3 1 2 6—9 7
Irland 5 13 1 6—5 5
Danmörk 7 12 4 13—14 4
Búlgaría 5 113 3—9 3
í 2. riöli sigraöi Belgia Noreg 2-1 i
Osló. Staðan:
Austurríki
Portúgal
Belgía
Skotland
Noregur
6 3 2 1 11—5 8
4310 5-2 7
5 1 4 0 5—4 6
4 2 0 2 9—6 4
7 0 1 6 4—17 1
fyrri hálfleik mjög fallega langskot og
bezta marktækifæri Austur-Þjóðverja
kom um það leyti er Schnuphase skaut
framhjáafopnu færi.
Staðan í hálfleik var 0—0. Hin
sama og á móti Hollendingum. Og því
miður svipaði leikjunum einnig saman
að því leyti að mörk útlendinganna
komu í síðari hálfleiknum. Fyrst hin
umdeilda vítaspyrna, sem áður var
minnzt á.
Eftir það tróku Austur-
Þjóðverjarnir öll völd á vellinum.
Weber brá sér frá því að gæta Ásgeirs
Sigurvinssonar á 71. mínútu. Komst
hann einn inn fyrir íslenzku vörnina og
skoraði örugglega 2—0 fyrir
Þjóðverjana.
Fimm mínútum síðar fékk Joachim
Streich að leggja knöttinn fyrir sig við
vítateigslínu án þess að íslenzka vörnin
truflaði hann. Streich misnotaði ekki
tækifærið og skoraði án þess að Þor-
steinn hefði möguleika til að verja. 3—
0 fyrir Austur-Þjóðverja. Aðeins
þrettán mínútur til leiksloka og úrslitin
að fullu ráðin. Þan-nig varð lokastaðan,
‘er dómarinn, Svein Inge Thime, flaut-
aði leikinn af.
Ásgeir Sigurvinsson var góður í
leiknum. Hann fékk að vísu sjaldan
frið þvi hann var í stöðugri gæzlu
Austur-Þjóðverjanna, sem sannarlega
ætluðu ekki að láta hann vaða uppi. Á
köflum voru þeir allgrófir og komust
reyndar upp með það fyrir norska
dómaranum, sem greinilega bar i meira
lagi virðingu fyrir ólympiumeisturun-
um austur-þýzku. Starf hans einkennd-
ist af óákveðni og sagan úr landsleikn-
um við Belgíu árið 1977 endurtók sig.
Hann var íslenzka liðinu afar óhag-
stæður.
Guðgeir Leifsson átti góða kafla.
Jóhannes átti góðan leik. Atli Eðvalds-
son olli aftur á móti vonbrigðum.
Tókst þvi miður ekki að endurtaka
glæsiframmistöðu sína úr leiknum á
móti Hollendingum.
Örn Óskarsson átti einnig góðan
leik, sérstaklega í vörninni. Áhorf-
endur i Laugardal voru 9126. q/-
Evrópuleikurinn gegn Hollandi:
Algjört hrun ísl. liðsins
Sjaldan eða aldrei hefur maður
orðið vitni að jafnmiklu hruni íslenzka
landsliðsins eins og varð gegn
Hollendingum á Laugardalsvellinum.
Eftir tiltölulega jafnan fyrri hálfieik
þar sem ísland átti sín færi (óku
Hollendingar, silfurlið tveggja síðustu
heimsmeistarakeppna, öll völd og
sigruðu 4—0. í raun var engin spurning
um sigurvegara eftir aA varamaðurinn
Johnny Mctgod hafði komiö
Hollendingum yfir á 49. mín. Við það
var eins og öll barátta hyrfi úr íslenzka
liðinu og hinir nettu leikmenn Hollands
tóku öll völd. Island hefur ekki tapað
jafnilla á heimavelli í 6 ár, eða síöan
sömu úrslit urðu uppi á teningnum
gegn frændum okkar Norðmönnum
1973.
En eins og oft áður lofaði byrjun
íslenzka liðsins nokkuð góðu þrátt
fyrir að leikaðferðin væri 5—3—2.
Eins og við höfðum spáð kom Dýri inn
sem þriðji miðvörður og Hörður datt
út á miðjunni. Aftur á móti kom það
nokkuð á óvart að enginn Eyja-
mannanna skyldi vera í byrjunarliðinu.
Leikurinn var ekki nema tveggja
minútna gamall þegar Atli átti
hörkuskalla að marki Hollands eftir
hornspyrnu Karls Þórðarsonar, en Piet
Schrijvers varði meistaralega. íslenzka
liðið var kraftmikið i upphafi og
Hollendingar virtust ekki við þessu
búnir en fóru fljótlega I gang. Á 10.
min. slapp íslenzka markið ótrúlega.
Simon Tahamata, eldsnöggur Mólúkki
i liði Hollands, komst einn inn fyrir
vörnina eftir að Hollendingarnir höfðu
svæft hana með rólegu spili fyrir
framan. Þorsteinn Bjarnason kom á
móti. Tahamata renndi knettinum
undir hann og boltinn stefndi í markið
þegar Trausti Haraldsson bjargaði
naumlega á linu — knötturinn fór af
honum, í stöngina og út.
Skömmu siðar urðu Þorsteini hans
cinu mistök á i leiknum. Eftir
hornspyrnu Willy van de Kerkhof átti
hann gersamlega misheppnað úthlaup.
Víkingar Knapp
að missa flugið
Víkingarnir hans Tony Knapp í Staf-
angri töpuðu nú í vikunni fyrir Moss 2-
1 á útivelli og hafa misst niöur fjögurra
stiga forskot að undanförnu. Eru nú í
öðru Sæti. Hafa sama stigafjölda og
Noregsmeistarar Start en hafa leikið
cinum leik minna.
Staðan er nú þannig:
Start 18 11 3 4 33-15 25
Viking 17 10 5 2 24-11 25
Moss 18 10 4 4 33-21 24
Rosenb. 18 9 2 7 30-24 20
Brync 18 8 2 8 28-24 18
Válerei\J>. 18 7 4 7 27-32 18
Lillestt. 17 5 7 5 19-18 17
Bodo Gl. 18 7 3 8 16-22 17
Ham.kam. 18 5 4 9 24-28 14
Skeid 18 5 4 9 17-23 14
Mjendalen 18 4 5 9 21-37 13
Brann 18 3 3 12 15-32 9
Brandts skallaði að marki en Árni
bjargaði á línu. Hinum megin átti
Jóhannes Eðvaldsson þrumuskot rétt
Jramhjá markinu úr óbeinni auka-
spyrnu eftir að brotið hafði verið á
Karli innan vítateigs. Þar munaði ekki
miklu. íslenzka liðið.náði oft ágætum
sóknum. Boltinn gekk vel á milli
manna en oftast vantaði einhvern til að
reka endahnútinn á sóknirnar. Holl-
enzku leikmennirnir notuðu mjög
mikið „overlap” í sókninni en slíkt sást
vart hjá íslandi. Leikmenn voru
hræddir við að sitja eftir frammi og
skilja eltir göt í vörninni.Það var því
dæmigert i síðari hálfieik þegar Árni
Sveinsson, okkar bezli sóknarbak-
vörður, stanzaði skyndilega á miðlinu
og gaf knöttinn óvænt frá sér. Átti alla
möguleika á að halda áfram upp
kantinn. Slíkt var hræðslan við hina
eldsnöggu andstæðinga. Ernie Brandts
fylgdi Pétri alveg eftir en eigi að síður
tókst Pétri iðulega að snúa á hann.
Stórskemmtilegur leikmaður, sem
hefur tekið ótrúlegum framförum á
einu ári. íslenzka vörnin lék nokkuð
stíft maður á mann, nema hvað Dýri
var frjáls fyrir aftan.
Tíu mín. fyrir leikhlé fékk ísland
upplagt færi. Eftir fallegt spil Árna og
Péturs fékk Guðmundur Þorbjörnsson
knöttinn inn i vitateig. Sigurlás var
dauðafrir rétt hjá honum en
Guðmundur reyndi skot úr þröngri
aðstöðu. Rétt framhjá markinu.
Um síðari hálfleikinn er bezt að
hafa sem fæst orð. Allur leikur islenzka
liðsins hrundi eins og spilaborg.
Leikmenn féllu i þá gryfju að sækja
fram gegn Hollendingunum i stað þess
að biða eftir þeim við miðjuna og taka
á nióti þeim þar. Það gaf góða raun í
fyrri hálfleiknum og var notað rétt í
byrjun síðari hálfleiks. En þá skoraði
Holland. Eftir góða skyndisókn Lslands
henti Schrijvers knettinum út til Krol.
Hann lék með hann örlítið áfram og
sendi siðan gullfallega sendingu inn í
vítateiginn á Johnny Metgod. Hann
sneri Martein Geirsson af sér og
skoraði með þrumuskoti undir
Þorstein. Þar með var tónninn gefinn.
Það var aðeins næstu minútur að
Ísland álti eitthvað í leiknum en síðan
þróaðist hann upp i algera einstefnu.
Rothöggið kom svo á 70. minútu.
Þá átti Krol enn eina gullsendinguna á
’Hovenkamp úti á vinstri vængnum.
Hann gaf fast fyrir markið og þar
þurfti Willy van de Kerkhof ekki
annað en að ýta knettinum inn fyrir
línuna, 0—2. Bróðir Willy, Rene,
komst einn inn fyrir í dauðafæri og
brenndi af áður en Nanninga bætti
þriðja markinu við á 73. mín. Krol
sendi þá á Simon Tahamata. Hann
stakk vörnina af og var kominn í gott
færi er hann staðnæmdist skyndilega.
Beið eftir varnarmönnunum og lék sér
siðan að þeim eins og köttur að mús.
Allir voru uppteknir við að reyna að
stöðva hann þegar hann renndi knettin-
um snyrtilega til Nanninga, sem-
skoraði með þrumuskoti.
Rene átti skot framhjá úr þröngu
færi og skot Hollendinganna hittu
yfirleitt ekki markið en tveimur
mínútum fyrir leikslok bættu þeir
fjórða markinu við og jafnframt þvi
fallegasta. Willy van der Kerkhof sendi
hásendingu inn i teiginn og þrátt fyrir
nærveru Jóhannesar og Marteins fékk
Nanninga nægan tíma til að athafna sig
og markið varð hreinasta perla.
Þrumuskalli hans hafnaði efst í
markhorninu — gersamlega óverjandi
fyrir Þorstein, 0—4.
Það er óhætt að segja að landsliðið
hafi valdið miklum vonbrigðum. Þor-
steinn verður ekki sakaður um mörkin
— átti lýtalausan leik að mestu og grcip
oft fallega inn i. Bakverðirnir Árni og
Trausti réðu lítt við hlutverk sitt og
Árni hefur oftast verið bctri. Trausli
var oft á tiðum ekki með. Miðverðirnir
brugðust illilega. Sér i lagi Jóhannes og
Marteinn og sá síðarnefndi virtist
aldrei finna sig í leiknum. í heild var
Óskar Jakobsson, ÍR, varð fimmti í
kúluvarpi á HM stúdenta í Mexíkóborg
fyrr i vikunni. Varpaði 19.25 m en
hann á bezt 19.27 m. Udo Beyer, A-
Þýzkalandi, sigraði, varpaði 20.36 m.
Pictro Mennea, Ítalíu, setti nýtt heims-
met í 200 m hlaupi — hljóp á 19.72 sek.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR, komst
ekki í úrslit. Dunecki, Póllandi, varð
annar á 20.24 sek. Meðvindur i hlaup-
inu var 1.8 sekúndumetrar. Eldra
heimsmetið átti Tommy Smith, USA,
19.83 sek. sett á sama velli.
í gærkvöld sigraði Kozankiewicz,
Póllandi, i stangarstökki. Setti móts-
met 5.60 m. Houvion, Frakklandi,
stökk sömu hæð og landi hans Abada
5.55 m. Gerd Nagel, V-Þýzkalandi,
sigraði í hástökki og setti mótsmet 2.28
m. Beilschmidt, A-Þýzkalandi, stökk
Það verður 101 þjóð sem tekur þátt i
forkeppni heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu 1982 — fimm færri en
tóku þátt í keppninni 1978. Þetta kom
fram á fundi FIFA, alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins, á miðvikudag i
Zúrich í Sviss. Ísland hefur tilkynnt
þátttöku i keppnina.
Lokakeppnin 1982 verður haldin á
Spáni og Evrópuþjóðir eru allar
skráðar i keppnina nema Lichtenstein,
33 af 34 þjóðum, sem eru í Evrópusam-
bandinu. Þar eru Albania, Austurriki,
Belgía, Búlgaria, Kýpur, Tékkó-
slóvakía, Danmörk, A-Þýzkaland,
England, Finnland, Frakkland, V-
Þýzkaland, Grikkland, Ungverjaland,
ísland, Irland, Norður-frland, Ítalía,
Luxemborg, Malta, Holland, Noregur,
Pólland, Portúgal, Rúmenía, Skot-
vörnin afar léleg og ekki þýðir að bjóða
slíkt gegn einu bezta sóknarliði heims,
Tengiliðirnir komu langbezt út úr
leiknum. Vinnslan var góð en var oftast
unnin fyrir gýg þar sem framherjar
voru ekki á hverju strái til að taka við
bollanum.
Vörnin var of hrædd við að fylgja
eftir og því myndaðist óþægilegt bil á
milli og bakstuðningur var íitill, Atli
var yfirburðamaður í liðinu — átti frá-
bæran leik. Karl átti einnig góðan dag
og Guðmundur sýndi skemmtileg
tilþrif oft á tiðum og skilar knettinum
mun betur en t.d. i vor. Framlínan var i
raun aðeins einn maður. Pétur Péturs-
son. Hann barðist geysilega vel og
vinnur ntjög vel. En enginn ntá við
margnum og þrátt fyrir marga laglega
hluti var Sigurlás ekki með i myndinni.
Tómas kom inn fyrir hann i síðari hálf-
leik en sýndi þvi miður ekkert. -SSv.
sömu hæð og Holger Marten, V-
Þýzkalandi, varð þriðji með 2.26 m.
Helmut Schreiber, V-Þýzkalandi, sigr-
aði og setti mótsmet í spjótkasti, 88.68
m. Markonen, Finnlandi, varð annar
með 87.10 m. Bandaríkin sigruðu i
4x400 m boðhlaupi á 3:00.98 mín.
Holland í öðru sæti á 3:03.18 mín. í
4x100 m boðhlaupi sigraði Ítalía á
39.42 sek. mótsmet, og þar hljóp
Mennea lokasprettinn. Fílabeins-
ströndin varð í öðru sæti á 38.73 sek.
og Frakkland í þriðja á 39.07 sek.
Fyrir lokadag keppninnar, sem
verður í kvöld, höfðu Sovétríkin hlotið
34 gullverðlaun, 28 silfur og 14 bronz.
Bandaríkin komu í öðru sæti með 21
gull, 14 silfur og 16 bronz, en síðan
kom Rúmenia með 13 gull, 3 silfur og
15 bronzverðlaun.
land, Spánn, Sviþjóð, Sviss, Tyrkland,
Sovétrikin, Wales og Júgóslavia.
Frestur til að skila þátttökutilkynn-
ingum rann út 31. ágúst og komu um-
sóknir fá Grenada og Tanzaniu eltir
þann tima. Fjallað verður um þær
síðar. Allar 10 þjóðir Suður-Ameríku
tilkynntu þátttöku. 16 af 33 þjóðum
Asiu, 25 af 40 Afrikuþjóðum, 13 af 23
þjóðum Mið- og Norður-Ameríku og 4
af 5 þjóðum Ocecaniu og er Taiwan þar
á meðal.
Þjóðunum verður raðað i riðla 13.—
14. október nk. og leikirnir í þeim
verða að fara frani á timabilinu frá I.
nóvember i ár til 30. nóvember 1981.24
þjóðir komast i úrslit. 13 frá Evrópu, 3
frá S-Ameriku og tvær þjóðir frá
Afríku, Asiu og Ocecaníu, eða hverri
álfu, auk gestgjafanna, Spánverja og
heimsmeistara Argentínu.
Óskar varð í f immta sæti
Island meðíHMí
knattspyrnu 1982