Dagblaðið - 14.09.1979, Side 20
24
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979.
Melissa „ .
aug/ysir:
Mikiö og gott úrval af dömu-
kjólum.
Kjólar viö allra hæfi.
Stœrðir 36—46 — GOTT VERD
Póstsendum
LAUGA VEGI66
SÍM112815
Tilkynning
til söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir ágústmánuð er 15. sept-
ember. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
10. september 1979.
Frönsk
ökk/astígvé/
Verðkr. 21.500
POSTSENDUM
Verðkr. 19.500.-
LAUGAVEGI 60
SÍMI 21270
SKÓSEL
Vöni-og brauðpeningar- Vöruávísanir
Peningasediar og mynt
Gömul umslög og póstkort
Alltfyrirsafnarann
FRÍMERKI
Hjá Magna »,15
Vinsælasta hljómsveitín í
Japan færir út kvíarnar
Hljómplatan Cheap Trick — At
Budokan minnir að mörgu leyti á
safngripinn Beatles At The Holly-
wood Bowl. Sami krafturinn í hljóð-
færaleikurunum, sami ærandi hávað-
inn í áhorfendum, sama ósvikna
hljómleikastemmningin, sem oftast
vantar á þær plötur, sem hljóðritaðar
eru á hljómleikum.
Ef plöturnar tvær eru bornar enn
frekar saman, þá heyrist greinilega
hversu upptökutækninni hefur fleygt
fram síðan Beatles léku að
Hollywood Bowl árin 1964 og ’65.
Hljómleikaplata þeirra var hljóðrituð
við slæmar aðstæður á þriggja rása
upptökutæki. Hávaðinn í áhorfend-
um var slíkur að Bítlarnir heyrðu
ekki hver í öðrum og urðu að treysta
á að þeir væru allir fjórir að gera
sama hlutinn á sama tima.
Engir slíkir erfiðleikar steðjuðu að
Cheap Trick er hljómleikaplata
þeirra var hljóðrituð í Japan í apríl í
fyrra. Allar aðstæður voru hinar
beztu, en stemmningin á áhorfenda-
pöllunum var sú sama og hjá Beatles.
Cheap Trick er nefnilega Beatles
þeirra Japananna.
Þó að Cheap Trick hafi starfað í
mörg ár, sló hún ekki í gegn fyrr en
með hljómleikaplötunni. Upphaflega
var hún aðeins gefin út í Japan, en
vegna mikillar eftirspurnar í Banda-
ríkjunum var ákveðið að dreifa henni
þar einnig. Platan rokseldist — og
selt enn — og með laginu I Want You
To Want Me hefur Cheap Trick
væntanlega tryggt sér varanlegt nafn
í heimalandi sínu.
Hverjir eru svo þessir Cheap
Trick? Aðspurðir um fortíð sína
svara liðsmenn hljómsveitarinnar
með alls kyns lygasögum. Þeir líta
nefnilega fyrst og fremst á sig sem
hljómsveit dagsins i dag og að fortíð
þeirra skipti engu máli.
Cheap Trick flytur fyrst og fremst
hráa rokktónlist. Textarnir við lögin
eru mestmegnis meiningarlaust búll,
en það virðist ekki skipta aðdáendur
hljómsveitarinnar neinu máli. Kraft-
urinn í hljómsveitinni er aðalmálið.
Aðalmaður Cheap Trick er gítar-
leikarinn Rick Nielsen. Hann semur
flest laga hljómsveitarinnar og er
ábyrgur fyrir textunum. Aðrir í
hljómsveitinni eru Bun E. Carlos,
trommuleikari, Tom Petterson, bass-
isti, og Robin Zander, söngvari og
gítarleikari, sem jafnframt er hinn
vestræni draumur hverrar japanskr-
ar ungpíu ef marka má blaðaskrif.
Allir eru þessir menn þokkalegir
hljóðfæraleikarar. Þó er enginn
þeirra neinn afburðamaður á sínu
sviði, en saman hefur þeim tekizt að
verða stórnafn á einum af stærstu
hljómplötumörkuðum heimsins.
Margir hefðu gert sig ánægða með
minna.
-ÁT-
Van Halen — Van Halen II:
ÞRIÐJA VINSÆLASTA TÓNLISTIN
<. HKAP TRICK — Budokanplatan vakti á þeim verulega athygli í heimalandinu, Bandaríkjunum.
Cheap Trick A t Budokan:
Diskótónlist er vinsælasta dægur-
tónlistarformið í Bandaríkjunum um
þessar mundir. í öðru sæti er svokall-
að Adult Orientated Rock (AOR),
sem þýða mætti sem fullorðinsrokk.
Fulltrúar þess eru hljómsveitir eins og
Fleetwood Mac, Eagles og fleiri.
Þunga rokkið er áreiðanlega þriðja
vinsælasta tónlistarformið i dag.
Bandaríska hljómsveitin Van
Halen flytur eingöngu þungt rokk
með háværum, skerandi gítarsólóum
og jafnskerandi söng. Þó að þessi
hljómsveit hafi litla athygli hlotið til
þessa hefur hún þó notið mikilla vin-
sælda um nokkurt skeið, ef marka
má vinsældalista. Til dæmis er fyrsta
breiðskífa Van Halen búin að vera á
vinsældalistum í Bandaríkjunum i
um það bil eitt ár og er enn ein af
fimmtíu vinsælustu plötunum vestan
Þegar Van Halen sendi frá sér aðra
breiðskífuna sína fyrr á þessu ári
hlaut hún þegar í stað mjög góðar
viðtökur. Vafalaust er það mikið að
þakka einu lagi plötunnar, Dance
The Night Away, sem var gefið út á
tveggja laga plötu um svipað leyti.
Það lag er engan veginn dæmigert
fyrir Van Halen II, því að það
stendur öðrum lögum hljómsveitar-
innar mörgum skrefum framar.
Um tónlist Van Halen er það í
stuttu máli að segja að hún minnir
mjög á það sem hljómsveitirnar
Humble Pie, Aerosmith og jafnvel
Bad Company voru að gera fyrir
mörgum árum. En vinsældir plöt-
unnar Van Halen II eru ágætis sönn-
un þess að harða rokkið nýtur enn
vinsælda vestan hafs, þó að til dæmis
íslendingar séu mikið til hættir að
nenna að hlusta á það. Kannski á
tónlist Van Halen og annarra slíkra
eftir að ryðja sér til rúms hér á landi
aftur. Það verður tíminn að leiða í
ljós.
-ÁT-