Dagblaðið - 14.09.1979, Qupperneq 21
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979. ,________ 25
Silfurkórínn
syngurgamla,
góðarokkið
| Átti eina afsöluhæstu plötum síðasta árs
MALASKOLI.
.26908___
Þriðja hljómplata Silfurkórsins,'
Rokk Rokk Rokk, er fyrir stuttu
komin á markaðinn. Eins og nafn
plötunnar gefur til kynna er á henni
rokk, rokk og ekkert nema rokk frá
árunum 1955—65. Lögum plötunnar
er skipt í átta syrpur og eru fimm lög
eða lagabútar í hverri syrpu. Langt
innan við helmingur þessara laga
hefur áður komið út á islenzkum
hljómplötum.
„Skýringin á þvi hve fá lög frá
fyrsta áratug rokktímabilsins hafa
komið út á íslenzkum hljómplötum
er sú að á þeim árum var blómaskeið
danslagakeppni SKT,” sagði útgef-
andi Rokk Rokk Rokk, Svavar
Gests, i samtali við Dagblaðið. ,,Þá
var Tage Ammendrup nánast eini
plötuútgefandinn hér á landi og hann
hafði nóg með að gefa út lögin, sem
komu fram í danslagakeppnunum.”
Að sögn Svavars tók það langan
tíma að hljóðrita Rokk Rokk Rokk,
aðallega vegna þess hve erfitt er að ná
stórum hóp eins og Silfurkórnum
saman. Þá var einnig reynt að vanda
sérstaklega til allrar taeknivinnu á
plötunni.
Að vanda er Magnús Ingimarsson
itónmeistari Siifurkórsins. Hann sá
um allar útsetningar og stjórnaði
kórnum og undirleikurum. Þeir eru
ÍTómas Tómasson, bassaleikari, Ás-
geir Óskarsson, sem lék fingurbrot-
inn á allar trommur, Kristján
■Guðmundsson, píanóleikari, gítar-
leikararnir Þórður Árnason og
JGunnar Þórðarson og saxófónleikar-
'arnir Gunnar Ormslev og Rúnar
|Georgsson.
Lög plötunnar Rokk Rokk Rokk
eru öll erlend, vinsæl lög. Margir
textahöfundar koma við sögu, þeirra
á meðal Iðunn Steinsdóttir, Jón Sig-
urðsson, Ómar Ragnarsson, Ólafur
Gaukur og Magnús Ingimarsson.
Fyrsta platan, sem SG-hljómplötur
gáfu út með Silfurkórnum, kom út
fyrir jólin 1977. Sú næsta kom í
fyrrasumar — fyrir rétt rúmu ári —
og hlaut mjög góðar viðtökur. Hún
seldist í um átta þúsund eintökum og
mun hafa verið önnur mest selda
platan sem kom út í fyrra. Að sögn
Svavars Gests er ekki fyrirhugað að
gera aðra Silfurkórsplötu á þessu ári.
Hann taldi ekki loku fyrir það skotið
að ný plata kæmi út með kórnum á
næsta ári.
-ÁT.
Eitt verð ég að segja þér...er kominút:
SILFLRKORINN —
Tvær fyrri plötur kórsins hafa selzt dável, sérstaklega sú sem kom út I fyrrasumar. Ljósm.: Stúdíó 28.
Kvennatímar
í badminton!
• Danska, enska, þýzka, franska, ítalska,
spænska og íslenzka fyrir útlendinga.
• Innritun daglega kl. 1—7 e.h.
• Kennsla hefst 24. sept.
Næsta vor eru fyrirhugaðar námsferðir til:
Spánar, Ítalíu, Frakklands og Þýzkalands.
____26908_______________________HALLDÓRS
Um það bil fjörutíu hljóðfæraleik-
arar og söngvarar standa að hljóm-
plötunni Eitt verð ég að segja þér
. . ., sem nýkomin er út. Þessi
hópur, sem hefur að geyma marga
þjóðkunna menn úr heimi popp- og
klassískrar tónlistar, kallar sig einu
nafni Heimavarnarliðið. Útgefandi
Iplötunnar er miðnefnd Samtaka her-
stöðvaandstæðinga.
EUefu lög eru á plötunni Eitt verð
ég að segja þér . . . f fréttatilkynn-
ingu frá útgefandanum segir að leit-
azt sé við að raða þeim þannig á plöt-
una að þau myndi eina heild eða sam-
þykki. Flest eru lögin ný af nálinni.
Nokkur eru rokkættar, eitt með
diskótakti og annað reggae. Textar
plötunnar eru frá ýmsum tímum.
flestir nýir en nokkrir eldri. Meðal
annars er þarna Ijóð Guðmundar
Böðvarssonar Fylgd, sem Pálmi
Gunnarsson syngur.
Aðrir söngvarar á Eitt verð ég að
segja þér . . . eru Ragnhildur Gísla-
dóttir, Bergþóra Árnadóttir, Eiríkur'
Ellertsson, Þorvaldur Örn Árnason,
Margrét örnólfsdóttir og Karl Sig-
hvatsson. Þá kemur söngsveitin
Kjarabót víða við sögu.
Meðal hljóðfæraleikara má nefna
Björgvin Gislason, Sigurð Karlsson,
ÍJón Ólafsson, Pétur Hjaltested og
ipottinn og pönnuna við gerð plöt-
unnar, Sigurð Rúnar Jónsson, sem
leikur á fjölda hljóðfæra og sér um
stjórn upptöku.
Eitt verð ég að segja þér . . . var
tekin upp í Hljóðrita.
SIGURÐUR RUNAR - Pott
urinn og pannan við gerð plöt-
unnar Eitt verð ég að segja þér
6 vikna tímabil að hefjast. Einkum fyrir heima-
vinnandi húsmæður.
Holl og góð hreyfing.
Kennsla — þjálfun.
Morguntímar — dagtímar.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Gnoðarvogi 1 — Sími 82266.
HERSTÖBVAANDSTÆÐINGAR
GEFA ÚTHUÓMPLÖW
Jeff Lynn er geng-
inn i það heilaga
Gítarleikari og söngvari hljóm-
sveitarinnar Electric Light Orchestra,
Jeff Lynn, gekk öllum að óvörum í
heilagt hjónaband í síðustu viku. At-
höfnin fór fram með mikilli leynd í
Los Angeles í Bandaríkjunum. Ný-
FJÖLMENNIHJÁ
JAMESTAYLOR
James Taylor átti ekki von á neinni
stórkostlegri aðsókn þegar hann hélt
fjáröflunarhljómleika i Central Park
í New York á dögunum. Hann fékk
þó um 200 þúsund áheyrendur, sem
allir létu fé af hendi rakna til málefn-
isins sem safnað var fyrir;
uppgræðslu Central Park.
James veitti ekkert af þessari að-
sókn þvi að uppgræðslan kostar stór-
fé og borgarstjóri New York var
búinn að neita að veita svo mikið sem
sent til hennar. Borgin er nefnilega á
hausnum. íbúar hennar voru hins
vegar með á nótunum og framlag
þeirra ætti að nægja til að veita garð-
inum græna andlitslyftingu.
bökuð eiginkona hans heitir Sandi
Kapelson. Hún er 25 ára gömul —
sex árum yngri en Jeff — og er búsett-
í Los Angeles. Þau hjónakornin
kynntust þar fyrir þremur árum.
í fréttatilkynningu frá útgáfufyrir-
tæki ELO, Jet-Records, segir að upp-
haflega hefði verið ákveðið að þau
giftu sig í haust, en Jeff kann skýr-
ingu á þessum mikla flýti:
„Við vorum í frii í Los Angeles og
eitt kvöldið ákváðum við að gifta
okkur í snarhasti. Tveimur dögum
síðar var allt afstaðið.”
Fyrir þá aðdáendur ELO, sem allt
vilja vita um hagi hljómsveitarinnar
og liðsmanna hennar, þá eru Jeff og
Sandi nú á brúðkaupsferðalagi i
Sviss. Við skulum vona að þau séu
búin að skála fyrir sjálfum sér og vel-
gengni hljómsveitarinnar þar í landi,
því að nýjasta plata hennar,
Discovery, er þar í öðru sæti og lagið
Diary Of Horace •Wimp er númer
átta. — Það er reyndar helber tilvilj-
un aðíagið um Horace fjallar einmitt
'um þfeð þegar hann náði sér í konu og
kvæntist henni!
- ÁT