Dagblaðið - 14.09.1979, Blaðsíða 32
36
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1979.
' ' ™\
Verkfallsboðun samþykkt með 7 atkvæðum gegn 5:
Vinnustöðvunin víðtækari
en grafískir ætluðust til
—vegna skilnings og túlkunar vinnuveitenda
Að loknum fundi GSF i gær, þar sem samkomulagiö við vinnuveitendur var samþykkt. Annar frá vinstri (sitjandi) er Ásgeir
Ellertsson, formaður Grafíska sveinafélagsins. DB-mynd Hörður.
Þegar Grafíska sveinafélagið boð-
aði yfirvinnu- og vaktavinnubann
hinn 30. ágúst síðastliðinn, svöruðu
útgefendur með þvi að óska eftir þvi
við Vinnuveitendasambandið, að það
legði verkbann við vinnu grafiskra í
prentiðnaðinum.
„Útgefendur dagblaðanna meta
boðun á stöðvun vaktavinnu
grafískra þannig, að hún jafngildi í
framkvæmd vinnustöðvun,” sagði
Haraldur Sveinsson, framkvæmda-
stjóri og formaður í Félagi íslenzka
prentiðnaðarins, í viðtali við DB
laugardaginn 1. september síðastlið-
inn.
Skoraði FÍP á stjórn Vinnuveit-
endasámbandsins að afla heimildar
til að boða verkbann á alla vinnu
grafískra.
Ljóst var, að GSF leit á yfirvinnu-
og vaktavinnubann sitt sem takmark-
aða vinnustöðvun. Taldi félagið, að
unnt væri að vinna dagvinnu við dag-
blöðin. Samkvæmt skilningi og túlk-
un útgefenda varð vinnustöðvunin
því viðtækari en grafískir ætluðu, að
því er virðist.
Harka færðist
strax í leikinn
Þannig höfðu báðir aðilar að
samningaviðræðum um kjarasamn-
ing GSF og FÍP mismunandi skilning
á fyrstu aðgerðum. Hljóp mikil
harka í deilu aðila jtegar við fyrstu
aðgerðir.
GSF hélt almennan félagsfund
þegar á laugardag. Samþykkti hapn
verkfallsboðun sem svar við 'verk-
banni FÍP og VSÍ.,
Því hefur ekki verið andmælt, að á
félagsfundi GSF haft verið aðeins 13
félagar og að verkfallsboðun hafi
verið samþykkt með 7 atkvæðum
gegn 5 og einn hafi setið hjá. f félag-
inu eru 107 menn.
Kröfur GSF voru meðal annars um
nokkru meiri launahækkun en aðrar
stéttir höfðu samið um.
Vildu þeir að yfirborganir, sem
þeir höfðu haft, yrðu felldar inn í
kauptaxta og að samningstíminn yrði
eitt ár eða til 1. september 1980.
Þegar útgefendur gerðu tillögu á
sáttafundi með ríkissáttasemjara um
gerðardóm í málinu, höfnuðu graf-
ískir henni, nema gengið yrði að
ákveðnum skilyrðum af þeirra hálfu.
Vildu þeir að gerðardómurinn hefði
hliðsjón af yfirborgunum í umfjöllun
sinni og niðurstöðum. Féllu þeir frá
kröfu sinni um samningstímann og
samþykktu að hann yrði til næstu
áramóta í stað 1. sept. 1980.
Útgefendur og
grafískir hafna
gerðardóms-
hugmyndum
Sáttasemjari lagði mikla vinnu í
það á þrem sáttafundum með deilu-
aðilum að sveigja sjónarmið þeirra
að gerðardómslausninni. Gerðu til-
lögur hans ráð fyrir því, að gerðar-
dómur tæki til kaupliða og samnings-
tíma.
Engin leið reyndist fær til gerðar-
dómslausnarinnar, er vika var liðin
í samningaþófi. Benti þá flest til þess,
að samningar yrðu erfiðir og kynnu
að verða langvinnir. Þá flaug það
fyrir, að grafiskir hefðu sagt, að
verkfaliið myndi standa í 5 vikur hið
skemmsta. Þessari sögu mótmæltu
grafískir og reyndu meðal annars að
koma fram leiðréttingu í útvarpi. Það
tókst ekki.
Fiskumbúðir og
bráðabirgðalög
Óttast var, að vegna verkfalls GSF
kynni að koma til skorts á fiskum-
búðum fyrir útflutninginn. Könnun
DB virtist þó benda til þess, að birgð-
ir væru til nokkurs tíma, ef ekki yrði
þeim mun meiri aflahrota.
Mál þetta var rætt í ríkisstjórninni,
sem og stöðvun á útkomu dagblað-
anna, ekki sízt með hliðsjón af
rekstrarerfiðleikum þeirra, sem víða
voru talsverðir fyrir verkfall.
Óstaðfest er, að Steingrímur Her-
mannsson dómsmálaráðherra hafi
kannað afstöðu annarra ráðherra til
setningar bráðabirgðalaga til lausnar
deilunni um sinn. Hafi hann í fjar-
veru Ólafs Jóhannessonar gegnt emb-
ætti forsætisráðherra og þannig tekið
forystu í málinu.
Talið er, að ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins hafi lagzt gegn hug-
myndinni. Síðan hafi nokkur tími
liðið og Ólafur Jóhannesson kom
heim til starfa. Hafi það verið
skoðun hans, að ekki væri stætt á því
að setja bráðabirgðalög svo skömmu
fyrir samkomudag reglulegs Alþingis
10. október. Enda ekki reynt til
þrautar, hvort samkomulag gæti
náðst með deiluaðilum.
Samúðarverkbann
og blaðamenn
FÍP og VSÍ höfðu gefið í skyn, að
ef ekki tækist að semja við grafíska,
kynni að verða gripið til samúðar-
verkbanns á allar stéttir, sem við út-
gáfu blaðanna störfuðu. Útgáfu-
fyrirtækin gætu ekki borið kaup-
greiðslur og annan kostnað enda-
laust, vegna verkfalls GSF.
Hinn 11. september samþykkti
sambandsstjórn Vinnuveitendasam-
bandsins slíkt samúðarverkbann.
Tók það til prentara, bókbindara,
blaðamanna og verzlunarfólks hjá
útgáfufyrirtækjunum. Skyldi það
koma til framkvæmda hinn 23. sept-
ember, ef þá hefði ekki samizt.
Hefði til þessa verkbanns komið
mátti ætla að sú staða kæmi upp, að
hægt væri að semja á sama tima og
til sama tíma við þær stéttir, sem
starfa við útgáfu dagblaða og viku-
blaða.
Stjórn Blaðamannafélags íslands
hélt daginn eftir fund með launa-
málanefnd félagsins og trúnaðar-
mannaráði. Var þar tekin ákvörðun
um að boða til almenns félagsfundar
i dag. Skyldi á þeim fundi tekin af-
staða til þess, hvort svara ætti verk-
banni á blaðamenn og þá hvernig.
Ekki fór á milli mála, að fyrir fundin-
um lægi að taka afstöðu til verkfalls-
boðunar af hálfu félagsins, ef rétt
yrði talið að sýna einhver viðbrögð.
Vaktamálin og dag-
blöð alla daga
Á sáttafundum með ríkissáttasemj-
ara var þegar byrjað að ræðast við
meira og málefnalegar en verið hafði.
Engar fréttir bárust af efni viðræðn-
anna. Þó var talið að vaktamálin
hefðu verið tekin til endurskoðunar
og umræðu, meðal annars með hlið-
sjón af því, að a.m.k. einhver dag-
blaðanna kæmu út alla daga vikunn-
ar. Sú hugmynd er ekki alveg ný af
nálinni og þótti tækifæri til að undir-
búa slíkt framtak, ef verða mætti til
þess að greiða fyrir umræðu við aðr-
ar stéttir um það mál, og að snúa um
leið upp nýjum fleti í samningaþóf-
inu.
Svo fór þó, að samningar voru
undirritaðir með fyrirvara um sam-
þykki félagsfunda svo sem skylda er í
fyrrinótt kl. 01.
Sáttasemjari ríkisins, Guðlaugur
Þorvaldsson, sagði i viðtali við DB,
að aðilar hefðu lagt sig fram um að
ná samkomulagi enda hefði það
tekizt. í viðtölum við DB hafa tals-
menn beggja deiluaðila staðfest, að
sáttasemjari hafi átt góðan hlut og
ómetanlegan að því, hvernig til tókst,
aðeins tveim dögum áður en hann
tekur formlega við embætti ríkis-
sáttasemjara.
-BS.
Grænf riðungar famir heim
„Komum aftur næsta sumar”
„Við munum koma aftur til íslands
sumarið 1980, ef stefna stjórnvalda
breytist ekki. Við vonum að hvalfrið-
unarumræðan hér á landi muni leiða til
lokunar hvalstöðvarinnar og hvalveiði-
banns,” sagði David McTaggart leið-
angursstjóri Greenpeacesamtakanna
við brottför þess fræga fleys Rainbow
Warrior frá Reykjavík. Grænfriðungar
sigldu til Amsterdam og þaðan til
London. Hyggjast þeir beita sér fyrir
innfiutningsbanni á hvalaafurðum sem
seldar eru frá íslandi til Evrópulanda.
Þeim er full alvara að koma hingað á
ný að ári, standi málin óbreytt að
þeirra dómi, og þvælast fyrir hvalbát-
unum á miðunum.
Hvalfriðunarmenn reyndu að hindra
veiðar skömmu áður en þeir fóru heim
á leið, en varð fremur lítið ágengt.
Enda hafði Landhelgisgæzlari afvopn-
að þá að mestu með því að leggja hald á
gúmbátana sem notaðir voru við trufl-
un veiðanna. Verðmæti bátanna er
16—17 milljónir króna og grænfrið-
ungar telja Gæzluna halda þeim ólög-
lega.
GRAFÍSKIR
GAGNRÝNA
MISMUNUN
ÚTVARPSINS
—í f réttum af deilunni
Mjög hörð gagnrýni á fréttaflutning
útvarpsins af vinnudeilu útgefenda og
Grafíska sveinafélagsins kemur fram í
bréfi, sem grafískir skrifuðu frétta-
stjóra útvarpsins, útvarpsstjóra og út-
varpsráði í fyrradag.
„Það er að mati félagsins hrópleg
mismunun að neita að lesa upp ályktun
félagsfundar GSF frá 10. sept., en lesa
siðan upp athugasemdalaust tilkynn-
ingu frá sambandsstjórn VSÍ um mál-
ið,” segiribréfinu.
Þá bentu grafískir á, að í tilkynningu
VSI hafi verið farið rangt með.
Grafíska sveinafélagið hafi aldrei
hótað 5 vikna verkfalli hið minnsta.
Talsmenn félagsins hafi hins vegar bent
á það í viðtölum, að vinnudeilan gæti
dregizt á langinn, jafnvel í 5 vikur.
- BS
Phstot hFiB0
PLASTPOKAR