Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979..
sólogbirtu
Víetnamamir komnir:
„Þettaersem
draumur”
—nýja fóðurlandið
heilsaðimeð
Víetnamska flóttaf ólkið kom
hingað til lands í gær eftir langa og
stranga ferð frá Kuala Lunipur. Með
fólkinu komu Björn Þórleifsson og
Björn Friðfinnsson en þeir fóru utan
og völdu fólkið.
Björn Þórleifsson sagði við komu
fólksins í gær að flóttamennirnir
væru 34 talsins. Flestir eru ungir að
árum en í hópnum eru fjórar fjöl-
skyldur, fjórtr einstaklingar og einn
systkinahópur fjögurra systkina.
Alls tók ferðalagið 43 —44 tíma og
Meirihluti flóttafólksins, sem hingað kom, er ungur aö árum.
hópnum eru bæði fjölskyldur og einstaklingar, en alls komu 34 Vietnamar
til íslands.
DB-myndir Arni Páll.
var tiltölulega lítið hægt að sofa á
leiðinni. Síðasti áfanginn var frá
Kaupmannahöfn og var veður heldur
slæmt þar. Það var þvi fólkinu gleði
hve nýja landið heilsaði með björtu
og fallegu veðri, þótt nokkuð væri
kalt.
Björn sagði að fólkið væri lítið
farið að álta sig á þessum umskiptum
en tilfinningar þess lýstu feginleik, að
vera laust úr hinum ömurlegu flótta-
mannabúðum. Nú væri fólkið komið
í betri heim og þetta væri sem draum-
ur fyrir flóttamönnunum.
Lítið er hægt að tala við fólkið
ennþá þar sem aðeins ein stúlka í
hópnum talar ensku og frönsku en
hún hefur verið túlkur hópsins.
Flóttamennirnir voru valdir úr 60
manna hópi og var þá bæði farið að
óskum utanríkisráðuneytisins hér um
Börnin fengu öll pakka við komuna. Það er tvlræður svipur á snáðanum litla
sem hefur mátt reyna margt á sinni ungu ævi. Vonandi reynist hið nýja
föðurland honum vel.
fjölskyldur og ósk flóttamannahjálp-
ar um einstaklinga og sjúka. M .a. eru
tvö fötluð börn i hópnum.
Strax eftir komuna fékk fólkið mat
og hvild og siðan beið læknisskoðun.
Margt þarf að athuga, t.d. berkla,
malaríu og einnig má búast við því að
fólkið sé lúsugt og með kláðamaur.
Fólkið var þreytulegt en vingjarn-
legt. ísland og íslendingar tóku vel á
móti því og fengu öll börnin gjafir
við komuna. Strax í flugvélinni frá
Kaupmannahöfn voru menn vin-
gjarnlegir og hjálpsamir við fólkið.
Björn Þórleifsson mun verða með
fólkirtu fyrsta árið hérlendis, meðan
það venst vistinni hérlendis og býr sig
undir að komast úr í atvinnulifið.
Þegar hafa þeir Björn Þórleifssn
og Friðleifsson gefið fólkinu íslenzk
nöfn. Þau eru öll stutt, eitt eða tvö
atkvæði. Fólkið hefur tekið þeim
nöfnum vel og er farið að nota þau.
Reynt var að láta íslenzku nöfnin
líkjast þeirra upprunalegu nöfnum.
Síðan fá Víetnamarnir íslenzk nöfn
til frambúðar er þeir verða íslenzkir
borgarar.
- JH
Jóhann Jóhannsson formaður á Stapavíkinni er tiltölulega ánægður með lífið á Bakkafirði. Með honum til hægrí er „háset-
inn” á Stapavlkinni, Ólafur Eiríksson. Hún var lítil, fískhrúgan sem þeir köstuðu upp á bryggjuna þennan daginn.
DB-mynd Árni Páll.
Milljónaverðmæti á
handfærin á sumrin
—en dauft og innilokað líf á vetuma
„Við höfum verið á færum síðan 24.
júní og þetta hefur gengið sæmilega
_þegar gefið hefur,” sagði Jóhann Jó-
hannsson, eldhress formaður austur á
Bakkafirði, sem við hittum nýkominn
úr róðri fyrir skömmu. Hann gerir þar
út 3,5 tonna trillu, Stapavik, og unir
sæmilega ánægður við sitt.
„Þetta hefur verið óskaplega stirð
tíð, algert vonleysissumar, eiginlega
stanzlaus norðanátt. Eina vikan sem
var góð var þorskveiði-,,bannvikan”
þegar enginn mátti á sjó fara til þorsk-
veiða.
Fiskurinn sem hefur fengizt hefur þó
verið góður, eiginlega ágætisfiskur, og
við höfum fengið álika afla nú og i
fyrra en í færri róðrum,” sagði Jó-
hann.
„Útkoman hefur því verið sæmileg.
í júlíntánuði vorum við þrir á Stapavík-
inni og þá fengum við 13 tonn. Komu
2,2 milljónir króna til skipta milli
manna,” sagði Jóhann. „í ágúst
höfum við bara verið tveir og við
höfum fengið 12 tonn (29. ágúst) svo
skiptaverðmæti verður um eða yfir 2
milljónir.”
Jóhann kvað 12—15 trillur gerðar út
að staðaldri frá Bakkafirði og auk þess
kæmu aðkomubátar, aðallega frá Eski-
firði, með fisk yfir sumarið. Fyrri hluta
sumars er sótt út með öllu Langanesi og
er það tveggja og hálfs tíma stím.
Vinnudagurinn hcfst kl. 5—6 að
morgni hjá trillukörlunum. Nokkrir
stunda hins vegar netaveiðar á grunn-
slóð og hafa þeir haft góða veiði í
sumar.
Afli Bakkafjarðarbáta fer nær ein-
göngu í salt, aðeins smávegis er hert af
ýsu og þorski. Sjómenn staðarins eiga
saltfiskverkunarhúsið í sameign. Heitir
það Útver hf. Hefur verkunarhúsið
eflzt og dafnað þrátt fyrir óheppni er
gula kom þar upp vegna skemmda i að-
fluttu salti. Mikið hefur verið fjárfest i
tækjum og stefnir þar allt í framfara-
átl, aðsögn Jóhanns.
Jóhann kom til Bakkafjarðar frá
Kefiavík en eiginkona hans er frá
Bakkafirði. Keytpu þau sér hús á
Bakkafirði 1975. Stundar Jóhann
ýmsar veiðar á trillu sinni, grásleppu-
veiðar og þorskanetaveiðar, auk hand-
færaútgerðarinnar á sumrin. Á veturna
bregður hann sér suður og vinnur ver-
tíðarstörf, m.a. beitingavinnu.
„Það er gott að vera hér á Bakka-
firði. Það eru 70—80 manns sem eiga
hér heima. Fólki líður hér vel þó inni-
lokað sé hér og dauft á veturna.”
- ASt.
Ruttu út skinna-
vörur fyrir milljarö
Talsverð gróska virðist vera í út-
flutningi á skinnavörum, ef marka má
það, að á siðasta ári flutti Hilda h.f. út
fyrir um einn milljarð króna. í ár er út-
lit fyrir að útflutningsverðmætið verði
um hálfur annar milljarður. Þennan
árangur má þakka vandaðri fram-
leiðslu og hönnun og öflugri kynning-
arstarfsemi, segir í fréttatilkynningu
frá Hildu h.f.
Fyrirtækið hefur nú tekið að sér
söluumboð á erlendum mörkuðum
fyrir Gráfeld hf. Hilda tók nýlega þátt
í vörusýningu í Vejle i Danmörku, þar
sem skinnafatnaður frá Gráfeldi var
kynntur af Hildu í fyrsta skipti. Undir-
tektir voru góðar, að sögn forráða-
manna Hildu, og voru á sýningunni
seldar skinnavörur fyrir um sex
milljónir króna. -ÓV.
Vegavinnuf lokkur vinnur við
flugvallarlagfæringu
Vængir hættu að fljúga um mánaða-
mótin síðustu eins og alþjóð er kunn-
ugt. Kom þetta sér mjög illa fyrir ibúa
Árneshrepps því enginn vissi neitt fyrr
en við heyrðum það í fréttum útvarps-
ins um kvöldið. Mikið af sumarbörn-
um og aðkomufólki ætlaði sér að fara
burtu einmitt næstu dagana.
Adolf Thorarensen, sem sér um fiug-
völlinn á Gjögri, tókst að útvega tvær
litlar fimm manna fiugvélar sem fóru
tvær ferðir með þetta fólk. En Adam
var ekki lengi í paradis. Flugmálastjórn
sendi verkfræðinga til þess að mæla út
fyrir Gjögurvelli. Átti að hækka hann
og bera ofan í. Settu verkfræðingarnir
alls konar prik á völlinn og var þá alveg
stopp með flugið. Vegavinnuflokkur
Strandasýslu tók verkið að sér. — Voru
þeir að vinna að þessu i leiðindaveðri,
bæði rigningu og snjókomu.
Vængir hafa veitt afskekktustu stöð-
um þessa lands góða þjónustu undan-
farin ár. Hafa þeir flogið til Gjögurs
tvisvar í viku árið um kring. Eiga
Vængir dugmikla og örugga flugmenn.
Heyrði ég það á Árneshreppsbúum
að þeir treysta engum bctur að veita
þeim góða þjónustu en Vængjaflug-
mönnum.
Rikti almenn gleði i hreppum sl.
föstudag þegar það fréttist að Arnar-
flug tæki við rekstrinum og hefði
Vængjaflugmennina áfram i þjónustu
sinni.
Regina Thorarcnsen / abj.
Nyir mælar gefa vís-
bendingu um
Undanfarnar vikur hefur verið unnið
að þvi að koma fyrir svokölluðum
„þenslúmælum” í gömlum borholum á
vestanverðu Suðurlandi — alls átta
mælum.
Tilgangurinn er að fá vitneskju um
breytingu á þrýstingi eða þenslu í jarð-
skorpunni, sér í lagi slíkar breytingar
sem taldar eru verða á undan eða i
tengslum við jarðskjálfta.
jaröskjálfta
Fyrst var slíkum tækjum komið fyrir
á jarðskjálftasvæði í Japan 1971.
Hefur fengizt af þeim góð reynsla og
eru mælar þar nú þrjátíu.
Jarðeðlisfræðideild Veðurstofu ís-
lands hefur unnið að þessu hérlendis í
samvinnu við vísindamenn frá Carne-
gie Institution i Washington, D.C., þar
sem þessi tæki hafa verið hönnuð og
þróuð. -ÓV