Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979.
7
JÚMBÓFJARKI
í HEIMSÓKN
Margir furðufuglar hafa viðkomu
jsina á Reykjavíkurflugvelli á leið
sinni yfir hafið. Einn slíkur hafði við-
komu í vikunni en það er flugvél af
gerðinni DC-4. Slíkt er í sjálfu sér
ekki frásagnarvart þar sem fjarkarnir
svokölluðu eru vinnuþjarkar og hafa
reynzt vel þótt árin séu orðin mörg.
En hér var á ferðinni breyttur
fjarki, eins konar júmbófjarki. Vélin
er útbúin til vöruflutninga og hefur
fremsta hluta hennar verið breytt
verulega og líkist fjarkinn nú Boeing
747 júmbóþotu. Þessi breyting eykur
til muna rýmið i vélinni.
Að sögn Sveins Björnssonar hjá
Flugþjónustunni var hér um að ræða
vél frá Falcon Airways sem hefur að-
setur í Addison í Texas. Vélin var að
koma frá Bretlandi og hélt héðan til
Kanada.
Sveinn sagði að nokkuð mörgum
DC-4 vélum hefði verið breytt á
þennan hátt og væru þær aðallega
notaðar til bílaflutninga yfir Ermar-
sund en einnig fyrir almennan frakt-
flutning.
- JH
M
Júmbófjarkinn á Reykjavíkurflug-
velli.
DB-m.vnd S.
Innritun í almenna flokka fer fram kl. 17—
22 mánudaginn 24. sept.
NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR
Ráðherranefnd Norðurlanda
Norræna menningarmála-
skrifstofan f K-höfn
t Norrænu menningarmálaxkrifstofunni er laus til umsóknar staða
DEILDARSTJÓRA f deild þeirri er fjallar um samstarf á sviði almennra
menningarmála, svo og staða FULLTRÚA.
Nánarí upplýsingar um stöðuna má fá I menntamálaráðuneytinu, sbr. og
auglýsingu I Lögbirtingablaði nr. 75/1979. Umsóknarfrestur er til 1.
október nk. og ber að senda umsóknir til Nordisk minsterrád, Sekretar-
iatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK—1205
Köbenhavn K.
Menntamálaráðuneytið, 13. september 1979.
Góðir bílar
Ford Fairmont árg. ’78, silfurgrár með Chevrolet Citation árg. ’80. Nýr bfll.
vinyltopp. 8 eyl., sjálfskiptur með öllu. Blásanseraður, ekinn 10 þús., útvarp,
Hlifðarpönnur. Tilboð, samkomulag. sjálfskiptur, aflstýri og bremsur. Verð
kr. 7 millj.
BÉLAMARKAÐURINN
Grettisgötu 12-18 - Sími 25252