Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 28
frjúlst, áháð dagMað
FÖSTLJDAGUR 21. SEPT. 1979.
Deilan um uppsagnimar
í Þjóðleikhúsinu leyst:
Þjóðleik-
hússtjóri
hjó
Olíuviðskiptanefnd:
TVEIR NEFNDARMENN NEITA
AÐ FARATIL MOSKVU
—Yiðskiptaráðherra fer ekki heldur þrátt fyrír áskoranir samráðherra
„Viðskiptaráðherra bað mig að
fara til oliuviðræðnanna við Rússa,
en ég hafnaði því. Þcssi beiðni barstá
sama tima og sildarflotinn er
bundinn við bryggjur vegna deilna og
auk þess vorum við i oliuviðskipta-
nefnd aldrei skipaðir til að gera
viðskiptasamninga,” sagði Kristján
Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ
og fulltrúi sjálfstæðismanna i
oliuviðskiptanefnd, í viðtaii við DB t
gær.
,,Til stóð að fjölga i samninga-
nefndinni -og spurði ráðhera mig
hvort ég vildi fara, en ég hafnaði því.
Það er mitt mat að þeir menn sem
staðið hafa að þessum samningum i
mörg undanfarin ár séu þvi starfi
fullkomlega vaxnir,” sagði Björgvin
Vilmundarson bankastjóri, fulltrúi
Alþýðuflokksins i nefndinni í viðtali
við DB.
Aðrir nefndarmenn eru Valúr
Arnþórssón kaupfélagsstjóri, sem
staddur er í Mexikó, Jóhannes
Nordai seðlabankastjóri og lngi R.
Helgason, lögfræðingur. Ekki náðist
samband við þá til að kanna hvort
þeim hafi verið boðið til fararinnar.
Ljóst er að þeir fara ekki þar sem
viðræðunefndin var skipuð síðdegis í
gær.
Þórhallur Asgeirjson, ráðuneytis-
sjóri verður formaður hennar og
aðrir nefndarmenn forstjórar oliu-
félaganna þriggja og skrifstofustjóri
Olis.
Ráðherrar Álþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks lögðu hart að
viðskiptaráðherra, Svavari Gestssyni,
á ríkisstjórnarfundinum í gær að fara
með nefndinni til Rússlands, þar sem
svo mikið sé i húfi. Svavar telur ekki
þörf á þvi þar sem viðræðurnar séu
ekki á ráðherraplani, a.m.k. ekki í
fyrstu og för nefndarinnar hafi verið
vel undirbúin.
í gær greindi DB frá gagnrýni
margra stjórnmálamanna á þann þátt
undirbúningsins að skipa nefndina
ekki fyrr en rétt fyrir förina nú um
helgina. .GS.
1979
1979
19 77
iif.íKb
Meðvitundarlaus
ogílífshættu
Litla telpan sem í fyrrakvöld var flutt
úr brennandi húsi við Veghúsastíg var
enn í morgun meðvitundarlaus. Telpan
fékk ekki brunajár í óhappinu en alvar-
lega reykéitrun. Hún er talin í lífs-
hættu.
-A.St.
Þjóðleikhússtjóri ræður menn til
starfa og í samræmi við það segir hann
einnig upp starfsmönnum. Um það er
ekki ágreiningur. Hins vegar þótti leik-
urum miður að i uppsagnarbréfum
skyldi vitnað i tiltekin atriði í samning-
iUtn félagsins við leikhúsið, enda
nauðsýn þess ekki ljós.
| Taldi þjóðleikhússtjóri eftir atvikum
jrétt að virða þau sjónarmið. Gerði
'hann það síðan formlega í bréfi.
Uppsagnirnar eru að öðru leyti óbreytt-
ar og gildar samkvæmt lögum og
reglum.
-BS.
Dýrsprettur
við götuljósin
Það borgarsig sjaldnast að keppa við
umferðarljósin þó það geti munað
nokkrum sekúndum ef vel tekst til.
Ung stúlka með glænýtt bílpróf fór
flatt á þessu í gærkvöld á mótum
Hringbrautar og Hofsvallagötu. Hún
steig á bensínið og ætlaði að ná beygj-
unni niður Hofsvallagötu. Bíllinn
skrensaði til og lenti síðan á vegg. Öku-
maður og jafnaltíra hennar voru báðar
jfluttar í slysadeild, en eru litið mciddar.
Bíllinn er talinn nær því að vera ónýtur
en heill.
A.St./DB-mynd Sveinn.
Djákni vígður
íGrensássókn
— í annað sinn er biskup
vígirdjákna
Biskup íslands vigir á sunnudag
Örn Bárð Jónsson til djáknaþjónustu
i Grensássöfnuði í Reykjavík. Þetta
er öðru sinni er biskup vígir djákna,
en árið 1961 var Einar Einarsson
vígður til djáknastarfa í Grimsey.
Örn Bárður sagði í morgun, að
þetta yrði sjálfboðastarf hjá honum,
a.m.k. til að byrja með, en hans
draumur væri að djáknastarfið yrði
hálft starf, e.t.v. á næsta ári. Djákni
aðstoðar sóknarprest, sr. Halldór
Gröndal, predikar, húsvitjar og innir
af hendi margs konar þjónustu og
sálgæzlu.
„Þetta hefur staðið til í nokkra
mánuði,” sagði Örn, ,,en starfið
hefur lengi verið minn draumur.”
örn Bárður Jónsson er tæplega
þrítugur að aldri. Kona hans er
Bjarnfríður Jóhannsdóttir og eiga
þau fjögur börn. Þau hjónin hafa
verið mjög virk í samtökunum Ungt
fólk með hlutverk, sem starfað hefur
mikið innan vébanda Grensássafnað-
ar.
-JH.
Örn Bárður Jónsson, er vígöur verð-
ur til djáknaþjónustu í Grensássókn á
sunnudag.
DB-mynd RagnarTh.
1978
1979
I
Tryggingar íslenzkra fyrirtækja eriendis lögbmt:
Ekkert íslenzkt fyrir-
tæki hefur mht leyfi”
—segirráðherrann en samtganga lögbrotin fyrirsigígegnum alltkerfíð
„Nei, það er hreint og klárt mál,
ekkert íslenzkt fyrirtæki hefur fengið
leyfi mitt til að tryggja eignir sínar að
einhverju eða öllu leyti erlendis,”
sagði Magnús Magnússon trygginga-
málaráðherra i viðtali við DB í gær.
Viðtað er og viðurkennt af for-
svarsmönnum Eimskips og Olíufé-
lagsins Skeljungs að þau fyrirtæki
tryggja eignir srnar erlendis — og
kveðast ýmist gera það með vitneskju
eða leyfum þar til bærra yfirvalda.
í lögum sem staðfest voru vorið
1978 er svo kveðið á að ekkert fyrir-
tæki megi tryggja erlendis nema með
leyfi ráðherra og að fenginni umsögn
Tryggingaeftirlits ríkisins. Hvaðan
leyfi Eimskips og Skeljungs eru
fengin er því ekki ljóst eftir afdráttar-
lausa neitun tryggingamálaráðherra.
Grunur leikur á að fleiri fyrirtæki
séu einnig sek um brot á lögunum um
tryggingar hér heima „nema með
leyfi ráðherra” og koma þá Flug-
leiðir og ýmis dóttur- og systurfélög
þess til greina.
Með þvi að tryggja erlendis losna
félögin t.d. við sölnskatt af trygg-
ingaiðgjöldum, og eru því sek um
skattsvik auk brota gegn lögum um
tryggingar.
Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans
tjáði DB að þar væri ekki til sundur-
liðun á tryggingum eigna íslenzkra
fyrirtækja erlendis og t.d. trygging-
um vörusendinga. Þar var öllum upp-
lýsingaleiðum um málið lokað. Vísað
var á Gjaldeyrisnefnd bankanna.
Báðir yfirmenn Gjaldeyrisnefndar
bankanna voru í fríum í gær og
undirmenn eða ritarar ekki tiltækir.
Þar var því engar upplýsingar að fá
um yfirfærslur.
Ljóst er að gjaldeyrisyfirvöld geta
með yfirfærslubanni stöðvað trygg-
ingalögbrotin með neitun á yfir-
færslu fyrir iðgjöldum. Það hefur
ekki verið gert, fyrst tryggingarnar
eiga sér stað.
Ef leyfi er fengið til þess að tryggja
erlendis — sem ekki er í ráðherratíð
núverandi tryggingamálaráðherra —
þá ber að greiða gjald til Trygginga-
eftirlitsins. Yfirmaður þess eftirlits er
erlendis en hann hefur áður lýst þvi
yfir í DB að hann hafi aldrei fengið
til umsagnar umsókn um tryggingu
erlendis, eins og honum ber þó að fá,
ef leyfisumsókn er á dagskrá. Vænt-
anlega hafa því engar tekjur runnið
til Tryggingaeftirlitsins vegna leyfa til
trygginga erlendis.
Tryggingarnar erlendis geta því hér
eftir sem hingað til átt sér stað í blóra
við íslenzk lög, nema einhverjar emb-
ættismannadeildir grípi í taumana —
svo ekki sé talað um ríkissaksóknara,
æðsta vörð íslenzkra laga. -A.St.
á hnútinn
Vegna orðalags i tveim uppsagnar-
bréfum reis deila með samtökum leik-
ara og þjóðleikhússtjóra. Nú hefur
þjóðlei khússtjóri, Sveinn Einarsson,
afturkallað með bréfi þá tilvitnun í
samninga sem deilan reis af. Er því sú
deila úr sögunni, að sögn heimildar-
manns DB.
1978
1978
1978