Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979.
Nýr vaxtarbrodd-
ur íástralskri
kvikmyndagerö
— Ástralía hefur á si. átta árum sent frá sér fjölda athyglisverðra kvikmynda
málið var að koma myndunum á
markað út fyrir lándsteinana til að
skapa fjárhagslegan grundvöll fyrir
framleiðslu þeirra. Árið 1973 voru
framleiddar 15 myndir af fullri lengd
en þar af var engin sem náði út-
breiðslu erlendis og aðeins 2—3 sem
gengu það vel innanlands að þær
næðu endum saman fjárhagslega.
Árið 1975 var i fyrsta skipti tckin
áströlsk kvikmynd i „Directors Fort-
night” i Cannes en það var Sunday
Too Far Away sem Ken Hannam
leikstýrði. Hún fjallar um alburði
sem leiddu til verkfalla fjárklippara
1856 i Ástralíu og var myndin sýnd í
Fjalakettinum í fyrra. Einnig hirti
þessi mynd flest innlendra kvik-
myndaverðlauna þetta sama ár. Þar
með var ísinn brotinn og siðan hefur
fjöldi ástralskra mynda verið sýndur í
Cannes og öðrum kvikmyndahá-
tiðum og i fyrra hlaut t.d. myndin
The Chant of Jimmy Blacksmilh sér-
stök verðlaun I Cannes.
Leikstjórinn
Peter Weir
Einn þekktasti leikstjóri Ástraliu-
búa er líklega Peter Weir. Sína fyrstu
mynd, The Cars that ate Paris, gerði
hann 1974 og olli hún nokkrum
straumhvörfum í kvikmyndagerð
Ástralíu. En það var með myndinni
Picnic at Hanging Rock sem Weir
sýndi óumdeilanlega fram á hæfni
sina sem leikstjóri. Þetta er líklega
þckktasta ástralska myndin nú enda
hefur hún verið sýnd víða um Evrópu
og í Bandaríkjunum. Hún fjallar um
helgarferðalag stúlknahóps úr heima-
vistarskóla til Hanging Rock.
Myndin gerist um aldamótin 1900 og
i þessari örlagaríku ferð gerast ýmsir
dularfullir atburðir. Eftir þessar
góðu móttökur gerði Weir mynd sem
ber nafnið The Last Wave. Hún
fjallar um ungan lögfræðing sem fer
að grafast fyrir um ástæðurnar að
baki morðs á meðlimi eins ættbálks
innfæddra. Inn i þetta blandast svo
trúarbrögð, siðvenjur og yfirnáttúru-
legir hlutir. Myndin er talin mjög
spennandi og sérstæð fyrir augað
enda enginn aukvisi að baki kvik-
myndatökuvélarinnar en það er
Russel Boyd. Peter Weir vinnur nú
að myndinni Gallipoli.
Gamlar f réttamyndir
Annar efnilegur leikstjóri er
Donald Crombie. Þótt hann sé ungur
að árum á hann að baki fjölda
mynda, bæði heimildarmyndir,
sjónvarpsmyndir og svo myndir í
futlri lengd. Fyrsta mynd hans sem
náði alþjóðlegri viðurkenningu var
Caddie sem gerist á tímum kreppunn-
ar og er byggð á ævisögu ónafn-
greindrar þjónustustúlku. N'æst gerði
Crombie myndina the Irishman. Hún
gerist 1920 og fjallar um áhrif hinnar
öru þróunar þjóðfélagsins á fjöl-
skyldu írsks innflytjanda. Húsbónd-
inn er fastur fyrir breylingum og
smátt og smátt riðlast fjölskyldan þvi
viðhorf barnanna eru önnur en for-
eldranna. Nýjasta mynd Crombie er
Cathy’s Child sem hefur gengið
nokkuð vel. Hún er byggð á sann-
sögulegum atburði sem gerðist 1973.
Cathy og eiginmaður hennar, John,
eru innflytjendur. Eftir að hjóna-
band þeirra fer út um þúfur tekur
John 3 ára dóttur þeirra og fer með
hana úr landi á fölsku vegabréfi.
Myndin lýsir siðan baráttu móður-
innar til' að ná dóttur sinni til baka
með góðri hjálp blaðamanns sem
kemur mikið við sögu.
Ein umlalaðasta ástralska myndin
sl. ár er án efa Newsfront, leikstýrð
The Last Wave er ein þeirra áströlsku mynda sem gengið hafa vel.
Hér sést einn nemandinn úr heimavistarskólanum, en „Picnie at Hanging Rock’*
fjallar um skólaferðalag nemendanna til Hanging Rock.
af Phil Noyce. Myndin fjallar um
samkeppni tveggja fréttakvikmynda-
fyrirtækja og spannar 6 ára timabil
frá 1948 eða þangað til gerð frétta-
kvikmynda til sýningar í kvikmynda-
húsum leið undir lok. Hér er á ferð-
inni gífurlega sterk mynd og lýsir vcl
þjóðfélaginu á þessum tíma. Einnig
eru óborganlegar sumu gömlu frétta-
myndirnar sem notaðar eru í mynd-
inni.
Margt líkt
með íslandi
Það væri lengi hægt að telja upp
markverðar ástralskar kvikmyndir
enda hefur verið stiklað á stóru. Það
sem hefur gerl þessar myndir sér-
stæðar að dómi undirritaðs er að
Ástraliubúar hafa reynt að sækja
cfniviðinn til sögu landsins og reynt
þannig og raunar tekist að skapa
þjóðlegar myndir í stað þess að fara
út i að gera kvikmyndir i samkeppni
við háþróaðar kvikmyndaþjóðir eins
og t.d. Bandaríkjamenn. Þennan
punkt ættum við íslendinear ef til vill
að athuga betur þvi hér eigum \ið
nóg af góðum efnivið' \-' möri.'n
leyti má likja saman stuðning.
áströlsku stjórnarinnai lú'O \ið
kvikmyndagerð sína og svo þeirrar ís-
lensku nú. Þvi má búast við að næstu
ár skipti sköpum fvrir íslenska kvik-
myndagerð. Margar myndir eru i
framleiðslu og árangurinn ekki
kominn i Ijós. En ef við náum okkur
á strik líkt og Ástralíubúar þá
þurfum \ ið engu að kviða.
BSRB-forystan hvetur sitt fólk til að ræða kjaramálin:
„EKKIAÐ VÆNTA
STÓRRA SLAGS-
MÁLA NÚNA”
,,Ætli komi hreyfing á okkar fólk
fyrr en um áramótin. Ég held að ekki sé
að vænta stórra slagsmála í kjaradeil-
unni núna. Fæstir þora að bera ábyrgð
á að fara út í aðgerðir sem gætu grand-
að ríkisstjórninni. íhaldsstjórn myndi
hressa samtökin á ný!”
í þessum dúr m.a. voru vangaveltur
áhrifafólks úr BSRB sem DB ræddi við
um kjaramál opinberra starfsmanna.
Aðildarfélög BSRB halda væntanlega
fundi á næstunni og fjalla um kröfu-
gerð opinberra starfsmanna í nýjum
kjarasamningum. Samningar BSRB
hjafa verið lausir síðan i byrjun júlí. Þá
lagði bandalagið fram kröfur sínar.
Þann 11. júlí var haldinn fyrsti og eini
sáttafundurinn i deilunni. Enn hefur
ekkert svar borizt við kröfum BSRB og
annar fundur ekki verið boðaður.
Stjórn og samninganefnd BSRB hafa
hvatt félagsmenn sína til að ræða
kjaramálin og jafnfram skorað á ríkið
og sveitarstjórnir að hefja sem fyrst
viðræður til undirbúnings nýrri samn-
ingagerð.
BSRB stendur fast á þeirri afstöðu
að afnám vísitölubóta komi ekki til
greina og segir að ,,nú vanti 10—15%
upp á að kaup sé í samræmi við samn-
inga.”
Þá vilja opinberir starfsmenn að
ákvæðum kjarasamningalaga um lög-
bundið 2ja ára samningstímabil verði
nú þegar breytt þannig að samnings-
tímabilið verði framvegis samnings-
atriði.
Forysta BSRB gerir ennfremur þá
kröfu að kjarabætur í næstu samning-
um gildi frá 1. júlí 1979. -ARH.
83áraogveriðvið
símanní40ár
Fröken Gyða Guðmundsdóttir, sem
nú er orðin átttatíu og þriggja ára
gömul, hefur passað símann á Finn-
bogastöðum í Árneshreppi nú í 40 ár.
Er símaþjónustan i hreppnum mjög
góð. Eru nú tveir símatímar á dag, kl.
9—12 og kl. 3—6. Fröken Gyða er við
simavörzluna seinni símatímann en ung
og falleg stúlka fyrri tímann.
Regina Thorarensen/abj.
Vélhjólasendil
vantar hálfan eöa allan daginn.
Uppl ísíma 27022.
MMBÍAÐIB
Cortina 2000 sport
Gullfalleg Cortina 2000 árg. ’77, 2ja dyra sportbill var að koma 1 sðlu. Mjög
fallegur rauður og snyrtilegur bill. Er nú ekki komið að þér að konan þin fái
loksins góðan og fallegan bil? Til sýnis á staðnum.
BILAKAUP
11.1.1.1 11»11»JL
TnfnnmlTM^TTT^r
^iliimmTTTTiTnjTTmTTmíurrmTTInTT^: ■ ; ;!111;11 é!Ti 117!;. 17i:i'TT11'TT< 11iTTjiíiiTiint;i.
. SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030
t Nnsim Ufrnm>
! PLASTPOKAR
O 82655
bjálst,
óháð
rlarjhlaft .
j
SKSPtlllCtHO HlhlS’NS
M.S. Esja
fer frá Reykjavfk þriðjudaginn 25.
þ.m. vestur um land I hringferð og
tekur vörur á eftirtaldar hafnir:
ísafjörð, Siglufjörð, Akureyri,
Húsavik, Raufarhöfn, Þórshöfn,
Bakkafjörð, Vopnafjörð og
Seyðisfjörð.
Vörumóttaka til mánudags 24.
þ.m.