Dagblaðið - 21.09.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979.
Erlendar
fréttir
Hungurs-
neyð
vofir yf ir
f Kampút-
seu
Hundruð þúsunda í Kampútseu eiga
hryllilega hungursneyð yfir höfði sér á
næstu mánuðum, segja fulltrúar
bandarískrar hreyfingar sem aðstoðar
flóttamenn. Er jafnvel talið að þetta
gæti orðið ein versta hungursneyð sem
komið hefur í heiminum á þessari öld.
Kampútseumenn eru sagðir þarfnast
í það minnsta eitt hundrað og fjörutiu
þúsund tonna af matvælum á næstu
fjórum mánuðum. Hingað til hefur
aðeins tekizt að útvega og flytja til
þessa stríðsþjáða lands um það bil eitt
hundrað og fimmtiu tonn. Vegna
stríðsástandsins í landinu er talið að
ekki hafi tekist að ná nema 12% af
venjulegri uppskeru af ökrum landsins
í ár.
Fregniraf
köfnun
28fanga
reyndust
þýðingarvilla
Þýðingarvilla varð þess valdandi að
skilaboð frá sovézka andófsmanninum
Yuri Orlov komust rangt til skila i vest-
rænum fjölmiðlum fyrir nokkrum
dögum. í fregnum var sagt eftir Orlov
að tuttugu og átta fangar hefðu kafnað
i yfirfullum fangafiutningavagni síðast-
liðiðár.
Þetta reyndist rangt með farið i
belgisku blaði, La Libre að nafni. En
fréttin var síðan tekin upp víða á
Vesturlöndum.
Hin rétta þýðing á orðum Orlovs
var sú að tuttugu og átta fangar hafi
verið skildir eftir í yfirfylltum fanga-
vagni, hafi þeir verið þar i rúman
klukkutíma og átt mjög erfitt með and-
ardrátt vegna þrengsla og loftleysis.
Hafi fangaverðir látið bænir þeirra um
að hleypa þeim út sem vind um eyrun
þjóta.
Mið-Afríkulýðveldið:
BOKASSA KEISARA
STEYPT AF STÓU
Bokassa, keisara í Mið-
Afríkulýðveldinu, hefur verið steypt
af stóli og er jafnvel talið að hann
hafi yfirgefið landið. Franska út-
varpið birti þessar fregnir í nótt en
Mið-Afríkulýðveldið var áður frönsk
nýlenda og frönsk áhrif þar veruleg.
Fregnirnar hafði útvarpið frá
franska sendiráðinu i Banqui og
sagði ennfremur að David Dacko,
sem áður var forseti í landinu, hefði
tekið völdin í sínar hendur.
Franska útvarpið sagði ennfremur
að talið væri, að Bokassa keisari væri
nú á leiðinni til Líbýu en þaðan jafn-
vel til Frakklands. Þar á hann nokkr-
ar eignir og meðal annars kastala rétt
utan við París. Þar hefur verið
töluvert umstang að undanförnu og
eiginkona Bokassa sást í þorpi nærri
kastalanum i síðustu viku.
David Dacko, sem er frændi
keisarans, var við völd sem forseti
Mið-Afríkulýðveldisins þar til 1966
er Bokassa steypti honum af stóli.
Hinn nýi forseti ávarpaði þjóðina i
útvarpi í gær. Sagðist hann hafa
tekið völdin í sínar hendur þar sem
Bokassa væri ekki lengur fær um að
stjórna. Sjálfur væri hann eini
aðilinn sem valinn hefði verið sem
þjóðhöfðingi i frjálsum kosningum.
Nefnd á vegum nokkurra rikis-
stjórna í Afríku komst fyrir nokkru
að þeirri niðurstöðu að Bokassa
hefði sjálfur tekið þátt í að drepa
nærri eitt hundað skólabörn í ríki
sínu, sem neitað hefðu að ganga í
tilskildum skólaeinkennisbúningum.
Voru börnin barin til bana með
kylfum. Vitað var að Bokassa eða
menn hans höfðu staðið fyrir ýmsum
öðrum hryðjuverkum. Allt mun vera
með kyrrum kjörum i Mið-
Afríkulýðveldinú.
Bokassa keisari hefur verið einn airæmdasti harðstjóri i Afriku og hafði hann
gengið svo langt i skepnuskapnum að Frakkar, sem höfðu verið helztu stuðnings-
menn hans og Mið-Afrikukeisaradæmis hans, höfðu snúið við honum bakinu.
Hafði verið tekið fyrir alla aðstoð við Bokassa. Þegar hann tók við völdum var
hann forseti um skeið. Siðan lét hann útnefna sig keisara. Var sagt að hann hefði
eytt meginhluta þjóðtekna sinna það árið i kostnað við krýningarathöfnina.
m
BYSSAN REYND. Þarna miðar Sultan Ben Abdel Aziz prins af Saudi Arabfu
mikilli hermannaskammbyssu og austurrískir hermenn horfa á. Prinsinn sem er
varnarmáiaráðherra Saudi Arabiu brá sér nýlega i stutta heimsókn til Austurrikis
og notaði tækifærið og kynnti sér vopnabúnað hersins þar f landi.
Portúgal:
Eanes boðar
þingkosningar
2.desember
Eanes forseti Portúgal hefur á-
kveðið að kosið verði í landinu 2.
desember næstkomandi. Verður þá
reynt að bæta úr þeim stöðuga
vanda, sem verið hefur vegna stjórn-
málalegra erfiðleika í landinu.
Enginn flokkur eða flokkar hafa get-
að myndað fullstarfhæfa ríkisstjórn.
í fyrstu almennu þingkosningun-
um í Portúgal, eftir að lýðræðis-
skipulagi var komið þar á árið 1976,
varð sósialistaflokkurinn hlut-
skarpastur en fékk ekki meirihluta á
þingi landsins þar sem 263 þingmenn
sitja. Soares, leiðtogi sósíalista,
myndaði minnihlutastjórn og tókst
að vera við völd með því að fá aðra
flokka til að styðja mál stjórnarinnar
i einstökum málum. Þetta tókst þó
ekki nema fram í desemberárið 1977.
Þá gengu þingmenn kommúnista í lið
með hægri flokkunum og lýstu yfir
vantrausti á stjórn Soares. Hafði hún
þá setið að völdum í 16 mánuði.
Eanes forseti fól siðan hægri
flokkunum að reyna að mynda stjórn
en þeim tókst ekki að ná sam-
komulagi. Svo fór að Soares
myndaði nýja stjórn með stuðningi
hins íhaldssama Miðdemókrata-
flokks. Hún stóð þó ekki lengi og
síðan hafa verið tvær ríkisstjórnir
utanflokkamanna í Portúgal. Áhrif
þeirra eru takmörkuð og hafa þær
illa getað ráðið við efnahagsmálin,
sem eru i mjög bágu ástandi i
Portúgal.
Bandaríkin:
Fulltrúadeildin
felldi Panama-
samkomulagið
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
felldi í gær málamiðlunartillögu sem
gerði ráð fyrir að samningurinn um
Panamaskurðinn yrði fullgiltur.
Öldungadeild þingsins í Washington
samþykkti frumvarp sama efnis
síðastliðið vor. Samningurinn um
Panamaskurðinn var gerður á milli
stjórnar Panama og Jimmy Carters
Bandaríkjaforseta. Gerði hann ráð
fyrir því að skurðinum yrði stjórnað
af sameiginlegri stjórn Panama og
Bandaríkjanna fram til næstu alda-
móta. Þá á Panama að fá full yfirráð
yfir skurðinum.
Átti hin nýja skipan mála að
ganga í gildi hinn 1. október næst-
komandi. Vegna þess að fulltrúa-
deildin felldi frumvarpið um
fullgildingu samningsins verður
máliö að fara fyrir sérstaka
samstarfsnefnd þingdeildanna þar
sem reynt verður að komast að sam-
komulagi. Ef því verður ekki lokið
fyrir 1. október verður forsetinn að
gefa út sérstaka tilskipun um stjórn
skurðarins.
Ástæður fyrir því að ekki tókst að
fá nægilegan fjölda fulltrúadeildar-
þingmanna til að samþykkja1
samninginn eru taldar margar. At-
kvæðagreiðslan fór þannig að 203
voru andvigir en 192 samþykkir
fullgildingu samningsins. Því er
kennt um að margir þingmenn hafi
ekki talið rétt að fullgilda sáttmálann
við Panama nú er viðræður og deilur
um veru Sovétmanna á Kúbu standa
'sem hæst. Einnig er óróaástandið í
Nicaragua og El Salvador nefnt sem
ástæða. Einnig urðu margir banda-
riskir þingmenn reiðir er stjórnin i
Panama studdi Sandinista í
Nicaragua, er þeir steyptu stjórn
Somoza þar af stóli.