Dagblaðið - 21.09.1979, Side 15
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21 SEPTEMBER 1979.
19
G
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Enginn spáði Eyja-1
mönnum velgengni
ííslandsmótinu
Eyjamenn eru að vonum i sjiiunda himni yfir
árangri sínum í knattspyrnunni i sumar. Þeir sigruðu
ekki aðeins i íslandsmótinu heldur áttu þeir einnig
leikmann mótsins, Ársæl Sveinsson (valinn af
Morgunblaðinu) svo og markakónginn Sigurlás Þor-
lcifsson þótt hann léki með Víkingi í sumar. Sannar-
lega glæsilegt sumar.
Sncmma í vor kom út leikskrá yfir sumarið á
vegum Valsmanna. Þar var að finna spár allra
íþróttafréttamanna blaðanna og útvarps um loka-
stöðuna I íslandsmótinu. Spádómar kolleganna voru
nokkuð á sama veg — fleslir spáðu Val cða Skaga-
mönnum sigri og allir bókuðu Hauka í 2. dcildina.
Haukarnir féllu niður en hvorki Valur né Akranes
varð meistari.
Framarar voru ofarlega hjá öllum iþróttafrétta-
mönnum en þeir brugðust iliilega. Einnig voru Vík-
ingar slakari en almennt var búizt við og KR og
Keflavík sterkari en fyrirfram var vænzt. Það voru
þó Eyjamenn sem komu langmest á óvart af öllum
liðum. Eftir lalsverðan mannamissi var þeim spáð
hinum mestu hrakförum og það var gaman að sjá
hversu samhljóða spár íþróttafréttamannanna voru.
Hermann Gunnarsson útvarpinu, Ingólfur
Hannesson Þjóðviljanum og undirritaður voru allir
með Eyjamenn í 7. sæti í íslandsmótinu í sumar.
Gylfi Kristjánsson á Visi setti Eyjamenn í 8. sætið á
sinum lista. Guðmundur Guðjónsson spáði Eyja-
mönnum 5.-8. sætinu og sömu sögu var að segja
um Hall Hallsson. Það var þvi enginn scm spáði
Eyjamönnum sæti i efri hluta deildarinnar. Enda var
svo að íslandsmeistaratilillinn kom Eyjamönnum
sjálfum scnnilega mest á óvart.
-SSv.
Námskeið fyrír
frjálsíþróttaþjálfara
Dagana 3. lil 7. október mun fara fram þjálfara-
námskcið í frjálsum íþróttum. Leiðbeinendur verða
ekki af lakara taginu en það eru Bretarnir Joltn And-
crson, sem mun kcnna stökkgreinar, og Mike Winst,
sem mun sjá um kaslhliðina. Winst þessi hcfur kast-
að kúlu yfir 20 metra. Mikið hcfur verið rætt um
skort á leiðbeinendum i frjálsum íþróttum en hér
gefst mönnum tilvalió tækifæri til þess að mennta'
sig. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt fyrir
mánaðamót til Guðmundar Þórarinssonar eða til
ÍSÍ.
Simonsen fær
morðhótanir
Allan Simonsen, knattspyrnusnillingurinn hjá
Bareelona, á ekki sjö dagana sæla um þessar1
mundir. Fyrir skömmu barst forseta félagsins,
Nunes að nafni, hringing um miðja nótt frá skæru-
liðasamtökum. Sögðust samtökin hnfa Simonsen í
Italdi og yrði hann ekki látinn laus fyrr en félagið
grciddi stóra fjárfúlgu. Að sjálfsögðu hringdi Nunes
í Ailan sjálfan og var hann þá sleinsofandi heima hjá
sér eins og ekkert liefði í skorizt.
Málið er þó ekki bara svona einfalt og blöð á
Spáni hafa miktar áhyggjur svo ekki sé nú minnzt á
Dani, en Simonsen er danskur. Danir vilja endilega
að Simonsen komi bara heim og hætti þessu cn að
sjálfsögðu vill Barcelona halda í strákinn þar sem
hann er afburðaknallspvrnumaður.
Ránhótanir og fleira i þeim dúrcr Barcelona engin
nýlunda þvi félagið fékk iðulega slíkar hótanir á
meðan Jolian Cruyff lék með því. Sömu sögu var að
segja um Johan Neeskens.
Simonscn hefur einnig fengið hótanir um að hann
verði veginn úr iaunsátri en hann lætur sér fátt um
finnast og er hinn ánægðasti mcð dvölina á Spáni.
Þessar fregnir minna á atburð fyrir rúmum áratug er
George Best, scm þá var upp á silt bezla, fékk morö-
hólun frá eínhverjum hryðjuvcrkasamtökum. Fór
svo i einhverjum leiknum sem kappinn spilaði að
þcgar hann skoraði mark kom cnginn félaga hans til
að fagna honum. Þcir vildu einfaldlega ekki eiga það
á hættu að vera skotnir i misgripum fyrir Best.
K
íþróttir
Siguröur
Sverrisson
Barcelona kemur með
Borussia, sem varð Þýzkalandsmeisari
þrisvar, meistari í UEFA-keppninni
1979 og komst í úrslit í
Evrópukeppninni 1977 en tapaði fyrir
Liverpool 1:3 í Róm.
í vor skildu leiðir Simonsen og
Borussia og Barcelona keypti hann
fyrir mikla upphæð. Simonsen fær
óhemju laun hjá félaginu og er talið að
árstekjur hans séu yfir 100 milljónir á
ári skattfrjálst og eru þá ekki með-
reiknaðar tekjur fyrir að auglýsa
íþróttavörur.
Sló strax í gegn
Simonsen lék sína fyrstu leiki með
Barcelona I fjögurra liða keppni á
Mallorka í haust og sló strax í gegn.
Hann skoraði nokkur mörk, þar á
meðal tvö gegn FC Zurich. Eftir leikinn
sagði Tschik Cajkovski þjálfari Zurich:
„Allan Simonsen er nú þegar í sér-
flokki í liði Barcelona og hann á eftir
að verða ennþá betri þegar félagar hans
í liðinu hafa lært að leika með honum.
Simonsen er leikmaður á heimsrriæli-
kvarða og ég spái því að áður en langt
um líður verði hann vinsælasti leik-
maðurinn í spænsku knattspyrnunni. ”
Þýzka liðið 1 FC Köln tók einnig
árið 1977, árið á undan Kevin Keegan,
sem hér lék á dögunum. Allir íslenzkir
knattspyrnuunnendur þekkja
Simonsén því hann hefur leikið áður
hér á landi, bæði með danska lands-
liðinu og einnig með Borussia
Mönchengladbach gegn ÍBV í UEFA-
keppninni fyrir allmörgum árum.
Simonsen á mjög góðar minningar
frá Laugardalsvellinum, það var þar
sem hann lék sinn fyrsta landsleik árið
1972 þegar Danmörk vann ísland 5—2.
Þessi litli en snaggaralegi leikmaður,
aðeins 1.67 metrar á hæð vann hylli
íslenzkra knattspyrnuáhangenda.
Hann var maður leiksins og skoraði tvö
eftirminnileg mörk. Hann var einnig á
skotskónum gegn ÍBV, skoraði tvö
mörk. Það er því erfitt verkefni sem
bíður varnarmanna ÍA, að hemja
þennan skæða sóknarmann.
Árið 1972, eftir að hafa leikið með
danska landsliðinu á ólympiuleikunum
í Munchen skrifaði Simonsen undir
samning við þýzka liðið Borussia
Mönchengladbach. Honum gekk illa til
að byrja með í atvinnumennskunni en
þar kom að hann fékk tækifæri til þess
að sýna hvað í honum bjó. Hann sýndi
hvern stjörnuleikinn á fætur öðrum og
hann var einri af lykilmönnum
Hand- og körfuboltaver-
tíðin af stað um helgina
—Reykjavíkurmótin í báðum greinum á fulla ferð
Núna um helgina hefjast Reykja-
víkurmótin í hand- og körfubolta og
má þá segja að veturinn sé kominn,
a.m.k. íþróttalega séð, í fyrra voru
þessar tvær greinar í stöðugri baráttu
um áhorfendur og næsta öruggt var að
körfuboltinn hafði þar talsvert betur.
Var það í fyrsla skipti frá örófi alda að
fleiri áhorfendur komu að meðaltali á
körfuknattleiksleiki en á „þjóðar-
íþróttina” handknattleikinn. Ástæð-
jurnar kunna efalítið að liggja víða en
stærsta og vafalaust sú mikilvægasta
var sú að körfuknattleikurinn bauð ein-
[faldlega upp á meiri spennu en hand-
boltinn.
I sumar varalgcr metaðsóknað knatt-
spyrnunni. Ástæðan var einfaldlega sú
að íslandsmótið var mjög jafnt og
spennandi og l'yrir síðustu umferðina
gátu 5 lið unnið mótið. Körfuboltinn
,var ekki óáþekkur þessu í fyrra — þar
börðust lengst af 3 lið um sigurinn. Í
handboltanum varð hins vegar uppi á
teningnum algert einvigi Vals og
Víkings, rétt eins og verið hafði á milli
Akraness og Vals um nokkurra ára
skeið. Aðsóknin í knattspyrnunni datt
ekki mjög niður við þetta því lið ÍA og
Vals sýndu beztu knattspyrnuna hér á
Iandi. Slíkt ástand var bagalegra í
handboltanum því fólk sem vildi ein-
hverja spennu flykktist einfaldlega á
körfuknattleikinn.
■ Það var^ins vegar engin grein, sem
jkeppti við knattspyrnuna í sumar.
Fjölmiðlum var mjög um það kennt sl.
vetur hvernig fór með áhorfendur og
voru blöðin sér i lagi ásökuð fyrir að
vera neikvæð í garð handknattleiksins.
Vera má að eitthvað hafi verið til i því
en það var þá ekki að ástæðulausu.
Körfuknattleikurinn var hins vegar það
sem fólkið vildi fylgjast með og að
.sjálfsögðu fylgdu blöðin þeirri stefnu
að skrifa um það sem meiri athygli
vakti.
Nokkrar sviptingar hafa orðið hjá
handknattleiksliðunum i sumar. Sum
liðanna hafa misst menn og önnur
fengið menn í staðinn. Önnur félög
hafa bæði misst og fengið menn og fé-
lagaskipti hafa verið nokkur i sumar.
Eins og í fyrra eru allar líkur á að Valur
og Vikingur verði leiðandi félög i hand-
boltanum en Hafnarfjarðarliðin, FH
og Haukar, ættu bæði að verða sterk-
ari en sl. vetur. KR og Fram ættu bæði
að spjara sig og það verður gaman að
fylgjast með hinum ungu leikmönnum i
þessum liðum. Veturinn verður vafa-
lítið erfiður fyrir ÍR og HK en bæði
liðin eiga mjög efnilega leikmenn í
sínum röðum. Hvað um það. Það var
Reykjavíkurmótið, sem ætlunin var að
fjalla um. Fyrstu leikirnir verða á
sunnudaginn og hefst mótið kl. 14. Þá
leika Valur og ÍR í A-riðli. Liðunum 8
,er skipt í tvo 4-liða riðla. Að þeim leik
loknum verður svo leikur Víkings og
Fram í B-riðli og þá leikur Ármanns og
Þróttar í sama riðli. Siðasti leikurinn
verður svo á milli KR og Fylkis í A-riðl-
inum og er ráðgert að hann hefjist kl.
117.45.
j Körfuboltinn hefst með miklum
látum um helgina og þá verða háðar
jtvær umferðir og er ekki að sjá af því
jað körfuboltamenn séu í slakri æfingu.
Hjá flestum liðanna hefur verið vel æft
frá þvi um miðjan ágúst og sum lið-
anna voru meira að segja farin að hefja
æfingar fyrr. Öllum á óvart kom Tim
Dwyer aftur til Valsmanna þrátt fyrir
margfaldar yfirlýsingar forráðamanna
körfuknattleiksdeildar félagsins um að
hann væri örugglega ekki væntanlegur
til landsins á ný. Öll liðin hafa þá
örugglega náð sér í menn og fjögur
þeirra verða með leikmenn frá í fyrra.
Valsmenn með Dwyer, Fram með
Johnson, ÍS með Smock og Njarðvík
með Bee.
Fyrsti leikurinn í Reykjavíkurmótinu
verður á morgun kl. 14 og leika þá Ár-
mann og Fram. Að þeim leik loknum
verður síðan stórleikurinn i 1. um-
ferðinni — viðureign gömlu erkifjend-
anna KR og ÍR. Síðasti leikurinn
verður svo á milli ÍS og Vals. Mjög
erfitt er að spá í þessa leiki fyrirfram og
telja verður að miklar sviptingar verði í
Reykjavíkurmótinu þar sem flest lið-
anna eru mjög jöfn að getu.
Það verður stutt hvíld hjá leikmönn-
um liðanna því á sunnudag verður
önnur umferð mótsins. Hún hefst kl.
13.30 með leik Ármanns og KR. Þá
leika ÍR og ÍS og síðasti leikur dagsins
verður á milli Fram og Vals.
Þessi mynd er úr leik FH og ÍR i fyrra og sýnir glögglega að ekki voru alltaf margir áhorfendur á bekkjunum I Höllinni. Það
er Guðmundur Magnússon sem er þarna stórskelfdur á svip eftir að hafa misst af knettinum. DB-mynd Hörður.
Hilpert
áfram
meðÍA
Klaus Jiirgen Hilpert, Skagaþjálfar-
inn stórsnjalli, verður næsta örugglega
með liðið áfram næsta sumar. Það er
vilji bæði knattspyrnuráðs á Akranesi
og hans sjálfs. Hann kemur nú til
landsins á morgun eftir stutta ferð til
Þýzkalands og þá ætti allt að verða
klappað og klárt. Hilpert var kennari
við íþróttaháskólann í Köln áður en
hann gerðist þjálfari Skagamanna.
Hann fékk leyfi frá kennslu i eitt ár
en fór nú út til þess að vinna að þvi að
fá leyfi í eitt ár til viðbótar. Þessi tið-
indi hljóta að verða öllum knattspyrnu-
unnendum á Akranesi til mikillar
ánægju því Hilpert er vafalítið einhver
allra færasti þjálfari, sem hér hefur á
land stigið. Ekki aðeins er hann fær
þjálfari heldur þekkir hann inn á
meiðsl leikmanna betur en flestir aðrir
þjálfarar hér auk þess, sem mestu máli
skiptir, að vera geysilega vinsæll bæði
af leikmönnum og af allri alþýðu á
Akranesi. DB birti i sumar viðtáí við
Hilpert og kom þá glögglega fram að
þar var hæfur maður á ferðinni.
Ellert Schram, formaður KSt afhendir hér fyrirliða Blikanna, Vigni Baldurssyni, sigurlaunin i 2. deildinni.
Allan Simonsen er hér i leik með Borussia. Hann leikur nú I þriðja sinn á Islandi —
með þriðja liðinu.
Fyrri leikur ÍA og sænska liðsins FC
Barcelona fer fram á Laugardals-
vellinum nk. miðvikudag 26. september
og hefst klukkan 17.30. FC Barcelona
er núverandi Evrópumeistari bikar-
meistara og hefst titilvörn liðsins hér á
íslandi. Búizt cr við mikilli aðsókn að
leiknum þar sem um er að ræða eitt
frægasta knattspyrnulið heimsins með
stórstjörnur í hverri stöðu. Forsala
aðgöngumiða hefst nk. sunnudag á leik
ÍA og Vals á Laugardalsvellinum. Á
mánudag og þriðjudag verða miðar
seldir í anddyri veitingahússins Sigtúns
[klukkan 14 til 19 svo og í Versl. Óðni
og Eplinu á Akranesi og á
miðvikudaginn verða miðar seldir í
tjaldi við Útvegsbankann. Dómari
leiksins er Syme frá Skotlandi, þekktur
milliríkjadómari, sem áður hefur dæmt
hér á landi.
j í liði Barcelona er valinn maður í
hverju rúmi og er óhætt að fullyrða að
koma liðsins sé mesti knattspyrnu-
viðburður hérlendisí fjöldaára. Fram-
linan er ein sú skæðasta, sem hér hefur
leikið, Hans Krankl, Alan Simonsen og
Juan Carlos Heredia.
Allan Simonsen er vafalaust
þekktasti leikmaður liðsins, en hann
var kjörinn knattspyrnumaður Evrópu
Fœr hærri laun
en kóngurinn
Spænska landsliðinu hefur ekki
gengið sérstaklega vel á undanförnum
árum og hafa spænskir knattspyrnu-
menn því ekki verið mjög í sviðsljósinu
NÍFALDIR SPÁNARMEISTARAR
— hafa að auki unnið bikarinn 18 sinnum
FC Barcelona er eitt af þekktustu
knattspyrnufélögum heimsins i dag og
sannkallað stórveldi í knattspyrnu-
heiminum. Margir telja það ríkasta
knattspyrnufélag heimsins og benda á
að Barcelona hafi undanfarin ár keypt
til sin helztu knattspyrnustjörnur
Evrópu fyrir svimandi háar upphæðir
og borgað þeim hærri laun en þekkist
hjá öðrum stórfélögum.
Knattspyrna er í miklum hávegum
höfð á Spáni og áhuginn er óvíða meiri
en i Barcelona. Yfirleitt er uppselt á
leiki liðsins en leikvangur þess rúmar
90 þúsund áhorfendur. Það hefur ekki
spillt fyrir aðsókninni að FC Barcelona
hefur um margra áratuga skeið verið í
hópi beztu liða Spánar og barizt um
sigur í helztu mótunum þar. Níu
sinnum hefur félagið orðið Spánar-
meistari, siðast árið 1974 þegar
snillingurinn Johan Cruyff leiddi það
til sigurs og átján sinnum hefur það
orðið spænskur bikarmeistari, siðast
árið 1978.
Á síðastliðnu voru komst FC
Barcelona í úrslit Evrópukeppni bikar-
meistara og lék til úrslita við þýzka
félagið Fortuna Dusseldorf. Barcelona
vann 4—3 eftir æsispennandi leik, sem
framlengja varð áður en úrslit fengust.
Barcelona byrjar því titilvörn sína á
Laugardalsvellinum gegn Akurnesing-
um.
Það hefur aðeins einu sinni gerzt
áður að Evrópumeistari komi hingað
og leiki við íslenzkt lið. Það var árið
1975 þegar sovézka liðið Dynamo Kiev
keppti hér og mótherjarnir voru þá eins
og nú Akurnesingar.
Leikvangur FC Barcelona nefnist
Nou Camp, glæsilegur leikvangur sem
rúmar 90 þúsund áhorfendur, þar af 53
þúsund í sæti en 37 þúsund í stæði.
Stækkun er áætluð og mun leik-
vangurinn þá taka 100 þúsund áhorf-
endur. Á framkvæmdum að vera lokið
fyrir Heimsmeistarakeppnina á Spáni
1982 en þá mun Nou Camp verða einn
helzti leikvangur keppninnar.
Um árabil var útlendingum ekki
leyft að leika með spænskum knatt-
spyrnuliðum en því banni var aflétt
fyrir nokkrum árum. Barcelona var þá
ekki lengi að tryggja ,sér krafta
Hollendinganna Johans Cruyff og
Johans Neeskens, en tveir útlendir leik-
menn mega nú leika með spænsku
liðunum. Báðir voru heimsþekktir og
Cruyff talinn bezti knattspyrnumaður
|í heimi. Þegar hann fór frá félaginu
'árið 1978 var austurriski marka-
,kóngurinn Hans Krankl keyptur til
jfélasins og hann gerði sér lítið fyrir og
var langhæsti leikmaður spænsku
ideildarinnar sl. vetur. Og þegar
Neeskens hætti hjá Barcelona í vor
voru forráðamenn félagsins ekki lengi
að tryggja sér bezta leikmanninn sem
völ var á, danska snillinginn Allan
Simonsen frá Borussia Mönchenglad-
bach. Knattspyrnumann Evrópu 1977.
Borgíklípu
Björn Borg, mesti tennisleikari allra
tíma, tapaði í gær óvænt einni lotu í
[leik gegn lítt þekktum tennisleikara.
Angel Gimenez frá Spáni tókst að sigra
Borg 6—4 i einni lotunni en Borg vann
hinar 6—0 og 6—1. Þessi leikur var
háður í tennismóti sem nú fer fram i
Palermo á Sikiley. ítalinn Adriano
Panatta var i basli með Bretann John
Feaver en tókst loks að sigra hann 7—S
og 7—5 í hörkuleik.
þátt i keppninni. Þjálfari liðsins, hinn
heimsfrægi Hannes Weisweiler, sem
kom hingað til lands í fyrra hafði eftir-
farandi að segja um Simonsen:
„Hann er ákaflega duglegur, alltaf
á hreyfingu, getur platað and-
stæðinginn upp á eigin spýtur og er auk
þess markheppinn. Allan verður
stjarna í spænsku knattspyrnunni og ég
get aðeins sagt eitt ljótt um hann,
nefnilega að hann skyldi frekar velja
Barcelona en Köln.”
Joaquin Rifé, framkvæmdastjóri
Barcelona sagði:
„Það er hægt að treysta Allan
100%, hvort sem um er að ræða
æfingu eða leik. Hann skapar mörg
vandamál en öll hjá vörn and-
stæðinganna, enginn hjá mér né
meðspilurum sínum.”
Hans Krankl er einnig heims-
þekktur knattspyrnumaður enda verið
einn markhæsti leikmaður evrópskrar
iknattspyrnu mörg undanfarin ár.
jKrankl lék lengi með Rapid Vín og
Iskoraði mikið af mörkum, t.d. skoraði
hann 36 mörk keppnistímabilið 1974—
;’75 og hlaut að launum silfurskó
Adidas, árið eftir skoraði hann 32
mörk og 30 mörk keppnistímabilið þar
á eftir en 1977—’78 var hann í meiri
ham en nokkru sinni áður og skoraði
41 mark í 36 leikjum í 1. deildinni
austurrísku og vann gullskó Adidas
það árið. Sama vor lék hann með
landsliði Austurríkis í heimsmeistara-
keppnini í Argentínu og var þá i miklu
stuði, skoraði t.d. tvö mörk í 3—2 sigri
austurríska landsliðsins gegn því
vestur-þýzka.
Nú til dags eru markaskorarar eins
Krankl ekki á hverju strái og það kom
því ekki á óvart að stórlið Evrópu
reyndu að kaupa hann frá Rapid.
Barcelona var hlutskarpast og honum
var tekið með miklum fagnaðarlátum
er hann kom þar í fyrsta skipti, 8000
áhangendur liðsins voru mættir á flug-
vellinum eða álíka margir og sóttu leiki
Rapid Vín að meðaltali. Og Krankl
brást ekki vonum forráðamannai
liðsins, hann varð langmarkahæsti leik-
maður liðsins sl. keppnistímabil og
skaut aftur fyrir sig köppum eins og
Kempes og Bertoni.
iSpánverjar eiga þó mjög marga góða
leikmenn og hefur Barcelona ekki færri
en sjö slíka menn í sínum röðum.
Manuel Asensi, fyrirliði FC ,
!Barcelona og spænska landsliðsins, er
þeirra frægastur. Hann hefur verið í 10
ár hjá Barcelona og nýléga varð hann
þess heiðurs aðnjótandi að vera valinn
í heimsliðið sem lék við Argentínu.
Asensi er einnig formaður samtaka
spænskra atvinnuknattspyrnumanna
og stóð fyrir verkfalli þeirra sl. vetur
eins og frægt varð. Tókst honum að
bæta kjör knattspyrnumannanna svo
mikið að sú saga varð fleyg að hann
sjálfur fái nú hærri laun en sjálfur Juan
Carlos Spánarkonungur.
Aðrir spænskir landsliðsmenn eru
Migueli, 27 ára gamall vamarmaður,
jJose Sanchez, 22 ára gamall tengiliður,
Juan Carlos Heredia, 27 ára gamall
framherji, Francisco Martinez, 25 ára
gamall framherji, Carlos Rexach, 32
ára gamall framherji og Jesus Antonio
ide la Cruz, 32 ára gamall tengiliður.
Hans Krankl, einn mesti markaskorari Evrópu og landsliðsmiðherji Austurrfkis-
manna.
beztu framlínu Evrópu
—í henni eru þeir Allan Simonsen, Heredia og Hans Krankl—auk þeirra eru margir landsliðsmenn íliðinu