Dagblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979.
5
Jólasvipur verður til á Bögglapóststof unni:
Jón Jónsson -
Tókíó er von-
laus áritun
áböggli
— reitir fyrír nafn sendanda og viðtakanda eru á
nýju kössunum sem fást á kostnaðarverði
„Það er að koma dálítill jóla-
svipur á bögglapóststofuna,” sagði
Kristján^ Hafliðason deildarstjóri
þegar fréttamenn DB litu inn í
Hafnarhvol i gær. _ ______
„Fólk er byrjað að spyrja — allt of
oft um síðustu ferð fyrir jól en ekki
þá fyrstu og beztu,” sagði Kristján.
Bögglapóststofan í Reykjavík er
eina bögglapóststofan á íslandi sem
afgreiðir póst til útlanda. Tugir tonna
af pósti verða afgreiddir fyrir jólin.
Þrátt fyrir meira en 100% aukningu í
pósti frá því fyrir 10 árum, hefur
að staða og húsnæði ekki hreytzt i
heinu sem nemur.
„Þessu verður ekki afkastað
nema með samvinnu okkar og
fólksins,” sagði Kristján. „Við
höfum reynt að koma til móts við
sendendur með því að láta gera
pappakassa af þrem stærðum. Þeir
eru seldir á kostnaðarverði”.
Kassarnir kosta kr. 130, 200 og
250 eftir stærð. Þeir eru hannaðir
eftir þeirri reynslu, sem hér hefur
fengizt af stærðum algengustu
sendinga. Þetta þekkist sums staðar
erlendis og hefur alls staðar gefizt
vel.
„Jón Jónsson, Tokyo” er dæmi
,um utanáskrift sem veldur vand-
ræðum. Kannski gróft dæmi — en
svona hefur sézt. Svo kemur fólk
eftir hátíðar og rífst yfir því að
sending hafi ekki komið til Jóns i
Tokyo.
Það er afar áríðandi fyrir alla
aðila að utanáskrift sé vönduð og
greinileg. Sérstaklega er ástæða til að
benda á að samræmi verður að vera í
Hildur Blumenstein á Bögglapóststofunni haldahér á umbúðunum góðu sem pósturinn selur á
DB-mynd: Hörður.
Guðrún Ólafsdóttir
kostnaðarverði.
áritun á pakka og fylgiskjöl.
Pósturinn er tilbúinn að veita
þjónustu þeim sem nota lognið fyrir
lætin næstu daga fyrir jól. Nýju kass-
arnir fást á öllum póstafgreiðslum á
landinu. Það tekur aðeins um það bil
sekúndu að setja kassann saman.
Hann verður erfiðari, flöskuhálsinn
sem myndast oftast nær þegar líða
tekurnær jólum.
Allra síðustu forvöð eru að koma
bögglum i póst til Bandaríkjanna og
Kanada um kosningahelgina.
Allra siðustu forvöð eru að setja
böggla í póst til Evrópulanda,
annarra en Norðurlanda, hinn 7.
desember, og til Norðurlandanna
hinn 9. desember.
Þetta cru brottfarardagar flugvéla,
hinna siðustu sem með vissu flytja
póst til útlanda fyrir jólin. Um það
bil hálfum mánuði fyrr fara síðustu
skip með póst.
-BS.
Samstarfsnefnd fallaðra sem kynnti svör stjórnmálaflokkanna. Frá vinstri: Sigur-
sveinn D. Kristinsson, Ragnar Benediktsson, Magnús Kjartansson, Halldór Rafn-
arogGísli Helgason. * DB-mynd RagnarTh. Sig.
Svör stjómmálaflokkanna við spumingum fatlaðra:
„Uppistaða í mann-
réttindayfirlýsingu
fyrir fatlaða”
— og stefna að stærsta félagslega átaki sem gert
hefurveríðhérálandi
„Allir stjórnmálaflokkarnir hafa nú
svarað spurningum þeim sem sam-
vinnunefnd fatlaðra lagði fyrir þá.
Svör þeirra allra eru jákvæð og við
erum ánægðir með þau en við metum
þau ekki hvert fyrir sig. Þeim verður
komið á framfæri, og það er fólksins
að meta þau,” sagði Magnús Kjartans-
son, starfsmaður samstarfsnefnd-
arinnar, á blaðamannafundi í gær þar
sem hann afhenti svörin.
„Við teljum svör stjórnmála-
flokkanna fyrsta sporið í mótun heild-
arstefnu um kjör fatlaðra og mannrétt-
indi þeirra. Að koma á jafnrétti
fatlaðra og heilbrigðra kostar meira fé
en gert er ráð fyrir að enda búa fatlaðir
við erfið lífskjör og þjóðfélagið er fullt
af hindrunum.”
Svör stjórnmálaflokkanna fylla 16
venjuleg vélrituð blöð og þar af er svar
Sjálfstæðisflokksins helmingur
bunkans því svörum á þremur síðum
fylgir fimm síðna greinargerð.
Samstarfsnefnd fatlaðra telur svörin
mjög mikilvæg og að með þeim sé
stefnt i stærsta félagslega átak sem hér
á landi hafi verið gert. Eru þau talin
uppistaða í mannréttindayfirlýsingu
fyrir fatiaða.
„Við munum fylgja svörunum og
loforðunum eftir. Óskað verður eftir
því að Alþingi setji á stofn fasta sam-
vinnunefnd með fulltrúum allra flokka
og fulltrúum fatlaðra og unnið verði
eftir sameiginlegri áætlun að því að
hrinda i framkvæmd þeim fyrirheitum
sem svörin fela i sér,” sagði Magnús
Kjartansson.
Samstarfsnefndin lagði áherzlu á að
atvinna fyrir fatlaða væri eitt mikils-
verðasta mannréttindamál þeirra. Því
væri æskilegt að iaunþegasamtök og
samtök atvinnurekenda tækju þátt í
þessari baráttu. Vinnan væri öllum
hópum fatlaðra mikilvæg en hóparnir
væru margskonar, ekki aðeins þeir sem
í hjólastól eru heldur einnig hækjufólk,
blindir og andlega fatlað fólk.
Góðra gjalda væri vert að vinna vel
að endurhæfingu en mikilsverðara að
þjóðfélagið styddi fatlaða til að hjálpa
sér sjálfir, skapaði þeim atvinnu-
möguleika og aðstöðu á vinnustað og
til að komast leiðar sinnar. Væri það
arðsemishugsjón fyrir þjóðfélagið að
hrinda slíku í framkvæmd, eins og
Halldór Rafnar, formaður Blindra-
félagsins, orðaði það, en hann er einn
samstarfsnefndarmanna.
Fatiaðir ánægðir með f mmkvæði
Reykjavíkurborgar:
TILLIT TEKIÐ
TIL FATLAÐRA
— gangstéttir lagaðar, auknir sérflutningar
Samstarfsnefnd fatlaðra fór á
blaðamannafundi í gær lofsamiegum
orðum um það fordæmi sem Reykja-
víkurborg hefði sýnt með stofnun
nefndar sem í sætu fulltrúar allra
stjórnmálaflokka og fulltrúar
fatlaðra. Meginviðfangsefni hennar
hefur verið að fjalla um hvaða úr-
bætur mætti gera til að auðvelda
fötluðum að komast leiðar sinnar í
borginni.
Fyrir tilstilli nefndarinnar hefur
sérstakur bill verið í stanzlausum
flutningum fatlaðra dag hvern. Þurfa
margir slíkir á bílnum að halda til að
komast til og frá vinnu og eins til að
komast til dagnámskeiða eða dag-
dvalar á vistheimili fatlaðra við Há-
tún. Er nú í ráði að fjölga slíkum
flutningabílum.
Nefndin hefur og komið því til
leiðar að búið er að lagfæra gang-
stéttir niður allanLaugavegþánnig að
fatlaðir geta þar konfizt upp á og af
gangstéttum. Þá er og ákveðið fyrir
tilstilli nefndarinnar að gangstéttir
verði ekki byggðar nema gert sé ráð
fyrir umferð fatlaðs fólk.
Allt var þetta taiið góð byrjun, en
bent á margt sem enn væri ógert.
Fyrir blinda þyrfti t.d. að koma upp
hljóðkerfi við öll umferðarljós.
Þá var rætt um fáránlega
snjómokstursaðferð í Reykjavík er
snjó væri rutt af götum og upp á
gangstéttir. Gerði þetta flestum
gangandi mjög erfitt fyrir en lokaði
fötluðum allar leiðir til sjálfsbjargar í
umferðarmálum.
-A.St.
Allt vaðandi í
innbrotum
Illa virðist nú ára hjá einhverjum á
höfuðborgarsvæðinu þvi allt var
vaðandi í innbrotum og ránum um
helgina.
Brotizt var inn í hús við Grettisgötu
og þaðan stolið 50 þúsund kr. í reiðufé.
Innbrot var framið i hús við
Kastalagerði og þar rænt og ruplað og
skemmdir unnar.
Farið var inn í vinnuskúr við
Miðvang 41 í Hafnarfirði og stolið all-
miklu af naglabyssuskotum sem geta
verið hættuleg í höndum óvita.
Brotizt var inn í Hildu við Borgar-
tún 22, en órannsakað var hverju stoiið
var.
Þá var brotizt inn hjá Skalla i
Lækjargötu aðfaranótt sunnudags en
ekki var vitað hverju stolið var.
Þá var brotizt inn i Handið að
'Laugavegi 168 á laugardag og stolið
logsuðutækjum.
í gærmorgun kom í ljós að brotizt
hafði verið inn í byggingarvöruverziun
Byko i Kópavogi. Málið er í rannsókn.
-A.St.
Leiörétting
Nafn 8. manns á lista Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum misritaðist í
upptalningu Dagblaðsins á fram-
bjóðendum. Hann heitir Hannes E!
Halldórsson matreiðslumeistari.
Verksmiðjusala
Verksmiðjusalan er fíutt að Hverfísgötu 56
STRÆTISVAGN STANZAR VIÐ DYRNAR.
THboösverð á öHum vömm
Sérstaka athygli vekjum viö á
DÖMUDRÖGTUM ÚR ULL
VERÐ AÐEINS KR. 30.000.
Stakir dömujakkar kr. 20.000.
Stök pils kr. 10.000
Barnajakkar úr ull kr. 15.000
(stærðir 8, 10, 12)
Verksmiðjusaian
Barnaúlpur frá kr. 9.000.-
Buxur frá kr. 3.000.-
Skyrtur frá kr. 2.000.-
Blússur frá kr. 1.000.-
Peysur i úrvali o.m.fl.
OPIÐ TIL KL. 10
í KVÖLD
Hverfisgötu 56
Sími 12460
-A.St.