Dagblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 13
12 I íþróttir McEnroe nældi sér íenneinnsigur Bandaríski strákurinn John McEnroe vann opna Stokkhólms-mótið i tennis í annað sinn í röð i gær er hann lagöi Gene Mayer 6—7, 6—3 og 6—3. Mayer var í miklu stuði framan af og átti McEnroe fullt í fangi með hann. Honum tókst þó að sigra á endanum og frami hahs hefur verið ótrúlegur á skömmum tíma. Strákurinn hefur þótt vera kok- hraustur mjög og hann lýsti því yfir eftir keppnina i gær að hann væri engu lakari en þeir Björn Borg og Jimmy Connors, sem hafa verið konungar þessarar íþróttar um langt skeið. ’ John McEnroe Gene Mayer Söfnuðu f löskum fyrir hálfa milljón Fyrir nokkru gekkst körfuknattleiksdeild ÍBK fyrir nokkuð nýstárlegri fjársöfnun. Gengu félags- menn í hús og söfnuðu tómum gosdrykkjaflöskum og varö vel ágengt. Lætur nærri að þeir hafi safnað flöskum fyrir rúmlega hálfa milljón á aðeins tæpum þremur klukkutímum. Ekki hægt að segja annað en Keflvikingar séu vel „glerjaöir”. Innanhússmót UMFN Hið árlega innanhússknattspyrnumót Ungmenna- félags Njarðvíkur verður haldið dagana 24. og 25. nóvember nk. Ætlunin er að reyna að fá 32 til þátt- töku að þessu sinni en í þau tvö skipti sem keppnin hefur farið fram hafa 24 lið verið með. Þátttökutil- kynningar þurfa að hafa boriít fyrir 17. nóv. í síma 92-2095 (á skrifstofutima) eða í síma 92-1674 á kvöldin. Þátttökugjaldiö er kr. 30.000 og vænta Njarðvíkingar þcss að góð þátttaka verði nú, sem áður. Skagamenn fá liðsauka Nú mun næsta víst að Júlíus Pétur Ingólfsson, sem undanfarin ár hefur verið einn af burðarásum 3. dcildarliðs Grindvíkinga í knattspyrnunni muni halda til Akraness eftir áramótin. Júlíus er mjög lið- tækur knattspyrnumaður og mun ætla sér að leika með Akurnesingum á næsta ári. Ágæt búbót fyrir Skagamenn en að sama skapi slæmt fyrir Grindvík- inga að missa einn af sinum aðalmönnum. \ Stöðugaukningí Getraununum í 12. leikviku getrauna komu fram 5 seðlar með 11 réttum og var vinningurinn fyrir hvern kr. 453.000.- en 59 raðir reyndust með 10 rétta og vinningur fyrir hverja kr. 16.400.- Enn vex þátttakan í getraunum og á laugardag seldust um 130.000 raðir, sem jafngildir um 1/2 röð á íbúa. Til samanburöar má geta þess, að metvika í Danmörku jafngildir um 5 röðum á íbúa og i Noregi um 12 röðum á íbúa. Jafntefli Einn leikur var í gærkvöld háður í 4. deildinni i Englandi. Þá áttust við Tranmere Rovers og Port Vale í Liverpool. Jafntefli varð 1—1 og eru bæði liðin um miðja deildina. íþrótfir Íþróftir DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979. íþróttir Einbeitnin skin úr andlitum þeirra Kristjáns Ágústssonar, Val og Árna Guðmundssonar, KR er þeir reyna báðir að ná til knattarins. KR hafði betur á endanum f gær og sigraði f leiknum. " DB-mynd Hörður. Ahugamenn í frjálsum íþróttum fengu greiðslur undir borðið Fjölmargir frjálsíþróttamenn, sem að nafninu til eiga að heita áhugamenn í íþrótt sinni, hafa verið staðnir að þvi að þiggja greiöslur fyrir keppni að því er John Holt, forseti Alþjóöasambands áhugafrjálsíþróttamanna, sagði í gær. Hefur nú verið ákveðið að reyna að stöðva þessa þróun, þótt í rauninni sé þaö ákaflega erfitt í framkvæmd. endur fengju greitt fyrir þátttöku, hafði gengið lengi. Greiðslurnar eru mjög mismunandi. Sumir keppenda fengu allt upp í 800 sterlingspund (650.000 ís. kr.) fyrir að taka þátt í einu stórmóti. Edwin Moses var einn þeirra er fékk svo háa greiðslu auk þess sem hann fékk fría flugmiða til og frá keppnisstað. Voru þeir metnir á yfir 500 sterlingspund (rúmlega 400.000 ísl. kr.). Núverandi áhugamannareglur Breta leyfa greiðslur upp að vissu marki en það sem hér um ræðir er langt utan þess ramma. ,,Það er leiðinlegt til þess að vita að þrátt fyrir að ýmsum hömlum varðandi áhugamenn í frjáls- um íþróttum hafi verið létt af síðan á Ólympíuleikunum í Möntreal 1976 skuli keppendur þiggja greiðslur frá mótshöldurum, auk greiðslna sem þeir fá fyrir að auglýsa íþróttavörur,” sagði John Holt ennfremur. Ekki hefur verið ákveðið hvaða ráð- stafanir verða gerðar vegna þessa máls en víst er að þetta kemur áðurnefndum íþróttamönnum illa því Ólympíuleik- arnir í Moskvu eru skammt undan. Gæti svo farið að þeim yrði meinuð þátttaka þar. Fjóra sterka vantar hjá Skotum Margir af frægustu íþróttamönnum heims eru meðal þeirra er sekir eru fundnir um að_hafa þegið beinharðar peningagreiðslur fyrir keppni i mótum. Þar á meðal má nefna þrefaldan heims- meistara í millivegalengdum, Sebastian Coe, spretthlauparana Don óuarrie °g Alan Wells, ólympíumeistarann í 400 metra grindahlaupi, Edwin Moses, auk þeirra Geoff Capes kúluvarpara og þokkraaðra. Þetta kom fram er landssamband brezkra áhugafrjálsiþróttamanna gekkst fyrir rannsókn vegna þessa. Sterkur orðrómur þess efnis að kepp- Jock Stein, framkvæmdastjóri skozka landsliðsins, tilkynnti í gær 29 manna hóp, fyrir Evrópuleikinn gegn Belgum í Brussel í hæstu viku. í hópinn vantar þá Archie Gemill, scm var fyrir- liði liðsins í síðasta leik, Andy Gray og Gordon McQueen. Þá dró Kenny Burns sig tii baka úr hópnum í gær- kvöld vegna nefbrots er hann hlaut i| leik Southampton og Nottingham Forest á laugardag. Hópurinn sem Stein valdi er þannig skipaður: Alan Rough (Partick), George Wood (Everton), George Burley (Ipswich), Eddie Gray (Leeds), Alan Hansen (Liverpool), Sandy Jardine (Rangers), Iain Munro (St. Mirren), David Narey (Dundee United), Tony Fitzpatrick (Bristol City), Asa Hartford (Everton), Alex Miller (Aberdeen), Graeme Souness (Liverpool), John Wark (Ipswich), Kenny Dalglish (Liverpool), Arthur Graham (Leeds), Joe Jordan (Man- chester United), Derek Johnstone (Rangers), John Robertson (Nottm. i Forest) og Ian Wallace (Coventry) Mjög jöfn keppni er í 2. riðli Evrópu- keppninnar og eiga allar þjóðirnar utan Norðmenn sigurmöguleika. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979. 13 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir S> KR-ingar sýndu hvers þeir eru megnugir er á reynir —sigruðu Valsmenn68-59 í úrvalsdeildinni í körf uknattleik og opnuðu hana upp á gátt „Þetta var ekki neitt sérstaklega góður leikur af okkar hálfu en með þessum sigri sýndum við að KR er toppliöið á íslandi í dag,” sagði KR- ingurinn Jón Sigurössn og Ijómaði allur eftir að KR hafði lagt Valsmenn að velli fyrstir allra liða í vetur. Loka- tölur urðu 68—59 KR í hag eftir að staðan í hálfleik hafði verið 32—29 KR í vil. KR-ingar voru vel aö þessum sigri komnir og liðið sýndi hvers það er megnugt þegar á hólminn er komið. Tæplega 2000 áhorfendur voru í Höll- inni í gærkvöld og með þessum sigri sínum hefur KR galopnað úrvalsdeild- ina á nýjan leik. Leikurinn í gærkvöld var spennu þrunginn allt frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Stuðningsmenn KR virtust 1 miklum meirihluta á meðal áhorfenda og stemmningin var geysi- lega mikil. Valsmenn höfðu frum- kvæðið allt frá byrjun en mjög lítið var skorað framan af. Jón Sigurðsson fékk strax á 3. mínútu slæmt högg á lærið en lét engan bilbug á sér finna og var tví- mælalaust maðurinn á bak við sigur KR-inga í leiknum eins og svo oft áður. Sannarlega ekki ónýtt að hafa slikan leikmann innan sinna vébanda. Þegar fjórar og hálf mínúta var búin af leikn- um var staðan 7—6 Val i hag. Þá lok- aðist hreinlega fyrir allt í sókninni hjá KR og Valsmenn juku forskotið stöð- ugt. Það var sama hvað KR-ingar reyndu til að skora — boltinn vildi ekki ofan í körfuna. Marvin Jackson mis- notaði þrjú vítaskot í röð og KR skoraði ekki stig i 5 og hálfa mínútu — heilar 330 sekúndur! Á meðan bættu Valsmenn við sinn stigafjölda og loks þegar KR skoraði sitt 8. stig var staðan orðin 13—8. Valsmenn áttu svo næstu 8 stig og staðan breytist i 21—8 Val i hag og rúmar 8 mínútur til leiksloka. Eins og hendi væri veifað gengu lukkudísirnar í lið með KR og nú skoruðu Valsmenn ekki sdg í heilar 4 mínútur. Þann tíma notuðu KR-ingar til að jafna metin, 21—21 og allt á suðupunkti í Höllinni. Valsmenn komust í 25—21 en KR var mun sterk- ara lokakafla hálfleiksins og leiddi í leikhléi 32—29. Mjög Iág stigaskorun. Varnir liðanna voru afar sterkar en þar ofan á bættist að hittnin var ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir. Valsmenn náðu strax forystu í byrj- un síðari hálfleiksins og héldu henni framan af. Þegar 8 mín. voru af síðari hálfleik komst KR yfir — 43—42 en Valsmenn svöruðu strax 44—43. KR komst yfir á nýjan leik og þegar síðari hálfleikurinn var nákvæmlega hálfn- aður var staðan 47—44 KR í vil. Þá fékk Marvin Jackson sína 5. villu og sýndist átt hverjum um réttmæti þess dóms. KR-ingarnir voru ekki allt of hressir með þessa ákvörðun og áhorf- endur bjuggu sig nú undir að sjá Vals- menn síga framúr. En hið gagnstæða gerðist. KR-ingar undir stjórn Jóns Sigurðs- sonar stöppuðu stálinu hver í annan og breyttu leikaðferð sinni. Þeir komust i 51—46 en Valsmenn minnkuðu muninn í 48—51. Þá skoraði Árni Guðmunds- son með gullfallegu langskoti og munurinn varð aftur 5 stig, 53—48. Minnstur varð munurinn eftir þetta 3 stig — 55—52 KR í vil en lokakaflann jókst forystan smám saman og þegar tvær mínútur voru eftir var staðan 66— 59 KR i vil. Ekki öll nótt úti enn fyrir Valsmenn. Kristján Ágústsson fékk tvö vítaskot en hitti úr hvorugu og þar með datt botninn endanlega úr spili Vals- manna. Undir lokin komst nokkurt los á leikinn en lokaorðið átti Geir Þor- steinsson er hann skoraði úr tveimur vítaskotum af miklu öryggi. Sigur KR í höfn og tvö dýrmæt stig í safnið. Sigur KR i gærkvöld sannaði það að KR er sterkast þegar mest á reynir. Liðið sýndi mikinn baráttuvilja þrátt fyrir afar erfiða byrjun og náði smám saman undirtökunum í leiknum. „Ferðin til Frakklands sat nokkuð í okkur,” sagði Jón Sigurðsson. „Við ferðuðumst mikið í langferðabílum og liðið var einfaldlega nokkuð seint í gang vegna þess og svo vegna erfiðra æfinga að undanförnu. Þegar við vorum orðnir heitir var þetta ekki nein spurning og við hlökkum til vetrarins. Valsmenn eru með gott lið en við vorum sterkari að þessu sinni.” Orð að sönnu hjá Jóni, sem sjálfur var aðal- maðurinn á bak við sigur KR. Marvin Jackson lauk flestum sóknarlotum KR á meðan hans naut við en þegar hann veik af vellinum tók Jón við hlutverki hans og skilaði því frábærlega. Til marks um það má geta þess að hann skoraði 18 stig í siðari hálfleiknum en ekki nema 7 í þeim fyrri. Þá átti Marvin Jackson góðan leik með KR en var stundum full ákafur í vörninni og fékk þannig á sig villur. Geir blómstraði í síðari hálfleiknum 'eins og reyndar flestir leikmanna KR. Þó virðist hann ekki eins sterkur og hann var í fyrra með Njarðvíkingun- um. Garðar Jóhannsson byrjaði illa en endaði leikinn að sama skapi vel. Þá átti Árni góðan leik lengst af þótt ekki skoraði hann mikið. Birgir átti góða kafla en urðu nokkrum sinnum á ljót mistök. Hjá Valsmönnum var Torfi Magnús- :son beztur. Leikmaður sem alltaf heldur haus — hvað sem gengur á. Sterkur í vörninni og mjög öruggur í sókn. Tim Dwyer var með rólegra móti og eyddi mestri orku sinni í þras vegna ídómgæzlunnar, sem bitnaði þó engan ■veginn meira á öðru liðinu. Þá var ;framkoma hans í lok leiksins ákaflega jóíþróttamannsleg er hann gekk af leik- velli án þess að „taka hringinn” með ifélögum sínum. Sömu sögu má reyndar jsegja um nokkra aðra Valsmenn. Teiðinlegt að sjá slikt og Valsmenn jverða að temja sér að taka tapi eins og jsigri. Lífið er ekki alltaf einn dans á jrósum og þaðgeta ekki alltaf veriðjól! 1 Kristján Ágústsson átti mjög góðan fyrri hálfleik en féll nokkuð niður eins jog félagar hans í þeim síðari. Þórir og Ríkharður voru rólegir en Jóhannes átti ágæta spretti. Þrátt fyrir tapið er enginn vafi á að Valsmenn verða í ifremstu röð í vetur eins og í fyrra. Stig KR: Jón Sigurðsson 25, Marvin Jjackson 16, Geir Þorsteinsson 12, Birg- !ir Guðbjörnsson 6, Garðar Jóhannsson 4, Ágúst Lindal 3, Árni Guðmundsson 2. Stig Vals: Tim Dwyer 18, Torfi |Magnússon 16, Kristján Ágústsson 12, Ríkharður Hrafnkelsson 6, Jóhannes iMagnússon 4, Þórir Magnússon 3.SSv. I Staðan i úrvalsdeildinni: Valur 4 3 1 333 Njarðvík 3 lÍR 3 KR 3 |ÍS 4 Fram 3 316 6 2 1 242-227 4 2 1 242—234 4 2 1 212—205 4 322-338 2 238—266 0 1 3 0 3 Walshans vísað úr landinu Bandariski körfuknattleiksmaðurinn Jeff Walshans, sem leikur með Kefla- víkurliðinu í 1. deildinni í körfuknatt- leik, lék sinn siðasta leik um sl. helgi hér á landi. Ástæðan er sú að Walshans er sekur fundinn um að hafa selt fíkni- efni á Keflavíkurflugvelli. Að sjálf- sögðu þarf ekki að taka það fram að —seldi f íkniefni á Keflavíkurf lugvelli sala fíkniefna er bönnuð hér á landi og útlendingaeftirlitið mun að öllum lik- indum vísa honum úr landi fljótlega en hann á fyrst yfir höfði sér fangelsisvist vegna þessa. Þessi missir mun vafalítið koma Kcflvíkingum illa í hinni hörðu keppni 1. deildar og er ekki að svo stöddu Badmintonlandsliðið heldur á NM í Noregi íslenzka badmintonlandsliðið heldur á fimmtudag'til Noregs til þátttöku á Norðuriandameistaramótinu í badmin- ton, sem haldið verður i Tromsö. Þau, sem halda á mótið héðan eru Kristín Berglind Kristjánsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Broddi Kristjánsson og Jóhann Kjartansson. Oneitanlega sterkur hópur á pappirnum en siðan er bara spurningin hvernig gengur er á hólminn er komið í Noregi. Flest ef ekki aHt bezta badmintonfólk Norður- Jóhann. landa mun verða með á mótinu og margir keppenda voru með á heljar- miklu badmintonmóti, sem fram fór í Randers um helgina. Vafalítið verður róðurinn þungur sem endranær hjá ís- lenzku keppendunum en badminton- iþróttin hefur verið í stöðugri framför hér á landi siðustu árin. Fararstjóri landsliðsins verður Rafn Viggósson en hann er jafnframt formaður badmin- tonsambandsins. vitað hvort þeir muni reyna að verða sér úti um annan Bandaríkjamann á næstunni eður ei. Auk þessa fíkniefna- brots átti Walshans yfir höfði sér þriggja leikja bann fyrir að slá mót- herja fyrir skömmu. Þrátt fyrir þessi vandræði hans hefur hann reynzt Kefl- vikingunum vel á körfuknattleikssvið- inu og skoraði m.a. 55 stig fyrir lið sitt í sigri yfir Grindavík um síðustu helgi. Þetta brot Walshans verður þess valdandi að eftirlit á nokkrum erlend- um leikmönnum, sem grunaðir hafa verið um fikniefnaneyzlu, verður hert til muna og geta þeir varla gert sér vonir um að fá að reykja sitt hass í friði. Mál sem þetta er að vonum ákaflega neikvætt fyrir körfuknattleikinn og er leitt til þess að vita að leikmenn skuli staðnir að slíku á þessum uppgangstím- um íþróttarinnar hér á landi. Að sjálf- sögðu verður að taka á slíkum brotum með hörku eins og gert var í máli Wals- hans og Iosa okkur við þennan ósóma. - SSv. Peter Ward. Brían Clough keypti Ward Ekkert lát er á kaupum Brian Clough, framkvæmdastjóra Notting- ham Forcst. í gærkvöldi festi hann kaup á framherjanum knáa frá Brighton, Peter Ward, fyrir um 600.000 sterlingspund. Koma þessi kaup nokkuð á óvart þar sem ekki cr að sjá að Forest vanti nauðsynlega fram- herja. Þar eru þegar fyrir Tony Wood- cock, John Robertson og Gary Birtles og auk þess hefur Trevor Francis leikið sem framherji með góðum árangri. Ward hefur lengi verið óánægður hjá Brighton og miklar fortölur þurfti til að fá hann til að skrifa undir samning hjá félaginu í haust. „Það er ekki til neins að halda í hann,” sagði fram- kvæmdastjóri Brighton, Alan Mullery, í gær. „Ward vill greinilega ekki leika fyrir Brighton og því er ekkert til fyrir- stöðu að hann leiki með öðru félagi.” Broddi. DB-myndir Hörður. INNKAUPASTJÖRAR Mikið úrval af: Gjafavörum — leikföngum — jólatrésskrauti — spilum og snyrtivörum. Heildverdun Suöurgötu t4 Reykjavík Peturs Peturssonar stmar 21020 - 25101 SKARTGRIPIR við öll tœkifœri SIGMAR 6. MARÍUSSON Hverfisgötu 16A - Sími 21355.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.