Dagblaðið - 21.11.1979, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Tíu dagar eftir:
Uppskriftimar streyma inn
10 milljón kr. verðlaunakaka f rá USA
Nú eru uppskriftirnar farnar að
streyma inn í keppni Dagblaðsins og
Landssambands bakarameistara. Þar
má sjáýmsar gómsætar og jafnframt'
óvenjulegar uppskriftir, — verðið er
allt vel og skilmerkilega útreiknað.
Dómnefndinni verður svo sannarlega
mikill vandi á höndum að velja úr
beztu kökurnar.
Frestur til að skila inn uppskriftum
rennur út 1. desember næstkomandi
þannig að vissara er fyrir þá sem
búsettir eru fjarri höfuðborginni að
drífa sínar uppskfiftir í póst sem allra
fyrst.
Ölluni er heimil þátttaka nema
starfandi bökurum, en hver og einn
má aðeins senda eina uppskrift. —
Fyrst verða valdar tíu eða tuttugu
beztu uppskriftirnar að dómi dóm-
nefndarinnar. Þeir sem þær sendu
verða síðan kvaddir allir á einn stað
með kökurnar og þá verður smakkað
á þeim. Það verður ekkTáðeins tekið
tillit til gæða, heldur einnig að um sé
að ræða ódýra köku í framleiðslu.
Fyrstu verðlaun eru Flórídaferð fyrir
tvo og í II. og 111. verðlaun verða
heimilistæki. — Það er því aldeilis til
mikils að vinna.
Hún lætur svo sem ekki mikið yfir sér þessi kaka, sem vann til svo rosalegra verðlauna. En það var nú I henni Ameriku, þar
sem allt er svo stórt i sniðum.
Merking
hrossa-
ELDHÚSKRÓKURINN
kjöts
Folaldakjöt er merkt sem hér segir:
FOI — Vel holdfylltir skrokkar og
útlitsgóðir, 50 kg og þyngri og ekki
eldri en 9 mánaða.
FOII — Holdþynnri skrokkar á
sama aldri og vel útlítandi skrokkar
undir 50 kg.
Trippakjöt er merkt sem hér segir:
TRI — Trippi 9 mánaða til 3ja ára.
Vel holdfyllt og hæfilega feitt með
gott útlit.
TRII — Holdþynnri trippi á sama
aldri eða mjög feit en vel útlítandi að
öðru leyti.
Hrossakjöt er merkt sem hér
segir:
HRI — Hross 4ra til 9 ára. Hæfilega
holdfylltir skrokkar og ekki of feitir
meðgott útlit.
HRII — Hross 10 ára og eldri. Vel-
útlítandi og hæfilega feitir skrokkar.
HRIII — Skrokkarafhrossum lOára
og eldri. Holdlitlir eða mjög feitir.
Sérstaklega af gömlum stóðhryssum
Kjöt af hrossum skiptist f folaldakjöt, trippakjöt og hrossakjöL
og graðhestum. Einnig lélegir
skrokkar af folöldum, trippum og
hrossum 5 ára og eldri og allir
skrokkar af hrossum með heilbrigðis-
stimpil 2.
Næst segir frá svínakjöti.
Þetta er skemmtileg uppákoma í
svartasta skammdeginu. Þá er heldur
ekki ónýtt að fá nýjar, spennandi og
ódýrar kökuuppskriftir svona rétt
fyrir jólin. Ýmsir sem kannski baka
aldrei ýfir árið taka sig til og baka
einmitt fyrir jólin.
Á dögunum sögðum við frá 20
milljón kr. verðlaunaköku í lands-
keppni í Bandaríkjunum. Hér á eftir
er uppskrift af köku sem fékk 25
þúsund dollara í verðlaun, eða sem
svarar nímlega 10 milljón ferða-
mannakrónum! Kannski einhver vilji
prófa að baka þessa frægu köku:
Appelsínukaka
Hakkið saman......
1 stóra appelsínu, bæði börkinn og
kjötið (geymið safann þar til síðar),
1 bolla steinlausar rúsínur og 1/3
bolla valhnetur.
Sigtið saman. . . .
2 bolla hveiti, 1 tsk sóda, 1 tsk salt
og 1 bolla sykur.
Bætið út í....
1/2 bolla smjörlíki og 3/4 bolla
mjólk.
Hrærið. . . .
þessu saman þar tíl allt deigið er
orðið vel samfellt.
Bætið þá út í. . . .
2 eggjum og 1/4 bolla mjólk og
hrærið vel í.
Látið þá......
appelsínu-, rúsínu- og hnetuhakkið
út í degið.
Látið í. . . .
vel smurt form 30,5 x 20,5, 5x5 eða
33 x 21,5, 5 x 5 cm á stærð.
Bakast.......
í um það bil 40—50 mín. í 162°C
heitum ofni.
Þegar kakan er bökuð er hellt ofan
á hana heita 1/3 bolla af appelsínu-
safa og blöndu af 1/3 bolla sykri, 1
tsk kanel og 1/4 bolla af valhnetum.
Skreytið síðan með appelsínusneið-
um ef vill.
Hráefnið í þessa verðlaunaköku
telst okkur að kosti mjög nálægt 1300
kr.
-A.Bj.
Reglur samkeppninnar
Eftirfarandi roglur hafa verið settar í uppskriftasamkeppni Landssambands bakarameistara og
Dagblaðsins:
1. Þétttaka er ö/lum heimil nema stariandi bökurum.
2. Uppskriftunum skaI skilað tiI Dagblaðsins fyrir 1. desember á meðfyigjandi eyðublaði.
3. Hverjum þitttakanda er einungis heimift að senda eina uppskrift
4. Tokið verður tiliit til hróefniskostnaðar enda er verið að leita eftir ódýrum uppskriftum.
5. Landssamband bakarameistara óskilur sór róðstöfunarrótt yfírþeim uppskriftum sem berast
Uppskriftasamkeppni
Lnndssnmbands bakarameistara
og Dagblaðsins.
Nafn:_____________________
Heimili:__________________
Sími:______
Nafn uppskriftar: ________________
Magn:________________
Hráefni grömm Verðpr.ein. Samtals
Samtaís:
Bökunarhiti:.
Bökunartími:
Skýringar: _